Morgunblaðið - 21.05.2003, Síða 46
ÍÞRÓTTIR
46 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
SIGURBJÖRN Hreiðarsson, fyrir-
liði Vals, fær annað mark liðs síns í
leiknum við Grindavík á dögunum
skráð á sig, en ekki Jóhann bróðir
hans. Þetta kemur fram á heimasíðu
Knattspyrnusambandsins í gær.
Þar segir að það eina sem hafi
komið frá Alþjóðaknattspyrnu-
sambandinu varðandi atvik sem
þetta sé að finna í grein frá árinu
1997. Þar komi meðal annars fram
að grundvallarreglan sé sú að leik-
maður sé skráður sem markaskor-
ari ef hann er síðastur í sínu liði til
þess að snerta knöttinn áður en
hann fer yfir marklínu mótherja. Í
umræddu tilviki var það Sigurbjörn.
Aðeins öðruvísi viðmið er notað
fari boltinn af varnarmanni og í
hans eigið mark. Sjálfsmark er að-
eins skráð á leikmann ef hann veld-
ur því með ákveðnum hætti að bolt-
inn fari í eigið mark, ekki til dæmis
sé hann að reyna að koma í veg fyr-
ir að boltinn fari í netið eftir skot
mótherja.
Sigurbjörn
skoraði fyrir
Valsmenn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sigurbjörn Hreiðarsson
SCOTT Ramsay, knattspyrnumaður
frá Skotlandi, handsalaði í gær-
kvöld samning við 1. deildarlið Kefl-
víkinga til loka næsta tímabils.
Ramsay, sem er 27 ára, hefur leikið
með Grindvíkingum undanfarin
fimm ár og á að baki með þeim 81
leik í úrvalsdeild. Hann gekk í vetur
til liðs við KR en hætti þar af per-
sónulegum ástæðum fyrir nokkrum
vikum og fór heim til Skotlands.
„Ramsay kom til landsins í dag og
var á fyrstu æfingu hjá okkur áðan.
Við eigum eftir að ganga frá málum
við KR en vonandi tekst það á næstu
dögum,“ sagði Rúnar Arnarson, for-
maður knattspyrnudeildar Kefla-
víkur, við Morgunblaðið í gærkvöld.
Ramsay
samdi við
Keflavík
GUNNAR Berg Viktorsson, hand-
knattleiksmaður, skrifaði í gær
undir tveggja ára samning við
þýska liðið Wetzlar. Gunnar hefur
verið á mála hjá Paris SG í Frakk-
landi undanfarin tvö ár en ekki stóð
til að hann yrði lengur hjá félaginu.
„Ég er gríðarlega ánægður með
að þessi mál skulu vera komin á
hreint og ég hlakka mikið til að
spila í Þýskalandi og í þessari
sterkustu deild í heimi,“ sagði
Gunnar Berg við Morgunblaðið í
gær.
Gunnar Berg hefur ekki verið
sáttur við veruna hjá Parísarliðinu
þar sem hann hefur lítið fengið að
spreyta sig. Eyjamaðurinn hefur
verið viðloðandi íslenska landsliðið
undanfarin ár og var í landsliðs-
hópnum sem keppti á HM í Portú-
gal í vetur. Gunnar hlaut hins veg-
ar ekki náð fyrir augum Guðmund-
ar Guðmundssonar landsliðs-
þjálfara þegar hann valdi æfinga-
hóp sinn fyrir komandi verkefni
með landsliðinu í lok maí og byrjun
júní.
„Með því að fara til Wetzlar von-
ast ég til að geta náð mér á strik á
nýjan leik. Ég hef ekki verið
ánægður í Frakklandi enda lítið
fengið að spila. Ég hef metnað fyrir
því að vinna mér sæti í landsliðinu
aftur og ég hef hef tekið stefnuna á
að vera með á Ólympíuleikunum á
næsta ári,“ sagði Gunnar Berg sem
flytur til Þýskalands í byrjun næsta
mánaðar.
Hjá Wetzlar hittir Gunnar Berg
fyrir Róbert Sighvatsson sem ekki
alls fyrir löngu gerði nýjan samn-
ing við félagið sem gildir til vorsins
2005.
