Morgunblaðið - 27.07.2003, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 27.07.2003, Blaðsíða 35
SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. JÚLÍ 2003 35 FAÐIR minn gegndi herþjón- ustu í bandaríska hernum í síðari heimsstyrjöldinni og hann eyddi fjórum árum við herskyldu hér á Ís- landi sem ratsjár- stjórnandi. Árið 1998 fluttum ég og konan mín til Ís- lands til þess að sinna trúboðs- störfum. Við höfum búið hérna síð- an og alið upp börnin okkar þrjú. Báðir foreldrar mínir voru gyð- ingar og þau ólu mig upp sem gyð- ing í New York. Auk allra þeirra gyðinga sem voru í hverfinu mínu var þar líka kristið fólk. Trúarlega séð bjuggum við í ólíkum heimum. Ein ástæða þess var helförin. Gyð- ingar af kynslóð foreldra minna upplifðu allir helförina og þján- ingar þær og hryllingur sem hún orsakaði skapaði mikla gjá á milli fólks af gyðingatrú og kristinni trú. Önnur ástæða fyrir þessari sársaukafullu fjarlægð var hin langa saga ofsókna kristinna manna á hendur gyðingum. Það sem ég skildi ekki fyllilega var að orsök þessa mikla haturs sem kristnir báru í brjósti til gyðinga var þátttaka okkar í krossfestingu Jesú Krists. Í maí síðastliðnum átti sér stað sögulegur fundur í Jerúsalem á milli trúarleiðtoga. Fundur þessi var skipulagður af ACLC (Americ- an Christian Leadership Confer- ence) sem stofnuð var af séra og doktor Sun Myung Moon og var aðaláherslan samstaða kristinna og gyðinga. Var fundurinn haldinn á Hyatt Regency hótelinu í Jerúsalem. Hótel í Jerúsalem eru nánast tóm vegna hryðjuverka- starfsemi. Sprenging ekki fjarri hótelinu kom í veg fyrir að yfir 120 rabbínar og fulltrúar hins gyð- inglega samfélags kæmust á rétt- um tíma. Þeir komu engu að síður og hittu 131 kristinn predikara frá Ameríku ásamt tíu sjeikum og svo- kölluðum imömum, sem eru ísl- amskir trúarleiðtogar. Á þessum fundi iðruðust kristnu fulltrúarnir þess að hafa ekki skilið þá stað- reynd að Jesú hefði átt að vera tekið fagnandi af ísraelsku þjóð- inni og hinum gyðinglegu leiðtogum var leitt fyrir sjónir að nú væri tími til að umfaðma Jesú og að þessi tvenn bræðra- trúarbrögð ættu að verða ein og hin sömu. Þetta yrði grunnur þess að græða um heilt vegna þeirra átaka sem hafa átt sér stað á milli íslamskra og gyðinglegra sam- félaga. Erkibiskup nokkur, Stallings að nafni, ávarpaði þátttakendur og fyllti gyðinglegu leiðtogana inn- blæstri til þess að sameinast, ekki aðeins í nafni kærleikans, heldur einnig í sameiginlegri trú á Guð, þar sem allir vissu að „trúarbrögð okkar voru sköpuð af sama Guði og kristnin er yngri bróðirinn. Þar af leiðandi …“, hélt erkibiskupinn áfram „ … ef skilningur getur komist á núna varðandi Jesú og kristnina og Ísrael mun Guðsríki margfaldast að stærð á þessari jörð“. Hann sagði enn fremur: „Við kristnir menn verðum að iðrast vegna helfararinnar og alls gyð- ingahatursins sem hefur verið við lýði í gegnum mannkynssöguna.“ Á sama tíma kallaði hann einnig rabbínana til ábyrgðar á því „ …að skilja raunverulega að Jesú þráði að vera elskaður af sínu fólki og að hann var sendur til þess að byggja Guðs ríki á jörðu, og ef þess skiln- ings hefði gætt á hans tímum væri þetta ríki raunveruleiki í dag“. Einn rabbíni sem gegnir mik- ilvægri stöðu í Ísrael hélt hrær- andi ræðu sem sýndi mikinn skiln- ing á, eins og hann orðaði það, „ … þeim raunveruleika að Guð er að vinna í gegnum gyðingdóminn og kristnina“ og hann lagði áherslu á að „ … flestar ritningar okkar eru þær sömu. Ef við gæt- um farið eftir innihaldi þeirra þá getum við hlotið einingu“. Rabb- íninn kom einnig fram af einstakri virðingu og með opnum hug gagn- vart sjeikunum og hinum íslömsku prestum sem fundinn sátu, sem sumir hverjir