Morgunblaðið - 27.07.2003, Side 25

Morgunblaðið - 27.07.2003, Side 25
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. JÚLÍ 2003 25 "# $    %&  '    (  )*+      ,   ,-./0-// ( #*+ & $ 99=  "   !      9=9=@  ,   " - 9=9< &" - '. 99< K    - * # " ' # J  :  9;+F! C  >C H# C2/   /C # &3 A   G   ,! ;+' #          "# 45%!46"4%"7 . : , 2   3 - -     45%846"4%44  A   3  ## :    K  # " & 2- "4%446"4%"7     :  # =$ !#% =$ $ ## : B!   K ? - . KL#  3 - - B2    6- +)  5 ## :  "$  3 # 2    #      -"#   # 6- 2   6   +=. === .  #   4 !       !# !" # ==H $         -"#    # 4    $ 3  # -    "# " 2  +K   * -# 2   2       ##    "# " 2  +$ !#% (+ > ?# 2  5  !   ? # (+(      #2 #       (0E  !         #   111     2  %    344/5.. !6%         !                      RITSTJÓRI sjöundu Atviks-bók- arinnar, Geir Svansson, lýsir Fried- rich Nietzsche í inngangsorðunum sem „umdeildasta heimspekingi allra tíma“. Staðhæfingu þessari verður vart móti mælt, sérstaklega ef litið er til þróunar hugvísinda á seinni hluta tuttugustu aldar, en þar hefur heimspeki Nietzsches reynst innblástur róttækra umsvifa á ýms- um sviðum, ekki síst gagnrýnnar endurskoðunar á vestrænni hug- myndasögu. Þannig hefur Nietzsche verið áberandi sem eins konar for- göngumaður, aflvaki og jafnvel læri- meistari þeirra heimspekinga og fræðimanna sem hvað mest hefur borið á í akademískri umræðu síð- ustu áratugi. Að sama skapi hefur orðspor hans tekið á sig virðulegri ásýnd en löngum var reyndin; deilur snúast ekki lengur um stöðu Nietzsches í heimspekihefðinni held- ur túlkunarleiðir að hugsun hans. Frá þeim tveimur (afar ólíku) meg- invegum að heimspeki Nietzsches sem Martin Heidegger og Walter Kaufmann lögðu um miðbik aldar- innar hafa nú sprottið ótal hliðargöt- ur og menn ekki á eitt sáttir um hver þeirra sé farsælust. Það heyrir til tíðinda, en þarf kannski ekki að koma á óvart í ljósi miðlægrar en umdeildrar stöðu Nietzsche í samtímanum, að tveir ungir íslenskir heimspekinemar hafa blásið til orrustu við ríkjandi túlk- unarleiðir að heimspekingnum þýska hér á landi, en það er einmitt það sem þeir Davíð Kristinsson og Hjörleifur Finnsson gera í riti þessu. Sjöunda Atviks-bókin saman- stendur af þýðingu Hjörleifs á kafla úr bókinni Þúsund flekar: Kapítal- ismi og geðklofi II eftir frönsku heimspekingana Gilles Deleuze og Felix Guattari, og framlagi þeirra Davíðs og Hjörleifs sjálfra, „Hvers er Nietzsche megnugur“, sem best er lýst sem umfangsmikilli umfjöllun um og gagnrýni á Nietzsche túlkanir ákveðinna heimspekinga við Há- skóla Íslands, auk þess sem leitast er við að draga upp mynd af Nietzsche í samkeppni við þá sem þeir telja ríkjandi á Íslandi, verkefni sem að hluta til er unnið undir fána- merkjum Frakkanna tveggja. Rétt er að taka fram í upphafi að umfjöll- unin sem hér fer á eftir mun að mestu snúast um grein Davíðs og Hjörleifs, og viðbrögð við henni, en þar er ekki ætlunin að draga úr ágæti þýðingarinnar heldur leggja áherslu á innlegg þeirra og umhugs- unarverða þætti í akademísku lands- lagi nú um mundir. Gagnrýni Davíðs og Hjörleifs