Morgunblaðið - 28.08.2003, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 28.08.2003, Blaðsíða 23
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2003 23 www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár Með kveðju. Hákon, sími 898 9396. KÓPAVOGUR - GARÐABÆR Mér hefur verið falið að leita að 200-250 fm sérbýli. Æskilegt að eignin sé með fjórum eða fleiri svefnherbergjum, auk bílskúrs. Verðhugmynd 23-30 millj. Áhugasamir vinsamlega hafið samband og ég mun fúslega veita nánari upplýsingar. Hafðu samband - það kostar ekkert! ÆVISAGA Vilhjálms Stefánssonar landkönnuðar eftir Gísla Pálsson mannfræðing kemur út hjá Máli og menningu í haust en hún er að nokkru byggð á áður ókönnuðum heimildum. Einnig kemur út seinna bindi ævisögu Jóns Sigurðssonar eftir Guðjón Frið- riksson. Hjá forlaginu koma enn frem- ur út nýjar skáldsögur eftir Hallgrím Helgason, Einar Kárason, Guðmund Andra Thorsson, Gerði Kristnýju og Gyrði Elíasson. Meðal helstu þýðinga sem koma út á næstunni hjá Máli og menningu eru Miðnæturbörn eftir Salman Rushdie, sem var valin besta Booker-verðlaunabók allra tíma, og Hálfbróðirinn eftir Lars Saabye Christiansen sem hlaut bókmennta- verðlaun Norðurlandaráðs í fyrra. Vísinda- og samtímasögur Páll Valsson, útgáfustjóri Máls og menningar, segir að útgáfa forlagsins í haust muni einkennast af sterkum skáldsögum. „Og í þeim öllum er tekist á við okk- ar samtíma. Einar Kárason kemur með mikla skáldsögu, Storm, sem dregur nafn sitt af aðalsöguhetjunni, Eyvindi Jónssyni Stormi. Guðmundur Andri Thorsson gefur út fyrstu skáld- sögu sína frá því að Íslandsförin kom út árið 1996. Bók hans nefnist Náð- arkraftur og fjallar um glímu „síðustu sósíalistanna“ við breytta heimsmynd. Skáldsaga Gyrðis Elíassonar nefnist Hótelsumar og fjallar um mann sem dvelur sumarlangt í þorpi bernsku sinnar eftir erfiðan skilnað. Gerður Kristný nefnir sögu sína Heima hjá Guði en hún fjallar um unga blaða- konu í Reykjavík samtímans. Hall- grímur Helgason sendir frá sér fjör- uga vísindaskáldsögu sem heitir Herra Alheimur og fjallar um Guð.“ Þýðingar, ævisögur, fræðirit Mál og menning gefur einnig út í kilju þýðingu Tómasar R. Einarsson- ar á skáldsögunni Dansarinn á efri hæðinni eftir enska rithöfundinn og blaðamanninn Nicholas Shakespeare. Einnig kemur út Dýrðlegt fjölda- sjálfsmorð eftir finnska rithöfundinn Arto Paasilinna. Fyrr á árinu kom líka í kilju Krýningarhátíðin eftir Boris Akunin en allir koma þessir höfundar á bókmenntahátíð í Reykjavík sem hefst 7. september næstkomandi. Lífssaga Þorgerðar Ingólfsdóttur kemur út hjá Máli og menningu í skráningu Árna Heimis Ingólfssonar en bókin nefnist Þorgerður og kór- arnir. Einnig hefur Sallý Magnusson skráð ævi föður síns Magnúsar Magn- ússonar sjónvarpsmanns og kemur bókin út í haust. Af fræðibókum sem út koma hjá Máli og menningu má nefna Sagnalist eftir Þorleif Hauksson, sem er annað bindi Íslenskrar stílfræði, og Íslam og Vesturlönd eftir Magnús Þorkel Bernharðsson. Þjóðsaga endurvakin Hið gamalgróna forlag Þjóðsaga hefur nú verið endurvakið hjá Eddu og er Páll Valsson útgáfustjóri þess. Þjóðsaga mun gefa út eina bók fyrir jólin, Einræður Steinólfs í Fagradal. Fjölbreytt útgáfa Máls og menningar Ævisaga Vilhjálms Stefánssonar verður meðal haustbóka BERGÞÓR Pálsson barítonsöngv- ari og Lenka Mátéová organisti koma fram á síðustu fimmtudags- tónleikunum í Hallgrímskirkju í sumar. Tónleikarnir hefjast kl. 12 og á þeim bjóða þau Bergþór og Lenka til veislu lofsöngva í kirkj- unni. Tónleikarnir hefjast á þremur Biblíuljóðum eftir Dvorák. Hann skrifaði þau upphaflega fyrir söng- rödd og píanóundirleik en sum þeirra henta jafn vel fyrir undirleik orgels. Þau flytja Drottinn er minn hirðir (23. Ds.), Guð, ég vil syngja þér (144. og 145. Ds.) og Syngið Drottni nýjan söng (98. og 96. Ds.). Þá flytur Lenka orgelverkið Cantabile eftir César Franck en tónleikunum lýkur með fjórum ís- lenskum lofsöngvum. Fyrst syngur Bergþór Festingin víða, hrein og há eftir Atla Heimi Sveinsson við ljóð Jónasar Hallgrímssonar, þá Ó, und- ur lífs eftir Jakob Hallgrímsson við ljóð Þorsteins Valdimarssonar. Þriðji lofsöngurinn er Friðarins Guð eftir Árna Thorsteinsson við ljóð Guðmundar Guðmundssonar og síðast á efnisskránni er Lof- söngur eftir Bjarna Böðvarsson við ljóð Matthíasar Jochumssonar. Morgunblaðið/Sverrir Lofsöngvar í hádeginu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.