Morgunblaðið - 29.06.2003, Side 52
52 SUNNUDAGUR 29. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. kl. 4. enskur textiSýnd kl. 4.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B. i. 16 ára.
KVIKMYNDIR.COMKVIKMYNDIR.IS
ÓHT Rás 2
„Grípandi og gefandi
með óborganlega
bardaga“
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B i. 12
HL MBL
SG DV
3 vik
ur
á to
ppnu
m
á Ísla
ndi
97.7
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15.
kl. 8 og 10. Bi. 16.
Síðustu sýningar í
STÆRSTA kvikmyndasal landsins
Sýnd kl. 6. Bi. 14.
with
english
subtitel ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
KRINGLAN
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Stelpan sem
þorði að láta
draumana
rætast!
t l
r i l t
r
r t t!
AKUREYRI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Stórskemmtileg ævintýra og
gamanmynd í anda Princess Diaries
frá Walt Disney
X-IÐ 97.7 DV
ÞÓTT ÍSLENDINGAR ogEvrópubúar yfirleitt hafi lít-ið af því að segja er vinsæl-asta tónlistarstefnan vestan
hafs sveitartónlist eins og sjá má á
listum yfir metsöluplötur. Sveitar-
tónlist er þó ekki bara glans og
glamúr frá Nashville, heldur spann-
ar hún ótal afbrigði, allt frá frum-
stæðri fiðlu- og banjótónlist úr
Apallachian-fjöllum í gljáfægða met-
sölutónlist. Gerjunin er líka mikil í
sveitartónlistinni og óvenju mikil
reyndar síðustu ár þar sem menn
hafa verið að fást við það sem kallast
alt.country eða nýsveitarrokk,
nýblágresi, þjóðlagapopp, Honky
Tonk, framúrstefnulega sveit-
artónlist eða bara gamla góða Nash-
ville-tónlist.
Gillian Welch þekkja væntanlega
flestir fyrir framlag sitt til mynd-
arinnar O Brother, Where Art
Thou?, en í henni söng hún lög með
Alison Krauss og Emmylou Harris.
Flestir hafa líklega farið á mis við
framúrskarandi plötu hennar frá
þarsíðasta ári, Time (The Revelat-
or), sem var með bestu plötu þess
árs, en dreifing á henni var í skötu-
líki hér á landi. Nú geta menn þó
tekið gleði sína, því ný skífa Welch,
Soul Journey, hefur almenna dreif-
ingu um heim allan á vegum Warn-
er-útgáfurisans og því fáanleg hér á
landi.
Fjórða sólóskífan
Soul Journey er fjórða sólóskífa
Welch, en þó varla hægt að kalla
plötur hennar sólóskífur því hægri
hönd hennar (og sambýlismaður) er
gítarleikarinn snjalli David Rawl-
ings og hann semur öll lög með
henni, útsetur og stýrir upptökum.
Rawlings er aftur á móti frægur fyr-
ir hlédrægni og kýs því að halda sig
til hlés en leyfa Welch að fá heið-
urinn.
Tónlist Gillian Welch sver sig
nokkuð í ætt við þá endurreisn sem á
sér stað í bandarískri sveitatónlist
sem sumir kalla endurkomu
blágresisins en er frekar almenn
vakning og trú á að einfaldleikinn sé
bestur. Það mátti og glöggt heyra á
síðustu skífu Welch sem var ein-
staklega lágstemmd og blíð, þó með
beiskum undirtón og þrungin ljúf-
sárum trega. Á Soul Journey kveður
aftur á móti við annan tón, óforvar-
andis smýgur skældur rafgítar inn í
lag, síðan rafbassi og trommur – er
nema von að mörgum finnist þeir
hafa verið sviknir, eða í það minnsta
hafa margir kvartað yfir því að
Welch sé ekki trú málstaðnum, enda
eru engir eins íhaldssamir og
byltingarmenn.
Ekkert dregið undan
Eins og Welch lýsir skífunni sjálf
er hún sjálfsævisöguleg, „eins og
allar plötur mínar reyndar, en að
þessu sinni er ég sjálf að segja frá,
beiti ekki fyrir mig utanaðkomandi
sögumanni, og dreg ekkert undan.“
Platan var tekin upp í fyrstu viku
marsmánaðar „og unnin hratt, ekk-
ert spáð í upptökurnar eftir á vegna
þess að ég vildi ekki að menn færu að
velta hlutunum of mikið fyrir sér“.
