Morgunblaðið - 28.08.2003, Síða 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
33,82% Í STRAUMI
Landsbanki Íslands er orðinn
stærsti hluthafinn í Fjárfesting-
arfélaginu Straumi með 19,8% hlut.
Samson, sem er kjölfestufjárfestir í
Landsbanka, hefur að auki eignast
14,02% af hlutafé Straums. Þetta
þýðir að félög sem lúta stjórn Björg-
ólfsfeðga og Magnúsar Þorsteins-
sonar hafa eignast ríflega þriðjung
hlutafjár í Straumi. Eigið fé
Straums er um 14,5 milljarðar
króna.
Ráða ekki við fjölmenni
Í bandaríska tímaritinu Education
Next er því haldið fram að íslenskir
kennarar hafi ónóga menntun til
þess að hafa stjórn á fjölmennum
bekkjum. Notaðar eru niðurstöður
úr TIMMS-könnuninni. Hún mælir
þekkingu grunnskólanema á stærð-
fræði og vísindum.
Lambakjöt á Netinu
Sláturfélag Austurlands mun inn-
an skamms bjóða neytendum upp á
að kaupa lambakjöt með því að
panta það á Netinu. Neytendur
munu geta valið frá hvaða býli þeir
kaupa lambakjötið.
Íslenskur maís
Tilraunaræktun á maís hefur gef-
ið betri raun en búist var við. Að
sögn Ólafs Eggertssonar bónda nýt-
ur íslenskur maís góðs af miklu sól-
arljósi á sumrin. Vegur það upp á
móti því að bestu vaxtarskilyrði
maíss eru við hærra hitastig en hér á
landi.
N-Kóreuviðræður hafnar
Talsmenn Bandaríkjastjórnar
vildu í gær ekki að mikil merking
yrði lögð í viðræður sem erindrekar
hennar og Norður-Kóreustjórnar
áttu, augliti til auglitis, í Peking í
gær, er fjölhliða viðræður hófust þar
um kjarnorkuáætlun Norður-
Kóreumanna, sem álitin er mesta ör-
yggisvandamálið í Austur-Asíu.
Segir Kelly hafa verið hlíft
Geoff Hoon, varnarmálaráðherra
Bretlands, bar vitni í Kelly-rann-
sókninni svonefndu í gær. Sagði
hann yfirmenn efnavopnasérfræð-
ingsins Davids Kellys hafa hlíft hon-
um eftir megni og ekki ýtt honum út
í kastljósið sem aðalheimildinni fyrir
frétt BBC um að ráðamenn hefðu
ýkt hættuna sem stafaði af Írak.
28. ágúst 2003
Á FYRSTU fimm mánuðum ársins 2003
nam aflaverðmæti íslenskra skipa af öllum
miðum 30,9 milljörðum króna en heildaraflinn
var 938 þúsund tonn. Verðmæti botnfiskafl-
ans var 21,5 milljarðar króna sem fengust fyr-
ir 206 þúsund tonn, þar af var verðmæti
þorsks 12,7 milljarðar króna en magnið 97
þúsund tonn. Verðmæti uppsjávartegunda
var 5,3 milljarðar króna og magnið 698 þús-
und tonn. Flatfiskaflinn var 16 þúsund tonn,
að verðmæti 2,6 milljarðar króna og fyrir 18
þúsund tonn af skel- og krabbadýrum fengust
1,6 milljarðar króna.
Á Austurlandi var stærstur hluti heildar-
aflans unninn eða 377 þúsund tonn, að mestu
uppsjávartegundir, og námu verðmæti þessa
afla 4,4 milljörðum króna en á Suðurnesjum
var unnið úr mestum verðmætum eða fyrir
5,7 milljarða króna en magnið var 119 þúsund
tonn. Af botnfiski var mest unnið á höfuð-
borgarsvæðinu eða 41 þúsund tonn, að verð-
mæti 4 milljarðar króna, en af þorski var
mest unnið á Suðurnesjum eða 23 þúsund
tonn fyrir 3,3 milljarða króna.
