Morgunblaðið - 24.08.2003, Síða 5
F
í
t
o
n
F
I
0
0
7
6
9
2
Vátryggingafélag Íslands hf., Ármúla 3, 108 Reykjavík, sími 560 5060, www.vis.is
þar sem tryggingar snúast um fólk
Þjóðarátak VÍS gegn umferðarslysum
– baráttan heldur áfram
Á Slysadeildinni er herbergi fyrir aðstandendur ávallt
til reiðu. Þangað koma fjölskyldur þeirra sem látast í
umferðaslysum saman og stíga fyrstu skrefin í sorginni.
Við höfum einnig aðgang að kapellu þar sem fram
fara bænastundir. Harmur og sorg eru þau orð sem
fyrst koma upp í hugann ef ég á að lýsa starfi mínu
með aðstandendum umferðaslysa. Heimur fólks hrynur
til grunna er náinn ættingi deyr svo skyndilega.
Hlutverk okkar er að veita sálgæslu og styðja við fólk
sem er að hefja sársaukafullt sorgarferli. Guðlaug
Helga er í hópi þeirra sem þekkir umferðaslysin úr
starfi sínu. Hlífum
Guðlaugu Helgu við
afleiðingum um-
ferðarslysa. Tökum
þátt í þjóðarátaki
VÍS með því að aka
skynsamlega.
Heimurinn hrynur
Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir, sjúkrahúsprestur Þjóðkirkjunnar á Landspítalanum
Vátryggingafélag Íslands hf., Ármúla 3, 108 Reykjavík, sími 560 5060, www.vis.is
ÞJÓÐARÁTAK VÍS
umferðarslysum
gegn
Þjóðarátak VÍS gegn umferðar-
slysum er í samstarfi við Esso.
þar sem tryggingar snúast um fólk
F
ít
o
n
/
S
ÍA
F
I0
0
7
2
7
5
–
I
n
n
ta
k
–
A
r
i
M
a
g
g
Bryndís Valbjarnardóttir og vinnufélagar hennar hjá
Útfararstofu Íslands taka á móti fórnarlömbum
umferðarslysa og fylgja þeim síðasta spölinn ásamt
fjölskyldum og vinum. „Fórnarlömb umferðarslysa
eru oft illa leikin þegar þau koma til okkar og það er
sárt að horfa upp á þau. Fólki sem fellur frá í blóma
lífsins fylgir oftast stór hópur vina og ættingja. Ég
tek það alltaf jafn nærri mér að verða vitni að
vanlíðan þessa fólks í kjölfar banaslysa. Ég óska
þess að sjá færri dauðsföll vegna umferðarslysa
í vinnunni. Ég hvet ökumenn til að sýna tillitssemi
og skynsemi í umferðinni og forðast þannig skelfingu
og dauða.”
Bryndís er í hópi þeirra
sem kynnast afleiðingum
umferðarslysa í starfi.
Hlífum Bryndísi við því að
horfa upp á hörmungar
umferðarslysanna.
Síðasta ökuferðin
Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri, Útfararstofu Íslands
Vátryggingafélag Íslands hf., Ármúla 3, 108 Reykjavík, sími 560 5060, www.vis.is
ÞJÓÐARÁTAK VÍS
umferðarslysum
gegn
Þjóðarátak VÍS gegn umferðar-
slysum er í samstarfi við Esso.
þar sem tryggingar snúast um fólk
F
ít
o
n
/
S
ÍA
F
I0
0
7
2
7
5
–
I
n
n
ta
k
–
A
r
i
M
a
g
g
Fáir þekkja hvernig það er að koma að slysstað þar sem
alvarlegt umferðarslys hefur orðið. Skelfingin er alger.
Óhugnaðurinn er í loftinu. Þetta þekkir Marteinn Geirs-
son betur en hann kærir sig um. „Ég hef séð meira en
ég vil sjá. En við erum fagmenn og reynum að vinna
okkar verk á slysstað fumlaust og af öryggi. Verka-
skipting á slysstað er skýr, einn gerir klippurnar klárar
meðan annar sinnir hinum slasaða.
Eftir að okkar verki er lokið spjöllum við gjarnan saman.
Það er þá sem þyrmir yfir okkur og sorgin sækir á. Þetta
er svo grimmilega tilgangslaust því alltof oft má koma
í veg fyrir skelfinguna með því að gera það sem allir
kunna; að haga akstri
eftir aðstæðum og
muna að við erum
ekki ein í umferðinni.”
Ég hef séð meira en ég vil sjá
Marteinn Geirsson, stöðvarstjóri á Slökkvistöð höfuðborgarsvæðisins
Vátryggingafélag Íslands hf., Ármúla 3, 108 Reykjavík, sími 560 5060, www.vis.is
ÞJÓÐARÁTAK VÍS
umferðarslysum
gegn
Þjóðarátak VÍS gegn umferðar-
slysum er í samstarfi við Esso.