Gunnar Berg samdi við Wetzlar
Sóknartilburðir Þróttar/Haukavoru ívið betri en þegar Vest-
urbæingar voru búnir að jafna sig á
því náðu þeir undir-
tökunum og Hrefna
átti þrumuskot í
stöng áður en Sól-
veig Þórarinsdóttir
skoraði fyrir KR. Það tók heimasæt-
urnar nokkrar mínútur að jafna sig
en þeim gekk illa að byggja upp
sóknir, fengu reyndar gott færi á 39.
mínútu þegar Anna Björg Björns-
dóttir slapp innfyrir vörn KR en
Þóra B. Helgadóttir varði ágætlega.
Gestirnir linntu ekki látum eftir
hlé fyrr en Hrefna hafði skorað tví-
vegis og Guðrún Jóna Kristjánsdótt-
ir einu sinni. Það var því á brattann
að sækja fyrir Þrótt/Hauka og Guð-
rún Sóley Gunnarsdóttir bætti við
fimmta marki KR. Reyndar fékk
Hrefna færi á að skora þrennu en
skot hennar fór í slá.
„Við vorum mjög góðar í fyrri
hálfleik en klikkuðum einu sinni og
var refsað fyrir það en við fengum
ágætt færi,“ sagði Íris Eysteinsdótt-
ir, þjálfari og leikmaður Þróttar/
Hauka, eftir leikinn. „Eftir hlé
misstum við algerlega einbeitinguna,
þær skoruðu tvisvar eftir horn þegar
við vorum alls ekki að gæta leik-
manna inni í teig og okkur er refsað
fyrir það á móti góðu liði eins og
KR,“ sagði Íris. „Allur okkar und-
irbúningur, andlegur og líkamlegur,
hefur snúist um þennan leik enda
mátti sjá að við vorum tilbúnar í fyrri
hálfleik. Við bárum enga virðingu
fyrir KR-liðinu og höfðum í fullu tré
við þær enda tel ég að það hafi ríkt
jafnræði fyrir hlé. Hinsvegar er það
ekki nóg í þessari deild, það þarf að
vera góður allan leikinn. Ég sá
margt sem ég þarf að laga fyrir
næsta leik en ég sá líka að við getum
vel keppt við hin liðin og ég er alls
óhrædd við framhaldið.“ Íris. Anna
Björg og Nanna Rut Jónsdóttir voru
bestar hjá Þrótti/Haukum.
„Við vorum án margra lykilmanna
svo að þetta eru viðunandi úrslit,“
sagði Hrefna eftir leikinn. „Fyrsti
leikur er oft ekkert sérstakur en
seinni hálfleikur hjá okkur var betri.
Það var sálrænt áfall að það skyldi
koma í ljós í dag að Ásthildur yrði
ekki með því að hún skiptir miklu
máli í leik okkar en við leystum það
vel.“
Val var spáð efsta sæti deildarinn-
ar en KR öðru í þetta sinn. „Ef miðað
er við leiki okkar í vetur var ekki
hægt að búast við að okkur yrði spáð
efsta sætinu en ég held að það setja
bara aukna pressu á Val að vera spáð
sigri. Við erum með mjög ungt lið og
þegar Guðrún Jóna fór útaf var ég
elst á vellinum. Það er talað um að
við séum gamlar og reyndar – það er
ekki rétt, við erum með ungt og efni-
legt lið.“
Öruggur Eyjasigur
Eyjastúlkur unnu StjörnunaíVestmannaeyjum í gærkvöldi
með fjórum mörkum gegn engu.
Leikurinn var í
heildina frekar
bragðdaufur en þó
sáust góð tilþrif inn á
milli. Eftir aðeins
þrjár mínútur tóku Eyjastúlkur for-
ystuna en þá fékk Mhairi Gilmor
boltann inn fyrir vörn Stjörnunnar
og skaut föstu skoti undir Láru
Björk Einarsdóttur, markvörð gest-
anna.
Yfirburðir Eyjastúlkna í fyrri
hálfleik voru algjörir og á 33. mínútu
bættu þær við marki þegar Lind
Hrafnsdóttir skaut af löngu færi yfir
markvörð Stjörnunnar. Það var svo
á síðustu mínútu hálfleiksins sem
markamaskínan Olga Færseth skor-
aði sitt fyrsta mark á Íslandsmóti
fyrir ÍBV og þriðja mark liðsins og
þannig stóðu leikar í hálfleik.