Helmingur af verðmæti sjávaraflans er til-
kominn vegna beinnar sölu útgerða til
vinnslustöðva, 25% verðmætis vegna sölu á
sjófrystum afla, 16,9% vegna sölu á fiskmörk-
uðum innanlands en 5,1% verðmæta eru til-
komin vegna útflutnings á fiski í gámum.
Á tímabilinu var unnið úr tæplega 98 þús-
und tonnum af þorski og var mestu ráðstafað
í saltfiskvinnslu eða 42,8%.
Aflaverðmætið 30,9 milljarðar króna
DRAGNÓTABÁTURINN Esjar
fékk fjóra urrara í dragnótina í
kolluálnum. Urrarinn fær nafnið af
því að hann býr til urrhljóð með
sundmaganum. Áhöfnin á Esjari
færði sjávarsafninu í Ólafsvík
fiskana að gjöf og er myndin tekin í
sjávarsafninu þar sem þeir virðast
lifa góðu lífi.
Um urrarann segir á þessa leið í
bók Gunnars Jónssonar, Íslenskir
fiskar.
Urrarinn verður um 60 sentí-
metra langur. Hann er með vel
brynvarinn haus, bolur er stuttur,
stirtlan lengri og all sterkleg.
Heimkynni urrara eru Miðjarð-
arhaf, Svartahaf, NA-Atlantshaf,
frá Marokkó og Madeira, norður
um Biskajaflóa og við Bretlands-
eyjar, í Norðursjó, Skagerak og
Kattegat, við Noreg, Færeyjar og
Ísland. Hér við land hefur urrari
fundizt allt frá SA-miðum (Hval-
baksgrunn) meðfram suðurströnd-
inni vestur og norður fyrir Snæ-
fellsnes og inn í Breiðafjörð (við
Flatey). Einna mest virðist vera um
hann á Mýragrunni.
Urrarinn heldur sig að mestu við
botninn og getur hann staulast um
á eyruggunum. Hann étur einkum
alls konar krabbadýr, eins og rækju
og humar. Nytsemi er lítil, því frek-
ar lítill matur er á beinunum.
Staulast um á eyruggunum
Morgunblaðið/Alfons
Þorskeldið á Grundarfirði gengur vel,
nýtt skipulag Brims kynnt, mikil um-
svif við höfnina og síldin verðlögð
Landiðogmiðin
Sérblað um sjávarútveg
úrverinu
AKUREYRI er stærsta útgerðarhöfn landsins en þangað hefur verið út-
hlutað rúmum 42 þúsund þorskígildistonnum á næsta fiskveiðiári eða
11,2% heildarkvótans. Á yfirstandandi fiskveiðiári voru um 12% heild-
arkvótans vistuð á Akureyri.
Vestmannaeyjar eru næst stærsti útgerðarstaður landsins en þar er vist-
aður 35.662 þorskígildistonna kvóti næsta fiskveiðiárs eða 9,5% heild-
arkvótans. Það er svipuð hlutdeild og á yfirstandandi fiskveiðiári. Skip með
heimahöfn í Grindavík hafa yfir að ráða 32.576 tonna kvóta á næsta fisk-
veiðiári sem eru 8,7% heildarinnar. Á fiskveiðiárinu sem nú er senn liðið
voru um 8,3% heildarkvótans í Grindavík. Þá verður 32.491 tonni úthlutað á
skip með heimahöfn í Reykjavík en það eru 8,7% heildarinnar. Reykjavík
var næst stærsti útgerðarstaður landsins á yfirstandandi fiskveiðiári með
um 9,5% heildarkvótans.
Aðrir útgerðarstaðir eru með
nokkru minni kvóta. Á Akranes hef-
ur verið úthlutað 17.280 tonnum eða
4,6% kvótans, til Hornafjarðar
15.250 tonnum eða 4,1%, til Þorláks-
hafnar 12.309 tonnum og til Ólafs-
fjarðar 11.367 tonnum eða 3%.
Mestur kvóti á Akureyri
GUJA EA, 2,3 tonna trilla úr
Grímsey, fær úthlutað langflestum
sóknardögum í sóknardagakerfi
krókabáta á næsta fiskveiðiári sem
hefst á næsta fiskveiðiári.