þar sem tryggingar snúast um fólk
F
ít
o
n
/
S
ÍA
F
I0
0
7
2
7
5
–
I
n
n
ta
k
–
A
r
i
M
a
g
g
Í sumar hefur VÍS staðið fyrir Þjóðarátaki gegn umferðarslysum. Átakinu er nú formlega lokið en baráttu okkar gegn umferðarslysum
lýkur aldrei. VÍS vill þakka þeim fjölmörgu sem tóku þátt í þjóðarátakinu og stuðluðu þannig að öruggari umferð á vegum landsins í
sumar. VÍS er einnig þakklátt því fagfólki sem lagði okkur lið og deildi reynslu sinni af afleiðingum umferðarslysa með almenningi.
Verið velkomin á umferðarfundi VÍS
Í vetur mun VÍS halda áfram öflugu forvarnarstarfi og er athyglinni beint að ungum ökumönnum. VÍS verður með opna umferðarfundi
í húsakynnum félagsins auk þess sem forvarnarfulltrúi VÍS mun heimsækja flesta framhaldsskóla landsins. Markmið þessara funda
er að gera ungt fólk meðvitað um hættur í umferðinni og afleiðingar alvarlegra umferðarslysa. VÍS hefur nú nýverið framleitt
forvarnarauglýsingu sem hlotið hefur nafnið „Heppinn“ sem á að vekja fólk til umhugsunar um hvað óábyrg hegðun í umferðinni
getur haft í för með sér. Auglýsingin verður sýnd á forvarnarfundum VÍS. Reynslan sýnir
að þau ungmenni sem sótt hafa umferðarfundi VÍS eru síður líkleg til þess að lenda í
umferðaróhöppum og slysum. Það eru allir velkomnir á umferðarfundi VÍS og nánari
upplýsingar um þá er að finna á heimasíðu félagsins, www.vis.is.
Ókeypis úttekt á vegum VÍS og Frumherja
Þar sem öryggi aftanívagna er mjög mikilvægt atriði ákvað VÍS í samvinnu við Frumherja
að bjóða eigendum þessara vagna upp á ókeypis úttekt á öryggisbúnaði áður en lagt
var að stað í ferðalög um verslunarmannahelgina. Mæltist þetta mjög vel fyrir og jók
vitund fólks um öryggisbúnað og hefur án efa skilað sér í færri slysum um
verslunarmannahelgina.
Það er von okkar að með öflugu forvarnarstarfi VÍS leggjum við okkar af mörkum til að gera
umferðina öruggari og hvetjum þjóðina til að sameinast í baráttunni gegn umferðarslysum.
Ókeypis úttekt á fellihýsum, hjólhýsum
og tjaldvögnum á vegum VÍS og Frumherja
F
ít
o
n
F
I0
0
7
6
1
6
Vátryggingafélag Íslands hf., Ármúla 3, 108 Reykjavík, sími 560 5060, www.vis.is
þar sem tryggingar snúast um fólk
Vátryggingafélag Íslands og Frumherji bjóða upp
á ókeypis úttekt á eftirvögnum (fellihýsum, hjól-
hýsum og tjaldvögnum) til að fólk geti gengið úr
skugga um að allur búnaður sé í lagi og í samræmi
við lög áður en
það leggur upp í
f e r ð a l a g u m
verslunarmanna-
helgina.
Þessi þjónusta
verður veitt í
skoðunarstöð
F r u m h e r j a í
Hesthálsi 6—8 í Reykjavík í dag kl. 8—22.
Starfsmenn Frumherja mæla þyngd eftirvagnsins
og kanna hvort viðkomandi bíll sé skráður með
heimild til að draga eftirvagninn, kanna spegla
bílsins og bremsubúnað (þegar það á við), tengi-
búnað og ljósabúnað eftirvagnsins.
Að skoðun lokinni fá ökumenn í hendur minnisblað
með athugasemdum og geta gert viðeigandi
ráðstafanir ef þörf krefur.
Fram hefur komið að nokkur misbrestur er á að
ökumenn bæti við aukaspeglum á bílana sína til að
sjá út fyrir eftirvagnana eins og reglur kveða á um.
Í öðru lagi gera sumir ökumenn sér ekki grein fyrir
því að bíllinn þeirra er ekki skráður til að mega
draga á eftir sér tjaldvagn eða fellihýsi yfir tiltekinni
þyngd. Í þriðja lagi eru dæmi um að ökumenn átti
sig ekki á að eftirvagninn er svo þungur (heildar-
þyngd) að hann á að vera búinn hemlum. Nánari
upplýsingar er að finna á heimasíðu VÍS, www.vis.is
Opið í skoðunarstöð
Frumherja í
Hesthálsi til kl. 22
í kvöld!