Morgunblaðið - 24.08.2003, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 24.08.2003, Qupperneq 14
14 SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Þ AÐ HEFUR margoft komið fram að einn helsti drif- kraftur Bjarkar Guðmundsdóttur sem tónlistarmanns hefur verið að vera sífellt að gera eitthvað nýtt. Það má því gera ráð fyrir að henni hafi þótt síðasta ár sér- kennilegt, enda hefur hún eytt djúgum tíma í að hlusta á gamla tónlist, gamlar upptökur með sjálfri sér, til að velja í safnboxið sem fékk nafnið Family Tree og kom út fyrir tæpu ári. Ekki var þó bara að hún var að velja á safnskífu heldur hefur hún líka hlustað á óteljandi tón- leika til að velja efni í annað safnbox, að þessu sinni fimm diska saman í pakka; á fjórum eru tónleikaupptökur frá heimsreisunum sem hún hefur farið til að kynna plöturnar fjórar sem hún hefur gefið út, Debut, Post, Homogenic og Vespertine, og DVD-diskur að auki með tónleikaupptökum. Tíu ár eru síðan Debut, fyrsta sólóskífa Bjarkar, kom út og upp frá því má segja að hún hafi verið meira og minna á ferðinni, hefur leikið á óteljandi tónleikum víða um heim. Hún hefur látið þau orð falla að sér sé eiginlegt að æða áfram af eðlis- ávísuninni, en nú hafi henni þótt tími til kominn að staldra við, líta yfir farin veg og sjá hverju hún hafi komið í verk. Liður í því var áðurnefndur Family Tree-pakki og líka tónleikakassinn sem hér er gerður að umtalsefni en hún lét þau orð falla í viðtali við Morgunblaðið á meðan á þessari vinnu stóð að lögin þroskist og þróist í meðförum hennar á tónleikum og það sé oft ekki fyrr en hún sé búin að vera spila lög af plötu í langan tíma sem þau verða eins og hún var að reyna að ná fram, nái að þroskast. Ásmundur Jónsson hjá Smekkleysu lagði Björk lið við að velja lögin á plöturnar fjórar, hlustaði á marga klukkutíma af upptökum og gerði tillögur um lög sem þau síðan fóru yfir saman. Hann ræddi einnig við Björk um tónleikaferil hennar og er það spjall birt í bæklingi með tónleikaboxinu. Einnig verður sérútgáfa af boxinu með bók með spjalli Ásmundar og Bjarkar og ýmsum greinum að auki. Fræið verndað Í spjallinu við Ásmund segir Björk að þegar hún undirbúi flutning lags á tónleikum sé það eitt haft að leiðarljósi að vernda upprunanlegu hug- myndina, fræið. „Hljóðfæraskipanin þarf ekki að vera nákvæmlega hin sama eða útsetningarnar enda þarf oft að gerbreyta útsetningunum til þess að hægt sé að spila tónlistina á tónleikum.“ Til þess að ná því fram segist hún meðal annars jafnan velja skapandi tónlistarmenn til að leika undir á tónleikum sínum, enda skipti miklu að allir séu jafnir á sviðinu; hún sé ekki að leita að fólki sem gerir nákvæmlega það sem hún segir því og ekkert annað. „Ég hef yfirleitt reynt að velja fólk sem þarf náttúrulega að spila tónlistina mína en það getur bætt sínu við, einhverju frá sjálfu sér,“ segir hún í spjallinu við Ásmund. „Því býðst að taka þátt í ástandi sem vonandi dregur það besta fram, þannig að það geti verið jafnsterkt mér á sviði þótt þetta sé mín tónlist.