Morgunblaðið - 21.06.2003, Síða 26

Morgunblaðið - 21.06.2003, Síða 26
LISTIR 26 LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Tónlistarþrídægran Bjartar sum- arnætur hefur nú brugðið búi eftir sex ára veru í Hveragerðiskirkju og flutzt til Seltjarnarneskirkju. Hófst hátíðin á síðargreindum stað á föstu- dagskvöldinu við ágæta aðsókn, að vísu án skýringa á tildrögum vista- skiptanna. Hins vegar kom fram af munnlegum kynningum lokakvölds- ins að tónlistarhátíðin væri framveg- is áformuð á tveggja ára fresti. Klassísk viðfangsefni fyrsta kvöldsins voru öll af áheyrilegasta toga. Sumpart mætti að vísu kenna við víðkunnasta flokk er fellur undir algenga skilgreiningu bílaútvarps- stöðva á „léttri“ klassík sem þaul- hlustnir tónkerar kenna við ónefnda afurð úr heimilisbakstri. T.d. Ung- verskan dans nr. 5 eftir Brahms (sem Chaplin gerði við nafntogað rakst- ursatriði í Einræðisherranum mikla), sellósöng Svansins úr Kjötkveðjuhá- tíð dýranna eftir Saint-Saëns – hér við dúnmjúkan hörpuundirslátt Mon- iku Abendroth í stað píanós, Médita- tion fyrir fiðlu og píanó úr Thaïs eftir Massenet og Zigeunerweisen Sar- asates Op. 20 (alías „Til eru fræ“). Flest var þó dável spilað og undir- tektir að vonum góðar. Næst var virtúósadúóið Navarra eftir Sarasate, sem þær Pálína Árna- dóttir og Guðný Guðmundsdóttir léku snöfurlega á fiðlur við píanóund- irleik Peters Máté. Var samleikur- inn, sem tísti einkum uppi á efstu tindum hátíðnisviðsins og oft í sam- stígum þríundum, áhrifamikill og meðal ótvíræðra hápunkta fyrri hlut- ans. Aðal„agn“ kvöldsins á yngri hlust- endur var þó án efa Bubbi Morthens, sem flutti fjögur lög eftir sig við létt uppmagnaðan söng en ómagnaðan undirleik í útsetningum Orra Hrafn- kels Egilssonar fyrir strengjakvart- ett og hörpu, þ.e. Klett í hafi, Það er gott að elska, Vals fyrir Brynju og ókynnt lag (hafi það ekki verið Við Gróttu eins og stóð í tónleikaskrá). Þrátt fyrir áberandi kverkaslæmsku í annars skemmtilegum kynningum sínum söng trúbadúrinn af fagmann- legri festu, og útsetningarnar reynd- ust flestar falla vel að lögunum – kannski burtséð frá frekar einhæfum „úm-pa-pa“ rithætti í hörpu, fyrir ut- an hvað sveiflukrefjandi staðir hefðu mátt „sitja“ töluvert afslappaðra í flutningi. Í þeim efnum dettur manni annars jafnan í hug hvers vegna í ósköpum standi ekki sígilt menntuð- um tónlistarmönnum atvinnuglæð- andi námskeið til boða í viðkomandi stíltúlkun, sem gjarna mætti tengja æfingu í hljóðversvinnubrögðum. Þar gætu örfáar vel skipulagðar vik- ur gert mikinn gæfumun. Söngvókalísa Sergeis Rachman- inoffs Op. 34,14 var eftir hlé leikin fagurlega á víólu af Unni Sveinbjarn- ardóttur við undirleik Gerrits Schuil, nema hvað píanistinn sýndi töluvert meiri ástríðu. Sígaunaljóð Brahms Op. 103, e.t.v. þekktara í frumgerð- inni fyrir kór og píanó er Brahms samdi í kjölfarið á miklum vinsæld- um kórlagasafns