Morgunblaðið - 31.08.2003, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 31.08.2003, Blaðsíða 50
FÓLK Í FRÉTTUM 50 SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ IÐNÓ fim, 4. sept kl. 21, opnunarsýning, örfá sæti, sun 21. sept kl. 21, lau 27. sept kl. 21. Félagsheimilið Hnífsdal,Ísafirði lau 13. sept kl. 21. Miðasölusími í IÐNÓ 562 9700 og sellofon@mmedia.is Gríman 2003 "..Besta leiksýning," að mati áhorfenda Stóra svið LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren forsala aðgöngumiða er hafin Forsýning lau 13/9 kl 14 - UPPSELT FRUMSÝNING su 14/9 kl 14 Lau 20/9 kl 14,Su 21/9 kl 14. Lau 27/9 kl 14 Su 28/9 kl 14, Lau 4/10 kl 14, Su 5/10 kl 14 ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield Lau 13/9 kl 20, Lau 20/9 kl 20 KVETCH e. Steven Berkoff Mi 3/9 kl 20 UPPSELT, Fi 4/9 kl 20, - UPPSELT Fö 5/9 kl 20 - UPPSELT Mi 10/9 kl 20,Fi 11/9 kl 20,Fö 12/9 kl 20 Aðeins þessar aukasýningar Nýja sviðið NÚTÍMADANSHÁTÍÐ - Sex danshöfundar frumflytja sex sólódansa Lau 6/9 kl 20 Su 7/9 kl 20 Lau 13/9 kl 20 Su 14/9 kl 20 SUMARÓPERAN - POPPEA Í kvöld kl 20 - Síðasta sýning RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT og ÍD Í kvöld kl 20 Lau 6/9 kl 20, Su 7/9 kl 20 Litla sviðið Endurnýjun áskriftarkorta er hafin. Sex sýningar: Þrjár á Stóra sviði, og þrjár aðrar að eigin vali. kr. 9.900 VERTU MEÐ Í VETUR Miðasala: 568 8000 Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN „Dagur án hláturs er ónýtur dagur“ SJÁ BLS. 10 Í ÁRSBÆKLINGI SINFÓNÍUNNAR SEM FYLGIR MORGUNBLAÐINU Í DAG Þriðjudagur 2. sept. kl. 20 Bjarni Þór og félagar leika vinsæl dægurlög, sem fjalla um ástina í hinum ýmsu myndum. Sunnudagur 7. sept. kl. 20. TÍBRÁ: OPNUNARTÓNLEIKAR Liederkreis og Kernerljóð Schumanns. Kristinn Sigmundsson og Jónas Ingimundarson. Miðvikudagur 10. sept. kl. 20 TÍBRÁ: Píanótónleikar, debut. Beethoven, Bartók og Chopin. Ástríður Alda Sigurðardóttir. Sunnudagur 14. sept. kl. 20. TÍBRÁ: Fagra veröld, hvar ertu þú? Schubert í tali og tónum. Söngkvartettinn „Voces wien“ og Jónas Ingimundarson. TÓNLEIKASKRÁIN ER KOMIN ÚT MIÐASALA HEFST 1. SEPT 2003 OPIN VIRKA DAGA 9-16 28. SÝNING SUNNUDAGINN 31/8 - KL. 16 UPPSELT 29. SÝNING SUNNUDAGINN 31/8 - KL. 20 UPPSELT 30. SÝNING FÖSTUDAGINN 5/9 - KL. 20 UPPSELT AUKASÝNING LAUGARDAGINN 6/9 - KL. 15 LAUS SÆTI 31. og 32 SÝNING SUNNUDAGINN 7/9 - KL. 16 og 20 UPPSELT 33. SÝNING FÖSTUDAGINN 12/9 - KL. 20 LAUS SÆTI 34. SÝNING SUNNUDAGINN 14/9 - KL. 20 LAUS SÆTI ATHUGIÐ ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA! ÞAÐ VERÐUR seint sagt umNeil Young að hann hafiáhyggjur af því hvað öðrumfinnst um verk hans eins og hefur margsannast í gegnum árin. Frá því Young lét fyrst í sér heyra fyrir hartnær fjörutíu árum hefur hann hvað eftir annað látið innblást- urinn ráða og farið aðra leið en búast hefði mátt við væri tekið mið af plöt- unni á undan eða því sem hæst bar á hverjum tíma. Þannig varð frægt er David Geffen, útgefandi Youngs frá 1983 til 87, sagði um plötu sem Young skilaði inn til útgáfu að hún væri ekki nógu söluleg og fékk það svar að lögin hefðu bara skilað sér þannig og ekk- ert við því að gera. Ekki hafa allar til- raunir hans heppnast eins vel, en skiptir ekki svo ýkja miklu; það er ekki annað hægt en að bera virðingu fyrir tónlistarmanni sem gerir eins og honum sýnist, þeir eru ekki svo margir. Þó að menn hafi verið ýmsu vanir frá Neil Young þótti tónleikaferð hans á síðasta ári og fram á þetta ár venju fremur sérkennileg og, að því mörgum fannst, gremjuleg. Í stað þess að fá hálfan annan tíma af göml- um sígildum lögum og nokkrum nýj- um byrjuðu hverjir tónleikar á laus- tengdu klukkutíma lagasafni og illskiljanlegri frásögn Youngs milli laga. Lagabálkurinn sagði sögu af líf- inu smábænum Grænadal, Green- dale, og voveiflegum atburði sem olli straumhvörfum. Fyrir stuttu kom svo lagabálkurinn út á geisladisk, sem kallast vitanlega Greendale, og skipt- ist í tvö horn hvaða álit menn hafa á verkinu. Fjölskyldan í Grænadal Í Grænadal, sem er strandbær í Norður-Kaliforníu, býr Green- fjölskyldan, ættfaðirinn