Morgunblaðið - 27.07.2003, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. JÚLÍ 2003 45
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
LJÓN
Afmælisbörn dagsins:
Að eðlisfari ert þú mikill
leiðtogi og getur tekið erf-
iðar ákvarðanir. Þú kýst að
skipuleggja og rannsaka
hvaðeina sem þú tekur þér
fyrir hendur.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú þarft að huga að sam-
verustað þínum. Annaðhvort
ákveður þú fyrir fullt og allt
hvar þú kýst að búa eða gerir
breytingar.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er mjög líklegt að breyt-
ingar í starfi muni eiga sér
stað hjá þér í ár. Það að vera
viðbúin(n) skiptir miklu máli.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú þarft að gera þér grein
fyrir hvað skiptir máli í þínu
lífi. Þú verður umfram allt að
forgangsraða hlutunum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú ert í algerlega nýrri að-
stöðu þessa stundina og veist
varla hvað snýr upp og hvað
snýr niður. Ekki örvænta því
þetta ástand varir ekki lengi.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er enginn vafi á því að
nýtt tímabil í lífi þínu er að
hefjast. Þú verður að kveðja
ákveðna hluti og ákveðið
fólk. Það er ekki bæði haldið
og sleppt.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú þarft að kunna að meta
það sem þú hefur nú þegar
áorkað. Þú átt það til að
gagnrýna eigin verk um of.
Mundu að enginn er fullkom-
inn.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Nú hvílir mikil ábyrgð á þín-
um herðum. Þú munt þó
njóta ávaxta erfiðisins áður
en langt um líður. Njóttu vel!
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú ættir að leggja meira á
þig á þínu sérsviði. Aukin
menntun og æfing mun færa
þér frama í starfi.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Nú væri tilvalið að gera út
um gömul deilumál og grafa
stríðsöxina. Ef þú gerir það
munt þú finna fyrir auknu
frelsi.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Áhrif þín á umhverfið hafa
aukist til muna. Það vald sem
þú nú hefur gæti reynst sam-
böndum þínum skaðlegt. Við
þessu er ekkert að gera.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú verður að gera þér grein
fyrir því að mikil vinna er
framundan. Skipuleggðu þig
því vel og leggðu hart að þér.
Það mun koma þér til góða
seinna meir.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Mikil ábyrgð vegna barna
getur verið þreytandi. Hafðu
það þó hugfast að þetta er
einnig ein mesta ánægja þín í
lífinu.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
HEIMÞRÁ
Reikult er rótlaust þangið,
rekst það um víðan sjá,
straumar og votir vindar
velkja því til og frá.
Fuglar flugu yfir hafið
með fögnuði og vængjagný,
– hurfu út í himinblámann
hratt eins og vindlétt ský.
Þangið, sem horfði á hópinn,
var hnipið allan þann dag. –
Bylgjan, sem bar það uppi,
var blóðug um sólarlag.
Jóhann Sigurjónsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
85 Ára afmæli. KristjánReykdal, Klettahlíð
16, Hveragerði, verður
áttatíu og fimm ára í dag
sunnudaginn 27. júlí. Af því
tilefni tekur hann og eig-
inkona hans, Sölvína Jóns-
dóttir, á móti vinum og
vandamönnum í sal Ár-
skóga, Árskógum 4 í Mjódd,
milli kl. 15.30 og 18 á afmæl-
isdaginn.
STUNDUM gerast undrin
við borðið, stundum eftirá.
Hér er úr Cavendish-
mótinu í fyrra, þar sem ská-
setjarar mótsblaðsins sáu
möguleika sem keppendur
misstu af.
Suður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ ÁK864
♥ ÁK10
♦ 43
♣Á96
Vestur Austur
♠ 9732 ♠ DG10
♥ 32 ♥ DG8
♦ ÁKD765 ♦ G10982
♣K ♣D4
Suður
♠ 5
♥ --
♦ 97654
♣G1087532
Víða var opnað á þremur
laufum og vestur kom inn á
tígulsögn, tveimur eða
þremur. Svo til alls staðar
voru spiluð fimm lauf í suð-
ur (+400) eða þá fimm tíglar
doblaðir í AV, sem gáfu NS
fallegan 500-kall. Tveir spil-
arar reyndu sex lauf, en
fóru niður. Skiljanlega, því
tveir tapslagir blasa við,
annar á tromp og hinn á
hjarta.
