Morgunblaðið - 28.08.2003, Page 10
FRÉTTIR
10 FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Réttir Dagsetning
Auðkúlurétt í Svínavatnshr., A.-Hún. laugardag 6. sept.
Áfangagilsrétt á Landmannaafrétti, Rang. fimmtudag 25. sept.
Brekkurétt í Norðurárdal, Mýr. sunnudag 14. sept.
Dalsrétt í Mosfellsdal sunnudag 21. sept.
Fellsendarétt í Miðdölum, Dal. sunnudag 14. sept.
Flekkudalsrétt á Fellsströnd, Dal. laugardag 20. sept.
Fljótshlíðarrétt í Fljótshlíð, Rang. þriðjud. 16. og sunnud. 21. sept.
Fljótstungurétt í Hvítársíðu, Mýr. laugardag 13. sept.
Fossrétt á Síðu, V.-Skaft. föstudag 5. sept.
Fossvallarétt v/Lækjarbotna, (Rvík/Kóp) sunnudag 21. sept.
Gillastaðarétt í Laxárdal, Dal. sunnudag 21. sept.
Grímsstaðarétt á Mýrum, Mýr. þriðjudag 16. sept.
Grófargilsrétt í Skagafirði föstudag 5. sept.
Hamarsrétt á Vatnsnesi, V.-Hún. laugardag 13. sept.
Heiðarbæjarrétt í Þingvallasveit, Árn. laugardag 20. sept.
Hítardalsrétt í Hítardal, Mýr. mánudag 15. sept.
Hlíðarrétt í Bólstaðarhl.hr. A.-Hún. sunnudag 14. sept.
Hlíðarrétt í Mývatnssveit, S.-Þing sunnudag 31. ágúst
Hraunsrétt í Aðaldal, S.-Þing. sunnudag 7. sept.
Hrunaréttir í Hrunamannahr., Árn. föstudag 12. sept.
Hrútatungurétt í Hrútafirði, V.-Hún. laugardag 6. sept.
Húsmúlarétt v/Kolviðarhól, Árn. laugardag 20. sept.
Kjósarrétt í Hækingsdal, Kjós. sunnudag 21. sept.
Kirkjufellsrétt í Haukadal, Dal. sunnudag 14. sept.
Klausturhólarétt í Grímsnesi, Árn. miðvikudag 17. sept.
Laufskálarétt í Hjaltadal, Skagafirði laugardag 13. sept.
Miðfjarðarrétt í Miðfirði, V.-Hún. laugardag 6. sept.
Nesjavallarétt í Grafningi, Árn. laugardag 20. sept.
Nesmelsrétt í Hvítársíðu laugardag 6. sept.
Oddsstaðarétt í Lundarreykjadal, Borg. miðvikudag 17. sept.
Rauðsgilsrétt í Hálsasveit, Borg. sunnudag 21. sept.
Reyðarvatnsréttir á Rangárvöllum laugardag 20. sept.
Reykjaréttir á Skeiðum, Árn. laugardag 13. sept.
Reynistaðarrétt í Skagafirði. sunnudag 7. sept.
Selflatarrétt í Grafningi, Árn. mánudag 22. sept.
Selvogsrétt í Selvogi, Árn. mánudag 22. sept.
Silfrastaðarétt í Blönduhlíð, Skag. mánudag 22. sept.
Skaftárrétt í Skaftárhr., V.-Skaft. laugardag 6. sept.
Skaftártungurétt í Skaftártungu, V.-Skaft. laugardag 13. sept.
Skaftholtsréttir í Gnúpverjahreppi, Árn. föstudag 12. sept.
Skarðarétt í Gönguskörðum, Skag. laugardag 6. sept.
Skarðsrétt á Skarðsströnd, Dal. laugardag 20. sept.
Svignaskarðsrétt, Svignaskarði, Mýr. mánudag 15. sept.
Skerðingsstaðarétt í Hvammsveit, Dal. sunnudag 21. sept.
Skrapatungurétt í Vindhælishr., A.-Hún. sunnudag 14. sept.
