Morgunblaðið - 21.05.2003, Síða 50
50 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10.Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal. 500 kr.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Miðasala opnar kl. 15.30
kl. 6.
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40. B.i. 12
Kvikmyndir.is
Þetta var hin
fullkomna
brúðkaupsferð...
þangað til hún
byrjaði!
Ertu nokkuð myrkfælinn?
Búðu þig undir að öskra.
Mögnuð hrollvekja sem fór
beint á toppinn í
Bandaríkjunum.
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16.
HK DV
SV MBL Kvikmyndir.com
"Tvöfalt húrra"
Fréttablaðið
X-ið 977
500
kr
Sýnd kl. 8. B.i. 12
Kvikmyndir.com
HK DV
"Tvöfalt
húrra"
Frétta-
blaðið
SV MBL
Kvikmyndir.is
500
kr
Sýnd kl. 6. Ísl. texti.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 10.20.
KVIKMYNDIN Matrix og fram-
haldsmynd hennar, Matrix endur-
hlaðið, hafa vakið athygli fyrir stíl og
útlit. Fyrsta myndin í þríleiknum var
ennfremur valin þriðja stællegasta
myndin frá upphafi í könnun kvik-
myndahúsakeðju í Bretlandi.
Eldri myndir skipa sér í efstu sætin
en Rebel without a Cause með James
Dean í aðalhlutverki frá árinu 1955
lenti í efsta sæti. Önnur klassísk
mynd frá árinu 1961, sem skartaði
Audrey Hepburn í stjörnuhlutverki,
Breakfast at Tiffany’s, er í öðru sæti.
Aðrar myndir á listanum eru einnig í
eldri kantinum en óvenjulegt er að
svo nýleg mynd sem Matrix fái slíkan
stimpil.
Byrjaði hjá
Baz Luhrmann
Kym Barrett er búningahönnuður
Matrix-myndanna en hún vakti
einnig athygli fyrir búningahönn-
un Rómeo og Júlíu í leikstjórn
Ástralans Baz Luhrmanns frá árinu
1996. Hún hóf feril sinn í kvikmynd-
um, sem aðstoðarmaður búninga-
hönnuðar í fyrstu mynd Luhrmanns,
Strictly Ballroom frá 1992.
Þrátt fyrir að sólgleraugu og síðir
frakkar séu einna mest áberandi í
myndinni eru búningarnir mismun-
andi eftir því hvort um er að ræða
tölvu- eða raunheim. „Það líta allir
ósnyrtilegar út í raunheiminum en í
Matrixinu en Morfeus er undantekn-
ing og heldur alltaf virðulegu fasi,“
segir Barrett. Laurence
Fishburne, sem leikur Mor-
feus, er ánægður með
hönnun hennar. „Kym
er algjör snillingur.
Til dæmis eru skórn-
ir sem hún gerði fyr-
ir Morfeus mjög
töff. Þeir gerðu út-
slagið hvað varð-
ar persónu
hans,“ segir
hann. Allir
skórnir sem að-
alleikarar mynd-
arinnar klæðast
eru eftir Bar-
rett og þeirra á meðal eru fjólubláu
krókódílastígvélin hans Morfeusar.
Fishburne segir að sólgleraugun hafi
sitthvað að segja um persónuleika
Morfeusar. Hann tekur þau af sér
til að sýna viðkvæmni Morfeusar
á mikilvæg- um augnablik-
um, eins og
einni senu í elt-
ingaleiknum á
hraðbrautinni.
„Þegar allt fer í hnút
inni í Matrixinu og
Morfeus er ekki
viss um hvort hann
sleppi í þetta sinn
tekur hann sól-
gleraugun af
sér,“ segir
Fishburne.
„Hann verður að
berjast við það sem
er innra með
honum frekar
en ytri
heim,“ seg-
ir hann.
Notagildi og náttúruleg efni
Barrett segir að erfiðasta verkið,
eða í það minnsta það stærsta, hafi
verið að klæða íbúa Síon. „Aukaleik-
ararnir voru fleiri en þúsund talsins
og við þurftum að klæða þá alla. Fötin
þurftu að vera sveitaleg og jafnframt
einföld en fáguð,“ segir hún. Barrett
lagði áherslu á að fötin í Síon væru
búin til úr náttúrulegum efnum,
hampi og öðru, sem hægt væri að
rækta í þessari vélrænu neðanjarð-
arborg.