Sóknardagar báta í sóknardaga-
kerfi eru 19 á næsta fiskveiðiári og
fækkar um tvo frá fiskveiðiárinu sem
lýkur 31. ágúst nk. Þar sem heimilt
er að flytja sóknardaga varanlega og
innan árs milli báta fá sumir bátar
úthlutað fleiri eða færri en 19 sókn-
ardögum á næsta fiskveiðiári. Þann-
ig hafa 12 bátar yfir fleiri 19 sókn-
ardögum yfir að ráða á næsta
fiskveiðiári. Guja EA, 2,35 tonna
trilla úr Grímsey, er með flesta sókn-
ardagana eða 57 daga. Guja EA var
með 26 sóknardaga á yfirstandandi
fiskveiðiári og hefur ekki nýtt þá alla
nú þegar fjórir dagar eru eftir af
fiskveiðiárinu. Afli Guju EA á fisk-
veiðiárinu er um 73 tonn.
Alls hafa fjórir bátar yfir 30 sókn-
ardögum eða fleiri að ráða á næsta
fiskveiðiári og vekur athygli að þeir
eru allir úr Grímsey.
Henning Jóhannesson, útgerðar-
maður í Grímsey, gerir út Guju EA.
Hann segist hafa keypt sóknardaga
á bátinn til að bregðast við skerð-
ingum á dögum. Henning gerir út
fleiri sóknardagabáta og gerir ráð
fyrir að eitthvað af dögunum sem nú
eru vistaðir á Guju EA verði fært á
aðra báta. „Dagabátarnir hafa haldið
uppi atvinnu hér í eynni yfir sum-
artímann. Fækkun á sóknardögum
kemur því illa við marga og því hefur
það skipt miklu máli fyrir okkar að
eiga þess kost að kaupa til okkar
fleiri daga. Síðastliðið sumar hefur
verið eitt það erfiðasta hér í Grímsey
í mörg ár. Vorið var ógæftasamt og
aflabrögð verið dræm á færin. Það
virðist minna af fiski á grunnslóð og
því lengra að sækja en við höfum átt
að venjast.“
Langt fram úr viðmiðunarafla
Ekkert þak er á afla sóknardagabáta
á fiskveiðiári og fjölgar dögunum eða
fækkar eftir heildarafla allra daga-
báta á hverju ári. Afli þeirra hefur
farið verulega fram úr þeim viðmið-
unarafla sem þeim hefur verið út-
hlutað undanfarin fiskveiðiár og dög-
um því fækkað til samræmis við það.
Dögunum getur þó aldrei fækkað
meira en 25% á milli fiskveiðiára.
Þannig voru sóknardagarnir 23 á
fiskveiðiárinu 2001/2002. Þá var út-
hlutaður viðmiðunarafli dagabát-
anna rúm 1.900 tonn en heildar-
þorskafli þeirra varð hinsvegar 9.687
tonn. Dögunum fækkaði því um tvo
milli fiskveiðiáranna, voru 21 á fisk-
veiðiárinu sem nú er að ljúka og þá
var viðmiðunarafli þeirra um 1.800
tonn. Þorskafli dagabáta var þegar
orðinn um 8.000 tonn þann 1. ágúst
sl. og því ljóst að dögunum myndi
fækka á næsta fiskveiðiári.
Með 57 sóknardaga
! "#
!
$%
&'(
) !*
+
$#
, -(
+ .(
/ 010&2
3 &(
0 556
7
*88%982
Spjaldadælur
Einfaldar, tvöfaldar, þrefaldar
Stærðir: 6 - 227 cm3/sn.
T6 240 bar, T7 300 bar
Spilverk ehf.
Skemmuvegi 8, 200 Kópavogi,
sími. 544 5600, fax. 544 5301
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2003 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ B
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
S É R B L A Ð U M V I Ð S K I P T I , E F N A H A G S M Á L O G A T V I N N U L Í F Á S A M T S J Á V A R Ú T V E G S B L A Ð I
Tryggingafélög hagnast
Samanlagður hagnaður eykst verulega milli ára 6
Tveggja ára vinna
Íslandsbanki sér um millilagslántöku 7
SĹLATURHÚSIN TÝNA TÖLUNNI
LANDSBANKI Íslands er orð-
inn stærsti hluthafinn í Fjárfesting-
arfélaginu Straumi eftir að bankinn
keypti hlut félaga tengdum Jóni
Helga Guðmundssyni, forstjóra
BYKO, Straumborg og Norvik,
Eyris fjárfestingarfélags sem er að
mestu í eigu Þórðar Magnússonar,
og Kaupthing Bank í Lúxemborg.
