Morgunblaðið - 29.06.2003, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JÚNÍ 2003 45
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
KRABBI
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert ætíð ung(ur) í anda og
nýtur þess að dansa og
hlusta á tónlist. Lífsgleði þín
gerir það að verkum að aðrir
hrífast með þér. Þú ert mik-
ill mannþekkjari.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Dagurinn gæti orðið ánægju-
legur. Það er þó undir þér
komið. Hamingja felst í því
að vera ánægð(ur) með það
sem maður hefur.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Samtöl við kunningja og vini
eru gefandi í dag. Engin
spenna er í loftinu og því
skaltu taka lífinu með ró.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Vinir eru ánægðir að sjá þig í
dag! Nú væri gott að stunda
viðskipti og gera hluti með
kunningjahóp sínum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Reyndu að fá eilítið næði í
dag. Það gæti reynst róandi
að leysa krossgátuna í
blaðinu. Gerðu hvaðeina sem
felur í sér slökun.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Áætlanir sem fela í sér ferða-
lög höfða til þín í dag. Þú hef-
ur mikinn áhuga á einhverju
sem er í brennidepli hjá fjöl-
miðlum þessa stundina.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Vinur gæti rétt þér hjálpar-
hönd við að flytja búnað þinn
eða eigur. Einnig gæti ein-
hver gefið þér góð ráð varð-
andi fjármál.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Í dag er ákjósanlegt að gefa
sig á tal við einhverja áhrifa-
mikla persónu. Nánir vinir
bíða óþreyjufullir eftir niður-
stöðum samtalsins.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þetta er dásamlegur dagur
til þess að stunda vinnu sína
af krafti! Þú getur komið
miklu í verk, og það sem
meira er, þér líkar vel við
samstarfsfólk þitt.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Sökum stöðu himintunglanna
þarftu að sýna öðrum þolin-
mæði og gjafmildi. Eftir
nokkra daga verður þessu öf-
ugt farið.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Umræður um hin ýmsu mál í
fjölskyldu þinni ganga
snuðrulaust fyrir sig í dag.
Ekki hika við það að koma
með athugasemdir. Þeim
verður vel tekið.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Hugur þinn er skýr og skap-
andi í dag. Það eru margir
hlutir sem þú kýst að koma í
verk og þér mun takast það.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Reyndu að koma þér í form.
Þú hefur mikla orku og ert í
skapi til þess að hreyfa þig.
Allar tegundir íþrótta heilla
þig þessa stundina.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
VÍSA
Undrast öglis landa
eik, hví vér erum bleikir.
Fár verðr fagr af sárum.
Fann eg örva drif, svanni.
Mig fló málmr inn dökkvi
magni keyrðr í gögnum.
Hvasst beit hjarta ið næsta
hættlegt járn, er vætta eg.
Þormóður Bessason Kolbrúnarskáld.
LJÓÐABROT
HLUTAVELTA
SABINE Auken spilaði
sitt fyrsta alþjóðamót í
Brighton 1987. Hún gleym-
ir þessu spili aldrei, sem
kom upp í leik við heima-
menn:
Norður
♠ Á8
♥ 54
♦ ÁKG9652
♣Á2
Suður
♠ KG10
♥ K83
♦ 108
♣D9654
Sabine varð sagnhafi í
þremur gröndum í suður
og fékk út lítið hjarta. Á
andstöðunni var eitt þekkt-
asta kvennapar Breta, Nic-
ola Smith og Pat Davis.
Austur lét hjartagosann í
fyrsta slaginn. Hvernig
myndi lesandinn spila?
Hér er það tíguldrottn-
ingin sem allt snýst um.
Það má toppa litinn eða
taka hámann og svína svo
gosanum. Líkurnar eru
svipaðar, en þó er heldur
betra að taka ÁK. Slíkar
vangaveltur koma þó
spilinu lítið við. Sabine
fann drottninguna í
FYRSTA slag – hún
„vissi“ að austur var með
hana þriðju!
Norður
♠ Á8
♥ 54
♦ ÁKG9652
♣Á2
Vestur Austur
♠ D7652 ♠ 943
♥ D10962 ♥ ÁG7
♦ 7 ♦ D43
♣83 ♣KG107
Suður
♠ KG10
♥ K83
♦ 108
♣D9654
Það var glæsileg vörn
hjá Pat Davis að láta
hjartagosann í fyrsta slag.
Ef hún tekur á ásinn og
spilar meira hjarta, dúkkar
sagnhafi og rýfur sam-
bandið í hjartalitnum. En
þessi ákvörðun kostaði ör-
litla umhugsun, pínulítið
hik, sem Sabine veitti at-
hygli. Slíkt hik – þótt lítið
sé – er ástæðulaust nema
austur hafi um eitthvað að
hugsa. Og austur gat ekki
þurft að íhuga neitt nema
eiga hjartaásinn með gos-
anum og auðvitað tígul-
drottninguna valdaða. Sab-
ine beit því á jaxlinn og
dúkkaði hjartagosann!
