Morgunblaðið - 28.08.2003, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 28.08.2003, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ           !             !!" #   $    %! &' ( BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. FYRIR stuttu skrifaði kona í Vel- vakanda og sagðist ekki skilja hvað fólk hefði á móti Dalsmynni. Nefndi hún það einnig að þetta stafaði af öfund fólks í garð Ástu Sigurðar- dóttur. Ég get ekki sagt að ég öfundi hana enda hef ég reynslu af því að starfa á hundahóteli og veit hvað í því felst að hugsa um stóran hundahóp, þótt þar hafi hann ekki einu sinni verið einn sjötti af þeim hundum sem búa á Dalsmynni. Alla daga voru öll búrin þrifin og þau skúruð. Jafnframt þurfti að þrífa útigerðin sem hundarnir voru í yfir daginn. Daglega þurfti ég að fara í um 15 göngutúra með hótelgestina og var dauðuppgefin eftir daginn. Ekki get ég ímyndað mér hvernig Ásta fer að því að annast þá 194 hunda sem hún hefur á sinni könnu ásamt þessum þremur öðrum starfsmönnum bús- ins. Nýlega fór ég til Dalsmynnis en ekki frekar en í fyrri heimsókn minni þangað fékk ég að skoða nokkurn skapaðan hlut að vild. Ef hlutirnir eru í lagi í Dalsmynni, hvers vegna má ekki skoða þá? Ég hef séð á myndum þaðan að mörgum hundum er troðið saman í of þröng búr. Einnig eru lítil útigerði þar sem hundarnir fá sína „hreyfingu“. Það sér það hver maður að svona lítil úti- gerði nægja ekki hundi fyrir sína daglegu hreyfiþörf. Hundurinn hef- ur fylgt manninum í yfir 1000 ár, svo það er eðli þeirra að þarfnast snert- ingar við manninn. Það er einnig nauðsynlegt fyrir hvolpana til að geta aðlagast fljótt vistarverum manna, en á búinu fá þeir ekki að kynnast öðru en að lifa í búri alla sína sorgarævi. Þegar reka átti Ástu úr HRFÍ á sínum tíma voru tekin DNA-sýni úr nokkrum hvolpum og kom í ljós að þeir sem voru skráðir sem systkini í ættbókum Ástu voru ekki systkini. Svo fáránlega sem það hljómar, var ekki einu sinni rétt mamma skráð! Hvernig í ósköpunum er hægt að gera slík mistök að vita ekki hver mamma hvolpanna er? Enda hafa margir hundar þaðan ekki staðist ræktunarmarkmið, og einnig hafa komið upp fjöldamargir gallar. Ásta segist gefa afslátt af gölluðum hvolp- um, en ég þekki flólk sem hefur fengið gallaða hunda og þegar það kom í ljós þverneitaði Ásta að gefa nokkurn afslátt. Einnig hafa fjölda- margir ekki fengið ættbækur með hundunum sínum, þrátt fyrir að þeir hafi borgað himinhátt verð fyrir ætt- bókarfærða hvolpa. Athugavert þyk- ir mér að sumir af hennar hundum eru ekki ættbókarfærðir en þrátt fyrir það selur hún hvolpa undan þeim sem ættbókarfærða! Nú hafa loksins nýjar reglur verið settar varðandi hundabú. Þar segir til um að það þurfi einn starfsmann á hverja 8 hunda. Það er því nokkuð ljóst að Ásta þarf verulega að auka starfsmenn sína eða þá að fækka hundum sínum svo um munar. Mig langar að vita nákvæmlega hvenær hún þarf að fara eftir þessum reglum, því það lítur ekki út fyrir að hún hafi gífurlegar áhyggjur af þeim. Eða fær hún virkilega að kom- ast upp með það að hunsa settar reglur í landinu? Hvernig stendur á því að það er ekki löngu búið að taka í taumana og stöðva þessa misnotk- un á dýrum og loka þessari hvolpa- framleiðslu? Fyrir áhugasama vil ég benda á heimasíðuna http:// www.simnet.is/jv1 Þar er hægt að sjá myndir af þessum hryllingi sem á sér stað í búinu. BERGÞÓRA BACHMANN, Brekkukoti, Bessastaðahreppi. Um Dalsmynni Frá Bergþóru Bachmann: ÉG hef fylgst með máli Árna John- sen í fjölmiðlum og hef fundið til með skipbroti hans. Ég fór fyrst að fylgj- ast með honum þegar hann fór að spila á gítarinn sinn á samkomum og dóttir mín bað um leyfi til að fara á þessar skemmtanir. Var það auðsótt, vegna þess að ég hafði frétt að Árni væri bindindismaður og þar af leið- andi góð fyrirmynd fyrir börnin mín. Að sjálfsögðu fylgdist ég með hon- um eins og öðrum sem hafa verið að klífa metorðastigann í okkar litla samfélagi. Einnig fylgdist ég með máli hans í fjölmiðlum allt til þess að hann var dæmdur í fangelsi af Hæstarétti Íslands. Ég hef oft spurt sjálfan mig hvernig fer fyrir mönn- um sem lenda í skipbroti eins og Árni, það þarf sterk bein til að kom- ast frá svona málum. Þess vegna hefur það glatt mig að Árni hefur ákveðið að leggja ekki ár- ar í bát og hef ég haft gaman að fylgjast með greinaskrifum hans síð- ustu mánuði enda er hann frábær penni. Að sjálfsögðu var ekki hægt að veita honum helgarleyfi til að taka þátt í Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum vegna þess fordæmis sem það hefði skapað gagnvart öðrum föngum. En Árni er góð fyrirmynd fyrir aðra fanga að því leyti að hann hefur ákveðið að gefast ekki upp og er þeg- ar í fangelsinu farinn að skrifa og starfa og búa sig undir lífið á ný, ætl- ar ekki að láta deigan síga og takast á við lífið aftur reynslunni ríkari. Verður gaman að fylgjast með hon- um þegar þar að kemur. Þetta er al- veg eftir mínu höfði, að halda áfram að róa, það er eina leiðin. RÚNAR GUÐBJARTSSON, Selvogsgrunni 7, 104 Reykjavík. Um fordæmi og fyrirmynd Frá Rúnari Guðbjartssyni:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.