væri reyndar sniðinn of þröngur stakkur ef því væri haldið fram að umfjöllun þeirra beindist einvörðungu að Nietzsche-túlkunum þriggja ís- lenskra heimspekinga. Í raun ganga þeir lengra og deila á nokkuð sem nefna mætti íslensku heimspeki- stofnunina. Þessa stofnun kenna þeir öðru fremur við eindregna áherslu á þann anga heimspeki sem kennd er við siðfræði. Áhersla þessi hefur að þeirra mati haft letjandi áhrif á vöxt og breidd heimspeki eins og hún er iðkuð og kennd hér á landi, að því leytinu til sem heimspeki- stofnunin er ásökuð um ákveðinn mótþróa í garð þeirra viðhorfa sem e.t.v. lagast ekki auðveldlega að áherslum siðfræðinnar. Er nokkuð ljóst að hér er vísað til róttækrar hreyfingar í samtímaheimspeki og fræðimennsku sem gjarnan er kennd við póststrúktúralisma, þótt vart verði fjöllyndi hennar fangað innan ramma afmarkaðs hugtaks, og rekur rætur til meginlands Evrópu og sjöunda áratugarins. Og Nietzsche hefur því í samhengi þess- arar ritsmíðar eins kon- ar fordæmisvald; ef Davíð og Hjörleifi tekst að sýna fram á að tenn- urnar hafi með einum eða öðrum hætti verið dregnar úr honum, en það virðist öðru fremur vera ætlunarverk þeirra að fullnægja sönnunarbyrðinni, gæti sýnst sem svo að víð- tækari hluti gagnrýn- innar ætti einnig við rök að styðjast. Þannig halda þeir af stað með þá meginhug- mynd að íslenskir heim- spekingar – nefnd eru þau Sigríður Þorgeirsdóttir, Vilhjálmur Árnason og Róbert Haraldsson – hafi leitast við að laga Nietzsche að ofangreind- um siðfræðiáherslum með þeim af- leiðingum að heimspekihugmyndum þess síðarnefnda er ekki aðeins snú- ið við, heldur eru þær jafnframt af- skræmdar að umtalsverðu leyti: sið- leysingjanum Nietzsche, einum vægðarlausasta gagnrýnanda al- tækra gildiskerfa, er að þeirra mati breytt í hálfgerðan siðapostula sem vel væri boðlegur í afslappað spjall inni á Siðfræðistofnun. Gagnrýnin er með öðrum orðum hörð, rökstudd og beint gegn nokkr- um nafngreindum einstaklingum. Þeir Davíð og Hjörleifur fara víða, vitnað er til útgefinna ritsmíða heim- spekinganna þriggja ásamt blaðavið- tölum, ef svo ber undir, og ekki verð- ur um villst að þeir búa yfir yfirgripsmikilli þekkingu á verkum Nietzsches. Umfjöllunin er þó jafnan á faglegum nótum, heimspekileg vafaatriði og/eða kenningar eru ræddar af yfirvegun og ekki verða fræðileg heilindi þeirra Davíðs og Hjörleifs dregin í efa. Það sem er gagnrýnt er gagnrýnt með rökum og útfærslu á heimspekilegum kenning- um ásamt persónulegri innsýn/túlk- un þeirra á Nietzsche, en á nokkrum stöðum er umræðan færð út fyrir af- markaðan ramma heimspekilegra deilumála og kemur þar að áður- nefndu viðfangi þeirra félaga, m.