Alls keypti Landsbankinn 19,39%
hlut í Straumi af þessum fjórum fé-
lögum. Á sama tíma var tilkynnt til
Kauphallar Íslands að Landsbank-
inn hefði selt Samson Global Hold-
ings Limited, en eigendur þess eru
félög í eigu Björgólfs Guðmunds-
sonar, Björgólfs Thor Björgólfsson-
ar og Magnúsar Þorsteinssonar,
14,02% af heildarhlufé Straums.
Eftir þessi viðskipti á Lands-
bankinn 19,8% hlut í Fjárfesting-
arfélaginu Straumi en Samson
14,02%.
Samanlagt eiga þessi tvö félög
33,82% hlut í Straumi, samkvæmt
tilkynningu til Kauphallar Íslands.
Samson kaupir hlutinn í Straumi
af Landsbankanum á genginu 3,9
og er því kaupverðið tæpir 2,3 millj-
arðar króna. Landsbankinn kaupir
hlutinn af félögunum fjórum á sama
gengi og er kaupverðið því rúmir
3,1 milljarður króna. Annars vegar
er greitt með peningum tæplega 1,5
milljarðar króna og hinsvegar með
nýju hlutafé í Landsbankanum að
nafnverði tæplega 345 milljónir
króna miðað við gengið 4,80. Útgef-
ið hlutafé í Landsbankanum verður
tæpir 7,2 milljarðar króna og nem-
ur aukningin 4,69% af útgefnu
hlutafé. Við það lækkar eignarhlut-
ur Samson eignarhaldsfélags í
Landsbankanum úr 45,8% í 43,65%.
Fátt annað hægt en að selja
Á þriðjudag var tilkynnt til Kaup-
hallar Íslands að Norvik, Eyrir,
Kaupthing Bank Lúxemborg og Ís-
landsbanki hefðu selt Straumi
hlutabréf sín í Framtaki fjárfesting-
arbanka, alls 34,72% hlut á genginu
1,9. Kaupverðið var tæpar 1.676
milljónir króna. 70,94% af kaup-
verðinu var greitt með bréfum í
Fjárfestingarfélaginu Straumi á
genginu 3,3, en þau bréf fyrir utan
hlut Íslandsbanka voru síðan seld
til Landsbankans á genginu 3,9 í
gær. Afgangurinn var greiddur með
reiðufé.
18. júní sl. keypti Straumur
57,1% hlut í Framtaki fjárfesting-
arbanka en þann sama dag keyptu
Norvik og Eyrir tæplega 30% hlut í
Framtaki í gegnum Kaupþing Bún-
aðarbanka. Straumur gerði í kjöl-
farið yfirtökutilboð til annarra hlut-
hafa í Framtaki á genginu 1,9,
tilboði sem Norvik, Eyrir, Íslands-
banki og Kaupthing Bank í Lúx-
emborg tóku á þriðjudag. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
var fátt annað í stöðunni fyrir Jón
Helga Guðmundsson og Þórð
Magnússon en að selja Straumi
bréfin í Framtaki þar sem fyrirhug-
uð yfirtaka þeirra á félaginu hafði
mistekist í júní sl. þegar Straumur
keypti meirihlutann í Framtaki.
Með kaupunum á Framtaki þurfti
að gefa út nýja hluti í Straumi þar
sem greiðsla fyrir bréfin fór að-
allega fram með útgáfu nýs hluta-
fjár. Var það aukið á þriðjudag um
rúmar 592 milljónir að nafnverði í
samræmi við niðurstöðu stjórnar-
fundar félagsins 22. ágúst sl. Skráð
hlutafé félagsins á Aðallista Kaup-
hallar Íslands eftir hækkunina er
3.789.196.163 krónur.