“ Hún bætir svo við að alla jafna hafi þetta gengið mjög vel, en að tónleikahald í kjölfarið á útgáfu Debut hafi verið hálfgerð redding, ekki hafi staðið til að spila lögin á tónleikum. Hljómsveitin var því búin til á síðustu stundu og „allir spiluðu bara það sem var á plötunni“ eins og hún orðar það. Debut Tónleikaupptökurnar með lögum af Debut eru nánast allar af tón- leikum Bjarkar fyrir MTV-tónlistarsjónvarpsstöðina sem hljóðritaðir voru 1994, en platan kom út 1993. Björk segir svo frá að þegar hún var að taka plötuna upp spáði hún ekkert í það hvort hægt yrði að spila lögin á tónleikum; „Það var svo mikið frelsi fólgið í því að ég gat notað hvaða hljóðfæri sem hugurinn girntist. Þurfti ekki að hugsa um að hægt væri að fara með það hljóðfæri í tónleikaferð.“ Svo þegar þurfti að flytja tónlist- ina á tónleikum vegna þess hve plötunni var vel tekið varð að gera mála- miðlanir: sleppa saxófónum, víbrafónum og alls konar hljóðfærum sem ekki var hægt að taka með í heimsreisu. „Þegar mér var síðan boðið að gera MTV-unplugged gat ég sleppt fram af mér beislinu, eins og krakki í dótabúð; það þurfti ekki að ferðast með hljóðfærin og hljóðfæraleikarana, þetta voru bara einir tónleikar og MTV kom með peninga inn í verkefnið þannig að hægt var að fljúga inn öllu fólkinu, sem spilaði á á plötunni eins og Corky Hale og Oliver Lake. Eftir að hafa spilað lögin á tónleikum um allan heiminn hafði ég kynnst þeim betur, hvað gerði sig og hvað ekki. Ég gat skipt því út sem virkaði ekki. Við æfðum í tvo daga, að mig minnir, og sváfum ekki neitt. Þegar við spiluðum síðan á tónleikunum vorum við ör- þreytt. Kláruðum okkur í gegnum atburðinn og sváfum svo í 18 tíma á eftir. Þetta var ótrúlega skemmtilegt.“ Post Reynslan af Debut-tónleikaferðinni varð til þess að samhliða upptökum á sjálfri plötunni var Björk farin að spá í hvernig best væri að flytja tón- listina á tónleikum. Mikil vinna fór því í að í undirbúa tónleikahaldið og þá aðallega að taktar væru réttir og að gæta þess að þeir væru lifandi og sí- breytilegir, en það var meðal annars gert með því að láta tónlistarmenn spila taktana með aðstoð tölvu, en ekki spila þá af bandi, og líka lögðu menn upp með það að nota aldrei alveg sömu taktröð í sumum laganna. Það tók mánuð að undirbúa tónleikaferðina, enda þurfti ekki bara að hugsa fyrir töktunum, heldur líka tónlistinni upp á nýtt og þannig var strengjapörtum til að mynda snúið yfir, í strengjaköflum var líka skipt út fyrir harmonikkuleik, enda harmonikkan búin þeim tregahljómi sem Björk segist hafa verið að leita að. Allt varð þetta svo til þess að Post- ferðin varð eiginleg tónleikaferð en ekki bara röð stakra tónleika eins og ferðin vegna Debut. Homogenic Homogenic var ákveðinn vendipunktur fyrir Björk, enda fyrsta plat- an sem hún stjórnaði upptökum á sjálf. Hljómsveitin sem hún setti saman til að leika tónlistina á tónleikum var líka merkileg, strengja- oktett studdur af rafeindahljóðfærum og tölvum. Björk segir að tón- leikaferðin til að kynna Post hafi verið ljós og læti, mikill og frábær sirkus. Þegar kynna átti Homogenic langaði hana aftur á móti til að fara aðra leið, einfaldari og tærari. Hún segist einnig hafa reynt að segja þetta með nafni plötunnar, en komst síðan að því að orðið Homogenic væri ekki til. Lögin á plötunni voru unnin að miklu leyti í tónleikaferðinni fyrir Post, en síðan var lokið við plötuna á Spáni. Lögin héldu svo áfram að