Við nánari skoðun kemur
í ljós að sex lauf er aldeils
óhnekkjandi spil með tígli
út! Vinningsleiðin er þessi:
útspilið er trompað, ÁK í
spaða spilað og spaði stung-
inn. Hjarta er spilað á ás og
spaði aftur trompaður, en
austur hendir tígli. Þá er
hjartakóngur tekinn og tíg-
ull trompaður heim. Staðan
er nú þessi:
Norður
♠ 4
♥ 10
♦ --
♣Á96
Vestur Austur
♠ -- ♠ --
♥ -- ♥ D
♦ KD76 ♦ G10
♣K ♣D4
Suður
♠ --
♥ 97
♦ --
♣G108
Laufi er spilað í fyrsta
sinn og vestri gefinn slag-
urinn á kónginn! Hann spil-
ar tígli, tilneyddur, sem er
til dæmis trompaður í borði
og hjarta hent heima.
Trompásinn gleypir lauf-
drottninguna og fríspaðinn
sér um síðasta hjartað
heima. Einfalt!
Það gagnast austri ekkert
að stinga fjórða spaðann
með drottningunni, því þá
er bara hjarta hent og
tromp varnarinnar falla
saman.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5
d6 4. Rf3 Rxe4 5. d4 d5 6.
Bd3 Bd6 7. O-O O-O 8. c4 c6
9. He1 Bf5 10. c5 Bc7 11.
Rc3 He8 12. Dc2 Rd7 13. b4
Bg6 14. Bb2 He6 15.
Re2 De7 16. Rg3
He8 17. Db3 h5 18.
Bxe4 dxe4 19. d5
cxd5 20. Rd4 h4 21.
Rf1 Dg5 22. Rxe6
fxe6 23. Bd4 Bh5 24.
Kh1 Hf8 25. b5 Re5
26. De3 Dg6 27. b6
axb6 28. cxb6 Bd6
29. Bxe5 Bxe5 30.
Hab1 Hf3 31. Dc5
Df5 32. Dc8+ Kh7
33. Dd8 Bf6 34. Dc7
Hxf2 35. Re3 Dg5
36. Dxb7 Bd4 37.
Hf1 Dxe3 38. Hxf2
Dxf2 39. Dc7
Staðan kom upp á al-
þjóðlegu móti sem lauk fyrir
skömmu í Andorra. Irina
Krush (2449) hafði svart
gegn Ivan Cheparinov
(2529). 39...Bf3! og hvítur
gafst upp enda verður hann
mát eftir 40. gxf3 Dxf3#.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Engilbert Aron Kristjánsson 435 0145 690 2918
Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243
Blönduós Björn Svanur Þórisson 452 4019/864 4820/690 7361
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík María Jane Duff 475 6662
Búðardalur Anna María Agnarsdóttir 434 1381
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161 847 5572
Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 846 8123
Grenivík Ólína H. Friðbjarnardóttir 463 3131
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 895 0222
Hellissandur/Rif Lára Hallveig Lárusdóttir 436 6889/436 1291/848 1022
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Bylgja Finnsdóttir 453 7418 893 5478
Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683
Hvammstangi Gunnar Þorvaldsson 451 2482 894 5591
Hveragerði Erna Þórðardóttir 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Ranveig Á. Gunnlaugsdóttir 478 2416 862 2416
Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 821 3475
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8378 895 7818
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Jakop Antonsson 486 8983
Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173
Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2347 866 7958
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Alda Guðmundsdóttir 465 1344
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574
Reykholt Bisk. Oddur Bjarni Bjarnason 486 8900
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð v/Mýv. Margrét Hróarsdóttir 464 4464
Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888 862 2888
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Hanna Lísa Vilhelmsdóttir 472 1102 690 2415
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815
Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Ingibjörg Ólafsdóttir 456 4936
Tálknafjörður Sveinbjörg Erla Ólafsdóttir 456 2676
Varmahlíð Ragnar Helgason 453 8134 867 9649
Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 698 7521
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 821 3475
Þingeyri Arnþór Ingi Hlynsson 456 8285
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
Alþjóðleg málstofa um
“The World at a Turning Point”
Good Governance and responsible leadership
Laugardaginn 9. águst kl. 10 til 17.
