Morgunblaðið - 17.07.2003, Síða 16
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
16 FIMMTUDAGUR 17. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Í undirrétti og æðri dómstól Nr. 3725, árið 2003
Sérdeild dóms
Félagaréttur
MÁLIÐ VARÐANDI
BARCLAYS LIFE ASSURANCE COMPANY LIMITED
- og -
MÁLIÐ VARÐANDI
WOOLWICH LIFE ASSURANCE COMPANY LIMITED
- og -
MÁLIÐ VARÐANDI
LÖG UM FJÁRMÁLAÞJÓNUSTU OG MARKAÐI FRÁ 2000
Tilkynning
HÉR MEÐ TILKYNNIST að Barclays Life Assurance Company Limited („Barclays
Life“) og Woolwich Life Assurance Company Limited („Woolwich Life“) snéru sér til
æðri dómstóls Englands og Wales hinn 6. júní 2003 samkvæmt kafla 107(1) í lögum um
fjármálaþjónustu og markaði frá 2000 til að afla tilskipunar er samþykki flutning til
Woolwich Life á öllum langtíma vátryggingaviðskiptum Barclays Life í Bretlandi og í sér-
hverju aðildarríki evrópska efnahagssvæðisins.
Hr. John Jenkins hjá KPMG, sem er félagi í stofnun tryggingafræðinga, hefur samið
tryggingafræðiskýrslu um flutningsáætlunina, sem hér um ræðir („óháðu sérfræðings-
skýrsluna“). Niðurstaða skýrslu þessarar er að enginn skírteinishafi muni verða fyrir
slæmum áhrifum vegna flutningsins. Hægt er að fá eintak af ágripi áætlunarinnar,
óháðu sérfræðingsskýrslunni og dreifibréfi skírteinishafa frá Barclays Life Assurance
Company Limited, Unicorn House, 252 Romford Road, Forest Gate, London E7 9JB
eða með því að hafa samband við aðstoðarlínuna (Barclays Life Helpline) í síma 0845
3011 901 þegar hringt er frá Bretlandi eða +44 116 240 6801 þegar hringt er annars
staðar frá eða aðstoðarlínuna (Woolwich Life Helpline) í síma 0845 3011 902 þegar
hringt er frá Bretlandi eða +44 116 240 6802 þegar hringt er annars staðar frá.
Allar kröfur, sem nú eru í afgreiðslu af hendi eða fyrir hönd Barclays Life munu, að
væntanlegum flutningum afloknum vera afgreiddar af eða fyrir hönd Woolwich Life.
Framtíðar kröfur, sem upp koma samkvæmt yfirfærðum vátryggingaskírteinum munu á
sama hátt hljóta afgreiðslu af hendi eða fyrir hönd Woolwich Life. Væntanlegur flutn-
ingur mun tryggja áframhald hverskyns málaferla af hendi eða gegn Woolwich Life eða
af hendi eða gegn Barclays Life, sem varða réttindi og skuldbindingar í sambandi við
langvarandi vátryggingaviðskipti Barclays Life.
Sérhver aðili (þ.á m. starfsmaður Barclays Life eða Woolwich Life), sem telur sig verða
fyrir slæmum áhrifum við framkvæmd áætlunarinnar á rétt á að tjá sig hjá dómstólnum
samkvæmt kafla 110(b) laga um fjármálaþjónustu og markaði frá 2000. Ef sá aðili
hyggst koma fyrir rétt er hann beðinn að tilkynna það með eigi minna en tveggja daga
fyrirvara og geta ástæðna fyrir að hann sé andvígur samrunanum lögmönnum Barclays
Life og Woolwich Life, Lovells, Atlantic House, Holborn Viaduct, London, EC1A 2FG
(tilv. C1/DR/JTY). Beiðnin verður tekin fyrir 12. september 2003 í félagsmálarétti kon-
unglegu dómstólanna, Strand, London, WC2A 2LL.
Marka›sstemmning
Kíktu í bæinn
Laugardagur 19. júlí
Marka›sdagur í magna›ri mi›borg
Marka›sdagur á götum úti í mi›borginni. Verslunar-
og veitingahúsafólk hjálpast a› vi› a› skapa
götustemmningu í mi›borginni. Á marka›sdaginn
ver›a tónlistaratri›i á götum úti, götuleikhús og óvænt
skemmtiatri›i.
