Morgunblaðið - 27.07.2003, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 27.07.2003, Blaðsíða 12
H IÐ alþjóðlega vísinda- samfélag styrkist sífellt í þeirri trú að hækkun lofthita á jörðinni síð- ustu hundrað ár stafi fremur af mannavöldum en af nátt- úrulegum orsökum. Sú staðreynd að lofthiti hækkaði meira að nóttu en að degi til þykir meðal annars benda til þess. En athafnir manns- ins, mengun og útblástur gróður- húsalofttegunda hafa haft víðtæk- ari áhrif. Vísindamenn greina frá því í tímaritinu New Scientist ný- lega að mengun af mannavöldum, eins og sótagnir og brennisteins- dropar hafi varið jörðina fyrir gróðurhúsaáhrifum á liðinni öld og valdið því að hækkun lofthita hafi ekki orðið jafnmikil og ella. Lengi hefur verið talið að brenni- steinsdropar og sótagnir sem koma bæði frá reyk brennandi regn- skóga, sinu og brennslu jarðefna- eldsneytis eins og til dæmis brún- kola, komi í veg fyrir að sólarljós berist til jarðar og hafi þannig áhrif til mótvægis við gróðurhúsaáhrifin. Hingað til hefur verið talið að þessi efni hafi dregið úr hækkun lofthita um 0,2ºC á síðustu öld. Án sóts og brennisteins í andrúmsloftinu hefði hækkun lofthita því orðið 0,8ºC í stað 0,6ºC á síðustu öld ef marka má þessa útreikninga. Helstu lofts- lagssérfræðingar heims komu hins vegar saman í Berlín í lok maí og komust að því að áhrif þessarar mengunar hefðu verið mun meiri en áður hafði verið gert ráð fyrir og hún hefði jafnvel minnkað gróð- urhúsaáhrif um þrjá fjórðu. Þeir segja að án mengunarinnar hefði lofthiti hækkað um 2,4ºC í stað 0,6ºC á síðustu öld. Ekki bara góðar fréttir Vísindamennirnir sem hittust á Berlínarfundinum, meðal annarra Nóbelsverðlaunahafinn Paul Crutz- en og sænski veðurfræðingurinn Bert Bolin, eru semsagt að segja að hnattrænt hafi mengun af mannavöldum jákvæð áhrif að því leyti að hún dregur úr hækkun loft- hita vegna gróðurhúsaáhrifa. Kyoto-samkomulagið miðar þó að því að takmarka útblástur gróð- urhúsalofttegunda og mengunar. Menn geta því spurt sig hvort það samkomulag feli í sér andhverfu sína og auki í raun enn á gróður- húsaáhrifin. Útlit er fyrir að mengun muni minnka á næstu árum bæði vegna útblásturskvóta Kyoto-samkomu- lagsins og tækniframfara. Vísinda- mennirnir segja að líkur séu á að það dragi úr áhrifum sótagna í framtíðinni, bæði vegna minnkandi útblásturs en einnig vegna þess að líftími efnanna í andrúmslofti sé stuttur. „Hinsvegar er líftími gróð- urhúsalofttegunda í andrúmslofti mun lengri en líftími þessara efna. Gróðurhúsalofttegundir safnast því upp, en ekki þessi mengandi efni. Til lengdar geta þau því ekki haldið í við gróðurhúsalofttegundir. Jafn- vel þó ekki dragi úr þessari meng- un verða áhrif hennar á veðurfar hlutfallslega minni eftir því sem tíminn líður,“ segir Halldór Björns- son, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. Mengun veldur svæðis- bundnum vandamálum Vísindamennirnir segja að þessi breyting á hlutföllum sótagna og gróðurhúsalofttegunda í andrúms- loftinu muni hafa „stórbrotnar af- leiðingar fyrir mat á loftslagsbreyt- ingum framtíðarinnar,“ eins og segir í grein New Scientist. Ekki ber þó að skilja sem svo að þessi varnaráhrif sótagna og brennisteinsdropa í andrúmsloftinu séu af hinu góða. Svæðisbundið veldur mengun af völdum þessara efna víðtækum vandamálum. „Brennisteinsmengun og sótagn- ir eru mjög slæmar og menn hafa horn í síðu þeirra. Brennisteinn veldur súru regni sem á sér stað enn í dag, til dæmis víða á iðnaðar- svæðum í Kína. Sótagnir eru krabbameinsvaldandi og valda ýmsum lungnasjúkdómum. Það er mjög slæmt að halda að gott sé að hafa þessi efni í andrúmsloftinu þar sem þau haldi í við gróðurhúsa- lofttegundir. Þau eru mjög skaðleg og valda miklum vandamálum þar Í vikunni bárust fréttir af því að mengun hefði varið jörðina fyrir gróðurhúsaáhrifum, án meng- unar hefði lofthiti á síðustu öld hækkað meira en raun bar vitni. Ragna Sara Jónsdóttir og Vala Ágústa Káradóttir kynntu sér hvort mengun gæti verið af hinu góða og hvort loftslagsbreytingar væru endilega af mannavöldum. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Flóð í Mexíkóborg. Talið er að loftslagsbreytingar af mannavöldum hafi í för með sér aukna tíðni á „óvenjulegu veðri“. Gert er ráð fyrir aukinni hættu á flóð- um og þurrkum til dæmis á svæðum þar sem þess er ekki von. Er mengun vörn mannanna? Fjölmörg hitamet hafa verið slegin á Íslandi á undanförnum árum. Margt virðist benda til þess að hlýnunin sé af mannavöldum. Þá telja vísinda- menn að mengun sótagna og brennisteinsdropa hafi varið jörðina fyrir gróðurhúsaáhrifum. Ef meng- un væri ekki í andrúmsloftinu hefði hlýnun sennilega orðið meiri á síðustu öld en raun bar vitni. 12 SUNNUDAGUR 27. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ GETUR verið að hlýnun jarðar eigi sér náttúrulegar skýringar og sé ekki jafn- háð mengun og oft er hald- ið fram? Í skýrslu milliríkja- nefndar um loftslagsbreyt- ingar (IPCC) frá 2001 segir að greining gagna bendi sterklega til að mannleg áhrif valdi loftslagsbreyt- ingum. Breytingar á hlýnun jarðar síðastliðin hundrað ár verði ekki eingöngu skýrðar með náttúrulegum breytingum. Það eigi þó sérstaklega við um seinni hluta 20. aldar en hlýnun á fyrri helmingi 20. aldar gæti átt sér náttúrulegar skýringar. Auður H. Ingólfsdóttir, sérfræðingur í umhverf- isráðuneytinu, segir að það deili enginn um að það hafi orðið hlýnun á síðustu öld. Spurningin sé bara hvers vegna. „Menn eru að styrkj- ast í þeirri trú að hlýnunin sé af mannavöldum. Eitt dæmi sem má nefna er að hækkunin á hitanum var meiri á nóttunni en á dag- inn. Ef hlýnunin væri af náttúrulegum völdum væri líklegra að hitahækkunin væri jöfn. Yfirlýsingar vís- indasamfélagsins eru orðn- ar afdráttarlausari en áður. Þó er enn fullt af óvissu- atriðum en þeim fækkar eftir því sem breytingarnar eru betur skoðaðar,“ segir Auður. Hvers vegna hlýnun? Halldór Björnsson, veð- urfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að tilvist gróð- urhúsaáhrifa sé óumdeild, án þeirra væri jörðin að minnsta kosti 30ºC kaldari. „Það er ekki umdeilt að magn gróðurhúsaloftteg- unda í andrúmslofti hefur aukist á síðustu öld. Einnig er lítt umdeilt að það hefur verið að hlýna á síðustu öld. Það sem er umdeilt er hvort hlýnun síðustu aldar stafi af aukningu gróð- urhúsalofttegunda. Þeir sem telja að svo sé ekki, vilja meina að aukningin sé of smá til að hafa þessi áhrif á hitastig. Hlýnunin sé því af öðrum orsökum,“ segir Halldór. Dæmi um aðrar skýr- ingar er breytileiki í út- geislun sólar. „Spurningin er hvort þær breytingar sem vitað er um á útgeislun sólar séu nægilega miklar til að útskýra hlýnun síð- ustu aldar. Ljóst er að til að svo megi vera þarf ein- hverja mögnun, því breyt- ingar á útgeislun sólar eru mjög litlar. Aukning gróð- urhúsalofttegunda er hins vegar hlutfallslega mun meiri breyting. Ýmsar hug- myndir hafa komið fram um hvernig sú mögnun eigi sér stað, og án efa munu fleiri slíkar hugmyndir koma fram í framtíðinni,“ segir Halldór. Er hlýn- un jarðar af manna- völdum?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.