Eftir kaupin á Framtaki og kaup-
in á Íslenska hugbúnaðarsjóðnum,
nú Brú, fyrr á árinu hefur eigið fé
Straums aukist verulega og er um
14,5 milljarðar króna.
Meðal helstu eigna Fjárfesting-
arfélagsins Straums er 15,08% hlut-
ur í Eimskipafélaginu, 10,31% hlut-
ur í SH og 5,5% hlutur í
Íslandsbanka. Landsbankinn á
6,29% hlut í Eimskipafélaginu og
25,93% hlut í SH.
Yfirtökuskylda myndast í skráð-
um hlutafélögum í Kauphöll Íslands
þegar einn aðili eða tengdir aðilar
eignast 40% og eru Landsbankinn
og Samson komnir nálægt því
marki.
Yrði annar stærsti bankinn
Í hálf fimm fréttum Kaupþings
Búnaðarbanka í gær er leitt að því
líkum að Landsbankamönnum þyki
sameining við Straum fýsilegur
kostur þar sem eigið fé Straums er
um 14,5 milljarðar króna. Saman-
lagt eigið fé Landsbanka og
Straums myndi nema um 32 millj-
örðum króna og yrði bankinn því
annar stærsti banki landsins á eftir
Kaupþingi Búnaðarbanka á mæli-
kvarða eigin fjár og staða hans
óneitanlega sterkari en nú er.
„Enda lýstu nýir eigendur Lands-
bankans því yfir við kaupin á
Landsbankanum að þeir ætluðu
bankanum ekki lengi þá stöðu að
vera þriðji stærsti banki landsins.
Það lítur því út fyrir að sá mögu-
leiki sé kominn upp að bankinn geti
skotist upp í annað sætið innan tíð-
ar,“ að því er segir í hálf fimm
fréttum.
Björgólfur Guðmundsson, stjórn-
arformaður Landsbanka Íslands og
einn eigenda Samson, segir að þeir
hafi séð ákveðin fjárfestingartæki-
færi í Straumi og fengið tilboð sem
þeir hefðu ekki getað hafnað.
„Enda komi tækifæri sem þetta
ekki oft. Straumur er öflugt fjár-
festingarfélag og fjölmörg
skemmtileg tækifæri sem hann er
með og er að skoða. Við teljum að
félagið geti bæði vaxið hér heima
og erlendis.“
Þegar Björgólfur er spurður að
því hvort stefnt sé að yfirtöku á
Straumi þá segir hann að þeir telji
að fjárfestingin í Straumi verði
mjög arðsöm. „Það er okkar sýn á
þetta. Annað er ekki í myndinni hjá
okkur í dag. Þetta er arðsöm fjár-
festing, við erum í viðskiptum og
okkar markmið er að ávaxta okkar
fé. Þetta er ein leið til þess og mjög
góð leið að okkar mati,“ segir
Björgólfur.
Þegar Björgólfur er spurður að
því hvort þeir hafi haft samráð við
Íslandsbanka áður en þeir keyptu
þennan hlut í Straumi sagði hann
að allt samráð banka væri bannað.
Landsbankinn og Samson
með 33,82% hlut í Straumi
Meðal helstu eigna Straums er 15,08% eign í
Eimskip, 10,31% í SH og 5,5% í Íslandsbanka
!
! "#
$
! !
%!&'
(
)#*&! ! !
! ) !
! +
+ !
, - !
