Morgunblaðið - 28.05.2003, Qupperneq 19
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2003 19
NEMENDUR úr Síðuskóla tóku
fyrstu skóflustungurnar að nýju
íþróttahúsi skólans og viðbyggingu
við hann nú í vikunni, en efnt var
til hugmyndasamkeppni um við-
byggingu, hönnun á lóð, sal og
íþróttahúsi á síðasta ári. Viðbygg-
ingin þjónar sem anddyri skólans
en nýtist stjórnunarálmu hans
einnig og virkar sem eins konar
miðja skólans þar sem verður mat-
salur, fyrirlestraaðstaða, námskeið
haldin, þar verður góð aðstaða til
leiksýninga og annað félagsstarf á
vegum skólans og hverfisins. Í
íþróttahúsinu verður kennslu-
húsnæði fyrir íþróttir í skólanum
og þá gefst almenningi kostur á að
stunda þar íþróttir eftir að skóla-
starfi lýkur.
Framkvæmdunum er ætlað að
bæta aðgengi fyrir fatlaða um
skólann.
Stærð húsnæðisins alls er um
2.250 fermetrar, þar af er íþrótta-
húsið um 1400 fermetrar brúttó-
stærð alls þess húsnæðis sem Síðu-
skóli hefur til ráðstöfunar rúmlega
verður því um7.200 fermetrar eftir
að framkvæmdum lýkur.
Fjögur tilboð bárust í verkið en
Tréverk bauð lægst og voru samn-
ingar undirritaðir fyrr í þessum
mánuði að upphæð 320 milljónir
króna. Framkvæmdir við lóð munu
kosta um 42 milljónir króna. Verk-
inu á að ljúka í lok júlí á næsta ári.
Morgunblaðið/Kristján
Fulltrúar bekkjardeilda tóku fyrstu skóflustungurnar ásamt Ólafi Thor-
oddsen skólastjóra og svo sungu yngstu nemendurnir nokkur lög.
Fram-
kvæmdir
hafnar við
Síðuskóla
Karlakór Eyjafjarðar heldur vor-
tónleika sína í Laugarborg í kvöld,
miðvikudagskvöldið 28. maí, kl.
20.30. Stjórnandi er Petra Björk
Pálsdóttir. Á píanó leikur Daníel
Þorsteinsson, Haukur Ingólfsson
leikur á bassa, Rafn Sveinsson á
trommur og Bjarni Kristinsson á
fiðlu. Einsöngvarar verða Haraldur
Hauksson, Petra Björk Pálsdóttir,
Snorri Snorrason, Stefán Birgisson
og Þorsteinn Jósepsson. Efnisskráin
er fjölbreytt og lagaval nýstárlegt að
því er fram kemur í frétt frá kórn-
um, en m.a. verða sungin lög af nýj-
um diski kórsins, Gestaboði.
Skólaslit Tónlistarskólans á
Akureyri verða í Glerárkirkju í dag,
miðvikudaginn 28. maí, kl. 18.
Nemendur sem eru að ljúka námi
frá skólanum í vor verða með tónlist-
aratriði og fá nemendur afhent
námsmat.
Í DAG
ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð Ak-
ureyrar hefur hafnað ósk Íþrótta-
félagsins Þórs um að félagið geti
fært æfingar og kappleiki í Bogann
í sumar þegar aðstæður á æfinga-
svæði leyfa ekki æfingar og keppn-
ir þar. Þór hefur búið við mjög erf-
iðar aðstæður frá því framkvæmdir
við byggingu Bogans hófust en þá
fóru tveir grasvellir félagsins undir
húsið.
ÍTA samþykkti hins vegar ósk
félagsins um óbreytta æfingatöflu í
Boganum fram til 15. júní nk. og
mun það einnig gilda fyrir önnur
aðildarfélög ÍBA sem haft hafa
tíma í Boganum í vetur. Einnig
samþykkti ráðið að Þór fengi að-
gang að Boganum vegna Polla-
mótsins, sem fram fer fyrstu
helgina í júlí, vegna aðstæðna sem
uppi eru á æfingasvæði félagsins
eftir byggingu Bogans, eins og seg-
ir í bókun ráðsins.
400–500 börn á æfingum hjá
okkur hvern einasta dag
„Ég er hneykslaður á afgreiðslu
ÍTA,“ sagði Árni Óðinsson, formað-
ur knattspyrnudeildar Þórs, um þá
ákvörðun ÍTA að hafna ósk félags-
ins um afnot af Boganum eftir 15.
júní í sumar, fyrir utan Pollamótið.
„Ég skil ekki til hvers ráðist var í
þessa 600 milljóna króna fram-
kvæmd ef ekki má nota húsið.
Þetta snýst ekki um kostnað við
mannhald eða upphitun hússins en
um einhvern rafmagnskostnað.
Framkvæmdir við nýja grasvelli á
svæðinu drógust úr hófi fram og
þeir verða ekki tilbúnir fyrr en eft-
ir miðjan júlí. Við höfum því mjög
takmarkað svæði til æfinga í um
einn mánuð og það mun setja allt
okkar starf í uppnám. Grasvöllur-
inn sunnan við Hamar er í mjög
slæmu ásigkomulagi eftir mikla of-
notkun í fyrrasumar. Það eru 400–
500 börn á æfingum hjá okkur
hvern einasta dag, þannig að það
sjá allir að þetta gengur aldrei
upp,“ sagði Árni.
Æfingar í Boganum til 15. júní
„Hneykslaður á
afgreiðslu ÍTA“