Kjarkmikil ákvörðun,
byggð á borðtilfinningu og
engu öðru. Það er gaman
að finna drottningar á
þennan hátt.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
1. Rf3 Rf6 2. g3 g6 3. b3 Bg7
4. Bb2 0-0 5. Bg2 d6 6. d4
Rbd7 7. Rbd2 c6 8. 0-0 Dc7
9. e4 a5 10. a4 b6 11. He1
Ba6 12. h3 e5 13. dxe5 dxe5
14. Bf1 Bxf1 15. Kxf1 Had8
16. De2 Hfe8 17. Had1 Rc5
18. Kg2 Hd7 19. Dc4 Rh5 20.
Rf1 Hxd1 21. Hxd1 Rf6 22.
He1 Rfd7 23. Re3 Rf6 24.
Rg4 Rxg4 25. hxg4
Hd8 26. De2 Re6 27.
Hd1 Rd4 28. Bxd4
exd4 29. e5 c5 30. e6
He8 31. exf7+ Dxf7
32. Db5 Hf8 33. Dc4
Dxc4 34. bxc4 Hd8
35. Re1 He8 36. Kf1
Bh6 37. Rd3 He4 38.
f3 He6 39. f4 Bf8 40.
He1 Hd6 41. He8
Kf7 42. Hb8 Bg7 43.
Hb7+ Kf8 44. Kf2
He6 45. g5 h5 46.
gxh6 Bxh6 47. Re5
g5
Staðan kom upp á
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Skákþingi Hafnarfjarðar
sem lauk fyrir skömmu.
Sævar Bjarnason (2.300)
hafði hvítt gegn Sigurbirni
Björnssyni (2.335). 48.
Hxb6! Hxb6 49. Rd7+ Kf7
50. Rxb6 gxf4 51. g4! Ke6
52. Kf3 d3 53. cxd3 Ke5 54.
Rd5 Bg5 54. ... Kd4 hefði
engu bjargað vegna 55.
Rxf4 og hvítur vinnur. 55.
Rc7 Bh6 56. Rb5 Bg7?! 56.
... Bg5 var betra. 57. g5 Bf8
58. Kg4 Bg7 og hvítur vann.
Laugavegi 46 • sími 561 4465 • Opið mán.-fös. frá kl. 10-18 • lau. frá kl. 10-16.
Útsalan hefst á
morgun
VELVILDARMAÐUR
þessara pistla benti mér
á eftirfarandi fyrisögn,
sem stóð í Mbl. 6. apríl
sl.: Ótrúlega gaman að
aka í púðursnjó [feitletr-
að hér]. Þar segir frá
snjósleðaferð í Kletta-
fjöllunum í Kanada. Í
frásögninni er talað um,
að þeir fóru á snjósleðum
um stíga, sem engir voru
búnir að fara á undan
þeim. Síðan segir orð-
rétt: „Þeir voru því
ótroðnir og púðursnjór
yfir öllu, sem var okkur
framandi. En það krefst
allt öðruvísi ökutækni að
aka í púðursnjó en harð-
fenni, eins og við erum
vön hérna heima.“ Við-
mælandi minn gizkaði á,
að þetta væri bein þýð-
ing á ensku orði, powder-
snow. Trúlega er það
rétt ágizkun, enda þótt
ég finni það orð ekki í
Ensk-íslenzku orðabók
Arnar og Örlygs. Vita-
skuld skilja allir, við
hvað er átt með þessu
orði, enda púður vel
þekkt í íslenzku. Ein
merking þess er einmitt
duft til að bera á hörund.
Hér hefur því einhverj-
um dottið í hug að líkja
snjónum við duft og
þannig farið að tala um
púðursnjó. Aftur á móti
er þetta orð með öllu
óþarft í máli okkar og
ætti helzt aldrei að heyr-
ast eða sjást, meðan við
höfum jafn ágætt orð og
lausamjöll, sem ég held –
eða vona a.m.k., að allir
kannist við og þá ekki
síður vélsleðamenn, sem
þykir trúlega skemmti-
legast að þeysast um ný-
fallinn snjó, þ.e. lausa-
mjöllina. Orðabók
Háskólans hefur dæmi
um lausamjöll frá því á
17. öld, en ekkert dæmi
um púðursnjó, enda það
örugglega lítt þekkt eða
óþekkt í máli okkar fyrr
en þá á síðustu árum. Vel
má vera, að vélsleða-
menn noti það eitthvað í
sínu máli. Sé svo, bendi
ég þeim á að nota heldur
íslenzka orðið. lausa-
mjöll, enda er merking
þess gagnsæ og öllum
auðskilin. – JA.J.
ORÐABÓKIN
Púðursnjór – lausamjöll
Þessir duglegu krakkar úr Kvíslunum héldu tombólu til
styrktar Rauða krossi Íslands og söfnuðu þau kr. 8.939.
Þau eru: Styrkár, Snæþór, Ásgrímur, Snorri, Páll Halldór,
Elsa Björk, Sveinbjörg og Þóra Silja. Á myndina vantar
Diljá, Sigrúnu, Bergdísi, Signýju og Guðmund.
