Morgunblaðið - 28.08.2003, Page 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2003 11
Heimsferðir bjóða borgarævintýri til fegurstu borga Evrópu á
hreint frábærum kjörum með beinu flugi í haust. Alls staðar nýt-
ur þú þjónustu reyndra fararstjóra okkar, sem eru á heimavelli á
söguslóðum og bjóða spennandi kynnisferðir meðan á dvölinni
stendur. Notaðu tækifærið og kynnstu mest spennandi borgum
Evrópu, mannlífi og menningu og upplifðu ævintýri í haust.
Fegurstu
borgirnar
í beinu flugi í haust
frá kr. 28.550
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Róm
1.-5. okt.
Heimsferðir bjóða nú einstakt tæki-
færi til borgarinnar eilífu í beinu flugi
þann 1. okt. frá Íslandi til Rómar. Nú
getur þú kynnst þessari einstöku borg
sem á engan sinn líka í fylgd farar-
stjóra Heimsferða og upplifað árþús-
undamenningu og andrúmsloft sem er
einstakt í heiminum. Péturstorgið og
Péturskirkjan, Vatíkanið, Spænsku
tröppurnar, Colosseum, Forum
Romanum og Pantheon hofið.
Sjá www.heimsferðir.is
Verð frá kr.65.850
Búdapest
október
fimmtud. og mánud.,
3, 4 eða 7 nætur
Stórkostleg borg í hjarta Evrópu,
sem Íslendingum býðst nú að kynn-
ast í beinu flugi frá Íslandi. Hér
getur þú valið um góð 3 og 4
stjörnu hótel í hjarta Budapest og
spennandi kynnisferðir með farar-
stjórum Heimsferða.
Verð kr. 28.550
Flugsæti til Budapest 20. okt. með
8.000 kr. afslætti. Skattar innifaldir.
Gildir frá mánudegi til fimmtudags.
Verona
17. sept., 5 nætur
Fegursta borg Ítalíu, þar sem þú
getur notið hins besta af ítalskri
menningu um leið og þú gengur
um gamla bæinn, skoðar svalir
Júlíu og kynnist frægasta útileik-
húsi Ítalíu, Arenunni í Verona eða
ferðast um Gardavatn og Feneyjar.
Verð kr. 29.950
Flugsæti með sköttum. Völ um 3 og 4
stjörnu hótel. Ekki innifalið: Forfalla-
gjald, kr. 1.800 valkvætt. Ferðir til og
frá flugvelli kr. 1.800.
Prag
Okt. og nóv.
fimmtud. og mánud.,
3, 4 eða 7 nætur
Fegursta borg Evrópu og eftirlæti
Íslendinga sem fara nú hingað í
þúsundatali á hverju ári með Heims-
ferðum. Fararstjórar Heimsferða gjör-
þekkja borgina og kynna þér sögu
hennar og heillandi menningu.
Góð hótel í hjarta Prag.
Verð kr. 29.950
Flug og hótel í 3 nætur. M.v. 2 í her-
bergi á Quality Hotel, 3. nóv. með 8.000
kr. afslætti. Skattar innifaldir. Gildir frá
mánudegi til fimmtudags. Ferðir til og
frá flugvelli kr. 1.800.
Barcelona
2. okt. 3 nætur
22./26./30. okt. 4 nætur
Einn vinsælsti áfangastaður Íslend-
inga í 11 ár. Heimsferðir bjóða nú
bein flug í október, sem er einn
skemmtilegasti tíminn til að heim-
sækja borgina. Menningarlífið er í
hápunkti og ótrúlegt úrval listsýn-
inga og tónleika að heimsækja
ásamt spennandi næturlífi og ótrú-
legu úrvali verslana. Fararstjórar
Heimsferða kynna þér borgina á
nýjan hátt, enda hér á heimavelli.
Verð kr. 49.950
Flug og hótel í 4 nætur.
M.v. 2 í herbergi á Aragon, 22. okt.
Skattar innifaldir. Ferðir til og frá flug-
velli kr. 1.800.
