Morgunblaðið - 17.06.2003, Qupperneq 23
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 2003 23
!"" #
"
FERÐASUMARIÐ byrjar vel á
Suðurnesjum, að sögn ferðaþjón-
ustufólks. Ferðamálasamtök Suður-
nesja kynntu í gær nýjungar í ferða-
þjónustunni, meðal annars að nýta
kirkjurnar á svæðinu til að fá fleiri
ferðamenn.
Kristján Pálsson, formaður
Ferðamálasamtaka Suðurnesja,
sagði frá helstu nýjungum í ferða-
flórunni á Suðurnesjum á undanför-
um mánuðum: Víkingaskipinu Ís-
lendingi í Keflavík, Saltfisksetri
Íslands í Grindavík og Brúnni milli
heimsálfa skammt frá Reykjanes-
vita. Hann sagði að með þessari við-
bót væri úrvalið fjölbreytt fyrir
ferðamenn því þar væru fyrir Bláa
lónið, körtubrautin, hvalaskoðun,
Sæfiskasafnið, Fræðasetrið, söfn,
veitingastaðir, hótel og verslanir
ásamt margskonar annarri þjónustu
fyrir ferðamenn.
Reykjanesbær hefur opnað Upp-
lýsingamiðstöð ferðamanna í Bóka-
safni Reykjanesbæjar og í Duus-
húsum eru sýningar Listasafns
Reykjanesbæjar og sýningin Báta-
floti Gríms Karlssonar. Fyrstu
helgina í september verður fjöl-
skyldu- og menningarhátíðin Ljósa-
nótt í Reykjanesbæ haldin að venju.
Verið er að undirbúa sérstakt átak
í menningartengdri ferðaþjónustu
sem kynnt var á fundinum í gær.
Kirkjurnar á svæðinu og sagan sem
þeim tengist verður nýtt til að laða
að ferðafólk. Ferðamálasamtökin,
Reykjanesbær og Kjalarnespró-
fastsdæmi hafa samvinnu um að hafa
allar kirkjurnar níu opnar og til sýn-
is 13. júlí næstkomandi og þá verður
dreift bæklingi með ýmsum upplýs-
ingum um kirkjurnar.
Kristján Pálsson greindi frá því að
á hausti komanda yrði menningar-
dagur í kirkjunum. Hugmyndin er að
hafa dagskrá í öllum kirkjunum
þannig að gestir geti farið á milli
þeirra og notið fræðslu, tónlistar og
ýmiskonar menningar. Er ætlunin
að þetta verði árlegur viðburður í
menningartengdri ferðaþjónustu á
Suðurnesjum.
Ferðasumarið byrjar vel
Fólk úr ferðaþjónustunni sem
statt var á kynningarfundinum í gær
lét vel af sumrinu. Helga Ingimund-
ardóttir sem rekur hvalaskoðunar-
skipið Moby Dick sagði að sumarið
byrjaði betur en nokkru sinni áður,
mikið væri að gera. Aðrir höfðu svip-
aða sögu að segja. Nýlega kom 50
þúsundasti gesturinn til að aka í
körtubrautinni í Njarðvík. Ferða-
mönnum sem koma til Grindavíkur
fjölgar stöðugt, að sögn Kjartans S.
Kristjánssonar markaðs- og ferða-
málafulltrúa og margir koma í Salt-
fisksetrið. Sömu sögu er að segja um
Sandgerði og aðra staði.
„Við erum að byggja Suðurnes
upp sem áhugaverðan kost. Það tek-
ur langan tíma en við erum á réttri
leið,“ sagði Kristján Pálsson.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Ferðaþjónustufólk kynnir starfsemina í húsnæði Saltfiskseturs Íslands í Grindavík, f.v. Kjartan S. Kristjánsson, Stefán Bjarkason, Valgerður Guðmunds-
dóttir, Björn Haraldsson, Reynir Sveinsson, Kristján Pálsson, Jón Gunnarsson, Helga Ingimundardóttir, Ólafur Guðbergsson og Stefán Guðmundsson.
