Morgunblaðið - 07.08.2003, Page 44

Morgunblaðið - 07.08.2003, Page 44
FÓLK Í FRÉTTUM 44 FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Date fimmtudaginn 7. ágúst örfá sæti laus SÍÐASTA SÝNING! www.date.is 21. SÝNING MIÐVIKUDAGUR 20/8 - KL. 20 UPPSELT 22. SÝNING FIMMTUDAGINN 21/8 - KL. 20 UPPSELT 23. SÝNING LAUGARDAGINN 23/8 - KL. 16 UPPSELT 24. SÝNING LAUGARDAGINN 23/8 - KL. 20 UPPSELT 25. SÝNING FÖSTUDAGINN 29/8 - KL. 20 ÖRFÆA SÆTI LAUS 26. SÝNING LAUGARDAGINN 30/8 - KL. 16 ÖRFÁ SÆTI LAUS 27. SÝNING LAUGARDAGINN 30/8 - KL. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS 28. SÝNING SUNNUDAGINN 31/8 - KL. 16 LAUS SÆTI 29. SÝNING SUNNUDAGINN 31/8 - KL. 20 LAUS SÆTI MIÐASALA LOKUÐ FRÁ 2. ÁGÚST TIL OG MEÐ 5. ÁGÚST Sumarkvöld við orgelið 7. ágúst kl. 12: Alda Ingibergsdóttir sópran og Antonia Hevesi orgel. 9. ágúst kl. 12: Christian Præstholm orgel. 10. ágúst kl. 20: Johannes Skudlik. Leikur m.a. verk eftir Bach og Liszt. Ain´t Misbehavin´ the Fats Waller Musical Show Frumsýning fös. 8. ágúst kl. 20. - UPPSELT 2. sýning laugard. 9. ágúst kl. 20.- Örfá sæti laus 3. sýning sunnudaginn 10. ágúst kl. 20. 4. sýning mánudaginn 11. ágúst kl. 20. Miðasala í Loftkastalanum opin alla virka daga frá 15 - 18. Sími 552 3000 • loftkastalinn@simnet.is JARÐARBÚAR hafa ekki þurft að kvarta undan skorti á hernaðar- átökum gegnum tíðina, þ.á m. blóð- ugri borgarastyrjöld og þjóðarmorði í Nígeríu, landinu sem er bakgrunn- ur Tára sólarinnar. Harla venjulegr- ar stríðsmyndar sem á að gerast undir uppskálduðu borgarastríði í þessu hrjáða landi sem kom m.a. við sögu íslensks hjálparflugs á sjöunda áratugnum. Bruce Willis leikur Waters, sjóað- an foringja í einhverri ofursveit Bandaríska sjóhersins sem send er til að hjálpa bandarísku hjúkrunar- fólki að flýja frumskóga Nígeríu er stríðið brýst út. Deildin kemst á staðinn en málin þróast á þann veg að Waters ákveður að skilja ekki eft- ir væntanleg fórnarlömb uppreisn- armanna en koma þeim undan yfir landamærin til Kamerún – sem er skammt undan. Það reynist þrautin þyngri því flugumaður uppreisnar- hersins leynist í hópnum og fleiri óvæntir gestir og björgunarleiðang- urinn breytist í flótta upp á líf og dauða þar sem blóðþyrstur bylting- arvargurinn dregur á, hægt og bít- andi. Þeir sem hafa séð bandarískar hetjumyndir í tonnatali geta ekki átt von á nokkurri skemmtun eða af- þreyingu, þær eru nánast allar eins. Það er óþolandi vemmilegt að hlusta á hina innfæddu útgrátna og þakk- láta biðja bandarísku hetjunum guðs blessunar í myndarlok. Hliðarsagan í Tár sólarinnar er því síður nógu burðug til að afsaka tilurð þessarar laglegu en innantómu bruðlmyndar. Boðskapurinn, drengskapurinn, sið- prýðin og bróðurkærleikurinn fram- ar öllu, er hjáróma og ótrúverðugur jafnvel þótt Willis sé skítugur, órak- aður með nauðrakað fósturútlit og útmakaður í skósvertu. Brellurnar og kvikmyndatakan