Stjörnustúlkur mættu grimmari
til leiks í síðari hálfleik og sköpuðu
sér nokkur færi en náðu þó ekki að
nýta sér það. Reyndar voru færin í
seinni hálfleik sárafá og mikið um
miðjuþóf. Olga Færseth gerði svo
endanlega út um leikinn á 88. mínútu
þegar hún fékk boltann utarlega í
teig andstæðingana, sneri sér við og
virtist ætla að senda boltann fyrir en
setti hann þess í stað í nærhornið án
þess að Lára Björk kæmi neinum
vörnum við.
Olga og Michelle Barr voru bestu
leikmenn heimaliðsins en eins átti
Lind Hrafnsdóttir góða spretti. Hjá
gestunum átti Harpa Þorsteinsdótt-
ir góða spretti og einnig Guðrún
Halla Finnsdóttir.
Olga Færseth var ánægð með úr-
slitin í leikslok. „Það er frábært að
vinna 4:0 í fyrsta leik og ég held að
þetta sé það sem koma skal hjá okk-
ur í sumar. Við stefndum á að byrja
vel, það var vandamál hjá okkur í
deildabikarnum en það tókst í dag,
við skoruðum mark strax í byrjun og
náðum að halda þeim krafti út fyrri
hálfleikinn en svo kom frekar slæm-
ur seinni hálfleikur,“ sagði Olga.
Spurð um næsta leik, gegn Þrótti/
Haukum, sagðist Olga búast við
þeim mjög ákveðnum. „Þær eru
þekktar fyrir að vera fastar fyrir og
ákveðnar svo við verðum bara að
mæta þeim ákveðnar,“ sagði Olga.
Fimm mörk í
fyrsta leik KR
FRUMRAUN sameinaðs kvennaliðs Þróttar og Hauka í úrvalsdeild-
inni knattspyrnu lofaði góðu fyrstu 15 mínúturnar gegn KR á Val-
bjarnarvelli í gærkvöld. Það dugði samt engan veginn því þraut-
reyndir mótherjar þeirra náðu undirtökunum og unnu 5:0. Hrefna
Jóhannesdóttir skoraði tvö af mörkum KR-inga í leiknum.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Sigursveinn
Þórðarson
skrifar
ÞRÓTTARAR urðu fyrstu
nýliðarnir í úrvalsdeildinni í
knattspyrnu til þess að tapa
leik í fyrstu umferð deildar-
innar í sex ár, þegar þeir
biðu lægri hlut fyrir KR í
fyrrakvöld, 2:1.
Fram tapaði fyrir Kefla-
vík, 1:0, í fyrsta leik sínum
árið 1997 en frá þeim tíma
hafa nýliðar ávallt byrjað
vel.
Árið 1998 gerðu bæði
Þróttur og ÍR jafntefli í
fyrstu umferð, árið 1999
unnu bæði Breiðablik og Vík-
ingur sína leiki, árið 2000
gerðu bæði Stjarnan og Fylk-
ir jafntefli, árið 2001 vann
Valur sinn leik og FH gerði
jafntefli og í fyrra vann Þór
og KA gerði jafntefli.
Fyrsta tap
nýliða
í sex ár
O’Leary
tekur við
Aston Villa
DAVID O’Leary var í gær
ráðinn knattspyrnustjóri
Aston Villa, en Guðjón Þórð-
arson hafði verið orðaður við
þá stöðu. Samningur O’Leary
er til þriggja ára og tekur
hann við af Graham Taylor,
sem sagði af sér í síðustu
viku eftir að hafa verið hjá
félaginu í 18 mánuði.
Írinn var áður við stjórn-
völinn hjá Leeds United, kom
meðal annars liðinu í undan-
úrslit í meistaradeild Evrópu
árið 2000 en hann var látinn
fara fyrir ári og hefur verið
án atvinnu síðan.