Jafnframt eru fötin ljós, öfugt við
dimma veröld borgarinnar. „Síon er í
herkví þannig að fötin, sem eru búin
til af íbúunum, og fyrir þá, snúast
frekar um notagildi en tísku. Þrátt
fyrir þetta er fólkið stolt af sögu sinni
og verkkunnáttu og endurspegla
fötin því nytjahyggju samfélags-
ins,“ útskýrir Barrett.
Hún kafaði djúpt inn í æv-
intýraheima fyrir hönnun bún-
inga á Mervíkinginn (Lambert
Wilson) og eiginkonu hans, Perse-
fón (Monicu Bellucci). „Ég leit á þau,
sem einskonar konung og drottningu
í helvíti,“ segir Barrett, sem varð
einnig fyrir áhrifum frá Mjallhvít í
hönnun búninga parsins. Jada Pink-
ett Smith, leikur eina kvenkyns skip-
stjórann í Síon, Niobe. „Við vildum að
klæðnaður hennar bæri bæði vott um
kvenleika og styrk hennar. Hann
þurfti einnig að sýna tengingu hennar
við Morfeus. Við klæddum Jadu í
krókódílaleður og ég valdi vínrautt
því liturinn fór svo vel við húð henn-
ar,“ segir Barrett.
Felulitir stórborgarinnar
Að öðrum ólöstuðum má segja að
Trinity (Carrie Ann Moss) sé stælleg-
ust í myndunum. Hún klæðist í
Matrixinu níðþröngum og svörtum
glansgalla, sem ver hana í bardögum
við jakkafataklædd illmenni. Gallinn
á að líkjast olíubrák, „eða kvikasilfri,
einhverju sem er ekki hægt að festa
hendur á því það hreyfist svo hratt,“
útskýrir Barrett í viðtali við dagblaðið
New York Times. Má segja að bún-
ingarnir í Matrixinu séu í felulitum
stórborgarinnar.
Grafíski hönnuðurinn Stefan Sag-
meister segir í sama viðtali að hann
hafi ekki séð hasarmynd með svo
mikinn stíl síðan Blade Runner var
frumsýnd. Blade Runner, sem er frá
árinu 1982, lenti einmitt í níunda sæti
fyrrnefndrar skoðanakönnunar um
stællegustu kvikmyndir allra tíma.
Bein áhrif á tískuheiminn
Fyrsta Matrix-myndin virðist hafa
haft bein áhrif á tískuheiminn og aldr-
ei að vita nema þau verði meiri með
þessum tveimur myndum er frum-
sýndar eru á árinu. Í haust- og vetr-
arlínu Sean John, fatamerki P. Diddy,
voru síðir leðurfrakkar að hætti Mor-
feusar áberandi. Hönnun Nicolas
Ghesquiere fyrir Balenciaga var líka í
takt við Matrix. Hann sýndi m.a. leð-
urleggings í stíl Trinity.
Ekki er þá allt upptalið því hjá
Dolce og Gabbana mátti sjá framtíð-
arlegar valkyrjur í þröngum buxum
og stuttum jökkum með ótal sylgjum í
haust- og vetrartískusýningu þessa
ítalska pars. Allt er þetta gott og gilt
og þá er bara að bíða og sjá hvort
notkun sólgleraugna innandyra auk-
ist á næstunni.
Rennileg á að líta. Trinity er sannkölluð ofurhetja og hræðist fátt í níðþrönga gallanum sínum.
Laurence Fishburne
leikur Morfeus.
Meira en sólgler-
augu og síðir frakkar
ingarun@mbl.is
Jakkafataklædd illmenni.
Neo (Keanu Reeves) klæðist slitn-
um og þunnum peysum úr nátt-
úrulegu efni í raunheimum.
Fyrstu tvær myndirnar um Matrix hafa
vakið athygli fyrir stílhreint útlit. Inga Rún
Sigurðardóttir kannaði tískuna í þessum
sérstaka framtíðarheimi.