Morgunblaðið - 31.08.2003, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 31.08.2003, Blaðsíða 46
DAGBÓK 46 SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Skemmdar kartöflur KARTÖFLURNAR sem verið er að selja í búðunum eru víða óætar. Þær eru næstum svartar að utan og blautar og búið að eyði- leggja á þeim hýðið. Það er hægt að borða kartöflurnar ef þær eru keyptar um leið og þær koma í búðirnar og soðnar strax. En þær geymast ekki í nokkra daga, þá eru þær orðnar svartar og linar. Er ekki hægt að þurrka kartöflurn- ar með moldinni? Þá hryn- ur hún af og kartöflurnar eru næstum hreinar og geymast þá mikið betur. Það á ekki að þvo kartöfl- urnar. Kartöflubændur, hættið að eyðileggja kart- öflurnar. Ein sem vill borða góðar kartöflur. Gott þvottaefni ÉG hef reynt mörg þvotta- efni en aldrei verið ánægð- ur þar til ég keypti Mara- þon Extra frá Frigg. Þetta þvottaefni leysir upp svita og önnur óhreinindi miklu betur en önnur þvottaefni sem ég hef reynt og get ég því hiklaust mælt með því. Það er að auki umhverfis- vænt eins og vera ber í nú- tímaþjóðfélagi. Umhverfisvænar vörur eru oft miklu betri og hvet ég alla til að velja umhverf- isvænar vörur. Daníel Geir. Tapað/fundið Tuskudúkkustrákur týndur WALDORF tuskudúkku- strákur týndist í Mos- fellsbæ nálægt golfvellin- um og er hans sárt saknað af eiganda sínum. Finnandi eða sá sem getur gefið upp- lýsingar vinsamlega hringi í síma 555-4968 eða 823- 8829. Fundarlaun. Lyklar í óskilum HJÁ Reyni bakara á Dal- vegi 4 er mikið magn af lyklum í óskilum, bæði hús- lyklar og bíllyklar. Upplýs- ingar á staðnum og í síma 564 4700. Lyklakippa týndist LYKLAKIPPA, stór hringur með mörgum lykl- um, týndist sl. miðvikudag. Skilvís finnandi hafi sam- band í síma 821 2357. Hvítt hjól í óskilum HVÍTT DBS stúlknahjól var skilið eftir við Arn- arsmára í Kópavogi. Upp- lýsingar í síma 564 2522. Kvenúr týndist KVENÚR týndist föstu- daginn 22. ágúst, annað hvort við Fjarðarkaup eða í Mosfellsbæ. Skilvís finn- andi hafi samband í síma 553 6904. Dýrahald Tanja er týnd TANJA hvarf frá heimili sínu á Hofteigi í Laugar- neshverfi fyrir nokkrum dögum. Hún hefur aldrei verið úti meira en nokkra tíma í einu. Tanja er 9 mán- aða læða, smávaxin og grönn. Hún er ljúf og mannelsk. Hún er dökk brúnbröndótt, með svarta línu á hryggnum, hvítum sokkum á afturfótum, bleika og svarta þófa á aft- urfótunum en bara svarta þófa á framfótum. Hún er með brún augu. Þegar hún hvarf var hún með svarta hálsól með rauðu merki, þar sem fram kemur nafn hennar, heimilisfang og sími. Íbúar í Teigunum eru beðnir um að aðgæta hvort hún gæti hafa lokast inni í bílskúr eða geymslu. Ef einhver þekkir til ferða Tönju, er viðkomandi beð- inn að að láta okkur vita sem allra allra fyrst í síma 896 0475 eða með því að senda tölvupóst á jvr1@torg.is Læða í óskilum LÆÐAN á myndinni fannst við Bjargarstíg 18. þ.m. Hún er ljúf og blíð, eyrnamerkt en það er ógreinilegt. Hún er með far eftir ól. Hún er í öllum lit- um, aðallega brún með bröndum. Sá sem saknar læðunnar er beðinn um að hafa samband í síma 551 0539 eða í Kattholt. