Morgunblaðið - 17.06.2003, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 17.06.2003, Blaðsíða 26
NEYTENDUR 26 ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ MARENTZA Poulsen, Sæmundur Kristjánsson og Auður Jónsdóttir verða með kynningu á grænni mat- armenningu í Grasagarðinum á morgun. Kynningin er öllum opin endurgjaldslaust en hún er hluti af sumardagskrá Grasagarðs Reykja- víkur. Marentza og Sæmundur munu fjalla um það hvernig fólk getur matreitt hinar ýmsu jurtir og um leið varðveitt gæði þeirra, nær- ingu, bragð, lit og form. Þau eru bæði veitingamenn en Marentza rekur Café Flóruna og Sæmundur er eigandi veitingahússins Á næstu grösum. Auður, sem er garðyrkju- fræðingur, mun segja frá þeim teg- undum grænmetis sem ræktaðar eru í nytjajurtagarði Grasagarðsins en á síðustu árum hafa um 30 mis- munandi tegundir verið ræktaðar þar. Kynningin hefst klukkan 20 í Café Flórunni í garðskála Grasa- garðsins. Sumardagskrá Grasagarðs Reykjavíkur Kennsla í mat- reiðslu á grænmeti GARÐYRKJUBÆNDUR sem stunda lífræna ræktun hafa í nokkur ár boðið upp á grænmeti í áskrift, beint frá framleiðanda. Neytendur virðast kunna vel að meta þessa þjónustu en tæp fjögur hundruð manns fá senda til sín skammta af lífrænu grænmeti í hverri viku. Grænmetið sem selt er á þennan hátt kemur frá gróðr- arstöðvunum Akri, Engi og Kvist- holti í Laugarási og Hæðarenda í Grímsnesi en úrvalið spannar allt frá káli og kartöflum upp í krydd- jurtir. Þórður Halldórsson, garð- yrkjubóndi á Akri, segir að áskriftarsalan, sem nemur nú um fjórðungi af allri sölu Akurs, hafi byrjað fyrir sex árum með heim- sendingum til vina og kunningja. „Svo fór þetta að spyrjast út og smakkast og fólk fékk áhuga á þessu,“ segir Þórður. Hann segir að eftirspurnin hafi aukist jafnt og þétt en í fyrrasumar hafi hún farið fram úr björtustu vonum. „Fjöldi áskrifenda fór úr 100 í 200 og við þurftum að setja upp biðlista. Það má eiginlega segja að sölukerfið hafi sprungið og í ágúst urðum við að segja stopp því við önnuðum ekki eftirspurn. Nú erum við hins- vegar viðbúnir öllu,“ segir Þórður. Mikið selt í gegnum Netið Áskriftarsalan er eðli málsins samkvæmt bundin við uppskeru- tímann, stendur frá júníbyrjun og fram í október, en Þórður segir að salan fari mestmegnis fram í gegnum Netið. „Fólk skráir sig á lista á akurbisk@isholf.is. Við sendum vikulega út vörulista og pöntunarlista og þeir sem vilja kaupa senda okkur pöntunarlist- ann útfylltan til baka. Síðan fær fólk greiðsluseðil sem það greiðir í banka eða í gegnum tölvu,“ segir Þórður. Grænmetispökkunum er síðan meðal annars dreift á Upp- gripsverslanir Olís á höfuðborg- arsvæðinu. Hægari vöxtur gefur betra bragð Þórður er ekki í vafa um hvers vegna viðskiptavinir hans velji líf- rænt grænmeti. „Í fyrsta lagi er það hinn mikli bragðmunur sem helgast af því að ávextir í lífrænni ræktun fá tíma til að þroskast. Bændur í hefðbundinni ræktun framleiða allt upp í tvöfalt magn á Garðyrkjubændur segja aukinn áhuga á lífrænu grænmeti Tæplega fjögurhundruð manns í grænmetisáskrift Á Akri eru meðal annars ræktaðar paprikur og chilipipar. Þórður Hall- dórsson og kona hans, Karólína Gunnarsdóttir, huga að tómatatrjánum. fermetra miðað við okkur en eru þó með sama plöntufjölda. Þessi hraði vöxtur kemur niður á bragð- inu alveg einsog hraður vöxtur blóma kemur niður á ilminum. Í öðru lagi veit fólk að það er að fá glænýja vöru enda kemur hún fersk beint frá framleiðenda, án milliliða,“ segir Þórður en hann segist viss um að lífræn ræktun eigi sér bjarta framtíð hér á landi. „Ég sé ekki annað en að mark- aðurinn eigi eftir að taka enn frek- ar við sér. Það vantar bara fleiri framleiðendur,“ segir Þórður að lokum. ÝMSIR pítsustaðir eru farnir að nota jurtaost ofan á pítsurnar sam- kvæmt lauslegri könnun Morgun- blaðsins. Jurtaostur er innflutnings- vara og mun ódýrari í innkaupum en mjólkurostur. Hann er unninn úr jurtaolíu og fituinnihald hans er lægra en hefðbundinna mjólkurosta. Könnun blaðsins var gerð meðal átta pítsustaða með heimsendingar- þjónustu á höfuðborgarsvæðinu og fengust upplýsingarnar hjá stöðun- um sjálfum. Fjórir staðir nota mjólkurost Helmingur staðanna notar ein- göngu mjólkurost ofan á pítsurnar en hinn helmingurinn blandar jurta- osti við mjólkurostinn. Þeir fjórir staðir sem notast eingöngu við mjólkurost eru Domino’s-pítsur og Eldsmiðjan sem nota blöndu af Gouda- og Mozzarellaosti, Pizza Hut sem notar Mozzarellaost