eru fyrsta flokks og tónlistin hans Zimmers er samin fyrir einhverja allt aðra og betri alvörumynd en þessa frum- skógarvellu. Bellucci hin ítalska fær ekki krefjandi hlutverk kvenhetj- unnar, læknisins, frekar en aðrir, því er ekki um neinn umtalsverðan „leik“ að ræða en í hæsta máta und- arlegt að sjá Fionnulu Flanagan bregða fyrir í örhlutverki. Hún hlýt- ur að hafa verið í fríi á Hawaii. Tár sólarinnar gerist æ væmnari með hverri mínútunni sem líður en einu tárin sem falla eru ekki jafnskáldleg og titillinn heldur flokkast undir ómerkileg krókódílatár. Tár krókódílsins KVIKMYNDIR Smárabíó Leikstjóri: Antoine Fuqua. Handrit: Alex Lasker og Pat- rick Cirillo. Kvikmyndatöku- stjóri: Mauro Fiore. Tónlist: Hans Zimmer. Aðalleik- endur: Bruce Willis, Monica Bellucci, Cole Hauser, Eamonn Walker, Nick Chin- lund,Tom Skerritt. 118 mín- útur. Revolution Studios/ Columbia Pictures. Banda- ríkin 2003. TÁR SÓLARINNAR/ TEARS OF THE SUN Tár sólarinnar er „innantómt bruðl“ að mati gagnrýnandans. Sæbjörn Valdimarsson ÞAÐ gengur nú fjöllunum hærra í Hollywood að stjörnuparið Jennifer Lopez og Ben Affleck hafi slitið trúlof- un sinni í kjölfar frétta af því að Affleck hafi ný- lega sleppt fram af sér beislinu með nektardansmey á næturklúbbi í Vancouver. Lopez brást reyndar vel við frétt- um af framferði unnustans er systir hennar Lynda, sem vinnur á út- varpsstöð, hringdi í hana í beinni útsendingu sl. fimmtudag og bar þær undir hana, en síðan er hún aldeilis sögð hafa skipt um skoðun. Haft er eftir ónafngreindum vinum Lopez að hún trúi fullyrðingum Affleck um að einungis hafi verið um saklaust gaman að ræða en að hún telji sig engu að síður hafa ver- ið niðurlægða. Fjölmiðlafulltrúi Lopez segir ekk- ert til í því að Lopez hafi slitið trú- lofuninni en það hefur þó gefið sögusögnunum byr undir báða vængi að nýlega sást til leikkon- unnar án bleika trúlofunarhringsins sem Affleck gaf henni …Nicky Byrne, úr hljómsveitinni Westlife, og unnusta hans Georgina Ahern, dóttir írska forsætisráðherrans, gengu í hjónaband á borgarstjóra- skrifstofunni í Wicklow á Írlandi í gær. Til hafði staðið að þau giftu sig við hátíðlega athöfn í París á laugardag en þau breyttu áætl- unum sínum þar sem þau komust að því að einungis þeir sem skráðir til heimilis í Frakklandi geti gengið þar í hjónaband. Athöfnin var ekki hátíðlegri en svo að Nicky klæddist stuttermabol og snjáðum gallabuxum og var auk þess með rauða derhúfu. Þá mætti hann tuttugu mínútum of seint. Brúðkaupsveislan verður eftir sem áður haldin í Chateau D’Esclimont í útjaðri Parísar á laugardag en verður þar ekkert til sparað. FÓLK Ífréttum HLJÓMSVEITIN Græni bíllinn hans Garðars hafði þar til nýlega að mestu legið í gleymskunnar dái. Það var helst á Vestfjörðum að minning hennar lifði en þetta fimm manna band á rætur sínar á Bíldu- dal og var nokkuð liðtækt í sveita- ballamenningu í nærsveitum