Morgunblaðið - 07.08.2003, Side 16

Morgunblaðið - 07.08.2003, Side 16
Morgunblaðið/Svavar Skógarkerfill í fuglafriðlandinu í Vatnsmýrinni. Myndin er tekin seint í júní, en þá er kerfillinn í blóma. UNDANFARIN sumur hefur sífellt meira borið á skógarkerfli í fuglafrið- landinu í Vatnsmýrinni og standa nú mál þannig að hann þekur um helm- ing friðlandsins. Vísindamenn telja víst að þessi þróun ógni fjölbreyti- leika lífríkisins í friðlandinu, þó það bitni ekki beinlínis á fuglunum sjálf- um, þar sem þeir sækja æti sitt á aðr- ar slóðir. Kerfillinn hefur einnig verið mjög áberandi í Elliðaárdal, Fossvogi og í Esjuhlíðum og sækir ört fram á fjölda staða, enda sáir hann sér hratt þegar hann nær fótfestu. Skógarkerfill er kræf og ágeng planta sem hefur átt mikilli velgengni að fagna á Íslandi. Hluti þessarar vel- gengni er fólginn í því að kerfillinn er afar fljótsprottinn og gerir litlar kröf- ur um ljósmagn. Einnig breiðir hann úr sér og kæfir annað plöntulíf mjög hratt. Því hefur plöntulíf tilhneigingu til að verða mun fábreyttara þar sem kerfillinn nær að dafna og bitnar sú fábreytni einnig á dýralífi. Aukin tilhneiging til rofs Kerfillinn sækir mjög í níturríkan jarðveg og fylgir því gjarnan lúpín- unni, sem hann eyðir ásamt öðrum tegundum. Hann leggst í tún og getur lagt undir sig gróið land á stuttum tíma. Getur þá reynst erfitt að end- urheimta landið og þarf oftast að plægja það og endurrækta. Vísindamenn á Náttúrufræðistofn- un hafa lýst yfir áhyggjum af skjótri útbreiðslu skógarkerfilsins og telja hann ógna viðkvæmu plöntulífi auk þess sem rofhætta getur aukist í landi þar sem kerfill er ríkjandi vegna þess að undirgróður er þar rýr og yfirborð bert og illa varið fyrir vatnsrofi að vetrarlagi. Auk skógarkerfilsins hefur brenni- netla gert sig heimakomna í friðland- inu. Ólafur Karl Nielsen, fuglafræð- ingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, segir mikilvægt að bregðast við innrás þessara ágengu og fram- andi tegunda. „Friðlandið þarna er hugsað til þess að hýsa fuglana og það á líka að vera vitnisburður um það gróðurfar sem forðum var í Vatns- mýrinni. Við viljum fjölbreytni í gróð- urfari, en ekki einsleitar breiður af örfáum ágengum tegundum.“ Ólafur telur nauðsynlegt að bregðast við kerflinum, þar sem hann hafi nei- kvæð áhrif á gróðurfar. Hann varar við þeirri hugmynd að nota kerfilinn sem „meðal“ við lúpínu. „Einsleitar breiður af skógarkerfli eru ekki eitt- hvað sem við viljum sjá í framtíðinni. Þetta er spurning um grundvallarat- riði í náttúruvernd. Við viljum varð- veita það sem er náttúrulegt. Skógarkerfillinn breytir tiltölulega fjölbreyttum gróðursamfélögum í fá- breytt einsleit samfélög þar sem ein tegund er ríkjandi. Bein afleiðing af því, í tilfelli skógarkerfilsins, er til dæmis aukin rofhætta, þar sem jarð- vegurinn er óvarinn utan gróðurtím- ans.“ Engar nothæfar upplýsingar Að sögn Þórólfs Jónssonar, deild- arstjóra Garðyrkjudeildar Reykja- víkurborgar, eru upplýsingar um ástand plönturíkisins í fuglafriðland- inu strjálar og því ekki ljóst hvort og þá hvernig brugðist skuli við skóg- arkerflinum. „Við höfum ekki gert neina sérstaka úttekt á þessu hjá okkur og þetta hefur ekki komið upp í umræðunni ennþá. Það er kannski full ástæða til að líta inn í þessi mál, því við höfum heyrt mikið af því að kerfillinn sé að breiða úr sér víða. Að minnsta kosti hluti svæðisins er mjög blautur, þannig að kerfillinn mun ekki dafna þar, en hann sækir á þar sem er þurrara.“ Þórólfur segir svæðið þó fyrst og fremst hugsað sem friðland fyrir fugla og því sé forgangsmál að athuga hvort plantan hafi neikvæð áhrif á fuglalífið. „Við erum í stöðugu sam- bandi við fuglatalningamenn sem gefa okkur upplýsingar um þessi mál. Vissulega hefur fólk verið að benda okkur á kerfilinn og þann mögulega vanda sem af honum steðjar, en við höfum engin sérstök ráð eða leiðir til að glíma við hann fyrir utan slátt og uppgröft. Það hafa ekki verið gerðar neinar rannsóknir á því hvernig er best að útrýma honum.