voru palestínskir. Síðar á fundinum var erkibisk- upinn Stalling kallaður til, til þess að kynna hina svokölluðu „Jerúsal- emyfirlýsingu“ sem skrifuð var af meðlimum ACLC (American Christian Leadership Conference). Í henni kemur fram að báðar fjöl- skyldur kristni og gyðingdóms iðr- ast „ … hinna myrku daga fortíð- arinnar og leita bjartari framtíðar með umhyggju fyrir byrði allra þeirra sem þjást og sýn á betri heim“. Yfirlýsingin leggur enn fremur áherslu á trú á Guð og að hvor tveggja trúarbrögðin hafi gengið í gegnum ólýsanlegan hrylling vegna trúar sinnar og í yfirlýsingunni segir: „Við kristnir menn iðrumst þess að hafa fagnað því sem í raun var stund hinnar mestu sorgar fyrir Guð með því að dásama aftökuna sem leiddi til lík- amlegs dauða Jesú, rústaði for- spám og loforðum spámannanna og stóð í vegi fyrir Guðs ríki á jörðu í 2000 ár. Á þessum tíma hefur okkur mistekist of oft að til- einka okkur kærleika Jesú og í stað þess staðið fyrir langri sögu gyðingahaturs. Vegna þessa iðr- umst við.“ Í yfirlýsingunni segir enn frem- ur: „Við gyðingar, sem Guðs út- valda þjóð, viljum opna hjarta okk- ar fyrir Guði svo að við megum sjá forna atburði með Hans augum og frelsa sjálfa okkur í eitt skipti fyr- ir öll frá byrði krossfestingarinnar. Þessi látlausi, saklausi, ungi gyð- ingur, Jesúa, var elskaður af Guði og sá sem Hann batt vonir sínar og drauma við, en honum var ekki fagnað af þeim ríku og valdamiklu af hans eigin fólki. Vegna sinnar eigin stöðu og þæginda framseldu þeir hann til aftöku af erlendu og hatursfullu valdi. Vegna þessa iðr- umst við. Á þessum degi höfum við helgað okkur því að nýju að lifa eftir Þínum vilja.“ Í lok þessarar lausnar er starf séra og frú Sun Myung Moon til að sameina fjölskyldurnar í þeim tilgangi að búa til eina fjölskyldu Guðs, koma á heimsfriði og stofna fyrirmyndarfjölskyldur viðurkennt. Sumir rabbínanna komust í upp- nám yfir því að yfirlýsing þessi skyldi yfirhöfuð vera tekin til greina, en þegar Stallings erki- biskup bað aðalrabbínann, að 250 manns viðstöddum, að koma með sér til að undirrita yfirlýsinguna sagði hann: „Ég skal undirrita ef hinn íslamski bróðir minn gerir það með mér. Sjeikinn stóð hug- rakkur upp og gekk galvaskur áfram og allir þrír undirrituðu Jerúsalemyfirlýsinguna. Þetta opn- aði flóðgáttirnar og allir þustu fram til að skrifa undir. Það var yfirþyrmandi sigurtil- finning sem sveif yfir vötnum í lok veislunnar sem haldin var í kjöl- farið. Á meðan á veislunni stóð reis annar mikilsmetinn rabbíni úr sæti og bað alla viðstadda að vera alvarlega og ljá skilning þeirri þjáningu sem ríkti. Hann leiddi fram fjölskyldu sem tilheyrði bænahúsinu hans, sem hafði ný- verið misst 19 ára son vegna hryðjuverkasprengingar. Faðirinn kom upp og sagði öllum að fjöl- skyldan hans hefði verið á spít- alanum þegar sonur hans lá fyrir dauðanum og læknirinn kom inn og sagði: „Ef þú skrifar undir þessi skjöl má nota líffæri sonar þíns til þess að bjarga lífi átta ára gamallar palestínskrar stúlku. Viltu gera þetta?“ Faðirinn tók sér augnablik til umhugsunar, baðst fyrir og sagði: „Já, ég vil að líf sonar míns hjálpi einhverjum öðr- um að lifa.