Morgunblaðið - 21.06.2003, Síða 17
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 2003 17
RAUNHÆFIR kostir Íslendinga í
Evrópumálunum eru aðeins þrír,
þ.e. aðild að Evrópusambandinu
(ESB), áframhaldandi samstarf á
grundvelli EES-samningsins eða
eins konar „svissnesk lausn“ sem
byggðist á nánum tengslum Íslands
við innri markað ESB með tvíhliða
samningum. Þetta er meginniður-
staða rannsóknarrits um Evrópumál
sem Alþjóðamálastofnun Háskóla
Íslands og norska utanríkismála-
stofnunin (NUPI) hafa gefið út.
Skýrsluhöfundar telja að þó að
vissulega sé verulegur munur á þeim
þremur valkostum sem Íslendingar
og Norðmenn standa frammi fyrir sé
ekki ástæða til þess að ætla að al-
menningur í löndunum tveimur yrði
var við áhrifin, hver kosturinn svo
sem yrði ofan á, a.m.k. í minni mæli,
eins og segir í skýrslunni, „en margir
sem eru á öndverðum meiði í afstöð-
unni til Evrópumálanna hafa til-
hneigingu til að halda fram“.
Ekki spurning hvort heldur
hvernig og hve náið
Lögð er áhersla á það í ritinu –
sem ber heitið Ísland og Evrópu-
sambandið: EES, ESB-aðild eða
„svissnesk lausn“? – að ekki sé
spurning hvort Ísland tengist
Evrópusambandinu heldur hvernig
og hve náið. Er mat höfunda að að-
eins áðurnefndir þrír valkostir séu
raunhæfir í stöðunni. Skýra þeir það
mat sitt svona: „Það er einfaldlega
ekki raunhæft að Ísland geti á 21. öld
unað við stöðu þar sem það hefði
engan samningsramma utan um við-
skipti sín og önnur tengsl við Evr-
ópusambandið og reyndi þess í stað
að láta sér nægja samninga Heims-
viðskiptastofnunarinnar (WTO) um
alþjóðaviðskipti og aðrar alþjóða-
samþykktir. Til þess eru viðskipta-
tengsl og önnur samskipti Íslands
við aðildarlönd ESB einfaldlega of
náin og víðfeðm.“
Fram kemur að höfundar telja að
ef Íslendingar á endanum freista
þess að breyta tengslunum við ESB
úr EES-samstarfi í tvíhliða samn-
inga myndu samningaviðræður að
nokkru leyti verða einfaldari en í til-
felli Sviss þar sem Ísland hefði nú
þegar, í gegnum EES-samstarfið,
lögtekið mjög stóran hluta löggjafar
ESB. Ísland sé því í þeim skilningi
orðið líkara sambandinu en Sviss er.
Á hinn bóginn er bent á að senni-
lega sé hin „svissneska lausn“ val-
kostur sem Norðmenn myndu eiga
betri möguleika á að nýta sér en Ís-
lendingar, enda sé norskt efnahags-
líf fjölbreyttara og neytendur þar í
landi mun fleiri. Fyrir ESB sé eftir
meiru að slægjast með samningum
við Noreg en Ísland og því samn-
ingsstaða Norðmanna í slíkum
samningum sterkari en Íslendinga.
Auðunn Arnórsson, stjórnmála-
fræðingur og blaðamaður, vann fyrir
hönd Alþjóðamálastofnunar HÍ ís-
lenska útgáfu ritsins en þar er ekki
tekin afstaða til þess hver kostanna
þriggja sem nefndir eru til sögunnar
sé álitlegastur. Ritinu fylgir úttekt á
ensku um hugsanlega aðkomu Ís-
lands og Noregs að sameiginlegri
sjávarútvegsstefnu ESB en Íslend-
ingarnir Þórólfur Matthíasson,
Sveinn Agnarsson og Örn D. Jóns-
son eru meðhöfundar að úttektinni,
auk þess sem Þórólfur kom að rit-
stjórn hennar fyrir hönd Alþjóða-
málastofnunar.
Nýtt rit um Evrópumál segir kosti Íslands og Noregs aðeins þrjá
Ekki raunhæft að vera
án samninga við ESB
BANDARÍKJAMENN hafa
ákveðið að kæra Evrópusam-
bandið, ESB, til Heimsvið-
skiptastofnunarinnar, WTO,
vegna þess að sambandið
neitar að aflétta sölubanni á
erfðabreyttum matvælum í
Evrópu. Nýlegar viðræður á
milli aðila fóru út um þúfur
og eru Bandaríkjamenn afar
vonsviknir með þau málalok.