Sorrento
30. sept., 5 nætur
Heimsferðir bjóða nú í fyrsta sinn á
Íslandi beint flug til Napolí og dvöl
í Sorrento, þessum frægasta sumar-
leyfisstað Ítalíu. Hér kynnist þú
hinni ótrúlega fögru Amalfi strönd,
eyjunni Capri, Pompei og Napolí.
Ótrúlega fallegt umhverfi og heill-
andi andrúmsloft á þessum fagra
stað. Völ um úrvalshótel í hjarta
Sorrento.
Verð kr. 63.650
Flug og hótel í 5 nætur. M.v. 2 í her-
bergi á La Meridiana með morgunmat.
Skattar innifaldir. Ferðir til og frá flug-
velli kr. 1.800.
Verð m.v. 2 í herbergi, Hotel Villa
Torlonia, flug, gisting, skattar, íslensk
fararstjórn. Ekki innifalið: Forfalla-
gjald, kr. 1.800 valkvætt. Ferðir til og
frá flugvelli kr. 1.800.
ÞEIM brá nokkuð skipverjum á
frystitogaranum Örvari frá
Skagaströnd þegar þeir fengu
stórhveli í trollið í síðustu veiði-
ferð.
Örvar var á grálúðuveiðum í
Víkurál en í einu halinu fengu
þeir stóran hval í trollið. Hval-
urinn var nýdauður og hefur
sjálfsagt drukknað við að lenda í
trollinu.
Trollið flaut upp með skepn-
unni í og tóku skipverjar það til
bragðs að fara á gúmmíbát og
skera trollbelginn utan af hvaln-
um til að losna við hann.
Þegar trollið hafði verið skorið
eftir endilöngum hvalnum flaut
hann út og var skilinn eftir á
floti, ósnertur af áhöfninni á Örv-
ari.
Ekki þekktu menn um borð
tegundina en hér var um tann-
hval að ræða.
Áhöfnin sker hvalinn úr trollinu og sést vel hve stór hann var.
Stórhveli í trollið
Skagaströnd. Morgunblaðið.
ÞÓRA Þórarinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Styrktarfélags van-
gefinna, segir sér virðast sem unnt
verði að hefja undirbúning að var-
anlegri lausn í skólamálum mikið
fatlaðra nemenda í framhaldsdeild
Safamýrarskóla strax í næstu viku.
Þóra, Erla Gunnarsdóttir, skóla-
stjóri Safamýrarskóla, Birna
Björnsdóttir, forstöðukona á Lyng-
ási, og Eygló Eyjólfsdóttir, sér-
fræðingur á framhaldsskóla- og full-
orðinsfræðsludeild
menntamálaráðuneytisins, áttu fund
í gær þar sem gengið var formlega
frá afnotum á húsnæði í Lyngási
sem nýtast mun hluta þeirra tíu
barna í framhaldsdeild skólans sem
stunda þar nám í vetur.
Þóra segir að óskað hafi verið eft-
ir því við fulltrúa ráðuneytisins á
fundinum í gær að nefnd sem upp-
haflega átti að skipa í vor þar sem
sæti eiga fulltrúar menntamála-
ráðuneytisins, Ármúlaskóla, Safa-
mýrarskóla og Fræðslumiðstöðvar,
komi saman og fundi með foreldra-
hópi úr Safamýrarskóla strax í
næstu viku
Samningurinn endurskoðaður
um áramót
„Það er náttúrulega öllum ljóst
að þessi vinna sem verður að fara af
stað, og átti fyrir löngu að vera far-
in af stað, henni átti helst að vera
lokið. […]Eins og er þá virðist vera
farvegur til þess að setja þá vinnu
af stað,“ segir Þóra eftir fund gær-
dagsins.
Samningurinn sem menntamála-
ráðuneytið og Styrktarfélag vangef-
inna hafa gert með sér um afnot af
kennslustofu á Lyngási verður end-
urskoðaður í desember í ljósi þeirra
markmiða að Ármúlaskóli taki við
rekstrinum um áramót. Þóra segir
hins vegar allt enn á huldu um
hvernig þau mál þróist og að
styrktarfélagið sé tilbúið að heimila
notkun á húsinu við Lyngás fram á
vor.