“ Hann undirritaði og líffæri þessa 19 ára gyðingadrengs voru gefin, og palestínska stúlkan lifði af. Ég tel að þessi fundur hafi verið gríðarlega þýðingarmikill. Ég trúi því að friður geti ríkt á jörðinni. Og ég trúi því að þetta hafi verið byrjunin. Árekstrar eiga sér stað vegna margra ástæðna. En ein af lykilástæðunum fyrir uppkomu þeirra er hinn djúpstæði ósam- hljómur sem er í trúarbrögðum heimsins. Þess vegna ættum við, þegar við verðum vitni að heims- hörmungunum allt í kringum okk- ur, að viðurkenna hve mikilvægt það er að trúarbrögðin komi sam- an og mállýskur og fólk umvefji hvert annað. Sögulegur fundur í Jerúsalem Eftir Paul Herman Höfundur er eigandi Loftræstikerfa. akstur eru auðvitað ósamrýman- leg. Nauðsynlegt er að gera sér grein fyrir vegi og ástandi hans og haga akstri eftir því. Ungmenni þurfa að íhuga, að akstur í lausa- möl og hálku er um margt ólíkur akstri á bundnu slitlagi á sumar- degi. Í mikilli hálku er best að fresta ferð. Gott er að fylgjast með veðurspá og lýsingu á ástandi vega í textavarpi eða á heimasíðu Vegagerðarinnar (www.vegager- din.is). Í dreifbýli eru vegir víða frumstæðir, blindhæðir, krappar beygjur og vegrið skortir í brött- um hlíðum. – Þeir sem eru á aldr- inum 17-20 ára ættu að íhuga, að þeir eru í sérstökum áhættuhópi og piltar jafnvel í enn meiri hættu en stúlkur. Skóli umferðarinnar getur verið mjög strangur og harðneskjulegur. Í venjulegum skóla geta menn fallið, t.d. ef ástundun er ekki viðunandi, en í umferðinni geta menn beinlínis látið lífið. Því er mikilvægt að fara að með sérstakri varúð og sýna þolinmæði og læra af mistökum sínum. Það ber ekki vitni um dug og þor eða þá „karlmennsku“ að vera hér kærulaus. Það ber vitni um fífldirfsku, því að hið glæsilega unga fólk á að líkindum allt lífið fram undan, með öllum þess unaðssemdum og fjölbreytni, ef það gáir að sér. Höfundur er kennari. Jón Hólm Stefánsson, sími 896 4761. Ef þú þarft að selja eða kaupa bújörð hvar á landi sem er hafðu þá endilega samband við okkar mann, Jón Hólm bónda, sem aðstoðar þig með bros á vör. Bújarðir OPIÐ HÚS Í DAG, SUNNUDAG, FRÁ KL. 14-17 Lágmúla 9, 6. hæð • Sími 533 1122 • Fax 533 1121 Gullengi 37-39 - 3ja herb., 11,5 millj. Upplýsingar gefur Þórhallur í síma 899 6520. 3ja herb. 85 m² íbúð í ró- legu fjölskylduhverfi í grennd við alla þjónustu. Afgirtur leikvöllur við hús- ið. Sérgeymsla og bílastæði í skýli. Stofa opin og björt. Opið eldhús með eyju. Tilvalið fyrir unga fjölskyldu. SUÐURGATA 7, 101 REYKJAVÍK, • www.hibyli.is • hibyli@hibyli.is Ægisíða - einbýli Vorum að fá í einkasölu eitt af þessum eftirsóttu einbýlishúsum við Ægisíðuna. Húsið, sem er glæsilegt og mikið endurnýjað, skiptist í þrjár samliggjandi stofur, rúmgott eldhús, 3 stór svefnherbergi, baðherbergi og gestasnyrtingu. Í kjallara er sér 2ja herbergja íbúð, þvottahús o.fl. Massift eikarparket á gólfum, góðar innréttingar, gifslistar og rósettur í loftum. Tvennar svalir. Geymsluloft yfir hús- inu. Vandaður 58 fm bílskúr. Fallegur garður, skjólgóður hellulagð- ur bakgarður. 12 fm garðhús. Góð staðsetning, fallegt útsýni. Upplýsingar einungis á skrifstofu. Eign í sérflokki. Ásvegur 26 - Breiðdalsvík Til sölu 119,9 fm einbýlishús, byggt 1974. Í húsinu eru 3 svefnherbergi, baðherbergi, rúmgóð og björt stofa, borð- stofa, eldhús og búr innaf. Innréttingar eru að mestu upp- runalegar. Tilboð óskast í eignina. Nánari upplýsingar á Fasteigna-og skipasölu Austurlands, sími 580 7905. www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár OPIÐ HÚS - GRUNDARHÚS 40 - RAÐHÚS Vorum að fá í einkasölu þetta fal- lega 125 fm raðhús á tveimur hæð- um í þessu barnvæna hverfi. Neðri hæðin er 67 fm og skiptist í and- dyri, hol, stofur, borðstofu, eldhús, gestasnyrtingu og þvottah. Efri hæðin er 50 fm og skiptist í 3 góð herbergi m/skápum og stórt bað- herbergi m/sturtuklefa og baðkari. Stórt manngengt geymsluloft er yfir efri hæð. Gólfefni parket, flísar og dúkar. Sérgarður. Stutt í alla þjónustu og skóla. Áhv. 10,0 millj. Verð 17,6 millj. Grétar Kjartansson sýnir eignina í dag, sunnudag, frá kl. 14:00-16:00 GENGI GJALDMIÐLA mbl.is VIÐSKIPTI mbl.is Moggabúðin Músarmotta, aðeins 450 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.