Morgunblaðið - 28.05.2003, Side 1
STOFNAÐ 1913 143. TBL. 91. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Viðburður
ársins
Súperstjarna í myndlistarheim-
inum sýnir á Íslandi Listir 22
Spennan
í hámarki
Sigursælustu lið ítalskrar knatt-
spyrnu mætast í kvöld Íþróttir 45
Andinn
okkur í hag
The Incredible String Band í Íslensku
óperunni á föstudag Fólk 53
TALSMENN arabísku sjón-
varpsstöðvarinnar Al-Jaz-
eera staðfestu í gær að sjón-
varpsstjóranum, Mohamm-
ed Jassem al-Ali, hefði verið
sagt upp störfum. Þeir sögðu
brottreksturinn þó ekki
tengjast ásökunum um að
Ali hefði átt samstarf við
írösku leyniþjónustuna á
meðan á stríðinu í Írak stóð.
Ali var sagður munu
hverfa aftur til starfa sinna
sem útvarps- og sjónvarps-
maður. Jafnframt myndi
hann sitja áfram í stjórn Al-
Jazeera. Ali hafði verið sjón-
varpsstjóri síðan Al-Jazeera
hóf útsendingar 1996.
Ráku
sjónvarps-
stjórann
Doha í Katar. AFP.
JARÐSKJÁLFTI sem mældist að
minnsta kosti 5,5 á Richter-kvarða
skók Alsír síðdegis í gær en aðeins
vika er liðin síðan öflugur jarðskjálfti
kostaði ríflega 2.200 Alsírbúa lífið.
Mikill ótti greip um sig í gær þegar
skjálftinn reið yfir og að minnsta
kosti 200 manns slösuðust þegar
nokkrar byggingar, sem skemmst
höfðu í síðustu viku, hrundu til
grunna. Þá sagði á fréttasíðu BBC að
þrír hefðu beðið bana.
Eftirskjálftinn í gær var sá öflug-
asti frá stóra skjálftanum í síðustu
viku, sem mældist 6,8 á Richter, en
hundruð minni skjálfta hafa fylgt í
kjölfar þess stóra. Voru upptök
skjálftans í gær í bænum Zemmoria,
um 70 km austur af Algeirsborg; á
sama stað og sl. miðvikudag.
Fimmtíu og sjö slösuðust í bænum
Boumerdes en þar fórust a.m.k. 1.000
í skjálftanum í síðustu viku. „Hér
greip um sig mikil skelfing,“ sagði
Mohammed Saidi, læknir í Boumerd-
es, sem AFP-fréttastofan ræddi við.
„Fólk hleypur um felmtri slegið,
menn eru í miklu uppnámi,“ sagði
annar íbúi borgarinnar, Abdellah
Zaidi. „Í kvöld ætla ég ekki að sofa
heima hjá mér, ég er svolítið slæmur
á tauginni. Ég sef í bílnum,“ sagði
Zacharia Yaya, 25 ára gamall íbúi
Boumerdes.
Sjötíu voru sagðir hafa slasast í
bænum Thenia, nálægt Zemmoria, en
þar hrundu einnig nokkur hús til
grunna. Einnig slösuðust um það bil
sextíu manns í höfuðborginni, Al-
geirsborg, þ.á m. einn alvarlega.
Þrír dóu í öflug-
um eftirskjálfta
Reuters
EFTIRSKJÁLFTINN í Alsír í gær jók mjög á angist fólks sem á um sárt að
binda eftir jarðskjálftann í síðustu viku. Þessar konur voru í hópi þeirra í
gær sem vöruðust að fara inn í hús.
Hafast við utan dyra
Algeirsborg. AFP.
UM fjörutíu lögreglumenn á veg-
um efnahagsbrotadeildar sænsku
lögreglunnar tóku þátt í húsleit á
heimilum og skrifstofum í fimm
löndum í gær. Rannsóknin beinist
að meintum innherjasvikum sex
einstaklinga sem grunaðir eru um
að hafa notfært sér trúnaðarupp-
lýsingar sem þeir eru taldir hafa
búið yfir um kaup Kaupþings
banka á hlutabréfum í sænska
bankanum JP Nordiska á síðasta
ári.
Efnahagsbrotadeild sænsku
ríkislögreglunnar hafði umsjón
með rannsókninni en naut aðstoð-
ar lögreglu í löndunum fimm; Ís-
landi, Svíþjóð, Englandi, Lúxem-
borg og Þýskalandi.
Að sögn Alf L. Johansson, að-
alsaksóknara efnahagsbrotadeild-
ar sænsku lögreglunnar, hefur
verið unnið að rannsókn málsins
frá því í október á síðasta ári. Mál-
inu hafi verið vísað til lögreglu af
sænska fjármálaeftirlitinu en bent
hafi verið á að nokkrir einstakling-
ar hafi síðastliðið sumar keypt
mikið af hlutabréfum í JP Nord-
iska skömmu áður en Kaupþing
gerði yfirtökutilboð í bankann.
Hagnaðurinn 45 milljónir
Hagnað einstaklinganna sex af
viðskiptum þessum segir hann
hafa numið um fimm milljónum
sænskra króna en það jafngildir
rúmlega 45 milljónum íslenskra
króna. „Ef við lítum eingöngu á
hagnaðinn í þessum viðskiptum
gæti þetta reynst umfangsmesta
brot af þessu tagi er við höfum séð
í Svíþjóð,“ sagði Johansson í sam-
tali við Morgunblaðið.