og Planet Pizza sem notar blöndu af Maribou- og Goudaosti á pítsur sínar. Enginn staður notar eingöngu jurtaost heldur er honum blandað saman við mjólkurostinn. Er hlut- fallið þá yfirleitt 80% mjólkurostur og 20% jurtaostur. Samkvæmt upp- lýsingum frá Pizza ’67 er ostabland- an hjá þeim misjöfn, sumir staðir nota eingöngu Gouda- og Mozz- arellaost frá Osta- og smjörsölunni en aðrir nota einnig jurtaost í blönd- unar. Á pítsurnar hjá Hróa hetti er notaður Gouda- og Mozzarellaostur auk jurtaosts. Það sama á við um Papinos-pítsur. Pizzahöllin notar síð- an Goudaost og Mozzarella-jurtaost. Bragðdaufari eða lystugri? Hjá þeim stöðum sem nota ein- göngu mjólkurostinn kom fram að hann væri mun bragðmeiri en jurta- osturinn, sá síðarnefndi bráðnaði illa saman við mjólkurost og stæðist alls ekki samanburð í gæðum. Hjá þeim stöðum sem notast við jurtaostinn kom það hins vegar fram að jurtaosturinn væri tiltölulega magur og ostblanda með hóflegu magni af jurtaosti því lystugri en mjólkurostsblanda. Dæmi svo hver fyrir sig. Pítsustaðir á höfuðborgarsvæðinu Fjórir staðir nota jurtaost á pítsurnar                                                              UMHVERFISSTOFNUN hefur beint þeim tilmælum til matvöru- verslana að óvarin sumarblóm verði ekki boðin til sölu innan þeirra veggja. Sumarblóm hafa víða verið til sölu í matvöruverslunum, bæði stök og í bökkum. Stöku blómin eru oftast vel innpökkuð en blómabakk- arnir almennt óvarðir. Við það skap- ast hætta á krossmengun þar sem mold og önnur óhreinindi geta dreifst um verslunina og á matvæli en vel þekkt er að örverur og önnur óværa dreifist með mold. Sumarblóm óæski- leg í matvörubúðum Morgunblaðið/Kristján BÚAST má við að ljósmyndir sem vara við afleiðingum tóbaksreykinga sjáist von bráðar á sígarettu- og vindlapökkum hér á landi en Þor- steinn Njálsson, formaður tóbaks- varnarráðs, segir að Evrópusam- bandið ætli í haust að samþykkja slíkar ljósmyndir á pakkana. „Þetta eru ansi dramatískar myndir. Þarna er til dæmis mynd af nýfæddu barni sem er léttburi vegna stórreykinga og mynd af skemmdum fæti af völd- um reykinga. Pakkarnir verða sem sagt dálítið ógeðfelldir útlits,“ segir Þorsteinn. Viðvörunarmerki stækka Sem kunnugt er hefur Evrópu- sambandið nú þegar samþykkt nýja reglugerð sem kveður á um viðvör- unarmerkingar með texta á tóbak. Merkingar á sígarettu- og vindla- pökkum hér á landi verða í kjölfarið mun stærri en þær eru nú. Almenn viðvörun mun þekja 30% af framhlið pakkans en viðbótarviðvörun verður á 40% af bakhlið hans. Þorsteinn reiknar með því að merkingar verði komnar á flesta pakka í september en framleiðendur hafa þó frest fram til áramóta til þess að setja þær á. Merkingar minnkuðu árið 1992 Viðvörunarmerki hafa verið á tób- aki á Íslandi síðan árið 1985 þegar ný tóbaksvarnarlög voru samþykkt á Alþingi. Fyrstu merkingarnar voru nokkuð áberandi, með stuttum skila- boðum frá landlækni og mynd. Þess- ar merkingar voru notaðar þar til Ís- lendingar gerðu EES-samninginn árið 1992. „Þá urðum við að gangast undir það að Evrópumerkingarnar sem voru mun minni urðu jafngildar okkar merkingum,“ segir Þorsteinn. Hann seg- ir að sígarettufram- leiðendur hafi undir eins skipt yfir í Evr- ópumerkingarnar. „Light“ og „mild“ bannað Fleiri breytingar eru væntanlegar með Evrópureglugerðinni því þar er lagt bann við því að nota orð sem gefa í skyn að ein gerð tóbaks sé hættu- minni en önnur. Orð eins og „mild„ eða „light“ munu þess vegna fljótlega hverfa af tóbaki. „Það eru komnar rannsóknarniður- stöður sem sýna að krabbameinið sem þú færð af „light“ og „mild“ er jafnvel hættulegra en það sem þú færð af venjulegum sígarettum. Þú getur reykt þær dýpra ofan í þig og það fer því á viðkvæmari staði í lung- anu,“ segir Þorsteinn. Hann segir að tóbaksiðnaðurinn hafi þegar fundið lausn á þessu. „Þeir nota bara lita- kóða, rautt fyrir sterkara, blátt fyrir veikara,“ segir Þorsteinn. Hverfa litirnir næst? Hann segir að framtíðin gæti þó orðið sú að litir á pökkunum verði einnig bannaðir en í alþjóðasáttmála gegn tóbaksreykingum, sem sam- þykktur var í Genf í vor, kemur fram sú stefna að pakkarnir verði ekki jafn spennandi í útliti og þeir eru í dag, hvorki skrautlegir né litríkir. Ljósmyndir á pakkana Svona líta merkingarn- ar út í dag. Gömlu landlæknismerkingarnar. Nýjar reglur settar um viðvörunarmerkingar á tóbak Merkingar verða stærri í haust.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.