Ferðamálasamtök Suðurnesja kynna starfsemi sína
Menningartengd ferða-
þjónusta í kirkjunum
Suðurnes GUNNAR Marel Eggertsson
skipstjóri fer í víking til Hafn-
arfjarðar, Vestmannaeyja og
Akraness í sumar á víkinga-
skipinu Íslendingi.
Víkingaskipið Íslendingur er
til sýnis fyrir ferðafólk í sumar í
höfninni í Keflavík. Gunnar
Marel segir að töluvert margir
hafi komið til að fræðast um
skipið og siglingar, meðal ann-
ars skólahópar og erlendir
ferðamenn. Samvinna er við
Helgu Ingimundardóttur sem
gerir út hvalaskoðunarskipið
Moby Dick úr Keflavík og gefst
þátttakendum í hvalaskoðun-
inni kostur á að skoða víkinga-
skipið í leiðinni.
Víkingaskipið hefur verið
pantað í þrjár ferðir í sumar.
Það siglir í dag til Hafnarfjarð-
ar í tengslum við upphaf vík-
ingahátíðar sem þar er haldin.
Áætlað er að skipið leggist að
bryggjunni framan við Fjöru-
krána um klukkan 13.
Gunnar Marel reiknar einnig
með að sigla til Vestmannaeyja
3. júlí og vera þar við Gos-
lokahátíð. Helgina eftir verður
síðan siglt til Akraness í tilefni
Írskra daga sem þar verða
haldnir.
Þrjár víkingaferðir
Íslendingur
siglir til
Hafnar-
fjarðar
SBK hefur endurnýjað heima-
síðu sína en hún er alhliða
upplýsingavefur fyrir Reykja-
nes. Slóðin er www.reykja-
nes.is.
SBK hf. rekur ferðaskrif-
stofu, sérleyfis- og hópferða-
bíla, bílaleigu og fleira í Kefla-
vík. Fyrirtækið hefur smám
saman byggt upp vef sem
nefndur er Upplýsingavefur
Reykjaness og nýlega hefur
hann verið endurnýjaður.
Nú er þar að finna upplýs-
ingar á íslensku og ensku um
söfn og aðra menningarstaði,
ferðaþjónustu, afþreyingu og
aðra þjónustu, áhugaverða
staði og vegalengdir til þeirra,
gönguleiðir og fleira.
Upplýsingavefur
Reykjaness
FÓLK sem starfar í þágu fatlaðra og
tekur þátt í íþróttastarfi fatlaðra
verður í aðalhlutverki í dagskrá
þjóðhátíðardagsins í Reykjanesbæ.
Dagurinn er haldinn hátíðlegur í öll-
um bæjunum á Suðurnesjum og í
flestum tilvikum sjá félagasamtök
um hátíðahöldin.
Í tilefni af Evrópuári fatlaðra
ákvað Menningar-, íþrótta- og tóm-
stundaráð Reykjanesbæjar að
heiðra það fólk sem starfar fyrir fatl-
aða í Reykjanesbæ og þá einstak-
linga sem eru virkir þátttakendur í
íþróttastarfi fatlaðra. Ræðumaður
dagsins er Gísli Hlynur Jóhannsson,
framkvæmdastjóri Þroskahjálpar,
Jóhann R. Kristjánsson dregur ís-
lenska fánann að húni og Lára Ingi-
mundardóttir flytur ávarp fjallkonu.
Dagskráin hefst um morguninn
með knattspyrnu en klukkan 11
verður opnuð smábílabraut við
körtubrautina í Njarðvík. Brautin er
fyrir fjarstýrða bíla og raunar önnur
torfærubraut við hliðina. Er þetta
fyrsta smábílabrautin sem opnuð er
á landinu en nú eru hátt í þrjú þús-
und slíkir bílar á landinu.
Dagskrá í Skrúðgarðinum við
Tjarnargötu hefst klukkan 14 og
kvöldskemmtun hefst í Reykjanes-
höll klukkan 20.30. Ef veður verður
vont verður hátíðardagskráin líka
flutt inn í Reykjaneshöll.
Hátíðardagskráin í Garði verður í
íþróttamiðstöðinni og hefst klukkan
14. Auk hefðbundinna atriða verða
ýmis skemmtiatriði, jafnt utan dyra
sem innan.