Stafnsrétt í Svartárdal, A.-Hún. laugardag 6. sept.
Tungnaréttir í Biskupstungum, Árn. laugardag 13. sept.
Undirfellsrétt í Vatnsdal, A.-Hún. föstudag 12. sept.
Valdarásrétt í Víðidal, V.-Hún. föstudag 12. sept.
Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún. laugardag 13. sept.
Þórkötlustaðarétt í Grindavík sunnudag 21. sept.
Þverárrétt í Eyjafjarðarsveit sunnudag 17. sept.
Þverárrétt í Vesturhópi, V.-Hún. laugardag 13. sept.
Þverárrétt í Þverárhlíð, Mýr. mánudag 15. sept.
Ölfusréttir í Ölfusi, Árn. þriðjudag 23. sept.
Heiðarbæjarrétt í Þingvallasveit laugardag 20. sept. um hádegi
Húsmúlarétt við Kolviðarhól laugardag 20. sept. um hádegi
Nesjavallarétt í Grafningilaugardag laugardag 20. sept. um hádegi
Dalsrétt í Mosfellsdal sunnudag 21. sept. um hádegi
Fossvallarétt við Lækjarbotna sunnudag 21. sept. kl. 10
Þórkötlustaðarétt í Grindavík sunnudag 21. sept. kl. 15
Kjósarrétt í Hækingsdal, Kjós sunnudag 21. sept. kl. 16
Grímslækjarrétt í Ölfusi sunnudag 21. sept. síðdegis
Selvogsrétt í Selvogi mánudag 22. sept. árdegis
Selflatarrétt í Grafningi mánudag 22. sept. árdegis
Ölfusréttir í Ölfusi þriðjudag 23. sept. árdegis
Seinni réttir verða þrem vikum síðar á sömu vikudögum, þ.e. dagana 11.–14.
október. Til að auðvelda hreinsun afrétta og draga úr hættu á ákeyrslum á þjóð-
vegum í haustmyrkrinu er lögð áhersla á að fé verði haft sem mest í haldi eftir
réttir. Samkvæmt 5. gr. fjallskilasamþykktar fyrir Landnám Ingólfs Arnarsonar
nr. 401/1996 er óheimilt að sleppa aftur fé úr haustréttum á afrétti, segir í frétt
frá Bændasamtökunum.
Stóðréttir haustið 2003
Réttir Dagsetning
Skarðarétt í Gönguskörðum, Skag. laugardag 13. sept. um hádegi
Reynistaðarrétt í Skagafirði. laugardag 13. sept. kl. 16
Silfrastaðarétt í Blönduhlíð, Skag. sunnudag 21. sept. kl. 16
Hlíðarrétt við Bólstaðarhlíð, A.-Hún. sunnudag 21. sept. um hádegi
Skrapatungurétt í A.-Hún. sunnudag 21. sept. kl. 10
Laufskálarétt í Hjaltadal, Skag. laugardag 27. sept. kl. 13
Þverárrétt í Vesturhópi, V.-Hún. laugardag 27. sept. kl. 13
Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún. laugardag 4. okt. kl. 10
Melgerðismelarétt í Eyjafirði laugardag 4. okt. kl. 11
Þverárrétt í Eyjafjarðarsveit sunnudag 5. okt. kl. 10
Fjárréttir
haustið 2003
Nú liggur fyrir listi yfir fjár- og stóðhesta-
réttir þessa hausts. Samkvæmt
listanum verða fyrstu fjárréttir hausts-
ins í Mývatnssveit á sunnudag.
Morgunblaðið/RAX
TÓMAS Ingi Olrich, menntamála-
ráðherra, segir að borgaryfirvöld
hafi komið að máli við sig og óskað
eftir því að ríkið komi að fjár-
mögnun íþróttamannvirkja í Laug-
ardalnum.