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Víkverji skrifar... SKÓLARNIR eru nú byrjaðirmeð öllu sem því fylgir. Sonur Víkverja er í Hlíðaskóla og er mikil ánægja með þann skóla á heimili Víkverja. Það er þó ekki annað hægt en kvarta yfir því ástandi sem er í skól- anum vegna framkvæmda sem hafa dregist á langinn. Þegar sonur Vík- verja mætti í skólann á mánudaginn var ekki tafla í skólastofunni og raf- magnstöflur og dósir á göngum voru aðeins með plasti yfir þar sem öllum frágangi á þeim er enn ólokið. Víkverji gerir sér grein fyrir því að allir leggjast nú á eitt til að klára sem fyrst allan frágang svo skóla- starf geti orðið eðlilegt en samt er ekki hægt að komast hjá því að spyrja af hverju meira kapp var ekki lagt á að klára framkvæmd- irnar á réttum tíma. Átti kannski aldrei að vera búið að klára skólann áður en hann byrjaði? Ef það er málið, er það jafnfráleitt og hitt að tímatakmörk hafi ekki staðist. x x x KRAKKARNIR í Hlíðaskóla hafabeðið lengi eftir mötuneyti. Nú er húsnæðið tilbúið að mestu en þó verður ekki boðið upp á heitan mat í hádeginu fyrr en eftir „nokkrar“ vikur eins og stóð í bréfi sem for- eldrar fengu heim. Þetta finnst Vík- verja ekki gott, sérstaklega af því að upphaflega stóð til að mötuneytið yrði tilbúið fyrir ári! Allir virðast vera tilbúnir að verja tíma og fjármunum í að ljúka vega- framkvæmdum og brúarsmíð á rétt- um tíma en annað virðist greinilega eiga við þegar kemur að skóla- húsnæði. x x x VÍKVERJI lét skólabókaverð-stríðið lítið á sig fá og keypti skóladót fyrir soninn í Pennanum í Kringunni eins og hann er vanur. Víkverji sá að ýmislegt hefði verið ódýrara að kaupa í öðrum búðum en Kringlan er í hverfi Víkverja og þegar ferðakostnaður við að fara í búðir annars staðar í bænum er tek- inn með í reikninginn yrði hagn- aðurinn af því að versla annars stað- ar farinn. x x x SENDIHERRAR Íslands fund-uðu hér í vikunni. Þeir stilltu sér upp fyrir ljósmyndara Morg- unblaðsins og í blaðinu á þriðjudag mátti líta allan hópinn. Það er auð- vitað eftirtektarvert að aðeins ein kona var í þeirra hópi. Hver er skýringin á því? Er hefðin fyrir karlmönnum í sendiherrastöðum enn svona sterk? Ætli engar hug- myndir séu uppi um að reyna að bæta úr þessu? Víkverji dagsins er algjörlega á móti kynjakvótum en finnst skammarlegt að sjá ekki fleiri konur í hópi íslenskra sendiherra. Morgunblaðið/Arnaldur Föngulegur hópur sendiherra en aðeins ein kona er meðal þeirra! MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Sel- foss kemur í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Polar Siglir og Eld- borg koma í dag. Ark- low Dusk fer í dag. Mannamót Aflagrandi 40 versl- unarferð í Hagkaup Skeifunni 3. september kl.10. Guðþjónusta, Kirkjuferð Fíladelfíu 3. september kl. 14 frá Aflagranda, ferðin er í boði ellimálaráðs þjóð- kirkjunar lögreglukór- inn syngur, Geir Jón Þórisson prédikar, kaffiveitingar. Bólstaðarhlíð 43. Söngurinn byrjar á morgun kl. 13.30 stjórnandi Kristjana Höskuldsdóttir Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Dansleikur í kvöld kl. 20. Caprí-tríó leikur fyrir dansi.s. 588 2111. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Billj- ardsalurinn er opinn alla virka daga frá 13.30–16. Félag eldri borgar Garðabæ. Haustferð félagsins verður farin miðvikudaginn 3. sept- ember, farið verður í Grundarfjörð. Upplýs- ingar í s. 565 6026 Guð- björg eða 565 7367 Ólöf. Gjábakki, Fannborg 8. Leikfimin hefst þriðju- daginn 2. september, kennt verður í tveimur hópum kl. 9.05 og kl. 9.55. Vesturgata 7. Kóræf- ingar byrja mánudag- inn 8. september kl.13– 16, einnig verða æfing- ar á fimmtudögum kl.13–16. Kórstjóri Sig- urbjörg Petra Hólm- grímsdóttir. Nýir kór- félagar velkomnir. Skinnasaumur byrjar þriðjudaginn 16. sept- ember kl. 9.15–12. Leiðbeinandi Kristjana Möller, takmarkaður fjöldi á námskeiðið. Upplýsingar og skrán- ing í síma 562 7077. Minningarkort Stóra- Laugardalssóknar, Tálknafirði til styrktar kirkjubyggingarsjóði nýrrar kirkju í Tálkna- firði eru afgreidd í síma 456-2700. Minningarspjöld Frí- kirkjunnar í Hafn- arfirði fást í Bókabúð Böðvars, Pennanum í Hafnarfirði og Blóma- búðinni Burkna. Minningakort Ás- kirkju eru seld á eft- irtöldum stöðum: Kirkjushúsinu Lauga- vegi 31, þjónustu- íbúðum aldraðra við Dalbraut, Norðurbrún 1, Apótekinu Glæsibæ og Áskirkju Vestur- brún 30 sími 588-8870. KFUM og KFUK og Samband íslenskra kristniboða. Minning- arkort félaganna eru afgreidd á skrifstof- unni, Holtavegi 28 í s. 588-8899 milli kl. 10 og 17 alla virka daga. Gíró- og kredit- kortaþjónusta. Samúðar- og heilla- óskakort Gídeon- félagsins er að finna í anddyrum eða safn- aðarheimilum flestra kirkna á landinu, í Kirkjuhúsinu, á skrif- stofu KFUM&K og víðar. Þau eru einnig afgreidd á skrifstofu Gídeonfélagsins, Vest- urgötu 40, virka daga frá kl. 14–16 eða í síma 562 1870. Allur ágóði fer til kaupa á Nýja testamentum sem gef- in verða 10 ára skóla- börnum eða komið fyr- ir á sjúkrahúsum, hjúkrunarheimilum, hótelum, fangelsum og víðar. Minningarkort Graf- arvogskirkju. Minningarkort Graf- arvogskirkju eru til sölu í kirkjunni í síma 587 9070 eða 587 9080. Einnig er hægt að nálgast kortin í Kirkju- húsinu, Laugavegi 31. Minningarkort Hjarta- verndar, fást á eftir- töldum stöðum í Reykjavík: Skrifstofu Hjartaverndar, Holta- smári 1, 201 Kópavogi, s. 535-1825. Gíró og greiðslukort. Dval- arheimili aldraðra Lönguhlíð, Garðs Apó- tek Sogavegi 108, Ár- bæjar Apótek Hraunbæ 102a, Bók- bær í Glæsibæ Álf- heimum 74, Kirkju- húsið Laugavegi 31, Bókabúðin Grímsbæ v/ Bústaðaveg, Bókabúð- in Embla Völvufelli 21, Bókabúð Grafarvogs, Hverafold 1-3. Minningarkort Hjarta- verndar, fást á eft- irtöldum stöðum á Reykjanesi: Kópavog- ur: Kópavogs Apótek, Hamraborg 11. Hafn- arfjörður: Lyfja, Set- bergi. Sparisjóðurinn, Strandgata 8–10, Keflavík: Apótek Keflavíkur, Suðurgötu 2, Landsbankinn Hafn- argötu 55–57. Minningarkort Hjarta- verndar fást á eft- irtöldum stöðum á Austurlandi: Egils- staðir: Gallery Ugla, Miðvangur 5. Eskifjörður: Póstur og s., Strandgötu 55. Höfn: Vilborg Einarsdóttir Hanar- braut 37. Í dag er sunnudagur 31. ágúst 243. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Og á þeim degi mun ég bænheyra, segir Drottinn. Ég mun bænheyra himininn, og hann mun bænheyra jörðina. (Hs. 2, 21.)     