Morgunblaðið - 27.07.2003, Blaðsíða 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. JÚLÍ 2003 47
4 krossgátur
fyrir börnin
ELLEFTA tölublað af „Barnagát-
um“ er nýkomið út. Nú, eins og áð-
ur er efni blaðsins – krossgátur og
annað efni. Gáturnar eru vandaðar
og sniðnar fyrir byrjendur – og
fylgir lausn hverri gátu í blaðinu,
segir í fréttatilkynningu.
Útgefandi er Ó.P. útg. ehf.
Sameinast
Verkalýðs-
félagi Vest-
firðinga
Á framhaldsaðalfundi Verkalýðs- og
sjómannafélags Tálknafjarðar sem
haldinn var 10. júlí s.l. var sam-
þykkt með yfirgnæfandi meirihluta
atkvæða að sameinast Verkalýðs-
félagi Vestfirðinga. Aðildarumsókn
Tálknfirðinga var svo samþykkt
einróma á fjölmennum trúnaðar-
mannaráðsfundi Verkalýðsfélags
Vestfirðinga þann 24. júlí sl.
Þar með hafa 10 stéttarfélög á
Vestfjörðum sameinast í eitt félag.
Félagsmenn í Verkalýðsfélagi
Vestfirðinga ljúka upp einum
munni um að reynslan af þessari
sameiningu verkalýðsfélaga á Vest-
fjörðum sé mjög góð og eru vissir
um að sameinuð náum við betri
þjónustu og markvissara starfi í
hvívetna.
Mat á
umhverfis-
áhrifum Djúp-
vegar nr. 61
SKIPULAGSSTOFNUN hefur
hafið athugun á mati á umhverfis-
áhrifum vegna lagningar Djúpveg-
ar nr. 61: Eyrarhlíð – Hörtná í
Súðavíkurhreppi. Framkvæmdar-
aðili er Vegagerðin og eru mats-
skýrslurnar aðgengilegar á heima-
síðu Náttúrustofu Vestfjarða og
Vegagerðarinnar: www.nave.is og
www.vegagerdin.is.
Matsskýrslur munu liggja
frammi til kynningar frá 25. júlí til
5. september 2003 á bæjar- og
héraðsbókasafninu Ísafirði og á
skrifstofu Súðavíkurhrepps, í
Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipu-
lagsstofnun.
Skipulagsstofnun leitaði um-
sagnar eftirtalinna aðila um mats-
skýrslu vegna lagningar Djúpveg-
ar nr. 61: Súðavíkurhrepps,
Byggðastofnunar, Ferðamálaráðs,
Fornleifaverndar ríkisins, Heil-
brigðiseftirlits Vestfjarða, Um-
hverfisstofnunar og veiðimála-
stjóra.
Allir hafa rétt til að kynna sér
framkvæmdina og leggja fram at-
hugasemdir. Athugasemdir skulu
vera skriflegar og berast eigi síðar
en 5. september 2003 til Skipu-
lagsstofnunar, Laugavegi 166, 150
Reykjavík. Þar fást ennfremur
nánari upplýsingar um mat á um-
hverfisáhrifum.
ÞAÐ var sannarlega myndarlegur farmur á
flutningabíl Pálmars Þorgeirssonar þegar
hann ók frá Límtrésverksmiðjunni á Flúðum
á dögunum. Pálmar, sem annast flutninga
fyrir Límtré hf., tjáði tíðindamanni að þetta
væri einn stærsti farmur sem hann hefði farið
með frá verksmiðjunni. Á bílnum voru um 40
metra langir límtrésbogar sem eiga að fara í
uppbyggingu á Síldarminjasafni á Siglufirði.
Reyndar var farmurinn aðeins helmingurinn
af þeim bitum sem þarf til að reisa húsið, hinn
fór nokkrum dögum síðar. Þessir veglegu bit-
ar fóru síðan í skip þar sem ekki er unnt að
koma slíkum farmi í gegnum Strákagöngin.
Að sögn Örlygs Kristinssonar, safnvarðar
á Siglufirði, verður reist 1.050 fermetra
bygging yfir meira en hálfrar aldar gamla
vélbáta sem og nótabáta og gerðar að þeim
bryggjur. Áætlað er að verkinu verði lokið
eftir um eitt ár en mun lengur tekur þó að
gera bátana upp að öllu leyti. Þetta verður
hluti af stóru og veglegu síldarminjasafni á
Siglufirði.
Ágæt verkefnisstaða
Að sögn Einars Bjarnasonar, verksmiðju-
stjóra hjá Límtré hf., eru næg verkefni fram-
undan. Meðal annars er verið að framleiða
límtrésbita í 6.000 fermetra byggingu fyrir
Sælgætisverksmiðjuna Góu. Þá sagði Einar
að á þessu ári yrðu meðal annars framleiddir
límtrésbitar í sex fjós og er sumt af þeirri
framleiðslu farið.
Núna eru starfsmenn verksmiðjunnar á
Flúðum 14 talsins en hjá öllum deildum Lím-
trés hf. starfa um fimmtíu manns.
Myndarlegur farmur
Hrunamannahreppi. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Pálmar Þorgeirsson hjá Flúðaleið með farm af límtrésbogum fyrir Síldarminjasafnið á Siglufirði.