Morgunblaðið - 28.08.2003, Síða 52

Morgunblaðið - 28.08.2003, Síða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Sími 588 1200 Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga TILRAUNARÆKTUN á maís á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum hefur farið fram úr björtustu vonum, að sögn Ólafs Eggertssonar bónda. Hann segir að plantan hafi dafnað ótrúlega vel í sumar sem sýni að þessi ræktun sé vel möguleg hér á landi. Sömu sögu segir Gunnar Sigurðsson, bóndi á Stóru-Ökrum í Skagafirði. Þar hefur plantað vaxið upp um 160 sentimetra en hún verður venjulega ekki hærri en 180 sentimetrar þar sem hún er ræktuð sunnar í álfunni. Ólafur sáði í skika á landi sínu 20. apríl sl. og nú nær maísinn hjá honum vel upp að mitti. Gunnar var aðeins seinna á ferðinni og sáði 15. maí. Hann segir akurinn orðinn mjög fallegan og að tilraunin í sumar hafi gefist mjög vel. Notuð var sérstök sáðvél sem flutt var til landsins í vor og með henni komu sérfræðingar til að kenna íslenskum bændum handtökin við sáningu. Jafnóðum var lagt þunnt umhverfis- vænt plast yfir raðirnar og segir Ólafur það hafa haldið góðu hitastigi og raka í jarðveginum, sem tryggði betri aðstæður á viðkvæmu stigi rækt- unarinnar. Plantan stingur sér upp í gegnum plastið sem á að brotna niður á vaxtartíma plönt- unnar. Þetta á að hafa gefist vel á Skotlandi og Írlandi og færist maísræktun sífellt norðar á kaldari svæði. Með þessari aðferð telja bændur að hægt sé að rækta maís hér á landi þótt hita- stig sé helst til lágt en plantan bæti sér það upp með mikilli birtu yfir sumartímann. Að öllu óbreyttu ætti uppskeran að fara fram í október. Til þess þarf hins vegar sérstaka vél sem saxar stilkinn niður og maísinn er síðan lagður í flatt síló úti og votverkaður. Afurðin er kjarnmikið og sætt fóður fyrir skepnur. „Þetta er spennandi efni með öðru fóðri,“ segir Ólafur. Maísræktun hefur gefist vel Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Maísrækt að Stóru-Ökrum 1 í Skagafirði. Vilhjálmur Agnarsson, vinnumaður á bænum, stendur á akrinum sem er í miklum blóma. dagabáta og hyggst færa á þá ein- hverja daga sem nú eru vistaðir á Guju EA. Hann segir fleiri daga- karla í Grímsey hafa brugðið á það ráð að kaupa til sín sóknardaga. „Hér eru margir bátar í sóknar- dagakerfi og þeir halda uppi fisk- vinnslunni yfir sumarmánuðina. Ég þori ekki að hugsa þá hugsun til enda ef þessara báta nyti ekki við. GUJA EA, 2,3 tonna trilla úr Gríms- ey, fær úthlutað 57 sóknardögum á næsta fiskveiðiári sem hefst hinn 1. september nk. Bátum í sóknar- dagakerfi hefur verið úthlutað 19 sóknardögum á næsta fiskveiðiári en heimilt er að framselja daga á milli báta varanlega eða innan fisk- veiðiársins. Henning Jóhannesson, sem gerir út Guju EA, segist hafa keypt fleiri sóknardaga á bát sinn enda fyrir- sjáanlegt að 19 dagar dugi ekki til. Hann gerir reyndar út fleiri sóknar- Hér er ekki að neinu öðru að hverfa og með þessu tekst okkur að halda uppi atvinnu í eynni, sérstaklega fyrir unga fólkið. Það kemur því illa við okkur þegar verið er að fækka dögunum, því á sama tíma hefur dregið úr aflabrögðum,“ segir Henning. Guja í Grímsey með 57 daga Morgunblaðið/Helga Mattína Henning Jóhannesson, útgerðarmaður í Grímsey, við einn af bátum sínum.  