Morgunblaðið - 31.08.2003, Side 1
Vildi vera
sjálfri mér trú
Védís Hervör vill ekki að ímynd-
in skyggi á tónlistina 14
STOFNAÐ 1913 . TBL. 91. ÁRG. SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Gjörningar
Beuys
Listamaðurinn Joseph Beuys og
áleitnir gjörningar hans Listir 24
Fer eigin
leiðir
Neil Young segir sögur úr Græna-
dal á nýrri plötu Fólk 50
20032004
ÁRSBÆKLINGUR SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS
FYLGIR MORGUNBLAÐINU Í DAG.
Taktu þátt í veislunni í vetur
SAMKOMULAG náðist í gærmorg-
un á vegum heimsviðskiptastofnunar-
innar, WTO, um heimild fyrir fátæk
ríki til að flytja inn ódýr samheitalyf
gegn banvænum sjúkdómum á borð
við HIV/alnæmi, malaríu og berkla.
„Þetta er sögulegt samkomulag fyrir
WTO,“ sagði framkvæmdastjóri
stofnunarinnar, Supachai Panitch-
pakdi.
Samkomulagið hafði verið gert í
undirnefnd seint á fimmtudagskvöld,
en snurða hlaupið á þráðinn í fyrra-
dag og ekki talið að endanleg sátt
næðist um málið fyrr en í fyrsta lagi á
fundi WTO í Mexíkó 10. september.
Samkvæmt reglum WTO geta ríki
sem eiga í höggi við skæða sjúkdóma
er ógna almannaheill haft að engu
einkaleyfi á nauðsynlegum lyfjum og
keypt ódýrari samheitaútgáfur frá
öðrum framleiðendum en einkaleyfis-
hafanum. Hingað til hefur þó einungis
verið heimilt að kaupa slík samheita-
lyf frá innlendum framleiðendum, en í
flestum þróunarríkjum er enginn
lyfjaiðnaður og því hefur í raun ekki
verið hægt að fá ódýrari lyfin.
Bandarísk lyfjafyrirtæki hafa látið
í ljósi áhyggjur af því að heimildir til
innflutnings á samheitalyfjum verði
misnotaðar af framleiðendum slíkra
lyfja, og einnig að þetta verði til þess
að ódýru lyfjunum verði smyglað frá
löndunum sem kaupa þau til vest-
rænna ríkja.
Samið um samheitalyf
Genf. AP.
ÍSLENSK flugfélög hafa undanfarið aukið
umsvif sín í fraktflugi. Þannig verður alls 21
þota í verkefnum í september fyrir félögin en
fyrir fimm árum voru íslenskar þotur í frakt-
flugi teljandi á fingrum annarrar handar.
Flugfélagið Atlanta hefur haft sex þotur í
fraktflugi, Flugleiðir frakt ehf. tvær, Íslands-
flug verður með níu þotur og Bláfugl fjórar.
Verkefnin tengjast flest alþjóðlegum hrað-
flutningafyrirtækjum.
Bláfugl hefur rekið tvær B737-300 fraktþot-
ur að undanförnu og er önnur í verkefnum frá
Íslandi. Í næsta mánuði bætast tvær þotur við
og verða þrjár þeirra í verkefnum erlendis,
einkum fyrir UPS-fyrirtækið. Þórarinn Kjart-
ansson, framkvæmdastjóri Bláfugls, segir
fleiri þotur verða leigðar á næsta ári.
Flugleiðir frakt ehf. eru með tvær fraktvél-
ar í verkefnum og nýta þar að auki fraktrými í
farþegaþotum Icelandair. Pétur J. Eiríksson
framkvæmdastjóri segir félagið einnig kaupa
hluta af fraktrými einnar vélar hjá Íslandsflugi
á móti DHL-hraðflutningafyrirtækinu.
Íslandsflug rekur fjórar B737-þotur sem
bæði má nota sem fraktvélar og farþegavélar.
Þá rekur félagið fjórar Airbus-breiðþotur og
fær þá fimmtu í næsta mánuði.
Þrjár vélar Atlanta hafa verið í fraktflugs-
verkefnum í Malasíu og samningar þriggja
annarra eru að renna út og verið að huga að
nýjum verkefnum.
Íslensk flug-
félög verða
með 21 þotu
í fraktflugi
GAMALL, rússneskur kjarnorku-
kafbátur, K-159, sökk í illviðri á
Barentshafi í fyrrinótt þegar verið
var að draga hann til hafnar á Kóla-
skaga þar sem átti að rífa hann. Að
minnsta kosti tveir úr tíu manna
áhöfn kafbátsins fórust, einum var
bjargað og sjö er enn saknað. Engin
vopn voru í kafbátnum og kjarnaofn-
um hans hafði verið lokað áður en
hann sökk. Slysið varð skammt frá
mynni Kólafjarðar.