„Sölubannið er ólöglegt,
lokar Evrópumarkaðinum
fyrir hollum og næringarrík-
um, erfðabreyttum matvælum
frá Ameríku og öðrum svæð-
um heimsins og sviptir evr-
ópska neytendur vali,“ segir
Richard Mills talsmaður Við-
skiptastofnunar Bandaríkj-
anna.
Sölubann á erfðabreytt
matvæli í öryggisskyni
Evrópubandalagið hefur
sett sölubann á erfðabreytt
matvæli og fræ í öryggis-
skyni. Undanfarið hafa emb-
ættismenn sambandsins þó
unnið að því að búa til kerfi
til að merkja sérstaklega
erfðabreytt matvæli svo neyt-
endur geti valið hvort þeir
vilji slíka vöru eða ekki.
Bandarískir embættismenn
segja að ástæðan fyrir því að
þeir hafa lagt fram kæruna sé
að hluta til sú að þeir óttist
að hin evrópska andstaða
gegn erfðabreyttum matvæl-
um kunni að breiðast út til
annarra svæða í heiminum.
Þannig afþökkuðu sum Afr-
íkuríki matvælaaðstoð frá
Bandaríkjunum vegna þess
að þar voru erfðabreytt mat-
væli í boði.
Engin sátt
um erfða-
breytt
matvæli
TYRKNESKIR hjálparstarfsmenn reyna að koma nem-
anda íslamsks skóla í borginni Kayseri til bjargar en
heimavist skólans hrundi við sprengingu sem þar varð í
gær. Tíu manns fórust og 13 slösuðust í slysinu sem
varð um miðja nótt er nemendur og kennarar sváfu. Að
því er virðist voru hinir látnu allir nemendur skólans.
Reuters
Tíu létust er heimavistarbygging hrundi
SHIMON Peres, tákngervingur frið-
arumleitana við Palestínumenn, var
á fimmtudag kjörinn formaður
Verkamanna-
flokksins í Ísrael
til eins árs. Þann-
ig kaus mið-
stjórnin að velja
gamalreyndan
mann til að stýra
flokknum eftir að
hafa goldið afhroð
í þingkosningum í
landinu í janúar
sl.
Búist er við því að Peres muni gera
tilraun til að leiða flokkinn að nýju
inn í ríkisstjórn Ariels Sharons for-
sætisráðherra og endurvekja þar
með hið óvenjulega samstarf Verka-
mannaflokksins og Likud-banda-
lagsins sem liðaðist í sundur í nóv-
ember sl. eftir 18 mánaða róstusamt
samstarf. Stjórnarsamstarf sem
lyktaði með því að Verkamanna-
flokkurinn beið sinn mesta ósigur frá
stofnun.
„Ég var valinn vegna þeirrar óbil-
andi trúar minnar að þessi flokkur
muni öðlast fyrri vegsemd að nýju,
sinn sögulega sess,“ sagði Peres að
formannskjörinu loknu en hann
hlaut 631 atkvæði miðstjórnar
flokksins eða 49%.
Hinn 79 ára gamli Peres er hand-
hafi friðarverðlauna Nóbels og hefur
gegnt embætti forsætis- og utanrík-
isráðherra í Ísrael. Hann hefur þó
getið sér mun betri orðstír erlendis
en í heimalandi sínu en hann er einn
arkitekta Óslóarsamninganna. Það
friðarferli liðaðist í sundur fyrir tæp-
um þremur árum sem hefur orðið til
þess að Peres hefur tapað virðingu
margra Ísraela.
Peres bauð sig fimm sinnum fram
sem forsætisráðherraefni Verka-
mannaflokksins en hlaut aldrei af-
gerandi kosningu. Þá bauð hann sig
fram í embætti forseta Ísraels árið
2000, stöðu sem í raun er táknræn,
en laut í lægra haldi fyrir fyrir
óþekktum þingmanni Likud-banda-
lagsins, Moshe Katsav.
Þrátt fyrir að Peres eigi dapurlega
kosningasögu að baki nýtur hann
mikillar virðingar í hinum friðsama
Verkamannaflokki.
Eftir fyrsta kosningasigur Shar-
ons árið 2001 átti Peres sinn þátt í því
að leiða Verkamannaflokkinn í
stjórnarsamstarf með harðlínu-
mönnum og gegndi embætti utanrík-
isráðherra. En í stjórnarsamstarfi
Likud-flokks Sharons og Verka-
mannaflokks Peresar gagnrýndu
það margir að í ljósi þess hve frið-
samur og virtur Peres er á alþjóða-
vettvangi hafi harðlínustefna stjórn-
arinnar verið talin lögmæt í
alþjóðasamfélaginu þrátt fyrir að
Sharon hafi hert hernaðaraðgerðir
gegn Palestínumönnum í sífellu.
