Morgunblaðið - 21.05.2003, Side 47

Morgunblaðið - 21.05.2003, Side 47
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003 47 HELGI Kolviðsson hefur gengið frá nýjum samn- ingi til tveggja ára við austurríska knattspyrnu- félagið Kärnten en hann hefur leikið með því tvö undanfarin ár. Helgi, sem er 31 árs, hefur ver- ið í lykilhlutverki í liði Kärnten sem á dögunum tryggði sér sæti í UEFA- bikarnum næsta haust með því að komast í bik- arúrslitin í Austurríki, gegn nýbökuðum meisturum Austria Vín. Kärnten er í sjöunda sæti úrvalsdeildarinnar og hefur leikið í Evrópukeppni bæði fyrri ár- in eftir að Helgi kom þangað en þá var félagið nýliði í úr- valsdeildinni. „Mér líður mjög vel hjá félaginu og ég er ánægð- ur með að verða hérna áfram. Samningurinn er í raun opinn þannig að ég á alveg eins von á að spila hér í 4–5 ár til við- bótar ef allt gengur að óskum og forráðamenn Kärnten hafa nefnt við mig þann möguleika að ég starfi við þjálfun hjá félaginu eftir það,“ sagði Helgi við Morgunblaðið í gærkvöld. Hann hefur leikið 29 leiki með A-landsliði Íslands, síðast gegn Eistlandi í Tall- inn í nóvember. Helgi Kolviðsson samdi við Kärnten AC MILAN stendur vel í ítölsku bikarkeppninni eftir að liðið lagði Roma 4:1 í gærkvöldi í fyrri úr- slitaleiknum, en leikið var í Rómaborg. Heimamenn byrjuðu vel og Francesco Totti kom þeim yfir á 28. mínútu og jafnræði var með liðunum langt fram í síðari hálf- leik og ekkert sem benti til að gestirnir myndu vinna stórsigur. Þegar síðari hálfleikur hafði staðið í stundarfjórðung misnot- aði Cafu gott færi til að koma heimamönnum í 2.0. Þetta reynd- ist dýrkeypt því skömmu síðar kom tíu mínútna kafli þar sem gestirnir gerðu út um leikinn, Brasilíumaðurinn Serginho skor- aði tvívegis og Massimo Ambros- ini eitt og undir lok leiksins bætti Andriy Shevchenko fjórða mark- inu við, en þá höfðu heimamenn sótt án afláts og flestir leikmenn liðsins tóku þátt í sókninni. Þetta nýtti Shevchenko sér og stakk varnarmenn af í lokin. HELGI Valur Daníelsson skrifaði í gær undir þriggja ára samning við knattspyrnu- deild Fylkis en hann er á leið í Árbæinn á ný eftir fimm ára dvöl hjá Peterborough í Eng- landi. „Samningurinn við Helga er frágenginn en við bíðum eftir endanlegum stað- festingum frá enska knattspyrnusambandinu um að hann sé laus allra mála frá Peterborough. Við höfum fengið símbréf frá félaginu um að þetta sé allt í höfn og það eru því aðeins síðustu forms- atriðin eftir,“ sagði Ámundi Halldórsson, formaður knatt- spyrnudeildar Fylkis, við Morgunblaðið í gær. Helgi ætti því að vera tilbúinn í slag- inn með Fylkismönnum þegar þeir fá Grindvíkinga í heim- sókn næsta mánudag. Helgi Valur til Fylkis  ERNA Erlendsdóttir, knatt- spyrnukona úr Val, skipti yfir í KR á mánudag og lék í gærkvöld sinn fyrsta leik, gegn Þrótti/Haukum. Erna lék alla leiki Vals í úrvals- deildinni í fyrra og skoraði 6 mörk.  ÁSTHILDUR Helgadóttir, landsliðskona úr KR, lék ekki með liðinu gegn Þrótti/Haukum í gær- kvöld þar sem hún meiddist á æf- ingu.  KR-INGARNIR Einar Þór Daní- elsson og Sigurður Ragnar Eyj- ólfsson voru meðal áhorfenda á leik KR og Þróttar/Hauka í gær- kvöld. Þeir fóru þó varlega í að fagna sigri KR því eiginkonur þeirra, Guðrún Inga Sívertsen og Íris Björk Eysteinsdóttir, spila með Þrótti/Haukum.  SÓLVEIG Þórarinsdóttir, sem skoraði fyrsta mark KR gegn Þrótti/Haukum, er systir Hjálm- ars Þórarinssonar sem skoraði fyrir Þrótt gegn KR í úrvalsdeild karla í fyrrakvöld.  ALLIR sem fengu rauð spjöld í fyrstu leikjum Íslandsmótsins í knattspyrnu um helgina voru úr- skurðaðir í eins leiks bann í gær. Úr úrvalsdeild karla voru það Andri Fannar Óttarsson úr Fram og Bjarnólfur Lárusson úr ÍBV en úr 1. deild þeir Haraldur Hinriks- son og Reynir Bjarni Egilsson úr HK, Albert Arason úr Aftureld- ingu og Andri Rúnar Karlsson úr Leiftri/Dalvík.  ÞJÁLFARAR beggja Kópavogs- liðanna, Goran Kristófer Micic hjá HK og Jörundur Áki Sveinsson hjá Breiðabliki, fengu einnig eins leiks bann vegna brottvísana og félög þeirra voru bæði sektuð. HK um 16 þúsund krónur og Breiðablik um 10 þúsund krónur.  