Morgunblaðið - 28.08.2003, Blaðsíða 33
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2003 33
Eftir erfið veikindi er tengdamóðir
mín, Ástríður Ólafsdóttir, búin að fá frið.
Ég á eftir að minnast hennar með gleði
og söknuði. Það var alltaf líf og fjör í
kringum tengdamömmu, ófá skiptin sem
hún hefur haldið uppi skemmtilegum
samræðum og sagt skemmtilegar sögur í
fjölskylduboðum. Handavinnukona var
hún mikil, málaði, prjónaði og margt fleira
og sitja mörg málverk hennar á veggjum
okkar hjóna. Alltaf var gangur í prjón-
unum og sat hún oft og prjónaði fyrir
framan sjónvarpið, meðan hún sá uppá-
halds sápurnar sínar. Kæra Dúdú, peys-
urnar þínar og ömmusokkarnir, eins og
strákarnir okkar kalla þá, sem þú hefur
sent okkur til Danmerkur hafa svo oft
hlýjað okkur á köldum vetrarkvöldum og
minnt okkur á þig.
Kæra Ástríður, nú kveð ég þig eins og
þú kvaddir mig ávallt, með þeim hlýju orð-
um: Megi Guð geyma þig.
Láttu nú ljósið þitt
loga við rúmið mitt.
Hafðu þar sess og sæti,
signaði Jesús mæti.
(Höf. ók.)
María Sjöfn.
ÁSTRÍÐUR
ÓLAFS-
DÓTTIR
✝ Ástríður Ólafsdóttir fæddist íReykjavík 30. maí 1926. Hún
lést á krabbameinsdeild Land-
spítalans 13. ágúst síðastliðinn og
var útför hennar gerð frá Frí-
kirkjunni í Reykjavík 22. ágúst.
Elskulegur sonur minn, bróðir, mágur og
frændi,
GUÐLAUGUR SVEINN SIGURÐSSON,
Mánagötu 25,
Reyðarfirði,
verður jarðsunginn frá Búðareyrakirkju laugar-
daginn 30. ágúst kl. 14.
Helga Sveinsdóttir,
Anna Sigurðardóttir,
Hulda Sigurðardóttir, Guðmundur Ágúst Pétursson,
Guttormur Sigurðsson,
Arndís Sigurðardóttir, Vilberg Einarsson
og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÚN ÞORSTEINSDÓTTIR,
Kjartansgötu 8,
sem lést miðvikudaginn 20. ágúst, verður
jarðsungin frá Hallgrímskirkju föstudaginn
29. ágúst kl. 15.00.
Þorsteinn Guðmundsson,
Guðmundur H. Guðmundsson, Fjóla Sigrún Ísleifsdóttir,
Guðni Þór Guðmundsson,
María Guðmundsdóttir,
barnabörn og langömmubörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur, tengda-
sonur, barnabarn, bróðir og mágur,
KRISTJÁN VIÐAR HAFLIÐASON,
Ásaheimum,
Króksfjarðarnesi,
verður jarðsunginn frá Garpdalskirkju laugar-
daginn 30. ágúst kl. 14.00.
Erla Björk Jónsdóttir,
Aron Viðar Kristjánsson,
Ingibjörg Kristjánsdóttir, Hafliði Viðar Ólafsson,
Jenný Jensdóttir, Jón Hörður Elíasson,
Sigríður Júlíusdóttir, Njáll Guðmundsson,
Haflína Ingibjörg Hafliðadóttir,
Sigurður Rúnar Hafliðason, Bryndís Elfa Geirmundsdóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
GUNNAR MAGGI ÁRNASON,
Hálsaseli 20,
Reykjavík,
er lést á Landspítalanum við Hringbraut
laugardaginn 23. ágúst, verður jarðsunginn frá
Grafarvogskirkju föstudaginn 29. ágúst
kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á krabbameinslækningadeild
Landspítalans 11e eða minningarsjóð Grafarvogskirkju.
Stefanía Flosadóttir,
Margrét Gunnarsdóttir, Þórir Sigfússon,
Árni Gunnarsson,
Hulda Guðrún Gunnarsdóttir
og afabörnin.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og
amma okkar,
MARÍA ÞORGRÍMSDÓTTIR
leikskólakennari,
Næfurholti 2,
Hafnarfirði,
sem lést laugardaginn 23. ágúst, verður jarð-
sungin frá Víðistaðakirkju föstudaginn
29. ágúst kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast
hennar, er bent á líknardeild Landspítalans Fossvogi.
Bjarni H. Guðmundsson,
Kristín Birna Bjarnadóttir, Karl B. Pálsson,
Guðmundur Bjarnason, Olga M. Valsdóttir,
Matthías Bjarnason, Þórdís Þórðardóttir,
Bergljót María, Bjarni Valur,
Elín María og Valdís María.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlý-
hug, samúð og vináttu við andlát og útför
KRISTJÁNS B. ÞORVALDSSONAR,
Efstaleiti 14,
Reykjavík.
Björg Kristjánsdóttir, Ásgeir Theódórs,
Hrafnhildur Kristjánsdóttir, Birgir Einarsson,
Helga G. Kristjánsdóttir Wieland, Jeffrey Wieland,
Hans Kristjánsson, Snjólaug E. Bjarnadóttir,
Kristján Kristjánsson, Ólöf Loftsdóttir,
Eyjólfur Kristjánsson, Sandra Lárusdóttir,
Guðfinna Ingvarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður, afa, langafa og langa-
langafa,
EINARS KR. EIRÍKSSONAR
frá Brekku, Fáskrúðsfirði,
Seljahlíð,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á vist-
heimilinu Seljahlíð fyrir góða umönnun.
Kristbergur Gísli Einarsson,
Pétur Eiríkur Einarsson, Margrét Aðalsteinsdóttir,
Matthildur Ingibjörg Einarsdóttir, Ólafur Ben Snorrason,
Erlingur Bjarnar Einarsson, Hanna Júlíusdóttir,
Guðmundur Stefán Einarsson, Þuríður Júlíusdóttir
og afabörnin.
Lokað
verður á morgun, föstudag, vegna jarðarfarar GUNNARS
MAGGA ÁRNASONAR.
Prenttækni ehf.,
Vesturvör 11, Kópavogi.
Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar,
FREYJA JÓNSDÓTTIR,
Hverfisgötu 50,
Reykjavík,
andaðist á heimili sínu þriðjudaginn 26. ágúst.
Ármann Örn Ármannsson,
Dögg Ármannsdóttir,
Drífa Ármannsdóttir.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGRÍÐUR ÁGÚSTA SÖEBECH
(Sísý),
andaðist mánudaginn 25. ágúst.
Einar Einarsson, Suzanne Einarsson,
Pétur Kristjánsson, Þóra Ingvaldsdóttir,
Kristján Kristjánsson, Þórunn Þórarinsdóttir,
Ellen Kristjánsdóttir, Eyþór Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lundi V/Nýbýlaveg
564 4566 • www.solsteinar.is
Minningargreinum þarf að
fylgja formáli með upplýsing-
um um hvar og hvenær sá
sem fjallað er um er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka og
börn og loks hvaðan útförin
verður gerð og klukkan hvað.
Ætlast er til að þetta komi að-
eins fram í formálanum, sem
er feitletraður, en ekki í grein-
unum sjálfum.
Formáli
minning-
argreina