„Reykjavíkurborg hefur farið
þess á leit við menntamálaráðu-
neytið að ríkið taki þátt í kostnaði
við gerð íþróttamannvirkja sem
skilgreina mætti sem þjóðarleik-
vanga. Í þessu sambandi hefur
borgin fyrst og fremst rætt um
fimmtíu metra innanhússsundlaug
í Laugardal en einnig stækkun
stúkubygginga við knattspyrnu-
völlinn í Laugardal og uppbygg-
ingu þjónustuhúsnæðis við leik-
vanginn. Í þriðja lagi hefur borgin
óskað eftir þátttöku ríkisins í fjár-
mögnun nýrrar íþróttahallar,“ seg-
ir Tómas Ingi.
Borgin hefur átt í
viðræðum við KSÍ
Þórólfur Árnason, borgarstjóri,
segir að borgin hafi átt í viðræðum
við Knattspyrnusamband Íslands
um hugmyndir að stækkun þjóð-
arleikvangs í Laugardal. Hann
segir að verið sé að skoða málið
heildstætt og þar þurfi að líta til
byggingar keppnislaugar fyrir
sundfólk og frjálsíþróttaaðstöðu
innanhúss, en nýverið var fyrsta
skóflustungan að slíkri aðstöðu
tekin. „Rætt hefur verið um
nokkra möguleika á stækkun
Laugardalsvallar; m.a. hugsanlega
breytingu á vellinum í knatt-
spyrnuvöll með engum hlaupa-
brautum. Það kallar hins vegar á
nýja frjálsíþróttaaðstöðu utanhúss
ef af því verður,“ segir Þórólfur.
„Sem fyrrverandi formaður
markaðsnefndar KSÍ þekki ég líka
þá hlið sem snýr að áhuga á að
efla áhorfendaaðstöðu og stuðning
við íslenska knattspyrnulandsliðið.
En það hefur þó þurft heimsmeist-
ara eða silfur eða bronslið frá HM
til að fylla völlinn,“ segir hann.
Þórólfur bendir einnig á að KSÍ
virðist hafa yfir fjármunum að
ráða til þess að bæta félags- og
fræðsluaðstöðu sambandsins og
segir að borgin vilji mjög gjarnan
að það fé nýtist til þess að bæta
við og endurbæta núverandi stúku
við Laugardalsvöll.
Hefur boðist til að tilnefna
aðila til að fara yfir málið
Tómas Ingi Olrich segir að
nokkur erindi hafi borist frá borg-
inni um stuðning við byggingu
íþróttamannvirkja. „Í öllum tilfell-
um er borgin að fara fram á það
við ríkið að nýtt verði heimild í
lögum þar sem segir að mennta-
málaráðherra sé heimilt að eiga
aðild að samningum um stofnun og
starfsemi íþróttamiðstöðva í sam-
vinnu við sveitarfélög og íþrótta-
samtök, enda miðist þjónusta
stöðvanna við landið allt. Þessar
viðræður eru á frumstigi og ég hef
lýst því yfir að ég sé tilbúinn til
þess að tilnefna aðila til að fara yf-
ir málið með borginni ef eftir því
yrði leitað,“ segir hann.
Vilja stækka völlinn svo
hann taki 14 þúsund manns
Eggert Magnússon, formaður
KSÍ, hefur lýst því yfir að hann
telji að stækka þurfi Laugardals-
völl svo hann taki fjórtán þúsund
manns í sæti. Hann segir í Morg-
unblaðinu á sunnudaginn að Ís-
lendingar hafi dregist aftur úr öðr-
um þjóðum sökum þess hve fáir
komist á landsleiki. Hann nefnir
að Færeyingar hafi völl sem rúmi
sex þúsund manns og segir það
jafngilda því að á Íslandi kæmust
35 til 40 þúsund manns á leiki.
Nú rúmast um sjö þúsund á
Laugardalsvelli. Þegar heims-
meistarar Frakka heimsóttu Ís-
land í undankeppni EM í sept-
ember 1998 fékkst heimild til þess
að setja upp bráðabirgðapalla svo
völlurinn rúmaði ríflega tólf þús-
und áhorfendur. Síðan þá hefur
Knattspyrnusamband Evrópu
breytt reglum sínum og nú er ekki
lengur heimilt að setja upp bráða-
birgðastúkur.