Kl. 12-16 Sprell leiktæki á ló› Stjörnubíós í bo›i
línu Búna›arbankans
Andlitsmálun fyrir börn
Kl. 12-14 Götuleikhús Hins hússins sk‡tur upp kollinum
hér og flar á Laugavegi og Skólavör›ustíg
Kl. 12-16 Leiktæki frá ÍTR á Lækjartorgi í bo›i
línu Búna›arbankans
Kl. 13-19 Úrslitadagur í götubolta Landsbankans á
Ingólfstorgi
Kl. 13-17 Birgir Rafn Fri›riksson listmálari málar
andlitsmyndir af fólki á Kaffi París vi›
Austurvöll
Kl. 14 Selma og Hansa taka lagi› á svölum Kaffi Sólon
Kl. 15 Thor Vilhjálmsson, rithöfundur, les úr verkum
sínum vi› götutafli› í Lækjargötu
Kl. 15:15 Harmonikuleikur vi› götutafli› í Lækjargötu
Kl. 16 Hljómsveitin KIMONO leikur lög af
væntanlegum geisladiski sínum fyrir utan
Japis á Laugavegi
Lú›rasveit l‡›sins - lög fyrir alla
Kl. 12:00 Hlemmur og efri hluti Laugavegar
Kl. 12:45 Laugatorg vi› Kjörgar›
Kl. 13:15 Ne›ri hluti Laugavegar a› Lækjartorgi
Hr. Sivertsen og farandspilararnir (tveir kampakátir)
Kl. 13:00 Laugatorg vi› Kjörgar›
Kl. 13:45 Hlemmur og efri hluti Laugavegar
Kl. 14:15 Skólavör›ustígur
Danshópurinn Fúsion
Kl. 13:00 Lækjartorg
Kl. 13:30 Á mótum Skólavör›ustígs og Laugavegar
Kl. 14:00 Laugatorg vi› Kjörgar›
Kl. 14:30 Hlemmur
Ljó›aleikur - ljó›astelpur
Kl. 13:00 Lagt af sta› frá Lækjartorgi sem lei› liggur upp
Skólavör›ustíg og ni›ur á Laugaveg
Mögnu› mi›borg er samstarfsverkefni
marka›snefndar mi›borgar og fyrirtækja í
verslun og fljónustu í mi›borginni. Styrktara›ilar
Magna›rar mi›borgar eru:
A
P
a
lm
an
na
te
ng
sl
/
H
A
D
A
YA
de
si
gn
ÓLAFUR F. Magnússon borgar-
fulltrúi lýsir sig andvígan fyrirhug-
uðu niðurrifi Austurbæjarbíós, nú
Austurbæjar, og samþykkt borgar-
ráðs þess efnis, án vandaðrar og fag-
legar umræðu í borgarstjórn Reykja-
víkur.
Samþykkt skipulags- og bygging-
arnefndar Reykjavíkur frá 24. júní sl.
um íbúðarbyggingu á Snorrabraut 37
var lögð fyrir borgarráð á þriðjudag
og tók borgarráð undir jákvæða af-
stöðu skipulags- og byggingarnefnd-
ar gagnvart uppbyggingu. Borgarráð
samþykkti að vísa málinu til frekari
meðferðar leikskólaráðs, en meðal
annars er óskað afstöðu ráðsins til
hugmyndar um að flytja gæsluvöll
við Rauðarárstíg. Jafnframt var
skipulags- og byggingarnefnd falið
áframhaldandi meðferð málsins.
Ólafur telur að þessi túlkun ráðs-
ins á áðurnefndri samþykkt skipu-
lags- og byggingarnefndar feli í sér
heimild til niðurrifs Austurbæjar.
Það sé í andstöðu við umsögn Árbæj-
arsafns og byggingarlistardeildar
Listasafns Reykjavíkur frá því í mars
í fyrra.
