Morgunblaðið - 01.07.2003, Side 10

Morgunblaðið - 01.07.2003, Side 10
FRÉTTIR 10 ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ FULLTRÚAR Samfylkingarinnar í utanríkis- málanefnd og þingflokkur Vinstri grænna telja að aflétta eigi leynd yfir bréfaskriftum Banda- ríkjaforseta og Davíðs Oddssonar forsætisráð- herra vegna viðræðna um framtíð bandarísks varnarliðs á Íslandi. Í ályktun, sem þingflokkur VG sendi frá sér, kemur að auki fram að flokk- urinn telji það fagnaðarefni að sá tími sé í sjón- máli að erlendur her hverfi með öllu úr landinu. VG segir í ályktun sinni að ætla megi af fram- göngu stjórnvalda að „erlend herseta um ókomna tíð og óháð aðstæðum sé orðin markmið í sjálfu sér“. Guðmundur Árni Stefánsson, fulltrúi Sam- fylkingar í utanríkismálanefnd, hefur sent Sól- veigu Pétursdóttur, formanni nefndarinnar, bréf þar sem þess er krafist að haldinn verði fundur í nefndinni hið fyrsta. Guðmundur Árni sendir bréfið í umboði þriggja fulltrúa Samfylk- ingarinnar í nefndinni og er formanni því skylt, skv. 15. gr. laga um þingsköp, að boða til fundar. Ákvæðið felur ekki sér að fundurinn skuli hald- inn innan tiltekins tímafrests en Sólveig segir erfitt að koma saman fundi á þessum árstíma. Hún býst við að haldinn verði fundur í utanríkis- málanefnd haldinn um miðja næstu viku Setur spurningarmerki við stuðning „Mér finnst þetta vera fyrir neðan allar hellur og hreinlega til skammar,“ segir Sólveig um málflutning Guðmundar Árna á síðustu dögum. Hún segir að vegna þingskaparlaga verði að halda fund í nefndinni en telur hann ekki nauð- synlegan: „Ég hef áður lýst því yfir að ég telji að ekkert nýtt hafi komið fram í þessum viðræðum milli Íslendinga og Bandaríkjamanna og hef því ekki séð þörf á fundi af þeirri ástæðu,“ segir Sól- veig. „Talsmaður Samfylkingarinnar hefur áður lýst yfir stuðningi við ríkisstjórnina í þessu máli. Ég hlýt að setja spurningarmerki við þann stuðning í ljósi þeirrar umræðu sem átt hefur sér stað,“ segir hún. Í bréfi Guðmundar Árna segir að utanríkis- málanefnd þurfi „að taka ákvarðanir um með hvaða hætti veittar verði upplýsingar til þing- manna og þjóðarinnar um stöðu þessara mik- ilvægu mála“. Guðmundur Árni segir að hann telji rétt að trúnaði verði létt af nefndarmönnum. „Ég vil að rætt verði um þá leynd sem hvílt hefur á til- teknum gögnum málsins, þá einkanlega á þess- um bréfum forsætisráðherra og forseta Banda- ríkjanna í ljósi þess að umræðan hefur verið mikil og byggð á hálfsannleik, getgátum og vangaveltum,“ segir Guðmundur Árni. „Mér finnst það eigi að birta bréfin. Svo gegnir auðvit- að öðru máli um einstök skref og einstök atriði í viðræðum. Það getur verið með þeim hætti að það þurfi að halda trúnaði yfir þeim.“ Guðmundur Árni segist hafa efasemdir um að það þjóni hagsmunum Íslands að reka málið með þeim hætti: „Í þingsköpum er það ákvörð- unarefni formanns eða ráðherra hvort trúnaður sé settur á. Ég tel efni til þess að nefndin ræði þetta. Það er svo kúnstug staða í þessum efnum. Það eru allir að fjalla um þetta mál efnislega á grundvelli einhverra fjölmiðlafrétta en við í ut- anríkismálanefnd vitum auðvitað hið sanna og rétta um stöðu málsins; a.m.k. svo langt sem það nær. Við getum hins vegar ekki tekið þátt í um- ræðu um málið af því að við erum bundin trún- aði,“ segir Guðmundur Árni. Nefndarmenn bundnir þagnarskyldu Í 24. gr. laga um þingsköp segir að nefndar- menn séu bundnir þagnarskyldu ef ráðherra eða formaður kveði svo á um. Sólveig Péturs- dóttir bendir á að fundirnir sem haldnir hafi ver- ið, þar sem nefndarmönnum var kynnt efni bréfaskiptanna, hafi verið með þeim formerkj- um að um trúnaðarupplýsingar væri að ræða. Hún segir að til greina komi að ræða um það á næsta fundi hvort trúnaðarbrestur hafi orðið og upplýsingar lekið af fundum nefndarinnar til fjölmiðla. Sólveig áréttar einnig að það sé ekki á