ö.o. íslensku heimspekistofnuninni. Skrif í líkingu við grein Davíðs og Hjörleifs þekkjast vissulega í ís- lensku fræðasamfélagi en eru þó ekki algeng. Yfir þeim leikur ákveð- inn bragur framhleypni hinna ungu, ákveðinn byltingarmóður, og í ljósi þess að vel er að verki staðið verður því ekki neitað að um jákvætt fram- tak er að ræða – það er verið að hrista upp í hlutunum, koma hreyfingu á um- ræðuna, og ýta við fyr- irkomnum fræðimönn- um í háskólakerfinu. Og það hefur tekist ef marka má tvær svar- greinar Róberts Har- aldssonar í Lesbók Morgunblaðsins. Þar tekur hann þann pól í hæðina að hafna um- ræðu/sjónarmiðum þeirra Davíðs og Hjör- leifs í heilu lagi, og fer ítarlega í saumana á túlkun þeirra á sínum orðum og skrifum sem birst hafa á opinberum vettvangi. Hann telur að tvímenningarnir reyni að þröngva tiltekinni heimspekilegu orðræðu upp á sín verk, og verði þar víða fótaskortur. Má í því samhengi nefna tiltekið upphrópunarmerki sem verður að nokkru leyti tákn- rænt fyrir ólíkar leiðir til að vinna með og lesa í texta. Annars vegar sjáum við áherslu Davíðs og Hjör- leifs á textaleg smáatriði, sbr. upp- hrópunarmerkið, þar sem hið smá- vægilega getur reynst eins konar lykill sem afhjúpar mótsagnir og vandamál í stærra kerfi. Gegn þess- um lestri stefnir Róbert öllu bókstaf- legri textagreiningu, og hankar þá félaga fyrir fljótfærnisvillur og samskonar yfirsjónir hvað varðar upphrópunarmerki – en athyglin sem hér er farin að beinast að grein- armerkjum virðist þó ekki falla Ró- berti alltof vel í geð og er að hans mati dæmi um oftúlkun. Það er þó kannski ekki fyrr en dregur að leiks- lokum í svargrein Róberts sem þau átök milli heimspekiviðhorfa sem Davíð og Hjörleifur reyna að draga fram í dagsljósið gera vart við sig svo ekki verður um villst. En greina- flokki Róberts lýkur með háðslegri útlistun á þeirri heimspekilegu nálg- unarleið sem Davíð og Hjörleifur standa fyrir sem „bulli“ og ekki er hægt að verjast þeirri tilhugsun að framlag þeirra, og túlkunarhefðin sem þeir kynna, verðskuldi yfirveg- aðri viðtökur í íslenskri heimspeki- umræðu, ekki síst í meðförum reyndra fræðimanna á sviðinu innan Háskóla Íslands. Björn Þór Vilhjálmsson BÆKUR Fræðirit Heimspeki verðandinnar: Rísóm, sifjar og innrætt siðfræði. Ritstjóri Geir Svansson Höfundar efnis: Davíð Kristinsson og Hjörleifur Finnsson / Gilles Deleuze og Felix Guattari. 129 blaðsíður. Reykjavík- urAkademían 2002 ATVIK 7 Deilt um Nietzsche Friedrich Nietzsche NÁMSKEIÐ fyrir kórstjórnendur verður haldið í Skálholti dagana 11.– 14. ágúst næstkomandi. Meginviðfangsefni eru hljómsveit- arstjórn fyrir byrjendur og kórsöng- ur með leikrænu ívafi. Einnig verður fjallað um raddþjálfun og upphitun kóra. Kennarar eru Guðmundur Óli Gunnarsson hljómsveitarstjóri og Carola Bischoff, kórstjóri og söng- kona frá Þýskalandi. Umsjón með námskeiðinu hefur Margrét Bóas- dóttir. Upplýsingar og skráning er hjá Margréti eða á skrifstofu Tónskóla þjóðkirkjunnar. Námskeið fyrir kór- stjórnendur Örkin, Kirkjulækjarkot í Fljótshlíð kl. 20 Námskeiði í flutningi gospel- tónlistar, sem staðið hefur yfir, lýk- ur á tónleikum. Um 100 manns tóku þátt í umsjón raddþjálfarans Óskars Einarssonar. Yngsti þátttakandinn er 8 ára og sá elsti 67 ára. Aðgangur er ókeypis. Gallerí10 á Húsavík kl. 17 Nem- endur úr Listaháskóla Íslands opna sýninguna Höstl. Listamennirnir eru Edda Fransiska Kjarval, Heiða Harðardóttir, Jóna Heiða Sigur- lásdóttir, Kristín Helga Káradóttir, Sunna