Aðaldagskrá hátíðahaldanna í
Sandgerði hefst einnig klukkan 14
og verður hún við íþróttamiðstöðina.
Hátíðahöldin í Grindavík verða við
félagsheimilið Festi og hefjast
klukkan 13.30 með ræðu bæjar-
stjóra. Dagskráin verður fjölbreytt-
ari en undanfarin ár og lýkur með
kvöldskemmtun. Ef ekki viðrar til
útihátíðahalda verður skemmtunin
flutt inn í íþróttahúsið og Festi.
Þjóðhátíðardagurinn
Fatlaðir í
aðalhlut-
verki
Suðurnes
BÓKIN Hafnir á Reykjanesi, saga
byggðar og mannlífs í ellefu hundr-
uð ár, kom út í gær. Höfundur er Jón
Þ. Þór sagnfræðingur en Reykjanes-
bær gefur bókina út.
Í tilefni útgáfunnar var haldið hóf
í safnaðarheimili Kirkjuvogskirkju í
Höfnum í gær þar sem íbúar hverf-
isins og þeir sem lögðu bókinni til
efni á einn eða annan hátt komu
saman. Jón Þ. Þór afhenti Árna Sig-
fússyni bæjarstjóra bókina með
formlegum hætti og Jón Borgars-
son, formaður ritnefndar, sagði frá
aðdraganda söguritunarinnar.
Ákveðið var að rita og gefa út
sögu Hafna eftir sameiningu Kefla-
víkurkaupstaðar, Njarðvíkurbæjar
og Hafna í eitt sveitarfélag, Reykja-
nesbæ, árið 1994. Samið var við Jón
Þ. Þór um að annast verkið á miðju
ári 1999.
Verkefni bókarhöfundar var að
skrifa sögu Hafna frá því Herjólfur
Bárðarson landnámsmaður settist
þar að og til 11. júní 1944 að Hafna-
hreppur lagðist af sem sjálfstætt
sveitarfélag. Fyrsti kafli bókarinnar
er um landnámið og sá síðasti um
sameininguna.
Fram kemur í Landnámu að Ing-
ólfur Arnarson hafi gefið frænda
sínum, Herjólfi, landið milli Vogs og
Reykjaness. Ekki liggur fyrir hvar
Herjólfur reisti sér bú. Á síðasta ári
fann Bjarni F. Einarsson skála með
langeldi og fleiri rústir skammt frá
Kirkjuvogskirkju sem fyrstu rann-
sóknir benda til að séu frá áttundu
eða níundu öld. Í framhaldi af því
hafa komið fram kenningar um að
þar hafi Herjólfur Bárðarson búið.
Jón Þ. Þór hafði að mestu lokið
verki sínu þegar þetta kom í ljós og
segist hann ekki geta neitað því að
hafa fundið fyrir ónotum þegar
fréttirnar bárust. Honum tókst þó að
geta um þær staðreyndir sem hann
fékk um fornleifafundinn á frum-
stigi rannsókna. Segir hann fátt
hægt að fullyrða af rannsókninni um
hina fyrstu byggð í Höfnum og raun-
ar þarflaust að reyna að geta sér til
um hugsanlega ábúendur.
Jón telur líklegt að Hafnahreppur
hafi orðið til við upphaf hreppa-
skiptingar í landinu og þá strax úr
landnámi Herjólfs Bárðarsonar og
mörg hans lítið sem ekkert breyst í
aldanna rás. Hann lagðist síðan af
við sameininguna 1994, eins og fyrr
segir.
Prentsmiðjan Steinholt prentaði
bókina og Bókabúð Keflavíkur/
Penninn dreifa henni. Hún verður
seld á sérstöku tilboði næstu daga.
Reykjanesbær gefur út sögu Hafna frá landnámi til sameiningar
Fann fyrir ónot-
um við fréttir af
fornleifafundi
Hafnir
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Árni Sigfússon tekur við eintaki af sögu Hafna úr hendi höfundarins, Jóns
Þ. Þór. Jón Borgarsson, formaður ritnefndar, er lengst til vinstri.