Rússnesk stjórnvöld tilkynntu um
slysið skömmu eftir að það varð, en
Rússar voru gagnrýndir fyrir að
bregðast seint við þegar kjarnorku-
kafbáturinn Kúrsk fórst með 118
manna áhöfn í Barentshafi árið 2000.
Reuters
Rússneskur kjarnorkukafbátur frá
sjöunda áratugnum, svipaður þeim
sem sökk á Barentshafi.
Gamall kaf-
bátur sökk
Moskvu. AP.
LÖGREGLA í Írak hefur hand-
tekið fjóra menn vegna sprengju-
tilræðis er varð 107 manns að
bana í borginni Najaf á föstudag-
inn, og herma fregnir að menn-
irnir hafi játað að hafa staðið að
tilræðinu.
Samkvæmt heimildum AP-
fréttastofunnar eru tveir mann-
anna Írakar og tveir Sádi-Arab-
ar, og eru tengdir hryðjuverka-
samtökunum al-Qaeda. AFP-
fréttastofan hefur aftur á móti
heimildir fyrir því að enginn
unum um morð á trúarlegum og
pólitískum leiðtogum, og
skemmdarverk á mikilvægum
mannvirkjum á borð við rafstöðv-
ar, vatnsveitur og olíuleiðslur.
Þá hefðu þeir sagt að sprengju-
tilræðin í landinu undanfarið
hefðu verið framin til að viðhalda
þar glundroða og koma þannig í
veg fyrir að lögreglan og banda-
ríska setuliðið gætu haft eftirlit
með landamærunum, en fregnir
herma að fjöldi erlendra víga-
manna streymi nú yfir þau.
mannanna sé Íraki. Þrír aðrir,
sem grunaðir séu um aðild að til-
ræðinu, séu á flótta.
Í tilræðinu féll m.a. æðsti
klerkur og pólitískur leiðtogi sjía-
múslíma í Írak, ajatollinn
Mohammed Baqer al-Hakim,
sem sýnt hafði bandaríska her-
setuliðinu í landinu samstarfs-
vilja.
Að sögn lögreglunnar voru
mennirnir handteknir skömmu
eftir tilræðið og hefðu þeir við yf-
irheyrslur greint frá frekari áætl-
Tala fallinna í sprengjutilræðinu í Najaf komin í 107
AP
Sjíamúslími fórnar höndum á fjölmennri útisamkomu er haldin var fyrir utan helgustu mosku sjíta í
Najaf í gær. Um fjögur þúsund manns kröfðust þar hefnda vegna falls ajatollans Mohammeds al-Hakims.
Fjórir hafa játað
Najaf. AFP, AP.
NORÐUR-Kóreumenn kváð-
ust í gær sífellt sannfærast bet-
ur um að þeir ættu ekki annars
úrkosti en að styrkja kjarn-
orkuvarnir sínar „til þess að
vernda sjálfstæði okkar“, að því
er opinber fréttastofa landsins,
KCNA, hafði eftir ónafngreind-
um talsmanni utanríkisráðu-
neytis landsins.
Í Peking sagðist fulltrúi N-
Kóreustjórnar ekki sjá neinn
tilgang með frekari viðræðum
um kjarnorkuáætlun landsins.
Í fyrradag lauk sex ríkja við-
ræðum um málið og gáfu N-
Kóreumenn þá í skyn að þeir
kynnu að vera til viðræðu um
málamiðlun.
N-Kórea
hafnar
viðræðum
Peking. AP.REYKJAVÍK er strjálbýlasta höfuðborg
Norðurlanda. Í Reykjavík eru 419 íbúar um
hvern ferkílómetra. Kaupmannahöfn er þétt-
býlust með tæplega sex þúsund íbúa á hverj-
um ferkílómetra.
Séu borgirnar og svæðin sem teljast til
grenndar þeirra skoðuð er höfuðborgarsvæðið
í Reykjavík einnig strjálbýlast með 163 íbúa á
ferkílómetra en Oslóarsvæðið kemur næst
með 197 íbúa á ferkílómetra. Stokkhólmur er
fjölmennasta höfuðborgin, með 757.948 íbúa 1.
desember sl. Séu svæðin sem heild borin sam-
an sést að Kaupmannahafnarsvæðið er fjöl-
mennast með 1.814.564 íbúa, á Stokkhólms-
svæðinu búa 1.674.380, í Helsinki og grennd
búa 1.213.743, á Oslóarsvæðinu búa 989.914 en
á höfuðborgarsvæðinu á Íslandi búa 178.301.
Hlutfallslega búa flestir útlendingar (Norð-
urlandabúar ekki meðtaldir) í Kaupmanna-
höfn eða 114 á hverja þúsund íbúa, en fæstir
búa í Reykjavík; 40 af hverjum þúsund.
Reykjavík
strjálbýlust
♦ ♦ ♦