ÞÓRARINN Kristjánsson skor- aði 5 mörk fyrir 23-ára lið Kefla- víkur sem vann 23-ára lið Þróttar úr Reykjavík, 7:1, í bikarkeppni KSÍ í gærkvöld. Þórarinn tók út leikbann með meistaraflokki Kefla- víkur gegn Stjörnunni í fyrrakvöld og var því löglegur með yngra lið- inu.  SÆNSKA stúlkan Annika Sö- renstam leikur með bandarísku kylfingunum Dean Wilson og Aar- on Barber fyrstu tvo hringina á Colonial-golfmótinu í Bandaríkjun- um. Mótið hefst á morgun og verð- ur þetta í fyrsta sinn í 58 ára sögu PGA mótaraðarinnar sem kona keppir, en sérstök mótaröð er fyrir konur, WPGA. Þeir Wilson og Barber eru báðir á fyrsta ári á PGA mótaröðinni.  SÖRENSTAM og félagar hefja leik á morgun á tíunda teig klukk- an 12.58 og á föstudaginn hefja þau leik á fyrsta teig klukkan 17.43. FÓLK Ég get ekki verið annað en stolturaf mínum stúlkum,“ sagði Sig- urður Víðisson, þálfari FH, í leikslok. „Við lögðum upp með að pressa þær fram- arlega á vellinum. Ég er með mjög fljóta framherja sem nýt- ast vel í stöðunni einn á móti einum þó það hafi ekki skilað okkur marki í kvöld. En ég er mjög ánægður með leik liðsins og baráttuna en er vita- skuld ekki sáttur við að hafa ekkert stig út úr leiknum,“ sagði Sigurður. Það var ekki margt sem skildi liðin að í byrjun leiks, bæði lið börðust um hvern einasta bolta og strax á 3. mín- útu sýndu FH-stúlkur að þær voru ekki komnar að Hlíðarenda til að verjast. Eftir snarpa sókn náði Valdís Rögnvaldsdóttir góðu skoti að marki eftir hornspyrnu en Valur bjargaði á línu. Valsstúlkur sóttu í sig veðrið og fengu nokkur ágætis færi en Sigrún Ingólfsdóttir, markvörður FH, var þeim óþægur ljár í þúfu. Sigrún gat þó ekki komið í veg fyrir mark frá Dóru Maríu Lárusdóttur á 30. mín- útu. Guðbjörg Gunnarsdóttir var gömlu félögum sínum í FH erfið í marki Vals og bjargaði nokkrum sinnum vel. Seinni hálfleikur var álíka fjörugur og sá fyrri, það dró nokkuð af FH- ingum um miðbik hálfleiksins án þess þó að Valsstúlkur næðu tökum á leiknum. Laufey Ólafsdóttir bætti við öðru marki á 62. mínútu með skoti úr mjög þröngu færi, boltinn fór í mark- stöngina í Sigrúnu markvörð og það- an í netið. Minnstu munaði að Sif Atladóttir minnkaði muninn fyrir FH á lokamínútu leiksins en Guðbjörg Gunnarsdóttir lokaði vel og skot Sifjar fór framhjá. „Ég er engan veginn nógu sátt við spilamennskuna hjá mínu liði í kvöld,“ sagði Helena Ólafsdóttir, þjálfari Vals, í leikslok. „FH-liðið barðist vel og við náðum ekki upp spili svo neinu nemur og það er nokk- uð sem við verðum að laga fyrir næsta leik,“ sagði Helena sem fer með lið sitt í Vesturbæinn á laugar- dag til móts við meistara KR. Leikurinn í heild sinni var vel leik- inn, leikmenn létu boltann ganga vel sín á milli og náðu mörgum verulega góðum sóknum. FH-ingar verða sýnd veiði en ekki gefin í sumar og ljóst að liðin sjö sem spáð hefur verið betra gengi en þeim í deildinni þurfa að taka leikina gegn FH mjög alvar- lega. Valsstúlkur geta gert miklu betur en þær sýndu í þessum leik þar sem þær fengu verðuga mótspyrnu, þær geta glaðst yfir stigunum en leikur þeirra þarf að batna til muna ætli þær sér að gera atlögu að Ís- landsmeistaratitlinum. Sigrún Ó. Ingólfsdóttir, Valdís Rögnvaldsdóttir og Elísabet Björns- dóttir léku best í liði FH en hjá Val voru þær Guðbjörg Gunnarsdóttir og Laufey Jóhannsdóttir bestar. Morgunblaðið/Kristinn Dóra María Lárusdóttir, sem skoraði fyrra mark Vals gegn FH í gærkvöld, á hér í höggi við Rakel Ósk Halldórsdóttur, leikmann FH, sem lék áður með Val. Naumur sigur Vals- stúlkna gegn FH VALSSTÚLKUR lentu í kröppum dansi að Hlíðarenda í gærkvöldi þegar þær tóku á móti FH í fyrstu umferðinni í Íslandsmeistarabar- áttu kvenna. Val er spáð Íslandsmeistaratitlinum en FH botnsætinu og því áttu margir von á að þarna færi fram leikur kattarins að mús- inni en sú varð ekki raunin. Valur sigraði í hörkuleik 2:0 þar sem FH hefði allt eins getað farið með eitt eða öll stigin heim í Hafnarfjörð. Ingibjörg Hinriksdóttir skrifar AC Milan stendur vel Helgi Kolviðsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.