“ Skógarkerfill breiðist víða hratt út á höfuðborgarsvæðinu Mikilvægt að bregðast við ágengri, innfluttri tegund Morgunblaðið/Sverrir Skógarkerfillinn er fljótsprottin og ágeng planta sem dreifir öflugum fræjum sínum snemmsumars. Reykjavík HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 16 FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ w w w .k a ri n h e rz o g .c h Nýtt líkams krem frá KARIN HERZOG STERKUR - STINNARI og FALLEGRI líkami með TONUS - B12 BODY CREAM 1 - 2 - 3 fyrir fullkominn líkama 1. SHOWER BODY SCRUB Fjarlægir dauðar húðfrumur og ójöfnur af yfirborði húðarinnar. Undirbýr húðina fyrir Silhouetter og B12. 2. SILHOUETTE 4% súrefniskrem sem vinnur á app- elsínuhúð og sliti, framleitt til að virka á þau svæði líkamans sem eru mest útsett fyrir fitu og upp- söfnun á fituvef, svo sem mjöðmum, rasskinnum, lærum og á kviðnum. 3. TONUS - B12 - NÝTT Krem sem styrkir, stinnir og hjálpar húðinni að losa sig við óæskilega vökvasöfnun og óhreinindi um leið og það er borið á líkamann. Með sameiningu þessara þriggja þátta verður árangurinn sjáanlegri fyrr. Kremið gerir það að verkum að húðin verður silkimjúk og veitir létt- an angann. Súrefnisvörur KARIN HERZOG SELTIRNINGAR fengu sann- arlega óvenjulega heimsókn á föstudaginn, þegar skúta varpaði akkerum í fjöruborðinu í Bakka- vík, sunnanmegin á Seltjarnarnes- inu. Plast var fast í skrúfunni og greip skipstjóri skútunnar til þess ráðs að sigla á grunnsævi við Sel- tjarnarnes til þess að losna við að kafa niður að skrúfunni í köldum sjó á meira dýpi. Bæjarstjóri Sel- tjarnarness, Jónmundur Guð- marsson, kom að tali við fólkið og komst að því að sæfararnir voru þýsk hjón sem voru að koma frá Grænlandi. Sagði skipstjóri skút- unnar Bakkavík hafa orðið fyrir valinu sökum þess hve sendinn og mjúkur botninn er. Var ætlunin síðan að láta fjara undan skútunni til að geta vaðið að skrúfunni og fjarlægt plastið. Þegar hjónin voru spurð hvort þau þekktu til Íslands eða Íslend- inga svöruðu þau því til að þau ættu kunningja sem væri búsettur á Seltjarnarnesi og báðu þau fyrir kveðju til hans. Að sögn Jónmundar, sem einnig er hafnarstjóri á Seltjarnarnesi, losnaði skútan strax um kvöldið og héldu hjónin áfram för sinni sem var heitið suður fyrir land, til Færeyja og að lokum til Þýska- lands. Létu þau mjög vel af dvöl sinni á Íslandi, enda voru þau rétt lögð af stað frá Reykjavíkurhöfn þegar plastpokinn festist í skrúf- unni. „Það var þó nokkuð skondið að þau lentu aðeins fjögur hundr- uð metra frá smábátahöfninni okkar, sem er einmitt til taks fyrir sjófarendur sem lenda í ýmiss konar erfiðleikum. Það var mjög gaman að þessari uppákomu, þar sem Seltjarn- arnesbær á sér sögu sem miðstöð útróðra og hér lögðust skip gjarn- an í var. Þetta var dálítið eins og að skyggnast aftur í tímann að sjá bátinn svona damlandi í fjöruborð- inu.“ Bæjarstjórinn á Seltjarnarnesi, Jónmundur Guðmarsson, býður þýsku sæ- farana velkomna til bæjarins, þótt heimsóknin væri á endanum stutt. Þýsk skúta strandar í Bakkavík Seltjarnarnes UNDANFARIN ár hefur Hafnfirðingum fjölgað jafnt og þétt og er sveitarfélagið í örum vexti. Nú hefur íbúafjöldi í Hafnarfirði farið yfir 21.000 í fyrsta skipti í sögu bæjarins. Frá og með þriðjudeginum 5. ágúst eru íbúar Hafnarfjarðar orðnir 21.006. Í júlí fæddust 32 börn og 12 íbúar bæjarins lét- ust. Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Hafnarfjarð- arbæjar, segir hægt að rekja þessa þróun til mikillar upp- byggingar í íbúðarhverfum í Áslandi og á Völlum og horfur séu á enn meiri fjölgun á kom- andi misserum. „Okkur hefur meira að segja fjölgað um tíu síðan í gær.“ Steinunn segir upplýsingar frá Hagstofunni benda til þess að fólk sem flytur af landsbyggðinni flytji gjarnan til Hafnarfjarðar. Morgunblaðið/Golli Unga fólkinu fjölgar jafnt og þétt í Hafnarfirði og mannlíf blómstrar. Hafnfirð- ingar komnir yf- ir 21.000 Hafnarfjörður

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.