Morgunblaðið - 28.08.2003, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2003 49
JULIANNE Moore giftist unnusta
sínum Bart Freundlich við leyni-
lega athöfn í New York á laug-
ardaginn var … Lee Ryan í Blue
hefur verið sviptur ökuréttindum í
18 mánuði eftir að hafa verið grip-
inn ölvaður
undir stýri af
lögreglunni.
Auk ökuleyf-
issviptingar
þarf hjarta-
knúsarinn
„óheppni“ að
punga út 300
þúsund krón-
um í
sekt …Russell Crowe á von á
barni. Leikarinn tilkynnti þetta
þar sem hann lék á tónleikum með
hljómsveit sinni 30 Odd Foot Of
Grunts …Sharon Stone og Halle
Berry slást eins og kettir í vænt-
anlegri kvikmynd. Myndin er Cat-
woman, þar sem Berry leikur of-
urkvendið mikla en Stone
illmennið …Kelly Osbourne þurfti
að aflýsa nokkrum tónleikum í
Bretlandi á dögunum eftir að hafa
náð sér í matareitrun. Hefur eitr-
unin verið rakin til máltíðar sem
hún snæddi í matarboði hjá Sir El-
ton John á heimili hans í Suður-
Frakklandi. „Ég mun aldrei borða
bita af fjandans fiski framar!“
sagði þessi „dannaða“ stúlka foxill.
Feðginin Ozzy og hún tóku nýlega
upp nýja útgáfu af gamla Black
Sabbath-laginu „Changes“, sem
verður á væntanlegri plötu
Ozzy …Rappstjarnan Nelly hefur
sett á markað nýjan orkudrykk.
Pimp Juice heitir drykkur Nellys,
og er blanda
af eplasafa,
vítamínum og
öðrum orku-
drykkjaefnum.
Dósirnar eru
gylltar og
silfraðar og er
drykkurinn
hágrænn á lit.
Hluti ágóðans
af sölu drykkjarins fer til góðgerð-
arstofnunar Nellys 4Sho4Kids,
sem miðar að því að veita börnum
skólastyrki. Nelly á fyrir fatalín-
unarnar Vokal og Apple Bottoms
og rekur Derrty Entertainment út-
gáfuna. Hann er samt ekki fyrsti
rapparinn til að setja orkudrykk á
markað því Ice-T gerði það fyrr í
mánuðinum með Liquid Ice-
drykkinn og stjóri Def Jam úgáf-
unnar Russell Simmons kynnti til
sögunar sinn orkudrykk fyrr í
sumar sem heitir Def Com
3 …Bruce Willis hefur leikið sama
leik og fyrrverandi eiginkona hans
Demi Moore með því að ná sér í
vinkonu sem er 25 árum yngri en
hann. Þessi 48 ára gamla kvik-
myndastjarna á nefnilega í ást-
arsambandi við
hina 23 ára
gömlu Brooke
Burns sem
leikur í Bay-
watch Hawaii-
þáttunum. Á
meðan er sam-
band Moore
við leikarann
og sjónvarps-
stjörnuna Ashton Kutcher orðið
enn alvarlegra eftir að hún flutti
heim til hans …Jim Carrey er
kominn með nýja kærustu. Hún er
23 ára gömul dönsk fyrirsæta, Bet-
ina Holte að nafni …Söngvarinn
sjóðheiti Enrique Inglesias hefur
borið til baka allar sögusagnir um
að hann og rússneska tenn-
isbomban Anna Kournikova séu
par. Þvert á móti segist hinn 28
ára söngvari ekki hafa átti í alvar-
legu ástarsambandi í heil 5 ár.
Hann segist heldur ekki hafa neina
trú á hjónabandi og gerir ráð fyrir
að taka söngframann framyfir fjöl-
skyldulífið rétt eins og faðir hans
Julio gerði á sínum tíma …Pink
afþakkaði boð um að koma fram í
21 árs afmæli Vilhjálms Breta-
prins. Prinsinn er mikill aðdáandi
söngkonunnar djörfu og vildi ólm-
ur fá hana í afmælið, bauð henni
meira að segja sjálfur. En sú
bleika hafnaði boðinu pent eftir að
henni var tjáð
að prinsinn
færi reglulega
á dýraveiðar.
Pink er ötull
talsmaður
dýravernd-
unarsamtak-
anna PETA og
sendi prins-
inum harðort
bréf þar sem segir: „Það gladdi
mig að heyra ég væri efst á óska-
lista þínum yfir þá sem þú vildir fá
til að leika í 21 árs afmæli þínum.
En mér bauð við að heyra að þú
veiðir og drepur dýr þér til
ánægju og að þú hafir viljandi rek-
ið spjót í gegnum örsmátt dádýr í
Afríku. Hversvegna? Varstu að
reyna að sanna fyrir einhverjum
hversu mikið karlmenni þú ert orð-
inn?“ Svo heldur Pink áfram: „En
hei – við gerum öll mistök á lífs-
leiðinni og getum öll breyst til hins
betra. Vonandi sérðu að þér og
finnur eitthvað betra að gera við
frítíma þinn en að drepa
dýr.“ …Stones-afkvæmin James
Jagger og Alexandra Richards,
börn Micks og Keiths, eru hætt
saman. Hann er 17 ára og hún 16
og vinur þeirra hefur tjáð fjöl-
miðlum að þeim hafi einfaldlega
fundist þau of ung til að vera í al-
varlegu sambandi.
FÓLK Ífréttum
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 10 ára.
KVIKMYNDIR.IS
KVIKMYNDIR.COM
ÓHT RÁS 2
SG DV
MBL
KVIKMYNDIR.IS
KVIKMYNDIR.COM
ÓHT RÁS 2
SG DV
MBL
KVIKMYNDIR.IS
KVIKMYNDIR.COM
ÓHT RÁS 2
SG DV
MBL
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.30, 8.15 og 10.10. B.i. 10 ára.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i.10
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 10
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.50.
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.50
AKUREYRI
Sýnd kl. 6.
BASIC WRONG TURN ÁSTRÍKUR OG KLEOPATRAWHAT A GIRL WANTS
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16.
KRINGLAN
Sýnd kl. 8 og 10.10.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10.
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.50 og 8.
Stranglega bönnuð
innan 16 ára!
YFIR 35.000 GESTIR! YFIR 35.000 GESTIR! YFIR 35.000 GESTIR!
98% aðspurðra í USA sem höfðu séð myndina
sögðu “góð” eða“stórkostleg”! 98% aðspurðra í USA sem höfðu séð myndina
sögðu “góð” eða“stórkostleg”!
98% aðspurðra í USA sem höfðu séð myndina
sögðu “góð” eða“stórkostleg”!
Skonrokk FM 90.9 Skonrokk FM 90.9
Skonrokk FM 90.9
FRÁ FRAM-
LEIÐENDUM
SHREK
ATH! Munið eftir Sinbað litasamkeppninni
á ok.is
ÁLFABAKKI
kl. 3.50 og 6. Ísl tal
ÁLFABAKKI
kl. 4, 6 og 8. Enskt tal
AKUREYRI
Sýnd kl. 6. Ísl tal
MEÐ
ÍSLENSKU
OG
ENSKU
TALI
Ofurskutlan Angelina Jolie er
mætt aftur öflugri en nokkru
sinni fyrr í svakalegustu
hasarmynd sumarsins!
K R I N G L U N N I
40—70%
afsláttur
Rýmingarsala
Verslunin hættir