Verkamannaflokkurinn dró sig út
úr samstarfinu í nóvember á síðasta
ári og kaus hinn friðarsinnaða Amr-
am Mitzna sem leiðtoga. Í janúar á
þessu ári hlaut flokkurinn svo verstu
kosningu frá upphafi, fékk aðeins 19
þingsæti af 120 en flokkur Sharons
hlaut 40 sæti og gat þar með auðveld-
lega myndað stjórn án þátttöku
Verkamannaflokksins. Skömmu síð-
ar sagði Mitzna af sér og hrinti þann-
ig af stað ferli sem lyktaði með kjöri
Peresar í embætti formanns flokks-
ins á fimmtudag.
Herskáir meðlimir í stjórn Shar-
ons hafa hótað að ganga út úr sam-
starfinu ef hann gerir þær tilslakanir
sem gert er ráð fyrir af hálfu Ísraela
í Vegvísinum, þ.e. að hætta útþenslu
landnemabyggða á herteknu svæð-
unum, yfirgefa ólöglegar landnema-
byggðir og draga herlið frá svæðum,
sem hafa verið hernumin. Ef til þess
kæmi gæti slíkt orðið til þess að auð-
velda Peres leiðina aftur inn í rík-
isstjórn Ísraels.
Shimon Peres, áður Perski, er
fæddur í Hvíta-Rússlandi en fluttist
til Palestínu árið 1934 og hóf pólitísk-
an feril sinn á því að sendast með
skilaboð fyrir einn stofnanda Ísr-
aelsríkis, David Ben-Gurion. Hann
var gerður að ráðuneytisstjóra í
varnarmálaráðuneyti landsins aðeins
29 ára að aldri og átti þátt í að koma á
góðum tengslum Ísraels og Frakk-
lands. Auk þess stuðlaði hann að
uppbyggingu loftvarna Ísraelsríkis
og kjarnavopnaáætlunar landsins.
Peres aftur við stjórnvölinn
í Verkamannaflokknum
Kfar Saba. AP.
Shimon
Peres
BANDARÍSKA hagstofan hefur
loks staðfest að fólk ættað frá Róm-
önsku-Ameríku sé nú orðið stærsti
minnihlutahópurinn í Bandaríkj-
unum, eða rúmlega 13% þjóðar-
innar. Um 38,8 milljónir manna til-
heyra þessum hópi sem er þar með
orðinn fjölmennari en blökkumenn í
landinu en þeir eru 38,3 milljónir
talsins. Þessi hópur stækkar ört og
telja lýðfræðingar að innflytjendur
frá svæðinu gætu orðið 60 milljónir
árið 2020. Þannig var helmingur
þeirra 6,9 milljóna sem bæst hafa við
íbúatöluna í Bandaríkjunum frá því
árið 2000, ættaður frá Rómönsku-
Ameríku. Ástæðan er talin vera tví-
þætt, mikill straumur innflytjenda
frá svæðinu og há tíðni barneigna.
Salsa í stað tómatsósu
Áhrif þessa hóps á samfélagið eru
þegar orðin sýnileg. Til dæmis þykir
salsasósa nú orðið jafn mikilvæg til
matargerðar og tómatsósan og stór
framleiðslufyrirtæki brjóta ákaft
heilann um hvernig ná megi til þessa
stóra neysluhóps.
Þá eru stjórnmálamenn farnir að
sækja spænskunámskeið þar sem
þeir læra m.a. að segja „necesito su
voto“ eða „ég þarf þitt atkvæði“.
„Þetta eru stjórnmál – á ameríska
vísu. Þegar samfélagshópur nær
ákveðinni stærð og vægi fara stjórn-
málaflokkarnir að reyna að ná til
þeirra,“ segir Harry Panchon, for-
seti Thomas Riviera-stofnunarinnar
við Claremont-háskóla. Kannanir
hafa sýnt að demókratar höfða mun
frekar en repúblikanar til kjósenda
sem eru ættaðir frá Rómönsku-
Ameríku en hagsmunasamtök
þeirra innan demókrataflokksins
hafa gagnrýnt Bush-stjórnina
harkalega fyrir að minnka fjárstyrki
til verkefna þar sem unnið er að
málefnum innflytjenda frá þessu
svæði.
Fjölgun íbúa frá Rómönsku-
Ameríku er einnig talin eiga þátt í
því að mæðrum sem dvelja heima
hjá börnum sínum hefur fjölgað um
13% í Bandaríkjunum síðustu tíu ár-
in. Ástæðan er talin vera sú ríka
hefð sem er fyrir því að konur í þeim
hópi séu heima með börnin í stað
þess að fara út á vinnumarkaðinn
eins og algengara er hjá bandarísku
kynsystrum þeirra sem eru af evr-
ópskum eða afrískum uppruna.
Fólki frá
Rómönsku-
Ameríku
fjölgar ört
Washington. LATWP.