upp úr 1987. Græni bíllinn átti sitt blómaskeið fram til um 1993 en þeir eru nú að koma aftur fram í sviðsljósið og gáfu á dögunum út diskinn Enda- laust. Útgáfan er nokkuð smá, en ekki síst merkileg fyrir þær sakir að samhliða var gefið út blaðið Saga gleðisveitar, 24 síður að stærð, þar sem ferill hljómsveitarinnar er út- listaður af stakri nákvæmni. Ekki er aðeins gerð grein fyrir sögu hljómsveitarinnar sem slíkrar, held- ur er ítarlegt bókhald um þau lög sem hljómsveitin spilaði (í númer- aðri röð) og annáll yfir allar söng- skemmtanir þar sem Græni bíllinn tróð upp. Sem dæmi má nefna svo- hljóðandi færslu: „Hópið – Tálknafirði 16. apríl 1992. Drengirnir mættir aftur um páskana og gerðu allt vitlaust. Dansað uppi á stólum, borðum og upp um alla veggi. Þvílíkt fjör. Bílddælingar komu með rútu yfir og skemmtu sér konunglega í bland við heimamenn, Patreksfirðinga og Barð- strendinga. Sveitin fékk 20.000 kr. fyrir. Á lagalistanum voru 4 ný lög.“ Þannig er útgáfan ekki síst heim- ild um sveitaballamenninguna fyrir áratug. Þórarinn Hannesson á veg og vanda af þessari skráningu en auk hans skipa hljómsveitina Bjarni Þór Sigurðsson, G. Hjalti Jónsson, Matthías Ágústsson og Viðar Örn Ástvaldsson. Strákaband frá Bíldudal „Við náðum eiginlega í skottið á sveitaballastemmningunni,“ segir Þórarinn spurður um sögu sveit- arinnar. „Það var mikil tónlistar- hefð á Bíldudal og þaðan kom til dæmis hljómsveitin Facon sem söng lagið „Ég er frjáls“ eins og frægt er orðið. Við vorum um tvítugt þegar við byrjuðum og spiluðum þau lög sem voru vinsælust þá.“ Hljómsveitin hefur verið sam- heldin í gegnum árin en þótt þeir félagar hafi verið saman í anda hafa vegalengdirnar skilið þá að. Sumir fluttu suður, aðrir austur: „Síðan var haldin í sumar hátíð á Bíldudal, Bíldudals grænar, og þá samdi ég lag tileinkað hátíðinni og langaði til að gera eitthvað úr því. Ég talaði við gömlu félagana og boltinn fór að rúlla.“ Úr varð að þeir félagar gerðu al- vöru úr þessari endurkomu sinni, skelltu sér í hljóðver og tóku upp nokkur lög. Afraksturinn er sex laga plata með fjórum frumsömdum lögum og tveimur gamalkunnum Bíldudals- smellum, þar á meðal lagið „Inn í Otradal“ sem er lag Ottós Valdi- marssonar við vísur sem orðið hafa til og lifað áfram í gleðskap heima- manna. „Þetta er svona partýlag sem sungið er í öllum teitum á Bíldudal,“ segir Þórarinn. „Þetta eru textar sem sumir hafa lifað góðu lífi í áratugi, og þar sem Bíld- dælingar koma saman er þetta sungið. Reyndar eru vísurnar mun fleiri en þær sem við spilum, en við völdum þær sem hæfa eyrum flestra enda margar annars tví- ræðnar og berorðar.