Morgunblaðið - 17.07.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 191. TBL. 91. ÁRG. FIMMTUDAGUR 17. JÚLÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Stærsta útsalan
Opið til kl. 21.00 í kvöld
Nýtt kortatímabil
Dansandi
dúx
Djassballett og
hagfræði Viðskiptablað 7
Vetrartískan kynnt í
París Fólk 46
Allt í
plati?
Ekki er allt sem sýnist fyrir
norðan Viðhorf 30
MÖRG HUNDRUÐ eignir sem ætlaðar
eru atvinnurekstri standa auðar í höfuð-
borginni. Ekki er óvarlegt að reikna með að
þar sé um að ræða tugþúsundir fermetra
atvinnuhúsnæðis.
Á Fasteignavef Morgunblaðsins finnast
1.700 skráningar atvinnuhúsnæðis á höfuð-
borgarsvæðinu. Sömu eignir eru gjarnan
skráðar hjá tveimur, þremur eða jafnvel
fleiri fasteignasölum en gera má ráð fyrir
að hér sé um mörg hundruð eignir að ræða.
Fasteignasalar segja offramboð samt
ekki svo mikið á markaði fyrir atvinnuhús-
næði og að á móti komi umframeftirspurn
eftir ákveðnum stærðum og gerðum at-
vinnuhúsnæðis. Eftirspurnin almennt hafi
þó dalað en hún sé farin að aukast aftur
með lækkandi vöxtum og auknum útlánum.
Framboðið hefur þó ekki komið fram í verði
eignanna svo nokkru nemi að jafnaði.
Morgunblaðið/Jim Smart
Tugþúsundir
fermetra
standa auðar
Til sölu/B4
ALDREI hafa fleiri komið á ylströndina í Nauthólsvík en í gær og þegar mest var um að vera minnti Nauthólsvíkin helst á suðræna sólarströnd. Í
miðborginni nutu margir veðurblíðunnar fram eftir kvöldi og voru kaffihúsin enn þéttskipuð um hálfellefuleytið líkt og sjá má á efri myndinni.
Morgunblaðið/Ómar
Fjölmenni í Nauthólsvík og miðborginni
KOFI Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna (SÞ), og Colin
Powell, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, sögðu í gær að til umræðu væri
að öryggisráð SÞ tæki til athugunar að
samþykkja nýja ályktun þar sem kall-
að væri eftir því að aðildarríkin legðu
fram hermenn og lögreglumenn til
þess að hjálpa til við að koma á stöð-
ugleika í Írak.
Málið hlaut aukið vægi eftir að
stjórnvöld í Þýzkalandi, Indlandi,
Frakklandi og fleiri löndum höfnuðu
því að leggja fram lið til gæzlustarfa í
Írak nema það gerðist í umboði SÞ.
Powell átti einnig viðræður við
Joschka Fischer, utanríkisráðherra
Þýzkalands, um málið í Washington.
Bandaríkjastjórn, sem heldur úti
um 150.000 manna herliði í Írak, hefur
farið fram á það við á annan tug ríkja
að þau leggi sér lið í Írak með því að
senda þangað hermenn.
Árásir á bandaríska hermenn í Írak
héldu áfram í gær og íraskur borg-
arstjóri hliðhollur Bandaríkjamönnum
var myrtur. Hershöfðinginn John
Abizaid, sem fór fyrir herliði Banda-
ríkjamanna í innrásinni í Írak, sagði í
gær að árásirnar hefðu nú tekið á sig
drætti „sígilds skæruhernaðar“.
Skoðanakönnun meðal Bagdad-búa,
sem birt var á brezkri sjónvarpsstöð,
sýndi að meirihluti vill að hermenn
bandamanna haldi kyrru fyrir í land-
inu í eitt ár að minnsta kosti.
SÞ kalli eftir gæzluliði
Bagdad, Washington. AP, AFP.
HERINN í vestur-
afríska eyríkinu Sao
Tomé og Principe
hrifsaði stjórn
landsins í sínar
hendur í gær. Var
forseti landsins,
Fradique Bandeira
de Menezes, þá í
embættiserindum í
Nígeríu. Eru aðrir
oddvitar ríkis-
stjórnarinnar fang-
ar hersins en ekki er vitað til að mannfall
hafi orðið í valdaráninu. Að því er heimildir
hermdu hlaut þó forsætisráðherrann,
Maria das Neves de Sousa, aðhlynningu á
sjúkrahúsi eftir að hafa fengið vægt hjarta-
áfall er hleypt var af skotum við heimili
hennar. Íbúar eyríkisins eru um 140.000.
Herinn tek-
ur völdin
Sao Tomé. AP, AFP.
Loðfeldir og
klassísk hönnun
♦ ♦ ♦
TALIÐ er að samtals rúmlega sex þúsund manns
hafi notið sólarinnar á ylströndinni í Nauthólsvík
í gær, að sögn Ómars Skarphéðinssonar, for-
stöðumanns ylstrandarinnar. Hann segir að á
venjulegum góðum degi séu um 2.000 til 2.500
manns á ylströndinni. Dagurinn í gær hafi því
slegið öll met. „Fólk var greinilega farið að lengja
eftir sólinni,“ segir hann.
Sólin lék við landsmenn og var hlýjast á Suð-
vesturlandi, um 20 stig. Hitinn í Reykjavík var um
19 gráður og er það heitasti dagur sumarsins í höf-
uðborginni fram til þessa. Hitinn á landinu fór
mest í 23,2 gráður á Þingvöllum og í Hjarðarlandi í
Biskupstungum.
Hitabylgja gengur nú yfir Evrópu en að sögn
Trausta Jónssonar veðurfræðings er þó ekki ein-
hlítt að hitabylgja í Evrópu valdi hækkun á hita-
mælum Íslendinga. Það geti brugðið til beggja
vona. Spáð er góðu veðri áfram hér á landi, að
sögn Haralds Eiríkssonar, veðurfræðings. „Á
föstudag er spáð góðviðri, og á laugardag einnig,
að minnsta kosti sunnan- og vestanlands. Þoku-
loft getur látið á sér kræla austanlands en hlýtt
verður í öllum landshlutum.“ Á laugardag eru lík-
ur á að skýjað verði á Norður- og Austurlandi og
sömuleiðis er útlit tvísýnt á sunnudag.
Yfir sex þúsund manns nutu sólarblíðunnar á ylströndinni
Áfram spáð góðu
veðri um allt land
Sól, sól/4 Morgunblaðið/Kristinn