KNATTSPYRNA
Efsta deild kvenna
Landsbankadeild
Þróttur/Haukar - KR.............................. 0:5
Hrefna Jóhannesdóttir 49., 54., Sólveig
Þórarinsdóttir 21., Guðrún Jóna Kristjáns-
dóttir 60., Guðrún Sóley Gunnarsdóttir 75.
ÍBV - Stjarnan.......................................... 4:0
Olga Færseth 45., 88., Mhairi Gilmour 4.,
Lind Hrafnsdóttir 33.
Valur - FH................................................. 2:0
Dóra María Lárusdóttir 30., Laufey Ólafs-
dóttir 62.
Staðan:
KR 1 1 0 0 5:0 3
ÍBV 1 1 0 0 4:0 3
Valur 1 1 0 0 2:0 3
Breiðablik 1 1 0 0 2:1 3
Þór/KA/KS 1 0 0 1 1:2 0
FH 1 0 0 1 0:2 0
Stjarnan 1 0 0 1 0:4 0
Þróttur/Haukar 1 0 0 1 0:5 0
Bikarkeppni karla
VISA-bikarinn, 1. umferð:
HK 23 - Valur 23....................................... 3:2
HK 23 mætir ÍR eða Kili.
Skallagrímur - ÍH..................................... 3:1
Skallagrímur mætir Deiglunni.
Keflavík 23 - Þróttur R. 23 ...................... 7:1
Keflavík 23 mætir Breiðabliki.
Grindavík 23 - Fram 23............................ 1:2
Fram 23 mætir Hamri eða KFS.
Víkingur Ó. - ÍA 23 ................................... 0:1
ÍA 23 mætir KR 23.
Völsungur 23 - Snörtur ............................ 2:3
Snörtur frá Kópaskeri, sem lék sinn
fyrsta leik í KSÍ-móti í gær, mætir KS.
ÍR 23 - Deiglan.......................................... 1:3
Deiglan mætir Skallagrími.
Neisti D. - Fjarðabyggð........................... 1:3
Fjarðabyggð mætir Hetti.
Grótta - Haukar 23 ................................... 0:2
Haukar 23 mæta HK eða Leikni R.
Freyr - Breiðablik 23 ............................... 0:4
Breiðablik 23 mætir Njarðvík.
Reynir S. - FH 23 ..................................... 2:3
FH 23 mætir Stjörnunni 23 eða Selfossi.
Höttur - Einherji ...................................... 2:0
Höttur mætir Fjarðabyggð.
KR 23 - Afríka........................................... 4:2
KR 23 mætir ÍA 23.
Ítalía
Bikarkeppnin, fyrri úrslitaleikur:
Roma - AC Milan...................................... 1:4
Francesco Totti 28. - Serginho 65. (víti), 72.,
Ambrosini 69., Shevchenko 88.
Frakkland
Montpellier - Lyon ....................................1:1
Bastia - Sochaux ........................................2:2
Guingamp - Mónakó..................................3:1
Le Havre - Lens ........................................1:3
Lille - Ajaccio.............................................2:0
Marseille - Sedan.......................................4:2
Nice - Bordeaux.........................................1:1
París SG - Rennes .....................................0:0
Strasbourg - Auxerre................................1:2
Troyes - Nantes.........................................2:0
Staðan:
Lyon 37 19 11 7 62:37 68
Marseille 37 19 8 10 41:35 65
Mónakó 37 18 10 9 60:33 64
Bordeaux 37 17 10 10 55:36 61
Sochaux 37 16 13 8 44:30 61
Auxerre 37 17 10 10 36:29 61
Guingamp 37 18 5 14 55:45 59
Nice 37 13 16 8 38:29 55
París SG 37 14 12 11 47:34 54
Lens 37 13 15 9 41:31 54
Nantes 37 15 8 14 36:39 53
Bastia 37 12 11 14 40:46 47
Strasbourg 37 11 11 15 40:54 44
Lille 37 10 12 15 29:42 42
Montpellier 37 10 10 17 36:51 40
Ajaccio 37 9 11 17 29:49 38
Sedan 37 9 9 19 40:57 36
Le Havre 37 9 9 19 26:46 36
Rennes 37 8 11 18 32:45 35
Troyes 37 7 10 20 23:42 31
Svíþjóð
Halmstad - Helsingborg...........................0:1