Morgunblaðið - 31.08.2003, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 31.08.2003, Blaðsíða 35
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 2003 35 Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30. Uppl. veitir Magnús Gunnarsson, s. 588 4477 eða 822 8242. Öll eignin við Álftamýri 1-3 er til sölu/leigu, samtals ca 1.600 fm. 706 fm á tveimur hæðum, innréttað sem aðgerða- og læknastofur. 264 fm á annarri hæð, innréttað fyrir sjúkraþjálfun og skrifstofur. 602 fm verslun og lager innréttað sem apótek. Mjög góð staðsetning. Mjög góð aðkoma. Næg bílastæði. Mögulegur byggingarréttur. Verð tilboð. ÁLFTAMÝRI/TIL SÖLU/LEIGU VESTURBÆR – OPIÐ HÚS Heimilisfang: Seilugrandi 8, 1. hæð t.v. Stærð 106,4 fm. Auk geymslu: 13,3 fm. Bílageymsla: 30,9 fm Byggingarár: 1981 Brunabótamat: 16 millj. Verð: 15,5 millj. FALLEG, BJÖRT OG OPIN 5 HERB. ÍBÚÐ Á 1. HÆÐ MEÐ SÉRINNGANGI Í LITLU FJÖLBÝLI. Rúmgóð og vel skipulögð íbúð í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi. Stutt í alla þjónustu. Reynir Erlingsson RE/MAX tekur á móti gestum í dag milli kl. 14 og 15 Reynir Erlingsson – símar 520 9556/896 9668 reynir@remax.is – Hans Pétur Jónsson lögg. fasteignasali. GRAFARVOGUR – OPIÐ HÚS Heimilisfang: Laufengi 34, 2. hæð. Stærð 101,9 fm Byggingarár: 1992 Brunabótamat: 10,9 millj. Verð: 12,4 millj. BJÖRT OG OPIN 4RA HERB. ÍBÚÐ Á 2. HÆÐ MEÐ SÉRINNGANGI Í SNYRTILEGU FJÖLBÝLI. Rúmgóð og vel skipulögð íbúð í fjölskylduvænu hverfi. Stutt í alla þjónustu. Reynir Erlingsson RE/MAX tekur á móti gestum í dag milli kl. 16 og 17 Reynir Erlingsson – símar 520 9556/896 9668 reynir@remax.is – Hans Pétur Jónsson lögg. fasteignasali. Suðurlandsbraut 54 við Faxafen, 108 Reykjavík. Sími 568 2444, fax 568 2446. Ingileifur Einarsson lögg. fasteignasali. Góð 4ra herb. 96 fm íbúð á 2. hæð. Endurnýjað baðherbergi, parket, tvær samliggjandi stofur, mjög góðar suðursvalir. Góður 21 fm bílskúr. Verð 14,0 millj. Skoðið myndir á asbyrgi.is Stóragerði 8 FASTEIGNASALA HÁTÚNI 6a SÍMI 512 1212 FAX 512 1213 ÆGISÍÐA 109 OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 16-18 Um er að ræða glæsilega 106,4 fm miðhæð í góðu steinhúsi á Ægisíðunni í Reykja- vík. Eldhús með dökku parketi á gólfi, falleg nýleg eldhúsinnrétting. Rúmgóð sam- liggjandi stofa og borðstofa, dökkt parket á gólfi, útgengt á svalir frá stofu. Úr stofu er síðan opið inn í hol með fallegum arni. Nýlega endurnýjað flísalagt baðherbergi í hólf og gólf, góður flísalagður sturtuklefi. Að sögn seljanda var íbúðin standsett fyrir ca 3 árum. M.a. nýtt rafmagn, gólfefni og innréttingar. Eignin er laus til afhendingar mjög fljótlega. Verð 16,5 millj. Hannes og Kristjana taka vel á móti væntanlegum kaupendum í dag frá kl. 16-18. Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is 533 4800 76,3 fm falleg 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í Hlíðunum. Íbúðin skiptist í hol, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og eldhús. Austursvalir. Sameiginlegt þvottahús er í risi og þurrkherbergi. Sérgeymsla í risi. Ný- legt parket á íbúð. Góð staðsetning. Íbúðin er á annarri hæð til vinstri. Bogahlíð 11 - Opið hús sunnudag frá kl.14.00–16.00 Björn Þorri hdl. lögg. fastsali, Karl Georg hrl. lögg. fastsali. Eyrún sýnir, sími 695 8805 Opið mán.-fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9-17 Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033 Mjög góð ca 84 fm vel skipulögð þriggja herbergja íbúð. Vestursvalir. Þvottahús inn af eldhúsi. Stutt í alla þjónustu. Beta tekur á móti ykkur milli kl. 15 og 17 í dag. OPIÐ HÚS SUNNUDAG FRÁ KL. 15-17 LAUTASMÁRI 51 - 2. hæð t.v. Lindir – Kópavogi Fullbúið 150 m2, 4-5 herbergja, endaraðhús innst í botnlanga í Lindahverfi til sölu. Verð 25 milljónir. Uppl. í síma: 898 0220 NORSKUR menntaskólakennari hefur nú komið sex sinnum hingað til lands með hópa nemenda á framhaldsskólastigi til að kynna þeim land og þjóð, náttúru og sögu. Gudveig H. Aaby er framhalds- skólakennari við Hellerud-skólann í Osló í Noregi, þar sem hún kennir norsku og trúarbragðafræði. Gud- veig segir áhuga sinn á Íslandi eiga sér langa sögu, en hún hefur lengi haft áhuga á fornbókmenntum og sögu. „Ísland virkar eins og segull á mig, ég verð alltaf að koma aftur,“ segir Gudveig. „Það er sambland af heillandi náttúru og sögu lands- ins sem dregur mig aftur til lands- ins, auk þess sem ég hef eignast góða vini hérna og er alltaf vel tek- ið. Ég verð alltaf að koma aftur og deila gleðinni við að vera hér með öðrum.“ Gudveig kom fyrst hingað til lands 1991 og fór á norrænt móð- urmálskennaranámskeið í Reyk- holti. Þar hitti hún Sigurrós Er- lingsdóttur, kennara í Menntaskólanum við Sund. Þetta leiddi til fyrstu ferðar Gudveigar með hóp nemenda árið 1992, en þá kom hún með hóp sextán unglinga. Síðan hefur hún komið alls sex sinnum með hóp norskra nemenda, og komast færri en vilja í ferð- irnar. Krakkarnir sem koma eru yf- irleitt á þriðja og síðasta ári í menntaskóla, og eru átján og nítján ára. Yfirleitt um tuttugu nemendur í hverri ferð og því læt- ur nærri að Gudveig hafi komið með 120 nemendur hingað til lands. „Þetta er gott upphaf að síð- asta árinu,“ segir Gudveig, en krakkarnir læra meðal annars um íslenskar fornbókmenntir á síðasta árinu og lesa eitthvað af texta eins og hann var skrifaður fyrr á öld- um. Ferðirnar eru því vel til þess fallnar að auka áhuga þeirra á þessu námi og eru Íslandsferðirnar mjög vinsælar hjá krökkunum, jafnvel þótt þær séu dýrar og keppi við ferðir til Spánar og Írlands. Reykholt einn af hápunktunum Dagskráin hér á landi er orðin nokkuð hefðbundin. „Einn af há- punktunum er alltaf ferðin í Reyk- holt, til séra Geirs Waage.“ Einnig fór hópurinn að skoða Þingvelli, Gullfoss og Geysi, auk þess að skoða hand- ritin og fara í Árbæj- arsafn. „Við reynum að sameina náttúru og sögu í þessum skoð- unarferðum. Krakk- arnir voru mjög ánægð með að fá að skoða upprunalegu handritin. Þau voru hneyksluð á því að hluti Heimskringlu væri geymdur í Sví- þjóð, enda Heims- kringla skrifuð af Ís- lendingi um meðal annars norska kon- unga.“ Gudveig segist vona að ferðirnar hingað styrki norræn samskipti og fái ung- menni til að íhuga þessi gömlu tengsl landanna. „Mér finnst mjög mikilvægt að viðhalda og styrkja böndin milli Norð- urlandaþjóðanna, við erum svo lítil í þess- um stóra heimi að það er miklilvægara en oft áður að tengjast styrkum böndum.“ „Ísland virkar eins og segull“ Morgunblaðið/Sverrir Norsku menntaskólanemendurnir frá Osló unnu verkefni með íslenskum nemum í Menntaskólanum við Sund og fóru auk þess víða um. Gudveig H. Aaby
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.