Með 57 daga/C1 SLÁTURFÉLAG Austurlands mun innan skamms bjóða upp á nýjung í sölu og markaðssetningu á lamba- kjöti beint til neytandans. Sigurjón Bjarnason, fram- kvæmdastjóri félagsins, átti hug- myndina, en um er að ræða til- raunaverkefni þar sem bændur selja sjálfir kjöt sitt beint til neyt- enda með aðstoð Netsins og milli- göngu Sláturfélagsins. Sigurjón sagði í samtali við Morg- unblaðið að Sláturfélagið myndi sjá um alla verkun kjötsins, pökkun og dreifingu og sjá um innheimtu og greiðslur til bænda, en Norðlenska um slátrunina. Hann segir að þegar verkefnið verður komið í gagnið muni neytendur geta farið á Netið og kynnt sér kjöt frá tuttugu mis- munandi bændum og valið sér kjöt frá þeim bónda sem þeim líst best á. Verkefnið verður kynnt formlega í næstu viku, að sögn Sigurjóns. Sláturfélag Suðurlands ætlar einnig að hefja tangarsókn í sölu á lambakjöti, en á döfinni er verkefni með Áformi, sem er samstarfsverk- efni um markaðssetningu á lamba- kjöti erlendis. „Ég bind miklar vonir við að markaðsátakið með Áformi muni auka söluna hjá okkur,“ sagði Stein- þór Skúlason, forstjóri Slátur- félagsins, í samtali við Morgun- blaðið. Lambakjöt boðið til sölu á Netinu  Sláturhúsin/B4–5 SAMANLAGÐUR hagnaður stóru tryggingafélaganna þriggja, Sjóvár-Almennra, Trygginga- miðstöðvarinnar og Vátrygginga- félagsins, af ökutækjatryggingum nam 1.072 milljónum króna á fyrri hluta ársins og jókst um rúmlega 20% frá sama tímabili í fyrra. Hagnaður af rekstri félaganna þriggja í heild jókst um 150% á milli ára og nam á fyrri hluta þessa árs 1.877 milljónum króna. Samanlögð bókfærð iðgjöld námu 15½ milljarði króna og hækkuðu um rúmlega 3% milli ára. Aukinn hagn- aður af bíla- tryggingum  Hagnaður/B6 MANNANAFNANEFND tekur afstöðu til nokkurra tuga manna- nafna á hverju ári og á meðal nafna sem nefndin hefur samþykkt nýlega eru til dæmis Engilbjört, Marela, Dara, Alva, Silvana, Manúel, Brit, Emelína, Dísella, Tea og Ástvar. Aftur á móti hafn- aði nefndin nokkrum nöfnum eins og til að mynda Þórunnbjörg, Arianna og Elíza. Að sögn Andra Árnasonar, for- manns nefndarinnar, fundar hún mánaðarlega eða því sem næst og afgreiðir mál. „Það er reglulega haft samband við okkur og óskað eftir að við tökum afstöðu til nafna sem á að fara að gefa og ekki eru á skránni. Við vinnum eftir manna- nafnalögum og höfum í tengslum við það ákveðnar starfsreglur sem eru innan ramma laganna. Þetta eru tugir nafna sem bætast í skrána á hverju ári samkvæmt beiðnum frá fólki sem er að fara að skíra eða vill gera breytingar á nöfnum.“ Mannanafnanefnd hefur samþykkt nokkur ný nöfn 18 ÁRA íslensk stúlka hrapaði til bana á sumardvalarstaðnum Torremolinos á Spáni í fyrrinótt. Atvikið átti sér stað í klettum nærri útsýnispalli við ströndina og mun hin látna hafa hrapað niður 20 metra háa kletta. Til- drög slyssins liggja ekki endanlega fyrir, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Heimsferðum, en stúlkan var farþegi ferðaskrifstofunnar. Lögregla í Torremolinos fer með rannsókn málsins. Stúlkan var á ferðalagi ásamt vinkonum sínum og hafði ráðgert að halda til Íslands í gær. Ekki er unnt að birta nafn hinnar látnu að svo stöddu. Lést af slysförum á Spáni ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.