Morgunblaðið - 31.08.2003, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 31.08.2003, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 2003 47 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ Frances Drake MEYJA Afmælisbörn dagsins: Þið skarið gjarnan fram úr í því sem þið takið ykkur fyrir hendur og eruð því oft í sviðsljósinu. Komandi ár verður kraftmikið. Það eru líkur á að draumar ykkar rætist. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þið þurfið að huga að því hvernig þið getið deilt ein- hverju með öðrum. Hér er hugsanlega um eitthvað sem skiptir ykkur miklu máli að ræða. Naut (20. apríl - 20. maí)  Leggið ykkur fram um að koma til móts við aðra í dag. Þetta er nauðsynlegt þar sem tunglið er beint á móti merk- inu ykkar. Reynið að sýna ykkar bestu hliðar. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Dagurinn hentar vel til hrein- gerninga, skipulagningar og til kaupa á hreinlætisvörum. Þú hefur þörf fyrir að skipu- leggja þig. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Dagurinn ætti að verða ánægjulegur. Rómantík og daður geta lífgað upp á dag- inn en einnig er hugsanlegt að þið hittið nýtt og skemmti- legt fólk. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú þarft að ræða fjármál eða eignir við maka þinn eða aðra fjölskyldumeðlimi. Taktu af allan vafa um það hvað þú vilt. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Stutt ferðalög eða samræður við aðra munu gleðja þig í dag. Þú átt mikið verk fyrir höndum og vilt því koma sem mestu í verk. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Dagurinn hentar vel til inn- kaupa. Þið eruð staðföst og ættuð einnig að geta nýtt staðfestuna til fjáröflunar. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Tunglið er í merkinu þínu og það gerir þig orkumeiri og einarðari. Þú tekur eftir því að fólk hlustar á þig af óvenjumikilli athygli og virð- ingu. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Reynið að gefa ykkur svolít- inn tíma til að vera ein með sjálfum ykkur í dag. Þið þurf- ið á einverunni að halda til að hvíla hugann. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Vinkona þín gæti gefið þér góð ráð í dag. Það er margt að gerast og þú gætir þegið góð ráð. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Sýnið foreldrum ykkar og yf- irmönnum þolinmæði í dag. Samræður um verkaskipt- ingu og skyldur eru líklegar. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þið hafið þörf fyrir tilbreyt- ingu og ættuð því að bregða út af vananum og gera eitt- hvað óvenjulegt í dag. Farið á aðra staði en þið eruð vön. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. LITLA KVÆÐIÐ UM GIMBIL Lambið mitt litla lúrir úti í túni, - gimbillinn minn góði, gullhornum búni. Kringum okkur greri gras, grænt og frítt að líta. - Ég tók með honum í tjóðurbandið til þess að slíta. Gimbillinn minn góði, gullhornum búni, - ekki getur hann unað sér einsamall í túni. Jón Magnússon LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 70 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 31. ágúst, er sjötugur Hreinn Hjartarson, fyrrverandi prestur við Fella- og Hóla- kirkju í Reykjavík, Asp- arfelli 8. Eiginkona hans er Sigrún Ingibjörg Halldórs- dóttir. Þau eru að heiman á afmælisdaginn. SVÍINN Anders Morath er 59 ára gamall og fyrir löngu orðinn gráhærður. Sem væri ekki í frásögur fær- andi, nema fyrir það að háralitur Moraths er órjúf- anlegur hluti af bridssög- unni. Þegar Morath var ungur maður bjó hann til sagnkerfi sem er mikið notað í Svíþjóð og víðar, og byggist meðal annars á tvíræðri laufopnun. Á þeim árum var hárið á Morath á litinn eins og ný- þvegin gulrót og félagar hans sáu sér leik á borði og nefndu kerfið Gulrótarlaufið (Carrot Club). Þótt Morath sé orðinn grár fyrir hærum, er gló- kollurinn fyrrverandi enn í fullu fjöri við spilaborðið, eins og sjá má af tilþrifum hans í þessu