Guðmundsdóttir og Þóra Guðrún Gunnarsdóttir. Sýningin stendur til 7. ágúst. Catrin Howell, Carms, SA445JF, Wales, Bretlandi Sýning á verkum Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur. Sýn- ingin er liður í verkefninu 40 sýn- ingar á 40 dögum. Í DAG  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is MIÐASALA er hafin á sýningu Sumaróperu Reykjavíkur, Krýningu Poppeu eftir Monteverdi, sem frum- sýnd verður á nýja sviði Borgarleik- hússins 15. ágúst. Forsala fer fram í 12 tónum á Skólavörðustíg og í Borgarleikhús- inu. Miðasala haf- in á óperu HIN árlega bókamessa í Gautaborg fer fram dagana 25.–28. september nk. Á fjórum dögum verður boðið upp á 540 málstofur og gert er ráð fyrir 821 þátttakanda frá 54 löndum. Fyrir Íslands hönd taka þátt Stein- unn Sigurðardóttir sem halda mun fyrirlestur um bók sína Jöklaleik- húsið, Kristín Ómarsdóttir sem fjalla mun um Hamingjan hjálpi mér I og II þar sem kjarnafjölskyldan fær fyrir ferðina, Ólafur Jóhann Ólafs- son er tekur þátt í málstofu þar sem fjallað verður um bók hans Slóð fiðr- ildanna sem nýverið kom út í sænskri þýðingu og Liv Ullman ætl- ar að kvikmynda og Arnaldur Indr- iðason, handhafi Glerlykilsins, Nor- rænu glæpasagnaverðlaunanna. Hann heldur fyrirlestur um bækur sínar og Ísland sem glæpavettvang á sérstökum degi sem tileinkaður er glæpasögum, en þetta er fimmta ár- ið í röð sem slíkur dagur er haldinn. Hin sænska Liza Marklund, höf- undur bókanna Stúdíó Sex og Para- dísar, verður einnig með erindi þennan dag ásamt fjölda annarra glæpasagnahöfunda. Nóbelsverðlaunahöfundarnir Imre Kertész frá Ungverjalandi og Arvid Carlsson frá Svíþjóð verða meðal gesta hátíðarinnar. Auk þess mun hinn indónesíski Pramoedya Ananta Toer, sem að mati margra er líklegastur asískra rithöfunda til að hljóta Nóbelsverðlaunin, halda fyr- irlestur um bækur sínar. Meðal ann- arra þátttakenda á bókamessunni má nefna einn víðlesnasta höfund veraldar, Paulo Coelho, en bók hans Alkemistinn hefur þegar verið þýdd á 56 tungumál og komið út í 156 löndum, þar á meðal Íslandi, og Margaret Atwood sem fjalla mun um nýjustu bók sína. Bókamessan í Gautaborg er viðamesta bókahátíð á Norðurlöndunum og taka fjölmargir norrænir rithöfundar þátt, þeirra á meðal má nefna Hanne-Vibeke Holst og Hans Henrik Knoop frá Dan- mörku, Sara Lidman og Lars Gust- afsson frá Svíþjóð, Vibeke Lökke- berg og Charlotte Glaser Munch frá Noregi og Merete Mazarell og Tomi Kontio frá Finnlandi. Pólland verður í brennidepli á bókamessunni í ár, m.a. sökum þess að Pólland er land ársins í Svíþjóð þetta árið. Af því tilefni mun rit- höfundurinn og blaðamaðurinn Ryszard Kapuscinski taka þátt í þremur málstofum um bækur sínar og fjölmiðla. Sérstök áhersla verður einnig lögð á minni málsvæði innan Evrópu og munu rithöfundar frá m.a. Wales, Katalóníu, Grikklandi, Slóveníu og Finnlandi taka þátt í málstofum tileinkuðum þessu mál- efni. Steinunn Sigurðardóttir Ólafur Jóhann Ólafsson Arnaldur Indriðason Kristín Ómarsdóttir Bókamessa í Gautaborg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.