forræði nefndarinnar að aflétta trúnaði um þessi skjöl þar sem lögin segi að hvort sem er ráðherra eða formaður kveði á um þagnarskylduna. Það sé því misskilningur hjá Guðmundi Árna að nefnd- in geti tekið ákvörðun um að aflétta þagnar- skyldunni. „Guðmundur Árni Stefánsson rökstyður beiðni sína um fund með því að utanríkismála- nefnd þurfi að taka ákvörðun um að aflétta trún- aði af þessu máli. Það er auðvitað alls ekki á for- ræði nefndarinnar að taka slíkar ákvarðanir. Mér finnst það alveg hreint með ólíkindum hvernig stjórnarandstaðan, einkum Samfylk- ingin, hefur talað í þessu máli. Ég hefði haldið að það þjónaði betur hagsmunum okkar Íslendinga að við stæðum saman í þessu viðkvæma og al- varlega máli fremur en að einstakir þingmenn, og einkum Samfylkingarmenn, séu að reyna að slá sér upp pólitískt á málinu,“ segir Sólveig. Hún bætir því við að sér finnist sæta furðu að ýmsir aðilar innan Samfylkingarinnar hafi tjáð sig opinberlega um málið: „Það eru ekki bara fulltrúar Samfylkingarinnar í utanríkismála- nefnd sem tjá sig um þetta mál heldur bara hver sem í næst; þ.á m. bæði þingmenn og jafnvel varaþingmenn,“ segir hún. Guðmundur Árni segir að Samfylkingin vilji, auk þess að fjalla um afléttingu trúnaðar á gögnum í málinu, ræða um embættismannafund sem haldinn var 23. júní sl. „Ég tel það afskap- lega eðlilegt að við fáum upplýsingar um þann fund, hvað fór fram á honum og hvað var ákveð- ið um næstu skref í þessari viðræðulotu. Ég tók eftir því í Morgunblaðinu í morgun [gærmorg- un] að aðstoðarmaður forsætisráðherra gat þess að forsætisráðherra hafi upplýst kollega sína á Norðurlöndum um þennan tiltekna fund en við í utanríkismálanefnd höfum ekki fengið neinar fregnir af honum,“ segir Guðmundur Árni. Vilja ræða um embættismannafund Hann segist telja Samfylkinguna hafa verið ábyrga í þessu máli og að flokkurinn leggi áherslu á að hér séu traustar varnir og segir að boði til ríkisstjórnarinnar um náið samráð í mál- inu ekki hafa verið tekið. „Við teljum málið graf- alvarlegt og raunar þannig að menn eigi að vona það besta en að vera viðbúnir hinu versta. Menn eiga að ræða hugsanlega stöðu málsins ef nið- urstöður samningaviðræðna við Bandaríkja- menn leiða til verulegra breytinga á umfangi varnarliðsins. Það er óhjákvæmilegt að menn skoði líka þá þætti málsins og fari í gegnum allt stafrófið í þessum efnum. Það er augljóslega allt undir,“ segir Guðmundur Árni. Hann segir at- burðarásina í málinu vera hraða og komið hafi fram að tímaramminn sé knappur. „Auðvitað ættu menn ekki að þurfa að standa í stappi við að fá þessi alvarlegu mál rædd í þeirri nefnd sem ber að fjalla um þau,“ segir Guðmundur Árni. VG vill að brugðist verði við brotthvarfi hers Í yfirlýsingu VG kemur fram að flokkurinn telji mikilvægt að hlúð sé að atvinnulífi á Suður- nesjum og hugað sé að viðskilnaði Bandaríkja- hers við umhverfið. „Það er úrhelt viðhorf að berjast fyrir óbreyttu ástandi,“ segir í ályktun þingflokks VG. „Verkefnið er að horfast í augu við veru- leikann og semja um hvernig þessar breytingar fara fram, enda fagnaðarefni í sjálfu sér ef unnt er að draga úr útgjöldum til hermála hér á landi sem annars staðar og að sá tími skuli nú í sjón- máli að erlendur her hverfi með öllu úr landinu.“ Vinstri hreyfingin-grænt framboð og Samfylking um varnarmálaviðræður Vilja að trúnaði á bréfum verði aflétt Ekki ákvörðun utanríkismálanefndar, segir Sólveig Pétursdóttir formaður hennar Á SUMRIN gefst krökkum góður tími til að leika sér og þurfa ekki að hanga inni yfir skólabókunum. Þessir strákar sem búa á Þórshöfn tóku lífinu með ró og voru að hanga úti, í bókstaflegri merkingu, þegar ljósmyndari smellti af þeim mynd. Morgunblaðið/Golli Lífinu tekið með ró LÝÐHEILSUSTÖÐ tekur til starfa í dag. Guðjón Magnússon læknir, sem skipaður var forstjóri Lýðheilsu- stöðvar til fimm ára frá 1. júlí 2003 og á samkvæmt því að hefja störf í dag, hefur farið fram á það við Jón Krist- jánsson, heilbrigðis- og trygginga- málaráðherra, að fá frí sem forstjóri til 15. september 2004, eða í hálfan fimmtánda mánuð. Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra, getur ekki fallist á ósk for- stjórans um svo langt leyfi, en hefur boðist til gefa honum frí frá störfum til 1. október í haust, segir í frétt frá heilbrigðisráðuneytinu. Heilbrigðis- málaráðherra telur afar brýnt að for- stjóri Lýðheilsustöðvar komi sem allra fyrst til starfa, þannig að hann geti tekið þátt í að móta og byggja upp starfsemi stöðvarinnar. Þetta er ástæðan fyrir því að ekki er unnt að verða við ósk nýskipaðs forstjóra um svo langt leyfi frá störfum þegar stofnunin tekur til starfa. Forstjóri settur til bráðabirgða Ákveðið hefur verið að setja for- stjóra til bráðabirgða þar til forstjóri tekur til starfa. Hlutverk bráða- birgðaforstjóra yrði fyrst og fremst að sinna fjármálum, starfsmanna- málum og stjórnsýslulegu hlutverki stofnunarinnar þar til ljóst verður hvort auglýsa þarf eftir forstjóra og skipa á nýjan leik. Embætti forstjóra Lýðheilsu- stöðvar var auglýst laust til umsókn- ar 27. mars 2003 og að undangengnu mati sérstakrar hæfnisnefndar var Guðjón Magnússon læknir skipaður forstjóri 12. maí 2003. Mánuði síðar varð heilbrigðismálaráðherra ljóst að skipaður forstjóri Lýðheilsustöðvar hefði sjálfur ekki gert upp hug sinn hvort hann tæki stöðuna eða ekki. Hefur síðan verið gengið eftir svari forstjóra. Af hálfu ráðherra hefur verið lögð rík áhersla á að ákvörðun lægi fyrir sem allra fyrst þannig að unnt yrði að gera nauðsynlegar ráð- stafanir fyrir 1. júlí 2003, þegar Lýð- heilsustöð tekur til starfa lögum sam- kvæmt, meðal annars til að forðast óvissu þeirra starfsmanna sem vinna að forvarnamálum á vettvangi ráð- anna og falla undir starfsemi Lýð- heilsustöðvar frá 1. júlí nk. Miður að skapast hafi óvissa Heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra þykir miður að skapast skuli hafa óvissa um starfsemi Lýðheilsu- stöðvar vegna málefna forstjóra sem leiðir óneitanlega til þess að stöðin tekur ekki til starfa af fullum krafti strax. Þau ráð og nefndir sem sam- einuð verða undir hatti Lýðheilsu- stöðvar munu starfa áfram og tryggt er að engin breyting verður á högum starfsfólks, segir í frétt frá heilbrigð- isráðuneytinu. Lýðheilsustöð tekur til starfa í dag Ekki fallist á beiðni forstjóra um ársleyfi Guðjón Magnússon Jón Kristjánsson VEGNA fréttar í Morgunblaðinu sunnudaginn 29. júní s.l. vill fram- kvæmdastjórn Íþrótta- og ólymp- íusambands Íslands koma eftirfar- andi á framfæri: „Framkvæmdastjórn ÍSÍ setti fram þá ósk við alþjóða Ólympíu- hreyfinguna að Júlíusi Hafstein yrði skipt út úr umhverfisnefnd IOC. Ástæða þess að þessi ósk var sett fram er einföld, Júlíus hafði sett sig í algera andstöðu við þá- verandi stjórn og forseta ÍSÍ. Var það talið mjög óheppilegt að ekki væri fullur trúnaður á milli stjórn- ar ÍSÍ og þeirra sem sátu í nefnd- um fyrir samtökin á alþjóðavett- vangi. Upphlaup Júlíusar Hafstein kemur þeim ekki á óvart sem þekkja þessa sögu. Þessi atlaga hans að stjórn ÍSÍ undirstrikar að fullt tilefni var til að óska eftir þessum breytingum.“ Morgunblaðið snéri sér til Ell- erts B. Schram, forseta ÍSÍ, í framhaldi af frétt blaðsins á sunnudag. Ellert vildi ekki tjá sig um málið og vísaði til framan- greindrar samþykktar fram- kvæmdastjórnar ÍSÍ, sem gerð var á fundi hennar í gær. Athuga- semd frá ÍSÍ MAÐUR féll 3 metra af svölum ný- byggingar í Árbæjarhverfi í Reykjavík um miðjan dag á sunnu- dag en maðurinn var að vinna við klæðningu á þakskyggni er hann féll niður. Hann fékk langan skurð á höfuðið ofan við hægra eyra og var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild. Féll þrjá metra af svölum ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.