Morgunblaðið - 17.06.2003, Blaðsíða 60
ÞRÁTT fyrir að þrjár fremur stórar
myndir hafi verið frumsýndar fyrir
helgi tókst engri þeirra að finna
fiskinn Nemo í fjöru.
Leitin að Nemo, þessi tölvuteikn-
aða Disney-mynd, framleidd af
séníunum hjá Pixar, hinum sömu og
töfruðu Leikfangasögurnar tvær,
Pöddulíf og Skrímsli hf., hefur sleg-
ið rækilega í gegn og endurheimtir
nú toppsætið eftir að hafa lánað Of
fljótum, of fífldjörfum það um
helgina síðustu. Leitin að Nemo hef-
ur gengið vonum framar, er við það
að skríða yfir 200 milljóna dala
markið og er líkleg til að enda í 275–
300 milljónum og þar með gera bet-
ur en síðasta mynd Pixar, Skrímsli
hf., en hún endaði í 255 milljónum.
Nýjum myndum helgarinnar
tókst ekki betur upp en að raða sér í
4.–6. sæti yfir tekjuhæstu myndir.
Hæst þeirra fór nýja Rugrats-
myndin en á eftir henni kemur Morð
í Hollywood, rándýr stórmynd
(kostaði yfir 75 milljónir dala) með
Harrison Ford og Josh Harnett sem
náði ekki að hala inn nema 11,7
milljónir dala fyrstu sýningarhelg-
ina, nokkuð sem verður að teljast
talsverður skellur. Myndin, sem er
löggumynd um gamlan jálk og ný-
liða sem rannsaka saman morð í
Hollywood, hefur fengið misjafna
dóma. Roger karlinn Ebert er sátt-
ur, segir hana skemmtilega hefð-
bundna félagamynd, á meðan marg-
ir kollega hans hafa sett hana niður
einmitt fyrir það sama, að vera allt
of ófrumleg.
Lítið betur gekk Heimskur
heimskarari, nýja forsaga Jim
Carrey-myndarinnar Heimskur
heimskari, þar sem þeir heimskingj-
ar Lloyd og Harry hittast í fyrsta
sinn á menntaskólaárum sínum. Í
stað Jim Carrey og Jeff Daniels eru
komnir Eric Christian Olsen og
Derek Richardson og virðist sem
þeim hafi ekki tekist að fylgja í fót-
spor forvera sinna nema ef vera
skyldi á einn veg, þar sem myndin
þykir á allan hátt bera nafn með
rentu. Gagnrýnendur, sem sjaldnast
eru nú gefnir fyrir heimskulegt
grín, eru þó á einu máli um að
myndin hefði átt að heita Verri
verstustust.
Um helgina komandi verður svo
ein af stórmyndum sumarsins frum-
sýnd, útgáfa Ang Lee (Crouching
Tiger, Hidden Dragon) á örlagasög-
unni um Hulk hinn ógurlega.
Nýju bíómyndirnar hristu lítið upp í bandaríska bíólistanum
!
" #$
%
&$&'"
(
)*
+)*+
+,*
+*-
++*.
++*/
)*-
-*-
*+
+*0
+)*1
2,*/
+)1*2
+*-
++*.
++*/
--*
-.*1
)*
/.*
Heimskasta mynd sumarsins? Eric Christian Olsen sem Lloyd og Derek
Richardson sem Harry í Heimskur heimskarari.
Nemo
fann
toppsæt-
ið á ný
60 ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
14.06. 2003
2
6 2 6 5 0
3 8 3 1 7
13 18 26 33
34
11.06. 2003
4 10 24
30 32 41
1 33
Tvöfaldur 1. vinningur
næst
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4741-5200-0002-4854
4548-9000-0059-0291
4539-8500-0008-6066
4507-4300-0029-4578
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
KVIKMYNDIR.COM
KVIKMYNDIR.IS
ÓHT Rás 2
„Grípandi og gefandi
með óborganlega
bardaga“
3 vik
ur
á to
ppnu
m
á Ísla
ndi
Sýnd kl. 5.45, 8
og 10.15.
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 8 og 10.
B.i. 12 ára.
HL MBL
SG DV
"Triumph!"
Roger Ebert
yndislega falleg mynd...Full af lífi og ást, fegurð, fólki,
sjó og jörð.... falleg, tilgerðarlaus og nánast lifir eigin
lífi...Golino er fullkomlega sannfærandi.” H.L. - MBL
FRUMSÝNING
Meiri hraði. Meiri hasar.
Flottari bílar.
Svalari stelpur.
Bein
t á
topp
inn
í
USA
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B. i. 12 ára.
Svalasta mynd sumarsins
er komin.
Sýnd kl. 6 og 9. B. i. 12 ára.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.15.
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8.
KVIKMYNDIR.COM
ÓHT Rás 2
„Einn mesti grínsmellur ársins!“
KVIKMYNDIR.IS
3 vik
ur
á to
ppnu
m
í US
A! ÞESSI FRÁBÆRA GRÍNMYND ER FRÁ FRAMLEIÐANDAN-UM JERRY BRUCKHEIMER SEM HEFUR GERT SMELL-
INA ARMAGEDDON, PEARL HARBOR, THE ROCK OG
CONAIR. KANGAROO JACK KEMUR ÞÉR Í SVAKA STUÐ!
Brooklyn, fjögurra ára gamall sonur
Davids og Victoriu Beckham, hefur
fengið nýjan
píanókennara
og hann ekki af
verri endanum.
Er það enginn
annar en tón-
listarmaðurinn
Elton John sem er mikill vinur fjöl-
skyldunnar. Sambýlismaður hans,
David Furnish, var guðfaðir Brook-
lyns. Fullyrt er að Brooklyn sé góð-
um tónlistargáfum gæddur og honum
gangi vel í píanónáminu. Elton er
sagður hafa mjög gaman af kennsl-
unni og David og Victoria séu yfir sig
ánægð … David Bowie hefur ákveð-
ið að halda í tónleikaferð um heiminn
á þessu ári en tæplega áratugur er
síðan hann hélt síðast í heimsreisu
sem þessa. Söngvarinn geðþekki mun
koma fram í 17 löndum á sjö mán-
uðum og talið er að rúmlega milljón
manns muni hlýða á. Tónleikaferð
Bowies mun bera yfirskriftina The
Reality tour og hefst hún í Evrópu í
október. Þaðan mun hann halda til
Norður-Ameríku, Ástralíu og síðan
til Austurlanda. David Bowie er að
sögn ánægður með tónleika sína síð-
asta árið og finnst honum áhorfendur
hafa verið móttækilegir fyrir list-
sköpun sinni. „Hljómsveitin mín er í
feikna formi um þessar mundir og
það væri óviturlegt að halda ekki í
tónleikaferð á þessu ári meðan við er-
um enn glaðir yfir þeim viðbrögðum
sem sýningar okkar hafa fengið,“
sagði David Bowie. Tilkynnt hefur
verið um tónleikahald m.a. í Kaup-
mannahöfn, Stokkhólmi, Helsinki og
Ósló. Miðasala mun hefjast 20. júní
nk …
FÓLK Ífréttum