þróast á tónleikaferðinni í samræmi við það sem Björk hefur sagt að sé yfirlýst markmið með vali á hljóðfæraleikurum, að þeir fái tækifæri til að gefa af sjálfum sér en séu ekki bara í vinnunni. Hún segir að það hafi vafist fyrir strengjaleikurunum því þeir eru því vanir að spila eftir nót- um, en þegar komið var til Spánar í tónleikaferðinni bað hún strengja- leikarana um að túlka eða endurskoða hver eitt lag; úthlutaði átta lög- um til tónlistarmannanna í samræmi við þau kynni sem hún hafði haft af þeim. Það skilaði sér í ýmsum áherslubreytingum, meðal annars var Jógu skipt upp í átta raddir, var fjórar fyrir, og Come To Me varð róm- antískara við að fá spunnin forleik svo dæmi séu tekin. Vespertine Vinna við Vespertine var frábrugðin hinum plötunum að því leyti að þegar haldið var upp í tónleikaferð var Zeena Parkins, sem fór með alla ferðina, til að mynda búin að vinna með Björk í um ár, fyrst að und- irbúningi á upptökum, síðan að upptökum og svo loks æfingum og út- setningum fyrir tónleikaferðina. Þeir Matmos-félagar komu að verkinu þegar upptökum var að ljúka en lögðu sitt af mörkum á þeim mánuðum sem í hönd fóru á meðan verið var að móta tónleikaútsetningarnar, en það var meðal annars gert með því að spila á litlum stöðum. Þó að Vespertine sé að mörgu leyti órafmagnaðri en fyrri plötur Bjarkar, með strengi, kvennakór og spiladósir, er mun meiri raf- eindakeimur af lögunum þegar grannt er skoðað. Björk segir að Homogenic hafi verið svo úthverf plata að við blasti að hverfa inn á við, hún hafi reynt að fanga tilfinninguna að vera einn heima í tvo eða þrjá daga og tala ekki við neinn, að vera einn með sjálfum sér, jafnvel innra með sér. „Maður fer á sérstakan stað og vill einhvern veginn verja þennan stað … Það er kannski einhver þrjóska í mér að á þessum stað finnurðu hamingju, alsælu og himnaríki.“ Hún segir að það hafi líka gert þá upplifun að flytja lögin á sviði mjög sérkennilega: „Það var mjög undarlegt að fara í hljómleikaferð um heiminn og flytja lag á sviði, sem maður hafði ætlað að syngja bara einn í baði.“ Tónleikarnir í Vespertine-ferðinni voru allir í óperuhúsum og af- bragðs tónleikahöllum, en ekki í klúbbum eða íþróttahöllum. Björk seg- ir að málið sé ekki að sig hafi langað að flytja klassíska tónlist „heldur að mynda einhvers konar flæði milli þessara tveggja heima sem alltaf eru einangraðir – tónlist sérvitringa og tónlist almennings.“ TÓNLEIKAUPPTÖKURNAR af Debut-lögunum eru allar nema ein teknar úr sjónvarps- tónleikum sem haldnir voru fyrir MTV-tónlistarsjónvarps- stöðina 1994. Tónleikarnir voru í svonefndri Unplugged þáttaröð sem vísaði til þess að tónlistarmenn fluttu óraf- magnaðar útgáfur laga, ýmist laga sem áður höfðu komið út, eða óútgefinna, eða laga eftir aðra. Þessar upptökur komu út í takmörkuðu upplagi. Staka lagið var svo tekið upp í sjónvarpsþætti Jools Holland 1995. Á þessum tíma var Björk ekki farin að taka tónleika sína skipulega upp líkt og síð- ar varð. Debut Björk Guðmundsdóttir sendi á dögunum frá sér fimm diska safnkassa með tónleikaupptökum frá tíu ára sólóferli sínum. Árni Matthíasson kynnti sér hvaða vinna lá að baki hverri tónleikaferð. arnim@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.