síns Liebeslieder- walzer, voru þar næst flutt af Rann- veigu Fríðu Bragadóttur og Gerrit Schuil. Þau heyrast ekki oft hér um slóðir, en þó að kórútgáfan falli und- irrituðum að jafnaði betur var óneit- anlega margt fallegt við hérum- rædda túlkun, enda þótt dökkleit óperurödd söngkonunnar skilaði ekki þjóðlegum ferskleika, hvað þá textanum, af sambærilegum tærleika og blandaður ungmennakór, þrátt fyrir óvenjufrísklegan og víðfeðman píanóundirleik Gerrits Schuil. Held- ur viðvaningsleg voru aftur á móti klappæst viðbrögð áheyrenda eftir hvert einasta lag, sem raunar kölluðu á skynditilsögn Gunnars Kvaran kynnis í klassískum konsertvenjum síðasta kvöldið. Á móti má kannski segja að þau hafi verið vísbending um að náðst hefði í nýja hlustendur, sem veitir vissulega ekki af á síðustu tím- um. Eftir þokkafulla meðferð Mátés og Guðnýjar á Sígaunavísum Sarasates luku þau Rannveig og Gerrit dag- skránni fyrst með tveim frægum ar- íum úr Carmen Bizets – Habaner- unni og Seguedillunni – sem að líkindum mynduðu eftirminnilegasta framlag söngkonunnar þetta kvöld, og loks Stride la vampa úr Il trova- tore eftir Verdi; hvort tveggja við prýðisgóðar undirtektir. Þjóðlegir strengir Aðrir tónleikar Bjartra sumar- nótta áttu ekki sömu aðsókn að fagna og kvöldið áður, og undirstrikaði það enn sem oftar hvað sá vikudagur hef- ur jafnan reynzt erfiður, einkum að sumarlagi. Fyrst voru í boði þrjár út- setningar sem Herbert H. Ágústs- son, fyrrum hornleikari í SÍ og upp- haflega austurrískur samlandi Páls P. Pálssonar, gerði á íslenzkum þjóðlögum úr safni sr. Bjarna Þor- steinssonar fyrir strengjameðlimi Tríós Reykjavíkur árið 1989, eða nánar tiltekið Góð börn og vond, Sofðu unga ástin mín (sem Jón Þór- arinsson telur raunar, og ekki ótrú- verðugt, að sé eftir þjóðsöngshöf- undinn Sveinbjörn Sveinbjörnsson) og stef og tilbrigði um Fuglinn í fjörunni. Allar hugvitssamlega gerð- ar, gæddar ótrúlegri fyllingu í gjöf- ulli ómvist kirkjunnar og ljómandi vel fluttar af þeim hjónum Guðnýju Guðmundsdóttur og Gunnari Kvar- an. Tríó Reykjavíkur lék næst Tríó í g-moll Op. 15 frá 1855 eftir Bedrich Smetana er tékkneski þjóðarkomp- ónistinn samdi til minningar um barnunga dóttur sína. Stóð sérstak- lega upp úr lokaþátturinn, sópandi rondó í 6/8 sem leikið var af mikilli til- finningu, enda þótt glymja vildi full- mikið í píanóinu í fáskipaðri kirkj- unni. Afþreyingarsprengja síðari ára, samhliða niðurskurði í ríkisútvarps- rekstri og rýrnandi tónmenntakynn- ingu grunnskólans, vekur æ þyngri áhyggjur um framtíðarhlustendur sí- gildrar tónlistar. Það er því ekki nema von að hinn stöðugt fjölgandi og batnandi hópur hérlendra hljóm- listarmanna líti í egin barm og hugi að því hvað gera megi í stöðunni. Í því ljósi mætti e.t.v. skoða athyglivert framtak Tríós Reykjavíkur á Björt- um sumarnóttum þennan dag og kvöldið áður, þegar hefðbundið klass- ískt