Morgunblaðið - 31.08.2003, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 31.08.2003, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 2003 15 Nýjung á tryggingamarkaði! 15% aukalega í peningum! Breyttu kaskótryggingunni í Ný-kaskó gegn vægu viðbótariðgjaldi og þú færð 15% af viðgerðarkostnaðinum greidd út í peningum ef bíllinn þarf að fara á verkstæði vegna tjóns. Kynntu þér málið á www.sjova.is eða hafðu samband í síma 569 2500. ÓVISSAN er ríkur þáttur í lífi mannskepnunar, við það verður lítt ráðið - og gildir þá einu hvort menn eru ríkir eða fátækir, ungir eða gamlir. Menn þola óvissuþáttinn í tilveru sinni misvel.Sumir eiga bágt með að sofa vegna óvissu lífsins en þeir eru líka til sem nærast á spenn- unni og gera sér jafnvel far um að auka óvissuna með alls kyns aðgerð- um. Eitt af því sem fólk grípur til í því skyni að auka óvissuna í lífi sínu er að fara í svokall- aðar óvissuferðir. Ég þekki unga konu sem er mjög snokin fyrir óvissuferðum, hún er þó ekki að sækjast mjög mikið eftir því að fara sjálf í ferðir sem hún veit ekkert um heldur hefur hún afar gaman af að koma manni sínum á óvart með óvissuferðum. Maðurinn lét sér þetta sæmilega lynda í fyrstu. En svo var það eitt sinn að konan ákvað að bjóða eiginmanni sínum í sumarbústað en lét hann auðvitað ekkert vita áður hvað í vændum var. Hún bað vin hans að koma honum í rútu sem færi á ákveðinn stað, ekki mjög langt frá höfuðborgarsvæðinu, undir því yf- irskyni að þetta væri nauðsynlegt að gera vegna vinnunnar. Vinurinn fór samviskusamlega með eigin- manninn í rútuna og var sá síðar- nefndi eitt spurningarmerki, vildi fá að vita hvert verkefnið væri, en fékk þær skýringar að málin myndu skýrast á áfangastað og þar yrði tekið á móti honum. Eiginmaðurinn sat svo hugsandi á leiðinni um það sem gerast myndi þegar bílferðinni lyki. En á meðan var unga konan á leiðinni á áfangastaðinn í bíl þeirra hjóna. Vill þá svo illa til að bíllinn bilar og hún var símalaus þegar til átti að taka. Það koma að vísu ekki að sök hvað eiginmann hennar varð- aði, hann var heldur ekki með síma. Hins vegar tafði þetta hana í bið eft- ir hjálp. Ekki vantaði að góðviljaður maður gerði stans á leið sinni til að stumra yfir bílnum en honum vildi ekki batna og varð loks að draga hann heim að bæ einum og þar komst konan loks í síma. Á meðan þessu vatt fram geystist rútan áfram með eiginmanninn og var hann fyrr en varði kominn á áfangastað. Fór hann nú eftirvæntingarfullur út úr rútunni og hlakkaði til að kom- ast að hvert verkefni hans væri.En það skýrðist lítið svo ekki sé meira sagt. Þvert á móti varð spurning- armerkið í huga mannsins enn stærra. Enginn kom til að taka á móti honum og rútan hélt sína leið. Eftir stóð maðurinn órólegur og orðinn nokkuð kvíðandi um framtíð sína þar sem hann var peningalaus með öllu, símalaus sem fyrr gat og þreyttur eftir langan vinnudag. Gekk hann síðan fram og aftur um þorpið í heila klukkustund, þar til kona hans hafði loks komist í síma og gat fengið afgreiðslustúlku í sjoppu í þorpinu sem eiginmað- urinn var staddur í til þess að fara og svipast um eftir honum. Stúlkan bar kennsl á manninn, bæði af lýs- ingu á fötum hans og ekki síður af hinu órólega látbragði. Þar sem bíll þeirra hjóna var illa bilaður var ekki um annað að gera fyrir eiginmanninn en að reyna að „húkka“ sér far í bæinn aftur og tókst það loks hjá bensínstöðinni í þorpinu. Þegar heim kom bað eig- inmaðurinn konu sína þess lengstra orða að skipuleggja ekki fleiri óvissuferðir. Konan stóð við loforð sitt um að efna ekki til fleiri óvissuferða í tvö ár en þá stóðst hún ekki mátið leng- ur og lét til skarar skríða á ný. Í þetta sinn réðst hún ekki á garðinn þar sem hann var lægstur. Hún ákvað að fara nú með eiginmanninn í óvissuferð til útlanda á stað sem hann hafði lengi óskað sér að heim- sækja. Hún keypti farmiða, fékk frí fyrir manninn í vinnunni, ræddi við fótboltafélaga hans um að hafa ekki æfingar næstu vikuna, kom börn- unum fyrir, pakkaði með leynd og því næst rann upp brottfarardag- urinn. Eftir að konan hafði laumast til að koma börnunum í pössun og sinna öðrum undirbúningi var hún orðin allt of sein og svo utan við sig að hún læsti inni húslykilinn og bak- pokann með vegabréfum og öðrum nauðsynjum til ferðalagsins. Eiginmaðurinn stundi þungan og nöldraði yfir því að ekki lægi mikið á að ná í þennan poka, það gerði svo sem ekkert til að fara nestislaus í stuttan bíltúr á Suðurnesin – en það hélt hann að væri í bígerð. En pok- ann sótti hann eigi að síður og af stað var haldið. Manninum fannst konan aka óþarflega hratt á Kefla- víkurveginum. „Veistu ekki að það er mikil slysahætta á þessum vegi, á ég ekki heldur að keyra?“ sagði hann og hélt sér fast í hurðarhand- fangið. Konan gegndi engu heldur jók hraðann sem mest hún mátti – hvað sem maðurinn sagði. Rétt í þann mund sem flugvélin sem flytja átti þau til útlanda var að leggja af stað renndu þau í hlað í Leifsstöð – þá var maðurinn orðinn æði fölur á vangann og líka grunsemdafullur á svip. „Þó ekki óvissuferð?“ sagði hann þegar hann sté út úr bílnum. „Jú,“ svaraði konan og brosti sig- urglöð yfir að hafa náð í tæka tíð út á völlinn. „Þú varst búin að lofa að efna ekki til fleiri slíka ferða,“ sagði maðurinn þreytulega. „Já, en nú ætla ég að bjóða þér til útlanda,“ svaraði konan. Þegar maðurinn heyrði hvert ferðinni væri heitið og sá að flugvélin var ekki farin á undan þeim fékk konan loks umbun alls erfiðis síns. Mað- urinn útnefndi hana í snarhasti „eiginkonu ársins“ og síðan hlupu þau út í vélina og flugu á vit æv- intýranna, bæði harla glöð í bragði. Þessi saga endaði sem sagt vel og sýnir glöggt að með svona aðferðum er hægt að auka mjög spennuna í lífi sínu. En svona tiltæki henta kannski ekki öllum – í það minnsta ekki þeim sem erfitt eiga með svefn vegna óvissunnar sem lífið er stöð- ugt að fitja upp á. ÞJÓÐLÍFSÞANKAR/Er spennan ekki nógu mikil? Í óvissuferð Eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur. Mikið úrval af fallegum rúmfatnaði Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050 mbl.is VIÐSKIPTI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.