Eggert nefnir í samtali við
Morgunblaðið sl. sunnudag að lík-
ur séu til þess að KSÍ fái fjármagn
bæði frá FIFA og UEFA til þess
að byggja við áhorfendastúkuna.
Sökum þessa komast munu
færri en vilja á leik Íslands og
Þýskalands sem fram fer 6. sept-
ember nk.
Þegar áhorfendafjöldi á heima-
landsleiki Íslands í undankeppnum
stórmóta frá 1997 er skoðaður sést
að fjórum sinnum hafa áhorfendur
verið yfir sjö þúsund; sem þýðir að
ekki komust fleiri að. Fjórtán
sinnum hafa hins vegar verið laus
sæti. Að meðaltali hafa tæplega
5.200 áhorfendur sótt leikina.
Knattspyrnusambandið vill láta stækka þjóðarleikvanginn í Laugardal í samstarfi við ríki og borg
Viðræður aðila um
stækkun á frumstigi
!
"
##
##
"#
#
#
"
#"
#"
" #"
#"
#$
%
&' %
&' %
&' %
&' %
&' %
&' %
&' %
&' %
&' %
&' %
&' %
&' %
&' %
&' %
&' %
&' %
&' %
&' 7 .0 !
) *
%&'
)+*
,
&'
-&
-' &
!" ./%&'
0& &
1
&&
23&'
-' &
4
&&'
#$
) *
56&
70
70
70
80
80
80
80
80
70
70
70
70
70
70
70
80
80
80
$
!
"
" $
#
$
"$#
$ $
!
"!#
$ $$
!"$
"!
"!$
$"
""#
! $
3366
$
!
$$ !
!$
!
"
$!!
$
#
""
$#
$!$
#$
6. 2
%&'!
&''()*
+&
'
-'
59
& :
&9
&
& &
* ';&
,!, STJÓRN Sláturfélags Suður-
lands ákvað í síðustu viku að
úrelda sláturhúsið við Laxá í
Leirársveit og slátra ekki í hús-
inu í haust.
Steinþór Skúlason, forstjóri
SS, segir þessa ákvörðun tekna
á rekstrarlegum forsendum.
Starfsstöðin í Leirársveit hafi
ekki leyfi til að slátra á markað
Evrópusambandsins og mikil
hækkun útflutningsskyldu á
lambakjöti krefjist þess að
meira sé slátrað í húsi Slátur-
félagsins á Selfossi. Það upp-
fylli skilyrði ESB til útflutnings
á þessum afurðum. Þegar slátr-
un dragist saman verði starf-
semin mjög óhagkvæm.
Frystihús er ekki við Laxá
og segir Steinþór óhagkvæmt
að þurfa að flytja kjötið til
frystingar á Hvolsvelli. Mark-
miðið sé að fá ESB leyfi þar og
því má ekki vera kjöt án ESB
leyfis í stöðinni nema í mjög
litlum mæli og þá aðskilið frá
öðru kjöti.
Slátrað var við
Laxá í 50 ár
Í fyrrahaust var um 25 þús-
und fjár slátrað við Laxá í Leir-
ársveit. Það var í fimmtugasta
skipti sem slátrað var og því er
þessi ákvörðun erfið fyrir
stjórnendur SS að sögn Stein-
þórs. Þetta sé nauðsynlegt til
að bregðast við erfiðum að-
stæðum á kjötmarkaði í dag.
Hann segir að um 40 manns
hafi unnið við slátrun í starfs-
stöðinni. Lokun hennar nú hafi
ekki eins mikil áhrif á framboð
atvinnu á svæðinu þar sem at-
vinnuuppbygging hafi verið
mikil við Hvalfjörð undanfarin
ár. Frekar hafi verið erfitt að
fullmanna stöðina yfir slátur-
tíðina.
Sláturhúsi
SS við
Laxá í
Leirár-
sveit lokað