Andrés Magnússonblaðamaður fullyrðir í pistli á Strik.is að Ingi- björg Sólrún Gísladóttir njóti einskis traust meðal sjálfstæðismanna og framsóknarmenn og vinstrigrænir líti bara á hana sem ómerking og svikara eftir viðskiln- aðinn í R-listanum. „Auð- vitað eru margir stuðn- ingsmenn Samfylkingarinnar, sem líta á hana sem framtíð- arleiðtoga vegna kosn- ingasigranna í borginni, en það er eins og þeir steingleymi að þá vann hún með fulltingi fram- sóknarmanna, vinstri- grænna og óháðra. Miðað við kosningaúrslitin nú í vor er hins vegar ekkert sem bendir til þess að þeir séu ennþá ginnkeyptir fyrir henni.     Þegar við bætist aðfrjálslyndir eru þeir einu, sem kannski geta hugsað sér að vinna með henni, þá er erfitt að verj- ast þeirri hugsun að með Ingibjörgu Sólrúnu sem leiðtoga sé Samfylkingin að dæma sig til áhrifa- leysis. Það var varla markmiðið með stofnun hins stóra jafnaðar- mannaflokks. Ég er ekki frá því að margir Samfylkingar- menn séu farnir að hafa áhyggjur af því að vanda- málin við Ingibjörgu Sól- rúnu kunni að vera fleiri en kostirnir. Ég tók til dæmis eftir því að það var aðeins einn einasti þing- maður flokksins, sem vildi styðja hana til for- mannsframboðsins. Og þá hlýtur maður að spyrja sig hvernig á því standi, að því betur, sem menn þekkja hana, því síður virðast þeir treysta henni.“     Andrés segist ekki vitasvarið en hann grun- ar að það sé metorða- girnd Ingibjargar sem trufli fólk. „Við höfum ítrekað orðið vitni að því hvernig allt verður að víkja þegar persónulegur metnaður hennar er ann- ars vegar: loforð við kjós- endur jafnt sem pólitíska samherja, fjölskyldubönd rétt eins og kosninga- bandalög og þegar henni var stillt upp sem for- sætisráðherraefni voru stefnumálin látin lönd og leið, málefni kjördæm- anna skiptu engu við hlið- ina á þessum stórkostlega leiðtoga að sunnan og allt snerist um hið sögulega tækifæri að kona væri í fyrsta sinn forsætisráð- herraefni.“     Þessi sérkennilega per-sónudýrkun rímar illa við jafnaðarstefnuna. Hún snýst um hugsjónir en stendur ekki og fellur með einni manneskju. Fyrir nú utan það að þessi ofuráhersla á Ingibjörgu Sólrúnu stenst ekki skoð- un. Það kom greinilega í ljós í vor að hún vinnur enga kosningasigra nema með stuðningi annarra flokka og þeir dýrðar- dagar eru að baki,“ segir Andrés Magnússon. STAKSTEINAR Samfylkingin dæmir sig til áhrifaleysis LÁRÉTT 1 rödd, 4 lítilfjörlega per- sónu, 7 stúfur, 8 ull, 9 brugðningur á vettlingi, 11 ástundun, 13 drepa, 14 pinna, 15 bráðum, 17 góðgæti, 20 sitt á hvað, 22 hamingja, 23 af- kvæmi, 24 heimskingjar, 25 happið. LÓÐRÉTT 1 refur, 2 kvendýrið, 3 torskilinn texti, 4 raup, 5 snáða, 6 skilja eftir, 10 mannsnafn, 12 greinir, 13 hryggur, 15 láta af hendi, 16 ber, 18 nið- urgangurinn, 19 rituð, 20 skordýr, 21 ílát. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 andsnúinn, 8 hopar, 9 punds, 10 tíu, 11 grafi, 13 róaði, 15 garns, 18 strák, 21 kóp, 22 falla, 23 aggan, 24 harðýðgin. Lóðrétt: 2 nepja, 3 sorti 4 úlpur, 5 nunna, 6 óhæg, 7 asni, 12 fín, 14 ótt, 15 Gefn, 16 rella, 17 skarð, 18 sparð, 19 rugli, 20 kunn. Krossgáta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.