spili frá Ment- on fyrr í sumar: Vestur gefur; allir á hættu. Norður ♠ Á ♥ ÁK62 ♦ Á63 ♣D10842 Vestur Austur ♠ 975 ♠ G1043 ♥ DG1097 ♥ 43 ♦ K105 ♦ 982 ♣96 ♣KG73 Suður ♠ KD862 ♥ 85 ♦ DG74 ♣Á5 Morath og makker hans Marten Gustawsson voru í AV, í vörn gegn þremur gröndum: Vestur Norður Austur Suður Pass 1 lauf Pass 1 spaði Pass 2 hjörtu Pass 3 grönd Pass Pass Pass Morath var í vestur og kom út með hjartadrottn- ingu. Sagnhafi tók fyrsta slaginn, lagði niður spaðaás- inn og spilaði svo tígli á drottninguna. Austur lét níuna (stök tala) og Morath dúkkaði án sýnilegrar um- hugsunar. Suður tók næst á spaða- hjónin og sendi austur inn á fjórða spaðann. Gustawsson svaraði makker í hjartanu og sagnhafi drap strax. Hann taldi víst að tígulásinn væri í austur og spilaði nú ásnum og meiri tígli. En þá komst Morath að til að taka þrjá slagi á hjarta. Einn nið- ur og 45 stig af 50 mögu- legum. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 Rf6 4. e5 Rfd7 5. Bd3 c5 6. c3 Rc6 7. Re2 cxd4 8. cxd4 f6 9. exf6 Rxf6 10. O-O Bd6 11. Rf3 Dc7 12. Rc3 a6 13. h3 O-O 14. Bg5 Bd7 15. He1 Hae8 16. Hc1 Bf4 17. Bxf4 Dxf4 18. Ra4 Re4 19. Rb6 Staðan kom upp á Norðurlandamóti taflfélaga á Netinu sem Taflfélagið Hell- ir stóð að og lauk fyrir skömmu. Em- anuel Berg (2495) hafði svart gegn Hannesi Hlífari Stefánssyni (2560). 19...Rxf2! við þetta hrynur hvíta staðan til grunna. 20. Kxf2 Dxd4+ 21. Kg3 Dxb6 22. Bxh7+ Kxh7 23. Rg5+ Kg6 24. h4 Df2+ 25. Kh3 e5+ og hvítur gafst upp. 8. umferð Skákþings Íslands hefst í dag kl. 13.00 í Hafnarborg í Hafnarfirði. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT Síðumúla 15, s. 5885711 og 6946103 Námskeið í YOGA Morguntímar, hádegistímar, síðdegistímar og kvöldtímar. Sértímar fyrir barnshafandi konur Leirmótun í Leirkrúsinni Áttunda starfsárið okkar að hefjast! • Handmótun byrjendur góður grunnur í leirmótun • Mótun á rennibekk spennandi framhald • Blöndun glerunga fyrir lengra komna • Rakú brennslur sérstök upplifun • Opið verkstæði hefst 8, september • Leirmótun með litlum höndum fyrir starfsfólk leikskóla Allar nánari upplýsingar á www.leir.is Leirkrúsin, Hákotsvör 9, Álftanesi. S: 564 0607.                     BRIDSSKÓLINN Byrjendur: Hefst 22. september og stendur yfir í 10 mánudagskvöld, þrjár klst. í senn, frá kl. 10-23. Framhald: Hefst 24. september og stendur yfir í 10 miðvikudagskvöld, þrjár klst. í senn, frá kl. 20-23. Brids er gefandi leikur í skemmtilegum félagsskap. Komdu í klúbbinn. Nánari upplýsingar og innritun í síma 564 4247 milli kl. 13 og 18 virka daga. Innritun hafin á haustnámskeið Til skjólstæðinga Heilsugæslunnar Efstaleiti Frá og með mánudeginum 1. september munu læknar stöðvarinnar hefja vaktþjónustu á eftirmiðdagsvakt, sem verður opin frá kl. 16—18 alla virka daga, mánudaga til föstudaga. Þetta er gert til að auka og bæta þjónustu við skjólstæðinga stöðvarinnar. Ekki þarf að panta tíma. Heilsugæslan Efstaleiti. Enskuskóli Erlu Ara auglýsir enskunám í Hafnarfirði Skráning stendur yfir í 891 7576 og erlaara@simnet.is Sjá nánar um starfsemi skólans á www.simnet.is/erlaara •áhersla á talmál •10 getustig • styrkt af starfsmenntasjóðum Nýjung: enska fyrir 12-15 ára Sumarið 2004 verður sem fyrr boðið upp á enskunám í Englandi 70 ÁRA og 50 ÁRA afmæli. Þriðjudaginn 2. septembernæstkomandi verða merk tímamót hjá þeim Kristínu Jakobsdóttur á Hauganesi og tengdasyni hennar, Felix Jós- afatssyni. Kristín verður sjötug og Felix fimmtugur. Af þessu tilefni verða þau með heitt á könnuni í Árskógi á af- mælisdaginn frá kl. 18 og vonast eftir að sem flestir sjái sér fært að koma í heimsókn. HLUTAVELTA ÞESSAR duglegu stúlkur héldu þrjár tombólur til styrktar Barnaspítala Hringsins og söfnuðu þær kr. 3.033. Þær vilja að börnin komist heim „heil á húfi“. Þær heita Jóhanna Jó- hannsdóttir, Margrét Jóhannsdóttir og Bryndís Hrönn Kristinsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.