Fer fram á ensku. Nánari upplýsingar
Í sima 5528405 eða ffwpu@mmedia.is
Interreligious and International Federation for World peace
FYRIR löngu var í þessum
pistlum rætt um so. að
stóla á e-ð. Þetta er hrátt
tökuorð úr dönsku, vissu-
lega ekki nýtt, því að dæmi
eru um það í OH fyrir um
200 árum. Hins vegar hef-
ur oft verið bent á, að þarf-
laust sé að nota það í vönd-
uðu máli, meðan við
hefðum miklu betri orð í ís-
lenzku í sömu merkingu. Í
fyrra skiptið komst ég svo
að orði, að ég hefði sjaldan
séð so. að stóla á prenti eða
heyrt í mæltu máli. En nú
upp á síðkastið hef ég orðið
þess var, að ýmsir fjöl-
miðlamenn virðast hafa
fengið eitthvert dálæti á
þessu so. – eða þá gleymt
því, að í máli okkar séu til
önnur orð, sem fara miklu
betur í ræðu og riti, enda
alíslenzk. Þá er m. a. talað
um að treysta á e-n eða e-ð,
sbr. no. traust, að hafa
traust á e-u eða e-m.
Ég held menn finni hér
verulegan mun á orðum og
gegnsæi þeirra í máli okk-
ar. Þegar ég var í skóla fyr-
ir miðja síðustu öld, var
nemendum einmitt bent á,
að so. að stóla á e-ð væri
dönskusletta og með öllu
óþörf í máli okkar og bent á
önnur sagnorð í staðinn.
Við tölum um að treysta á
e-ð og eins að reiða sig á
e-ð, sbr. lo. traustur og
áreiðanlegur. Í OM (1983)
er merkt við sögnina að
stóla sem vont mál, sem
forðast beri í íslenzku. Í
OE (2002), arftaka OM, er
aftur slakað á klónni eins
og víðar er þar gert, og nú
talað um óforml. mál, sem
ég tel heldur óljóst orðalag.
Þó skil ég það svo, að
með því sé so. að stóla veitt
nokkurt brautargengi í
máli okkar. Þrátt fyrir þá
tilslökun tel ég ástæðu-
laust fyrir útvarpsstöðvar
og aðra fjölmiðla að ýta úr
vegi þeim ágætu orðum,
sem hér hefur verið bent á
og eiga meiri þegnrétt í
tungu okkar en hið dansk-
ættaða orð.
– J.A.J.
ORÐABÓKIN
Að stóla á eitthvað
Ljósmynd/Sigríður Bachmann
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman í Hafnarfjarðar-
kirkju 5. október 2002 af sr.
Þórhalli Heimissyni þau
Ráðhildur Anna Sigurð-
ardóttir og Jón Arnar Jóns-
son. Heimili þeirra er í Eyr-
arholti 12, Hafnarfirði.
KIRKJUSTARF
Háteigskirkja. Eldri borgarar.
Félagsvist á morgun í Setrinu
kl. 13. Pútt alla daga kl. 10 ef
veður leyfir.
Hallgrímskirkja. Sumarkvöld
við orgelið. Orgeltónleikar kl.
20:00. Lars Frederiksen frá
Danmörku leikur.
Grafarvogskirkja. Bænahópur
kl. 20. Tekið er við bænarefn-
um alla virka daga frá kl. 9-17 í
síma 587 9070.
Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld,
sunnudag kl. 19.30.
Krossinn. Almenn samkoma að
Hlíðasmára 5 kl. 16.30. Allir
velkomnir.
Fríkirkjan KEFAS, Vatnsenda-
bletti 601. Í kvöld er samkoma
kl. 20.00. Helga R. Ármanns-
dóttir talar.
Lofgjörð og fyrirbænir. Barna-
gæsla fyrir 1-7 ára börn á sam-
komutíma.
Kaffi og samfélag eftir sam-
komu. Allir velkomnir.
Safnaðarstarf
Morgunblaðið/Ómar