afi Green og amma, Earl og Edith Green og Sun dóttir þeirra og Jed frændi. Earl, Edith og Sun búa á EE búgarðinum, Double E, en Jed hjá afa sínum og ömmu í Grænadal. Green-fjölskyldan er hippafjölskylda, eins og kemur í ljós í fyrsta laginu, lifir einföldu lífi og trúir að ást sé allt sem þarf, hug- sjónafólk sem aldrei hefur þurft að hugsa út í hugsjónirnar frekar en aðrir gamli hippar. Allt virðist í lukkunnar velstandi, en undir ólgar óhamingjan eins og kemur í ljós þegar lögregluþjónninn Carmichael stoppar Jed skammt fyr- ir utan Grænadal fyrir of hraðan akstur og að vera á ljóslausum bíl. Svo fer að Jed, sem er með bílinn full- an af fíkniefnum, „hanskahólfið fullt af kókaíni, skottið fullt af grasi“, skýt- ur Carmichael nánast fyrir slysni og það veldur straumhvörfum í lífi Green-fjölskyldunnar, nema hvað, en á einnig eftir að hafa breytingar í för með sér í Grænadal. Þessi hörmulegi atburður og ásókn fjölmiðla gengur af afa Green dauð- um, Earl slær í gegn sem málari, í ljós kemur að Carmichael var ekki við eina fjölina felldur og Sun finnur köll- un sína sem baráttukona fyrir mann- réttindum og náttúrvernd, svo ötul reyndar að hún þarf að flýja bæinn vegna njósna FBI. Rétt utan sviðsins er svo djöfullinn sjálfur, sem Jed sá bregða fyrir í baksýnisspeglinum rétt áður en Carmichael stöðvaði hann og býr í fangelsinu, en Earl náði einmitt sambandi við listagyðjuna eftir að skolli hreinsaði gleraugu hans. Ruglingsleg saga Sagan er ruglingsleg og ekki merkileg í sjálfu sér, en hægt er að fá diskinn með DVD-disk aukreitis þar sem Young flytur lagabálkinn á tón- leikum og útskýrir söguna betur en hér er rakið aukinheldur sem ýtarleg- ur texti í bæklingi skýrir sumt en flækir annað. Young hefur áður lagt upp með mikið handrit að plötum, sjá til að mynda After the Goldrush sem byggðist að miklu leyti á kvikmynda- handriti og Trans, sem tengdist til- raunum hans til að ná sambandi við fatlaðan son sinn, en yfirleitt verður lítið úr eiginlegri sögu þegar kemur að því að taka upp og lögin taka að fara eigin leiðir. Í bæklingnum með Greendale kemur reyndar fram að þar sem Young sat og samdi hafi sitt- hvað átt sér stað í lögunum sem hann átti ekki von á, eins og morðið á Car- michael. Platan hefur verið kynnt sem tón- listarskáldsaga, væntanlega til að undirstrika hvað Young er að segja mikla sögu á diskinum og merkilega og í því ljósi er gaman að rekast á inn- skot eins og: „Ég er með nýtt lag að syngja / það er lengra en öll hin til samans og þýðir ekki neitt.“ Dæmisaga um glatað sakleysi Þrátt fyrir þessi orð er sagan af Greendale vitanlega dæmisaga. Eins og flest meiri háttar verk Youngs er hann að syngja um sjálfan sig, auð- velt er þannig að sjá hann í afanum, en hann er líka að fjalla um banda- rískt samfélag, um glatað sakleysi, ótta og óöryggi í kjölfar árásanna 11. september, og það hvernig lýðrétt- indi hafi verið skert vestan hafs í skjóli þess ótta. Þetta mátti glöggt sjá á tónleikaferð hans um Evrópu þar sem hann skreytti lög með myndum af John Ashcroft og Tom Ridge. Með- reiðarsveinar Youngs á Greendale eru liðsmenn rokksveitarinnar Crazy Horse, gamlir félagar hans; gítarleik- arinn og hljómborðsleikarinn Frank Sampedro, bassaleikarinn Billy Talbot og trommuleikarinn Ralph Molina. Lögin eru hægfara flest, seigfljótandi blúsgrunnað rokk skreytt með gítarsprettum þar sem sparlega er farið með nótur að hætti Youngs. Eitt lag stingur nokkuð í stúf, lagið Bandit – hápunktur plöt- unnar, þar sem Young dregur vonina upp úr hyldýpi vonleysis og uppgjafar þar sem Earl Green situr einn í hrörlegu mótelherbergi og horfist í augu við sjálfan sig, lag sem minnir á það besta sem hann hefur gert í gegnum tíðina um leið og það tengir þessa 28. plötu Neils Youngs við þær fyrstu sem hann sendi frá sér. Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson Lífið í Grænadal Neil Young hefur jafnan lítið hirt um það hvað öðrum finnst um verk hans. Það sannast enn og aftur á nýjustu skífu hans sem rekur sögu fólksins í Grænadal. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.