verkefnaval var brotið rækilega upp með óvæntri gestaframkomu hins að hluta til rokkskotna trúba- dúrs Bubba Morthens. Í fyrra tilviki með – á slíkum vettvangi – sjald- heyrðri „cross over“-millimúsík. Að þessu sinni var Bubbi hins veg- ar einn um hituna, þ.e. eftir hlé og við eigin kassagítarleik, hvort tveggja að vísu uppmagnað. Oft kröftugur en samt furðufjölbreyttur og víða seið- andi gítarsláttur trúbadúrsins vakti snemma spurningu um hvort ekki hefði farið enn betur að hafa gítarspil hans með í stað hörpunnar í strengja- kvartettsútsetningunum á föstu- dagskvöld, og þyrfti ekki að leita for- dæma lengra en til Yesterday McCartneys. Raunar stappaði gítar- leikurinn stöku sinni nærri klassísk- um tilþrifum – einkum í tokkötu- kenndum inngangi að Myrkri, sjó og sandi er auðveldlega hefði mátt eigna Albeniz eða Barrios. Hin lögin voru Fastur liður (um stríðsrekstur í beinni útsendingu), Alla daga, allar nætur, Þá verður gaman að lifa (um íslenzka byggðastefnu), Segulstöðv- arblús (molto rubato í safaríkum Lee Hooker-stíl við samnefnt ljóð Þórar- ins Eldjárn) og ókynnt lag. Sungið var af djúpri sannfæringu og aðeins á mæltum kynningum Bubba að greina að röddin væri enn ekki í fullu fjöri eftir slæmsku fyrra dags. Gömlu meistararnir Síðasta kvöld Bjartra sumarnótta hófst á sex útsetningum Beethovens á skozkum þjóðlögum fyrir rödd og píanótríó, meðal tæpra 70 brezkra þjóðlaga sem hann vann fyrir George Thomson forleggjara í Edinborg um 1809–17. Þjóðlagaunnendur hafa síð- ar legið Beethoven á hálsi fyrir að „stássstofugera“ þannig rödd alþýðu, en því má á móti ekki gleyma, að þannig komust þjóðlögin til vegs og virðingar á tímum þegar þau lágu annars undir gleymsku og niður- níðslu. Raunar fylgdi hann hvað það varðar í kjölfar bæði Haydns og Moz- arts, sem áður höfðu einnig útsett þjóðlög fyrir Thomson. Þrátt fyrir heldur hægt og þungt hraðaval var túlkun þeirra Rannveigar Fríðu og Tríós Reykjavíkur víða heillandi, ekki sízt í hinu bráðfallega The sweetest lad was Jamie, jafnvel þótt óperuröddin hefði mátt þoka ögn fyr- ir alþýðlegum brjósttóni, einnig til ágóða fyrir textann. Einnig var sér- kennilegt hversu lengi dróst að koma þrískiptum takti til skila í Sally in our alley. Pálína Árnadóttir skilaði aftur á móti glampandi tækni og glófríðum tóni í Scherzóvalsi Tjækovskíjs við dyggan píanóstuðning Peters Máté, og saknaði maður aðeins ofurlítið djarfari rúbató-mótunar. Sönglögin fjögur í Lieder eines fahrenden Gesellen eftir Gustav Mahler voru í beztu höndum þeirra Gerrits og Rannveigar, er hér var greinilega á heimavelli, enda lögin sem sköpuð fyrir raddgerð hennar. Hinn nærfellt sinfónískt hugsaði 1. Píanókvartett Johs. Brahms í g-moll, er TR og Unn- ur Sveinbjarnardóttir fluttu svo eft- irminnilega í Hveragerðiskirkju fyrir fimm árum, myndaði síðan glæsileg- an endapunkt á Björtum sumarnótt- um, hér sem fyrrum með Gerrit