“ Um bæklinginn góða segir Þór- arinn að hann hafi lengi haft þá áráttu að krota hjá sér ýmislegt sem bandið gerði í gegnum tíðina. „Þetta kemur sér stundum vel. Ég punktaði alltaf hjá mér öll lögin sem við fluttum á hverju balli, hvernig mætingin var, hvað við fengum borgað og þar fram eftir götunum. Síðan langaði mig svo að koma þessu frá mér og setti saman beina- grind að sögulegu yfirliti. Síðan hittumst við félagarnir og lásum þetta yfir og þá rifjaðist upp eitt og annað hjá öðrum meðlimum hljóm- sveitarinnar, þannig að smám sam- an kom meira kjöt á beinin.“ Afraksturinn er ágætis minnis- varði um íslenska sveitaballamenn- ingu og óður til bæjarins ágæta Bíldudals. Þórarinn segir bandið hafa hist nokkrum sinnum upp á síðkastið, og segir kíminn að aldrei sé að vita nema nýtt blómaskeið sé að renna upp hjá Græna bílnum hans Garðars. Bílddælingarnir í Græna bílnum hans Garðars snúa aftur Meðlimir hljómsveitarinnar, Matthías, Bjarni, Viðar, Þórarinn og Hjalti. Auðvitað lét Garðar sig ekki vanta – á bílnum góða. Græni bíllinn lifir asgeiri@mbl.is Í KVÖLD, kl. 20, í Hafnar- húsi gengst Smekkleysa fyr- ir uppákomunni Nærbuxur, náttföt og neðanþvotta- stykki í fjölnotasal Lista- safns Reykjavíkur. For- sprakki hópsins er Bibbi/ Curver en hann hefur fengið til liðs við sig fimm flinka trommuleikara úr bæjarins betri böndum og tvo tölvu- og rafhljóðfæraleikara. Upphitun sér Siggi Ármann um. Aðgangur er ókeypis en dag- skráin stendur til tíu. Þeir sem leika munu verkið eru Curver sem sér um rafgítar og sjónvarps- upptöku; Heimir Björgúlfs- son og Helgi Þórsson (Helgi er úr Stillupp- steypu) sjá um tölvu- og rafhljóðfæri og trymblar eru Daníel Þorsteinsson (Maus) Ólafur Björn Ólafs- son (Rúnk), Björn Stefáns- son (Mínus), Frosti Jón Runólfsson (Klink, Dóp- skuld) og Kjartan Bragi Bjarnason (Kimono). Smekkleysa kynnir spunaverk fyrir rafhljóð- Bibbi/Curver mun stýra spuna- verkinu. færi, sjónvarpsupptöku og fimm trommusett Nærbuxur, náttföt og neðanþvottastykki MIKILL fjöldi manna fylgdi frönsku leikkonunni Marie Trintignant til grafar í Pere-Lachaise kirkjugarð- inum í París í dag. Talið er að um þúsund manns hafi verið viðstödd at- höfnina þar sem leikarinn Jean- Louis Trintignant, faðir Marie, las stutta kveðju til dóttur sinnar. Þá flutti Jean-Jacques Aillagon menn- ingarmálaráðherra minningarorð. Meðal viðstaddra voru kunnir leik- arar á borð við Catherine Deneuve og Daniel Auteuil. Trintignant, sem varð 41 árs, lést í París sl. föstudag eftir að hafa verið flutt þangað frá Litháen þar sem hún hafði legið í dái í tæpa viku. Bertrand Cantat, sambýlismaður hennar, er í gæsluvarðhaldi í Vilnius grunaður um að hafa valdið höfuð- áverkum sem drógu Trintignant til dauða. Verið er að rannsaka hvort Cantat hafi verið undir áhrifum fíkniefna nóttina sem hann réðist á Trintignant. Trintignant lék í um 30 kvikmynd- um um ævina og þótt hún yrði aldrei alþjóðleg stjarna naut hún mikillar virðingar í Frakklandi og víðar. Útför Marie Trintignant Mikill mannfjöldi Reuters Nadine og Jean-Louis Trintignant við útför dóttur sinnar í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.