Johansson segir að refsiramm-
inn í alvarlegum málum sem þess-
um sé fangelsisdómar frá sex mán-
uðum upp í fjögur ár.
Meðal þeirra sem gerð var hús-
leit hjá í gær var Lýður Guð-
mundsson, forstjóri Bakkavarar
Group, en Bakkavör Group er stór
hluthafi í Meiði, sem er stærsti ein-
staki hluthafinn í Kaupþingi Bún-
aðarbanka. Auk þess var gerð hús-
leit í höfuðstöðvum Bakkavarar
Group í London.
Bakkavör Group hefur aldrei
keypt hlutafé í JP Nordiska en
sameignarfélag þeirra Lýðs og
Ágústs bróður hans, Bakkabræð-
ur, keypti þrisvar sinnum hluta-
bréf í JP Nordiska í júní á síðasta
ári. Alls keyptu Bakkabræður bréf
í JP Nordiska fyrir 4,1 milljón
sænskra króna á tímabilinu 11.
júní til 27. júní 2002. Að sögn
þeirra bræðra og Sigurðar Einars-
sonar, stjórnarformanns Kaup-
þings Búnaðarbanka, lá ljóst fyrir
á þeim tíma að Kaupþing ætlaði að
gera yfirtökutilboð í JP Nordiska.
Beinist gegn viðskipta-
vinum Kaupþings
Hreiðar Már Sigurðsson, for-
stjóri Kaupþings, segir að rann-
sókn sænsku efnahagsbrotadeild-
arinnar beinist gegn við-
skiptavinum Kaupþings en ekki
gegn Kaupþingi og snúist ekki um
persónuleg viðskipti starfsmanna
Kaupþings.
Innherjar eru þeir aðilar kallað-
ir sem hafa aðgang að trúnaðar-
upplýsingum tiltekins félags. Um
viðskipti innherja með bréf við-
komandi félags gilda sérstakar
reglur þar sem þessum aðilum er í
meginatriðum óheimilt að nýta
trúnaðarupplýsingar til að afla við-
komandi bréfa eða ráðstafa þeim,
sjálfum sér eða öðrum til hags-
bóta. Innherjaviðskipti eru aðeins
ólögleg þegar ákvörðun um þau er
grundvölluð á trúnaðarupplýsing-
um um félag sem ekki hafa verið
gerðar opinberar en eru til þess
fallnar að hafa áhrif á verð bréf-
anna.
Meint innherjasvik tengd yfirtöku Kaupþings á JP Nordiska rannsökuð
Gæti reynst mesta brot
sinnar tegundar í Svíþjóð
Meint innherjasvik/Miðopna
RÁÐAMENN í Bandaríkjunum sendu írönskum
stjórnvöldum í gær tóninn vegna meints stuðnings
þeirra við al-Qaeda-hryðjuverkasamtökin og íhlut-
unar í stjórnmál nágrannaríkisins Íraks. Sagði
Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra í ræðu sem
hann flutti hjá rannsóknastofnunni Council on
Foreign Relations að klerkastjórnin í Íran mætti
vita að allar tilraunir til að stuðla að sama stjórn-
arfyrirkomulagi í Írak „yrðu barðar niður af
krafti“.
Fyrr um daginn hafði Ari Fleischer, talsmaður
Bandaríkjaforseta, fordæmt frammistöðu stjórn-
valda í Teheran í baráttunni gegn hryðjuverkum.
Bandaríkjamenn gruna írönsk stjórnvöld um að
hafa skotið skjólshúsi yfir liðsmenn al-Qaeda-
hryðjuverkasamtakanna, jafnvel að undirbúning-
ur vegna hryðjuverkaárásarinnar í Sádí-Arabíu
12. maí sl. hafi farið fram í Íran. Er Bandaríkja-
stjórn sögð hugleiða aðgerðir sem yrðu til þess
fallnar að grafa undan stjórnvöldum í Teheran.
Colin Powell utanríkisráðherra sagðist þó ekki
vera kunnugt um að ákveðin hefði verið ný og
harðari stefna gagnvart Íran. Áfram yrði haldið
uppi samskiptum við írönsk stjórnvöld.
Talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins,
Hamid Assefi, réð Bandaríkjastjórn aftur á móti
frá því að skipta sér af innanríkismálum Írans.
„Við vonum að skynsemi og rökvísi hafi vinninginn
í hugleiðingum Bandaríkjamanna,“ sagði hann.
AP
Donald Rumsfeld flytur ávarp sitt í gær.
Bandaríkin
senda Írön-
um tóninn
Teheran, Washington. AFP.
Rumsfeld varar Írana
við afskiptum í Írak
SÆNSKIR fjölmiðlar fjölluðu um innherjamálið í gær og skýrðu frá
því að hinir grunuðu hefðu keypt um 900 þúsund hluti í JP Nordiska
frá 10. júní til 29. ágúst á síðasta ári. Samsvara viðskipti þeirra 92,7%
heildarviðskipta með bréf í JP Nordiska á þessu tímabili og líktu
sænskir fjölmiðlar því við það að þeir hefðu „ryksugað“ markaðinn
með bréf í sænska bankanum síðasta sumar. Alf L. Johansson, aðal-
saksóknari sænsku efnahagsbrotadeildarinnar, segir hagnað hinna
meintu brota jafngilda 45 milljónum íslenskra króna.
Áttu 92,7% viðskipta
Töldum hlutabréf í JP Nordiska vænlegan kost í ljósi opinberra upplýsinga
segja Ágúst og Lýður Guðmundssynir eigendur Bakkabræðra sf.