Schuil í myndugu akkerishlutverki slagharparans. TÓNLIST Seltjarnarneskirkja Verk eftir Brahms, Sarasate, Saint- Saëns, Massenet, Bubba Morthens í úts. Hafnkels Orra Egilssonar, Rachmaninoff, Bizet og Verdi. Rannveig Fríða Braga- dóttir mezzosópran, Gerrit Schuil píanó, Bubbi Morthens söngur, Monika Abend- roth harpa, Pálína Árnadóttir fiðla, Unnur Sveinbjarnardóttir víóla og Tríó Reykja- víkur (Guðný Guðmundsdóttir fiðla, Gunnar Kvaran selló og Peter Máté pí- anó). Föstudaginn 13. júní kl. 20. KAMMERTÓNLEIKAR Bjartar nætur við nýjan hljóm Ríkarður Ö. Pálsson Morgunblaðið/Jim Smart Seltjarnarneskirkja var vettvangur Bjartra sumarnátta. Verk eftir Herbert H. Ágústsson, Smet- ana og Bubba Morthens. Tríó Reykjavík- ur; Bubbi Morthens söngur/gítar. Laug- ardaginn 14. júní kl. 17. Tsjækovskíj: Waltz Scherzo Op. 34. Beethoven: Þjóðlagaútsetningar. Mahler: Lieder eines fahrenden Gesellen. Brahms: Píanókvartett nr. 1 í g Op. 25. Rannveig Fríða Bragadóttir mezzosópran, Gerrit Schuil píanó, Pálína Árnadóttir fiðla, Unn- ur Sveinbjarnardóttir víóla og Tríó Reykja- víkur. Sunnudaginn 15. júní kl. 20. ULLA Stridfeldt, ekkja Alfs Strid- feldts, opnar sýningu á verkum hans í Eden í Hveragerði kl. 14 í dag. Alf, sem lést í apríl á þessu ári, var sænskur listamaður og er vel kunnur í heimalandi sínu þar sem hann vann með ýmsa miðla m.a. glerunga, myndhögg, málverk og grafík. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem sjá má verk Alfs hér á landi en hann hélt sýningu í mars sl. í Gall- eríi Hári og list í Hafnarfirði. Þórður Benediktsson var tengi- liður Alfs við Ísland í mörg ár og út- vegaði honum efnivið í listaverkin. „Ég kynntist Alf í Svíþjóð fyrir 20 árum, þá flutti ég út hraun og vikursteina frá Íslandi sem hann notaði við list sína. Hann vann úr ýmsum efnum, byggði úr steini, notaði málningu og málaði vatns- litamyndir. Öll verkin báru keim af íslensku landslagi en á íslenska jörð hafði hann aldri drepið niður fæti,“ segir Þórður. „Í hitteðfyrra bauð ég honum hingað til lands og ferð- aðist hann þá um landið og var það einskonar pílagrímsferð. Hann hélt síðan myndlistarsýningu í þrjár vikur hjá Halla rakara síðastliðinn vetur og ákvað í kjölfarið að halda sýningu í Eden. Því miður auðn- aðist honum ekki aldur til að láta þann draum sinn rætast en hann lést úr hjartaslagi fljótlega eftir heimkomuna í apríl sl. Með sýning- unni gerir Ulla Íslandsdraum Alfs að veruleika.“ Á sýningunni verða eingöngu verk unnin úr bræddum glersalla en hann lagði aðallega áherslu á þá vinnuaðferð í list sinni hin síðari ár. Verk eftir Alf Stridfeldt í Eden Alf Stridfeldt myndlistarmaður við verk sín. JÓNSMESSUHÁTÍÐ verður haldin á Eyrarbakka í dag á sumarsólstöð- um og er þetta í fimmta sinn sem há- tíðin er haldin. Dagskrá er sem hér segir: Óðinshús kl. 13–21 Díana Hrafns- dóttir og Elva Hreiðarsdóttir sýna grafíkverk og nefnist