Áberandi hluti fúnkís-
skipulags Norðurmýrarinnar
Í umsögn Árbæjarsafns kemur
fram að húsið sé áberandi hluti fúnk-
ísskipulags Norðurmýrarinnar og
götumyndar Snorrabrautar, sem sé
einkar heildstæð á þessu svæði. Þá
segir að í húsinu hafi verið ýmiss kon-
ar menningarstarfsemi auk kvik-
myndasýninga, til dæmis hafi tón-
leikar Tónlistarfélags Reykjavíkur
verið haldnir þar um árabil og Leik-
félag Reykjavíkur hafi lengi vel verið
með miðnætursýningar í húsinu.
Jafnframt er bent á að húsið hafi ver-
ið byggt árið 1945 og hafi verið menn-
ingarmiðstöð Norðurmýrarinnar frá
upphafi. Það sé góður fulltrúi höf-
unda sinna og íslenska fúnkísstílsins,
auk þess sem það sé lítið breytt frá
upprunalegri mynd.
Andvígur
niðurrifi
Austur-
bæjarbíós
Morgunblaðið/Jim Smart
Austurbæjarbíó var reist árið 1945 og hefur alla tíð hýst menningarstarfsemi.
Norðurmýri
HÓPUR á vegum Seltjarnarnes-
bæjar, er vinnur að stefnumótun í
málefnum aldraðra á Nesinu, hefur
tekið til starfa. Í tilkynningu frá
bænum segir að meginverkefni
hópsins sé að huga að vaxandi þörf
á þjónustuíbúðum og hjúkrunar-
rýmum ásamt því hvernig auka
megi fjölbreytni í þjónustu við
aldraða. Í hópnum eru meðal ann-
ars tveir fulltrúar eldri Seltirn-
inga.
Í sumar standa yfir gagngerar
endurbætur á húsnæði þjónustuí-
búða aldraðra við Skólabraut.
„Mjög góður gangur er í verkinu
en að þessu sinni er um algera
endurnýjun utanhúss að ræða. Um
verulega andlitslyftingu er að
ræða fyrir húsið sem verður hið
snyrtilegasta á eftir,“ segir í til-
kynningunni.
Þá kemur fram að á Skólabraut
3–5 séu 38 verndaðar þjónustu-
íbúðir fyrir aldraða. Flestar íbúð-
irnar eru eignaríbúðir en einnig
eru þar fjórar leiguíbúðir. Á jarð-
hæðinni er veitt margs konar þjón-
usta ætluð öldruðum bæjarbúum.
Þar fer fram félagsstarf fyrir aldr-
aða, leikfimi, tómstundastarf og
mötuneytisþjónusta. Í Eiðismýri
30 eru 26 eignaríbúðir fyrir 60 ára
og eldri.
Stefnumót-
un í málefn-
um aldraðra
Seltjarnarnes
UNDIRBÚNINGUR fyrir menn-
ingarnótt er nú í fullum gangi en
hún verður haldin 16. ágúst næst-
komandi. Að sögn Kristínar A.
Árnadóttur, formanns verkefn-
isstjórnar menningarnætur, geng-
ur undirbúningsvinnan mjög vel.
„Við getum merkt það hve mikill
fengur er að starfi höfuðborg-
arstofu en það er verkefninu til
framdráttar. Það er mikill áhugi
hjá fyrirtækjum, styrktaraðilum
og ýmsum aðilum sem taka þátt í
menningarnótt.“
Kristín segir dagskrána verða
mjög fjölbreytta og skemmtilega.
Á hverju ári er einhverju bæj-
arfélagi utan af landi boðið að
vera sérstakur gestur menning-
arnætur og að þessu sinni varð
Siglufjörður fyrir valinu. „Það er
greinilegt að Siglufjörður leggur
mikið upp úr því að vera með fjöl-
breytta dagskrá. Árlega bætast
einhverjir nýir aðilar við. Að
þessu sinni verður Háskólinn með
viðamikla vísindadagskrá og Al-
þjóðahúsið verður með ýmsa við-
burði,“ segir Kristín.
Morgunblaðið/Sverrir
Verkefnastjórn menningarnætur fundaði í grasagarðinum í gær.
Mikill áhugi
á menning-
arnótt