./(01
. (20
.3(14
3(03
2( 3
2(5
2(6/
2(3/
2(22
4(5
.(64
.(34
.(./
.(12
1(0/
! " #
$ % &
'
(
$
( ) "! **
+ %! ,
--% . /
01.23
02.41
/.54
1.1/
6.5&
6.2&
5.76
5.0/
5.07
5.25
0.&7
0.76
0.57
0.2&
2.45
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 26
Erlent 14/15 Viðhorf 30
Höfuðborgin 16 Minningar 31/33
Akureyri 17 Bréf 36
Suðurnes 18 Dagbók 38/39
Landið 20 Sport 40/43
Austurland 20 Fólk 44/49
Neytendur 21 Bíó 46/49
Listir 22/24 Ljósvakamiðlar 50
Umræðan 25 Veður 51
* * *
PANTHEON,
sem er dóttur-
forlag Random
House í Banda-
ríkjunum, hefur
keypt útgáfurétt-
inn á Höll minn-
inganna eftir
Ólaf Jóhann
Ólafsson. Bókin
kemur út í inn-
bundnu formi í
lok október
vestra. Útgáfan hefur látið prenta
3.000 kynningareintök af sögunni til
að senda bóksölum, fjölmiðlum og
áhrifamönnum í bandarískum bók-
menntaheimi. Ólafur Jóhann mun
fara í tveggja vikna kynningarferð
um Bandaríkin nú í nóvember þar
sem hann fer í viðtöl við fjölmiðla,
les úr bókinni og spjallar við les-
endur. Þá sendi Pantheon blaða-
menn hingað til lands fyrr í sumar
til að hitta Ólaf Jóhann á heima-
slóðum og kynna sér sögusvið bók-
arinnar.
Höll minninganna fjallar um Ís-
lending sem hvarf að heiman um
dimma nótt frá fjölskyldu sinni og
vinum og endaði sem einkaþjónn
hjá bandaríska auðkýfingnum Willi-
am Randolph Hearst eftir fyrri
heimsstyrjöld.
Bókin kom út hjá Vöku-Helgafelli
fyrir jólin 2001.
Höll minninganna
seld til Bandaríkjanna
Ólafur Jóhann
Ólafsson
Höfundurinn fer í tveggja vikna
kynningarferð í nóvember
ÍSLENSKUM nemendum vegnar betur í
smærri bekkjum enda er meðalstærð bekkja í
íslenska skólakerfinu minni en annarra þjóða.
Ástæða þess er léleg menntun íslenskra kenn-
ara, þeir ráða ekki við stóra bekki. Eru þessar
niðurstöður nokkuð á skjön við það sem gerist í
öðrum löndum. Þetta kemur fram í grein í
bandaríska tímaritinu Education Next, sem ber
yfirskriftina „Hópstjórnun“.
Í greininni er sagt frá rannsókn á sambandi
fjölda nemenda í bekkjum og árangurs. Þar er
Ísland tekið sérstaklega fyrir, ásamt Grikklandi,
vegna þess hversu ólíkar niðurstöður fengust
frá Íslandi og öðrum löndum. Notuð voru gögn
úr þriðju alþjóðlegu stærðfræði- og vís-
indakönnuninni (TIMISS) til að bera saman
áhrif bekkjastærða á námsárangur víða um
heim. Höfundar greinarinnar eru Martin R.
West og Ludger Woessmann, sem stunda bæði
kennslu og rannsóknir í Harvard og München. Í
rannsókninni voru gögn frá átján löndum skoð-
uð og í ljós kom að ekki var unnt að greina töl-
fræðilega marktæk áhrif bekkjarstærðar á
námsárangur í sextán landanna. Hins vegar
skáru Ísland og Grikkland sig úr en þar mátti
greina tölfræðilega marktæka aukningu á náms-
árangri; þ.e. hann batnaði eftir því sem fjöldi í
bekkjardeildum var minni.
Íslenskir kennarar hafa lélegri
laun og eru verr menntaðir
Í greininni eru færð nokkuð nákvæm töl-
fræðileg rök að því að ein af ástæðum þess
hversu illa Ísland kemur út úr TIMISS sé
hversu illa menntaðir og lélegir íslenskir kenn-
arar eru; þeir geti ekki ráðið við stóra bekki.
Þessar ástæður eru síðan tengdar launum kenn-
ara, en á Íslandi eru launin lægri en meðallaun
kennara í hinum löndunum. Þar sem launin eru
almennt lægri veljist ekki jafnhæft fólk í kenn-
arastöður.
