Morgunblaðið - 28.08.2003, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 28.08.2003, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2003 49 JULIANNE Moore giftist unnusta sínum Bart Freundlich við leyni- lega athöfn í New York á laug- ardaginn var … Lee Ryan í Blue hefur verið sviptur ökuréttindum í 18 mánuði eftir að hafa verið grip- inn ölvaður undir stýri af lögreglunni. Auk ökuleyf- issviptingar þarf hjarta- knúsarinn „óheppni“ að punga út 300 þúsund krón- um í sekt …Russell Crowe á von á barni. Leikarinn tilkynnti þetta þar sem hann lék á tónleikum með hljómsveit sinni 30 Odd Foot Of Grunts …Sharon Stone og Halle Berry slást eins og kettir í vænt- anlegri kvikmynd. Myndin er Cat- woman, þar sem Berry leikur of- urkvendið mikla en Stone illmennið …Kelly Osbourne þurfti að aflýsa nokkrum tónleikum í Bretlandi á dögunum eftir að hafa náð sér í matareitrun. Hefur eitr- unin verið rakin til máltíðar sem hún snæddi í matarboði hjá Sir El- ton John á heimili hans í Suður- Frakklandi. „Ég mun aldrei borða bita af fjandans fiski framar!“ sagði þessi „dannaða“ stúlka foxill. Feðginin Ozzy og hún tóku nýlega upp nýja útgáfu af gamla Black Sabbath-laginu „Changes“, sem verður á væntanlegri plötu Ozzy …Rappstjarnan Nelly hefur sett á markað nýjan orkudrykk. Pimp Juice heitir drykkur Nellys, og er blanda af eplasafa, vítamínum og öðrum orku- drykkjaefnum. Dósirnar eru gylltar og silfraðar og er drykkurinn hágrænn á lit. Hluti ágóðans af sölu drykkjarins fer til góðgerð- arstofnunar Nellys 4Sho4Kids, sem miðar að því að veita börnum skólastyrki. Nelly á fyrir fatalín- unarnar Vokal og Apple Bottoms og rekur Derrty Entertainment út- gáfuna. Hann er samt ekki fyrsti rapparinn til að setja orkudrykk á markað því Ice-T gerði það fyrr í mánuðinum með Liquid Ice- drykkinn og stjóri Def Jam úgáf- unnar Russell Simmons kynnti til sögunar sinn orkudrykk fyrr í sumar sem heitir Def Com 3 …Bruce Willis hefur leikið sama leik og fyrrverandi eiginkona hans Demi Moore með því að ná sér í vinkonu sem er 25 árum yngri en hann. Þessi 48 ára gamla kvik- myndastjarna á nefnilega í ást- arsambandi við hina 23 ára gömlu Brooke Burns sem leikur í Bay- watch Hawaii- þáttunum. Á meðan er sam- band Moore við leikarann og sjónvarps- stjörnuna Ashton Kutcher orðið enn alvarlegra eftir að hún flutti heim til hans …Jim Carrey er kominn með nýja kærustu. Hún er 23 ára gömul dönsk fyrirsæta, Bet- ina Holte að nafni …Söngvarinn sjóðheiti Enrique Inglesias hefur borið til baka allar sögusagnir um að hann og rússneska tenn- isbomban Anna Kournikova séu par. Þvert á móti segist hinn 28 ára söngvari ekki hafa átti í alvar- legu ástarsambandi í heil 5 ár. Hann segist heldur ekki hafa neina trú á hjónabandi og gerir ráð fyrir að taka söngframann framyfir fjöl- skyldulífið rétt eins og faðir hans Julio gerði á sínum tíma …Pink afþakkaði boð um að koma fram í 21 árs afmæli Vilhjálms Breta- prins. Prinsinn er mikill aðdáandi söngkonunnar djörfu og vildi ólm- ur fá hana í afmælið, bauð henni meira að segja sjálfur. En sú bleika hafnaði boðinu pent eftir að henni var tjáð að prinsinn færi reglulega á dýraveiðar. Pink er ötull talsmaður dýravernd- unarsamtak- anna PETA og sendi prins- inum harðort bréf þar sem segir: „Það gladdi mig að heyra ég væri efst á óska- lista þínum yfir þá sem þú vildir fá til að leika í 21 árs afmæli þínum. En mér bauð við að heyra að þú veiðir og drepur dýr þér til ánægju og að þú hafir viljandi rek- ið spjót í gegnum örsmátt dádýr í Afríku. Hversvegna? Varstu að reyna að sanna fyrir einhverjum hversu mikið karlmenni þú ert orð- inn?“ Svo heldur Pink áfram: „En hei – við gerum öll mistök á lífs- leiðinni og getum öll breyst til hins betra. Vonandi sérðu að þér og finnur eitthvað betra að gera við frítíma þinn en að drepa dýr.“ …Stones-afkvæmin James Jagger og Alexandra Richards, börn Micks og Keiths, eru hætt saman. Hann er 17 ára og hún 16 og vinur þeirra hefur tjáð fjöl- miðlum að þeim hafi einfaldlega fundist þau of ung til að vera í al- varlegu sambandi. FÓLK Ífréttum ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 10 ára. KVIKMYNDIR.IS  KVIKMYNDIR.COM  ÓHT RÁS 2  SG DV  MBL KVIKMYNDIR.IS  KVIKMYNDIR.COM  ÓHT RÁS 2  SG DV  MBL KVIKMYNDIR.IS  KVIKMYNDIR.COM  ÓHT RÁS 2  SG DV  MBL KRINGLAN Sýnd kl. 5.30, 8.15 og 10.10. B.i. 10 ára. KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i.10 AKUREYRI Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 10 ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.50. KRINGLAN Sýnd kl. 5.50 AKUREYRI Sýnd kl. 6. BASIC WRONG TURN ÁSTRÍKUR OG KLEOPATRAWHAT A GIRL WANTS ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16. KRINGLAN Sýnd kl. 8 og 10.10. AKUREYRI Sýnd kl. 8 og 10. KRINGLAN Sýnd kl. 5.50 og 8. Stranglega bönnuð innan 16 ára! YFIR 35.000 GESTIR! YFIR 35.000 GESTIR! YFIR 35.000 GESTIR! 98% aðspurðra í USA sem höfðu séð myndina sögðu “góð” eða“stórkostleg”! 98% aðspurðra í USA sem höfðu séð myndina sögðu “góð” eða“stórkostleg”! 98% aðspurðra í USA sem höfðu séð myndina sögðu “góð” eða“stórkostleg”!  Skonrokk FM 90.9  Skonrokk FM 90.9  Skonrokk FM 90.9 FRÁ FRAM- LEIÐENDUM SHREK ATH! Munið eftir Sinbað litasamkeppninni á ok.is ÁLFABAKKI kl. 3.50 og 6. Ísl tal ÁLFABAKKI kl. 4, 6 og 8. Enskt tal AKUREYRI Sýnd kl. 6. Ísl tal MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI Ofurskutlan Angelina Jolie er mætt aftur öflugri en nokkru sinni fyrr í svakalegustu hasarmynd sumarsins! K R I N G L U N N I 40—70% afsláttur Rýmingarsala Verslunin hættir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.