sýningin Haf- sýnir. Sýningin stendur til 29. júní og er opin föstudaga, laugardaga og sunnudaga. Gamla Rafstöðin á Eyrarbakka kl. 14–19 Opið hús hjá Sjöfn Har og að auki alla sunnudaga í sumar. Staður kl. 14–18 Ljósmyndasýn- ingarnar Þorpsbúar og Kommóðu- myndir. Garðstún kl. 16 Unga kynslóðin fær að fara á bak reiðhestum. Eyrarbakkakirkja kl. 16 Jörg E. Sondermann leikur á orgelið og Magnús Karel Hannesson segir sögu kirkjunnar og greinir frá kirkjugrip- um. Gengið um götur Eyrarbakka kl. 19.30 með leiðsögn. Gangan hefst við kirkjugarðinn og lýkur við Húsið – Byggðasafn Árnesinga. Byggðasafn Árnesinga í Húsinu og Sjóminjasafnið á Eyrarbakka verða opin á venjulegum opnunar- tíma, að auki verður opið frá kl. 20 til 22 fyrir Jónsmessuhátíðargesti. Í Húsinu stendur yfir sýning á andlits- myndum Eyrbekkingsins Sigurjóns Ólafssonar myndhöggvara. Almennur söngur verður í Húsinu frá kl. 20.45 til 21.45 með píanóund- irleik. Kveikt verður í Jónsmessu- brennu um kl. 22 vestan við bryggj- una á Eyrarbakka og bæjarstjórinn í Árborg, Einar Njálsson, ávarpar há- tíðargesti. Sveitarfélagið Árborg styrkir há- tíðarhöldin nú sem fyrr. Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka DÆGRADVÖL, félag um menningu og listir í Bessastaðahreppi, fagnar sumarsólstöðm með listsýningum í dag kl. 13. Í Leirkrúsinni, Marbakka, Há- kotsvör 9, sýna 18 nemendur Leir- krúsarinnar ýmsa leirmuni fyrir garða og garðskála. Þá verður sýn- ing „Ljós og skuggar á Álftanesi“ opnuð í Haukshúsi. Þar mun Júlíus K. Björnsson sýna ljósmyndir tekn- ar í náttúru Álftaness og Anna Gréta sýnir vatnslitamyndir. Sýning henn- ar nefnist „Minningar og músíkalsk- ir englar“. Myndlist í Bessastaða- hreppi Á AÐALFUNDI Félags íslenskra bókaútgefenda var samþykkt eftir- farandi ályktun: „Félag íslenskra bókaútgefanda fagnar hugmyndum sem fram komu í aðdraganda kosninga um lækkun eða niðurfellingu á virðisaukaskatti af bókum. Ísland er lítið málsvæði sem engu að síður getur státað af fjöl- breytni í bókaútgáfu og bókmennta- hefð sem nýtur virðingar langt út fyr- ir landsteina. Nauðsynlegt er að tryggja að íslenskir lesendur hafi greiðan aðgang að helstu stoðritum á sínu móðurmáli og að það sem hæst ber í erlendum bókmenntum rati í ís- lenskar þýðingar. Bækur eftir ís- lenska höfunda hafa á undanförnum árum vakið athygli víða um heim og enn leynast fleiri tækifæri í útrás ís- lenskra bókmennta. Því er nauðsyn- legt að íslensk bókaútgáfa búi við að- stæður sem sambærilegar eru við nágrannalönd okkar. Aðalfundurinn skorar á forystumenn þeirra stjórn- málaflokka sem nú eru að mynda rík- isstjórn að efna þau fyrirheit sem gef- in voru og helst af öllu fella virðisaukaskatt af bókum niður. Með því móti myndu stjórnvöld skipa Ís- landi í fremstu röð þeirra þjóða sem setja bækur í öndvegi.“ Útgefendur álykta um virðisaukaskatt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.