Hvorki náðist í Eygló Eyjólfs-
dóttur, fulltrúa menntamálaráðu-
neytisins, í gær né Árna Magnússon
félagsmálaráðherra, sem staddur er
erlendis. Félagsmálaráðuneytið fer
með málefni fatlaðra á Íslandi og er
þátttakandi í samstarfi Evrópu-
þjóða í tilefni Evrópuárs fatlaðra.
Styrktarfélag vangefinna og fulltrúi ráðuneytisins
funduðu um málefni Safamýrarskóla í gær
Óskað eftir fundi með
foreldrum í næstu viku
SNORRA MÁ Skúlasyni, um-
sjónarmanni Íslands í dag á
Stöð 2, hefur verið sagt upp
störfum og
tekur upp-
sögnin gildi 1.
september
nk. Skýr-
inguna á upp-
sögninni segir
Karl Garðars-
son, frétta-
stjóri Stöðvar
2, vera þá að
fækka hafi
þurft starfsfólki. „Við höfum
ekki pláss, við höfum verið
með of mikið af fólki. Breytt
vaktafyrirkomulag sem tók
gildi 1. júlí þýðir að við þurf-
um að fækka fólki. Þar að
auki er þessi breyting á Ís-
landi í dag komin til, þannig
að við höfum ekki lengur
pláss þar.“
Nýir umsjónarmenn
Íslands í dag taka við
Nýir umsjónarmenn Ís-
lands í dag eru Þórhallur
Gunnarsson og Jóhanna Vil-
hjálmsdóttir úr morgunþætt-
inum Ísland í bítið.
Spurður um ástæðu þess að
Snorra Má, sem hefur langa
reynslu af fjölmiðlum, er sagt
upp í stað reynsluminna
fólks, segir Karl: „Þegar þú
ert í sjónvarpi er ekki alltaf
spurt að því. Þetta er bara
spurning um hvaða fólk hent-
ar okkur best á hverjum stað
hverju sinni.“
Karl segir af og frá að upp-
sögn Snorra Más tengist um-
töluðum „leka“ af fréttastofu
Stöðvar 2 til vefsíðunnar
frettir.com.
Sjö hættir störfum
frá því í júní
Frá því í lok júní hefur sjö
fréttamönnum eða þátta-
stjórnendum auk Snorra Más
verið sagt upp störfum hjá
Stöð 2 eða þeir látið af störf-
um.
Þau eru Árni Snævarr,
Bryndís Hólm, Hulda Gunn-
arsdóttir, Margrét Stefáns-
dóttir, Ólöf Rún Skúladóttir,
Snorri Sturluson og Þor-
steinn J sem var umsjónar-
maður spurningaþáttarins
Viltu vinna milljón?
Snorra Má
Skúlasyni
sagt upp
á Stöð 2
Snorri Már
Skúlason
VEGNA óvenjugóðs tíðarfars eiga
bændur margir hverjir fyrningar af
heyi og eins er útlit fyrir umfram-
uppskeru af kartöflum. Unnt væri
að nýta bæði hey og kartöflur til
landgræðslu og segist Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra
treysta bændum vel til að huga að
þeim möguleika í samvinnu við
ráðunautaþjónustuna og Land-
græðsluna. Hann sér þó ekki fyrir
sér að ríkissjóður styrki bændur til
þessara verkefna.
Guðni Ágústsson segir tíðarfar
hafa verið óvenju gott undanfarin ár
og sérstaklega í sumar. Góður hafi
sprottið sem aldrei fyrr og gróð-
urlínan sé komin í um 900 m hæð.
Hann kveðst ekki hafa áhyggjur af
vanda bænda vegna hins góða tíð-
arfars og telur að huga megi jafnvel
að útflutningi á heyi og kartöflum
sem ekki nýtist innanlands. Þá segir
hann bændur kunna vel til verka við
landgræðslu, þeir séu gróðurvernd-
armenn og muni huga að því að af-
setja léleg hey í rofabörð.
Ráðherra segir Landgræðsluna
geta hjálpað bændum og leiðbeint í
þessum efnum eftir því sem þörf
krefur og bent á hvar helst væri
þörf á slíkri landgræðslu.
Umframbirgðir
til landgræðslu
og útflutnings