Aðstoðarmenn þeirra Welch og
Rawlings á skífunni eru bassaleik-
arinn Jim Boquist, liðsmaður Son
Volt, dóbróleikarinn Greg Leisz,
fiðluleikarinn Ketch Secor og
gítarleikarinn Mark Ambrose, en
annar hljóðfæraleikur var í höndum
Welch og Rawlings, þar á meðal
trommur, orgel og fjölda gítara.
Sérdeilis rólyndislegur blær er yf-
ir öllu saman, greinilegt að tónlistar-
mennirnir voru ekki síst að skemmta
sjálfum sér hvort sem þeir voru að
spila nýmóðins blágresi eða sveita-
rokk enda segir Welch að Soul
Journey sé sólríkasta plata hennar,
ef ekki heiðskírt þá að minnsta kosti
léttskýjað.
Mesta fjörið er í lokalagi plöt-
unnar, Wrecking Ball, sem byrjaði
sem óskipulagður spuni og endaði
sem lag sem allt var spilað beint inn
og sungið – fjörugt nýsveitarokk
sem bendir til þess að þau Welch og
Rawlings séu enn að bæta við sig;
það verður gaman að heyra næstu
skífu.
Hryggjarstykki plötunnar eru þó
lögin þrjú sem Welch flytur ein síns
liðs, fyrstu hreinræktuðu sólólög
hennar, þjóðlögin Make Me a Pallet
On Your Floor og I Had a Real Good
Mother and Father og lagið One
Little Song sem hún samdi sjálf.
Í spjalli á vefsetri sínu segist hún
ekki hafa hugsað sér að gefa þau út,
þetta hafi eiginlega verið upptökur
sem hún gerði fyrir sjálfa sig.
Sjálfsævisöguleg
heiðríkja
Bandaríska söngkonan Gillian Welch hefur
löngum haft einfaldleikann í hávegum.
Ný skífa hennar, Soul Journey, kom því
mörgum úr jafnvægi.
Gillian Welch
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Robbie Williams hefur viðurkennt
að hann sé háður þunglyndislyfjum.
Í opinskáu viðtali við breska tímarit-
ið Q sagði hann
frá sjúkdómi sín-
um sem hann
segir ættgengan.
Í viðtalinu sagði
söngfuglinn m.a.:
„Ég held að ég sé
ánægður vegna
lyfjanna. Það er
engin sérstök
ástæða fyrir
þunglyndi mínu og ég held að enginn
skilji þetta í raun og veru. Þetta er
líkt og að vera stunginn í fótinn og
fólk segi að það geri ekkert til vegna
þess að ég eigi sundlaug og hafi frá-
bært útsýni.“
Robbie neitar þó að álag það sem
fylgir frægðinni hafi eitthvað með
veikindi hans að gera og bætir við:
„Þetta snýst ekki um álag. Ég hélt
það í fyrstu en þegar álagið minnk-
aði gerði ég mér grein fyrir að þetta
snérist einungis um það að vera
þunglyndur eða ekki.“
Nýlega viðurkenndi hann að nú væri
áralöng eiturlyfjaneysla byrjuð að
taka sinn toll. Það er talið að bágbor-
ið andlegt ástand hans og ofsóknar-
æði hafi eyðilagt samband hans við
Rachel Hunter. … Fregnir herma
að móðir leikarans Ashtons Kutch-
ers hafi lagt blessun sína yfir sam-
band sonar síns við leikkonuna
Demi Moore. Kutcher er 25 ára en
Moore er 15 árum eldri.
Haft er eftir Díönu Kutcher í
bandarískum fjölmiðlum að henni
þyki samband sonar síns og Moores
ekkert óþægilegt. Hún sé sjálf 10 ár-
um eldri en eiginmaður sinn, stjúp-
faðir Ashtons.
Díana segist vona að sonur sinn
komi með nýju kærustuna í heim-
sókn til fjölskyldunnar, sem býr á
búgarði í Iowa. „Ég býst við að Demi
komi í heimsókn og þurfi að fara
gegnum hakkavél Kutcherfjölskyld-
unnar eins og hver annar,“ sagði hún
í samtali við tímaritið Heat.
FÓLK Ífréttum