Samkvæmt niðurstöðunum er því ekki sam-
band milli magns og gæða. Eftir því sem bekkir
eru smærri eru ráðnir fleiri kennarar á lægri
launum. Í hinum löndunum eru ráðnir færri
kennarar en betur menntaðir. Í greininni kemur
fram að á Íslandi hafi næstum þriðjungur kenn-
ara ekki lokið námi á framhaldsstigi og aðeins
hlotið lágmarkskennaramenntun. Til sam-
anburðar hafi yfir 60% kennara í hinum lönd-
unum lokið háskólagráðu til viðbótar við kenn-
aramenntun. Þær ályktanir eru því dregnar að
eftir því sem kennararnir séu hæfari því betur
séu þeir undir það búnir að kenna stórum bekkj-
um.
Tímaritið Education Next er gefið út í
Harvard og hefur aðalskrifstofur í Stanford.
Niðurstaða rannsóknar kynnt í bandaríska tímaritinu Education Next
Íslenskir kennarar ráða
ekki við stóra bekki
SIGURÐUR Ólafsson hefur fært
Íþróttasafninu á Akranesi keppn-
istreyju úr fyrsta landsleik Íslands.
Sigurður, sem var leikmaður Vals,
lék í stöðu miðframvarðar í fyrsta
landsleik Íslands, sem fram fór á
Melavellinum í Reykjavík 17. júlí
1946. Leikurinn var gegn Dönum og
lyktaði með 0:3-sigri gestanna. Sig-
urður er nú 86 ára gamall.
Jón Allansson, forstöðumaður
Byggðasafnsins á Görðum, veitti
treyjunni viðtöku. Hann segir að af-
hending treyjunnar sé einstæður
viðburður og er mjög þakklátur fyr-
ir gjöfina. Hann segir treyjuna vera í
mjög góðu ásigkomulagi og mikið
lán sé að hún hafi varðveist í allan
þennan tíma. Ekki er vitað til þess
að fleiri treyjur hafi varðveist úr
þessum merka knattspyrnuleik.
Íþróttasafnið var opnað í maí í
fyrra og hefur á skömmum tíma tek-
ist að safna fjölmörgum sögulegum
gripum úr íþróttasögu Íslands. Með-
al gripa sem safninu hafa áskotnast
er verðlaunapeningur Vilhjálms
Einarssonar frá Ólympíuleikunum í
Melbourne árið 1956. Eins er stöng-
in sem Vala Flosadóttir notaði þegar
hún vann til bronsverðlauna í Sydn-
ey árið 2000 til sýnis á safninu.
Þá hefur safnið til sýningar
keppnistreyjur frá knattspyrnu-
köppunum Alberti Guðmundssyni,
Eiði Smára Guðjohnsen og Arnóri
Guðjohnsen. Jón segir að fjölmargir
mikilvægir gripir úr íþróttasögu Ís-
lands séu til í einkahirslum fólks um
land allt og hann hvetur til þess að
slíkum munum verði fundinn staður
á Íþróttasafninu á Akranesi.
Gaf treyju úr fyrsta knatt-
spyrnulandsleik Íslands
Morgunblaðið/Helgi Daníelsson
FLUGVÉL af gerðinni Boeing 777
frá flugfélaginu United Airlines ósk-
aði eftir að koma inn til lendingar á
Keflavíkurflugvelli vegna gruns um
bilun um klukkan 18.30 í gærkvöldi.
Vélin var á leið frá London til Wash-
ington í Bandaríkjunum með um eitt
hundrað og þrjátíu farþega innan-
borðs. Hún var stödd um sex hundr-
uð mílur suðvestur af landinu þegar
haft var samband við flugstjórn á Ís-
landi og tilkynnt neyðarástand.
Skömmu síðar afturkallaði flug-
stjórinn tilkynningu um neyðar-
ástand en engu að síður kom vélin
inn til lendingar í Keflavík. Var önn-
ur vél send eftir farþegunum og kom
þeim áleiðis til Washington.
Boeing
777 lenti
vegna
bilunar
NJÖRÐUR KO veiddi í gær elleftu
hrefnuna af þeim þrjátíu og átta sem
heimilt er að veiða í vísindaskyni á
þessu ári. Áhöfnin á Nirði KO hefur
veitt þrjár hrefnur það sem af er.
Áhafnir á Halldóri Sigurðssyni ÍS og
Sigurbjörgu BA hafa hvor um sig
veitt fjögur dýr.
Ellefta hrefn-
an veidd
♦ ♦ ♦