LÆKNAVAKTIR
BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á
kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11–15.
Upplýsingar í s. 563 1010.
BRÁÐAMÓTTAKA fyrir þá sem ekki hafa heimilislækni
eða ná ekki til hans opin kl. 8–17 v.d. S. 543 2000 eða
543 1000 um skiptiborð.
LÆKNAVAKT miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin í
Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafn-
arfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl. 17–23.30
v.d. og kl. 9–23.30 um helgar og frídaga. Vitjanabeiðni
og símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólarhringinn um
helgar og frídaga. Nánari upplýsingar í s. 1770.
SJÚKRAHÚS REYKJAVÍKUR: Slysa- og bráðamóttaka í
Fossvogi er opin allan sólarhringinn fyrir bráðveika og
slasaða s. 543 1000 um skiptiborð / 543 2000 beinn sími.
TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhá-
tíðir. Símsvari 575 0505.
VITJANAÞJÓNUSTA læknis í heimahús. Alla v.d. kl. 10–
16. Símapantanir og ráðgjöf kl. 8–20 í síma 821 5369.
LÆKNALIND, Bæjarlind 12, Kópavogi. Einkarekin lækn-
isþjónusta. Vaktþjónusta alla virka daga kl 08–17. Uppl.
í síma 520 3600 og á heimasíðu www.laeknalind.is
APÓTEK
LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl. 8–
24, virka daga, kl. 10-24 um helgar. Sími 581 2101.
APÓTEKIÐ: LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl.
8–24. S. 533 2300.
LYFJA, Smáratorgi: Opið alla daga ársins kl. 8–24. Sími
564 5600.
BORGARAPÓTEK: Opið alla daga til kl. 24, virka daga kl.
9–24 og um helgar kl. 10–24. Sími 585 7700. Læknasími
585 7710 og 568 1250. Fax: 568 7232.
Milli kl. 02 og 8 er lyfjaþjónusta á vegum læknavaktar.
NEYÐARÞJÓNUSTA
NEYÐARMÓTTAKA vegna nauðgunar er opin allan sól-
arhringinn, s. 525 1710 eða 525 1000.
EITRUNARUPPLÝSINGASTÖÐ er opin allan sólar-
hringinn. S. 525 1111 eða 525 1000.
ÁFALLAHJÁLP. Tekið er á móti beiðnum allan sólar-
hringinn. S. 525 1710 eða 525 1000 um skiptiborð.
BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf-
rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra
daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493.
HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af dep-
urð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Fullum
trúnaði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum sím-
um.
TRÚNAÐARSÍMI RAUÐAKROSSHÚSSINS. Ráðgjafar-
og upplýsingasími ætlaður börnum, unglingum og að-
standendum þeirra. Nafnleynd. Opið allan sólarhr.
Gjaldfrjálst númer: 1717 – Netfang: husid@redcross.is
VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer
800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til
að tala við. Svarað kl. 20–23.
BILANAVAKT BORGARSTOFNANA, sími 5 800 430
tekur við tilkynningum um bilanir og liðsinnir utan
skrifstofutíma.
NEYÐARSÍMI FORELDRA 581 1799 er opinn allan sólar-
hringinn. Vímulaus æska- Foreldrahús.
Neyðarnúmer fyrir allt landið - 112
KIRKJUSTARF
Háteigskirkja. Eldri borgarar. Félagsvist á
morgun í Setrinu kl. 13. Pútt alla daga kl.
10 ef veður leyfir.
Grafarvogskirkja. Bænahópur kl. 20. Tek-
ið er við bænarefnum alla virka daga frá
kl. 9–17 í síma 587 9070.
Lágafellskirkja. Bænastund á mánudags-
kvöldum í Lágafellskirkju kl. 19.30.
Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld sunnudag
kl. 19.30.
Krossinn. Almenn samkoma í Hlíðasmára
5 kl. 16.30. Allir velkomnir.
Fríkirkjan KEFAS, Vatnsendabletti 601. Í
kvöld er vitnisburðasamkoma kl. 20. Lof-
gjörð og fyrirbænir. Barnagæsla fyrir 1–7
ára börn á samkomutíma. Kaffi og sam-
félag eftir samkomu. Allir eru hjartanlega
velkomnir.
Fíladelfía. Sunnudagur 29. júní: Almenn
samkoma kl. 20. Ræðumaður Jóhannes
Hinriksson. Sönghópur unglingastarfs
Fíladelfíu sér um lofgjörðartónlistina. Allir
hjartanlega velkomnir. Miðvikudagur 2.
júlí: Biblíulestur og bænastund /Vörður
Leví Traustason. Allir hjartanlega vel-
komnir. Fimmtud. 3. júlí: Eldur unga fólks-
ins kl. 21. Allir hjartanlega velkomnir.
Föstud. 4. júlí: Unglingasamkoma kl.
20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Filadel-
fia@gospel.is.
Morgunblaðið/SverrirLágafellskirkja.
Safnaðarstarf