Morgunblaðið - 31.08.2003, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 31.08.2003, Blaðsíða 54
54 SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ KRAKKARNIR eru að vaxa úr grasi og Jim og Michelle eru að fara að gifta sig. Ýmislegt hefur breyst en Stifler er samur við sig og pabbi Jim stendur eins og klettur við hlið sonar síns, eða allavega eins og stór steinn, sem er hægt að styðja sig við. Hann er fús til að gefa góð ráð til sonar síns og tilvonandi tengdadóttur en á það til að veita of miklar upplýsingar í leiðinni um samband sitt og móður Jim. Eugene Levy leikur pabba Jim á jafnskemmtilegan hátt í þessari þriðju Bandarísku böku-mynd (Am- erican Pie) eins og hann gerði í hin- um tveimur. Í Bandarísku brúðkaupi (American Wedding) nær hann að sýna á sér nýjar hliðar enda segist hann hafa náð að kynnast hinum krökkunum betur. Þegar Morgunblaðið ræddi við hann var hann staddur í London að kynna myndina í hitabylgjunni, sem reið yfir Evrópu fyrr í sumar. Það léttist á honum brúnin þegar hann heyrir af stigunum fimmtán í ís- lenska sumrinu. „Það líkar mér,“ segir Levy, sem er hvorki óvanur hita né kulda því hann er ekki búsett- ur í Englaborginni heldur í Toronto í Kanada. En hvað fékk Levy til að fallast á að taka þátt í þriðju myndinni? „Það eina sem ég spurði að var hvort Adam Herz skrifaði handritið,“ segir hann en Herz er höfundur persón- anna og handrita fyrri myndanna. Svarið var já og Levy var til í slaginn. „Hann gerir þetta svo vel og hefur svo góða tilfinningu fyrir persónun- um,“ segir hann. Eins og ættarmót Levy segir að hann hafi haft mjög gaman af því að gera myndina. „Ekki síst vegna þess að mér þykir svo vænt um þessa krakka. Mér finnst gaman að vinna með þeim og fylgjast með þeim. Þegar við hittumst á ný við gerð þriðju myndarinnar þá var þetta eins og ættarmót.“ Hann fékk líka tækifæri til að leika á móti fleiri persónum. Í fyrstu tveimur myndunum þá vann ég ein- göngu með Jason [Biggs sem leikur Jim],“ segir hann. Brúðkaupið heillaði líka. „Þriðja myndin hefði í raun getað verið sú ósmekklegasta og grófasta en róm- antíkin í kringum brúðkaupið kemur í veg fyrir það,“ segir hann en þriðja myndin hefur fengið ágæta dóma, öf- ugt við það sem oft gerist með fram- haldsmyndir.„Brúðkaupsatriðið hreyfir við manni og það er ekki síst út af því að við erum búin að kynnast persónunum svo vel því þetta er jú þriðja myndin.“ Fjölskylduandinn svífur yfir vötn- Ein stór fjölskylda Hann er skilningsríkur en fer stundum yfir mörk þess sem eðlilegt er að segja við barnið sitt. Inga Rún Sigurðar- dóttir ræddi við Eugene Levy, sem leikur góðhjartaða föð- urinn í Bandarísku brúðkaupi. Kannast þú við Stifler, Finch eða Jim í þínum vinahópi? LEIKKONAN Cameron Diaz er orðin tekjuhæsta leikkona í Holly- wood en hún mun hafa unnið sér inn andvirði tæplega fjögurra milljarða íslenskra króna á síðast- liðnu ári. Diaz er þar með orðin tekjuhærri en Julia Roberts sem að undanförnu hefur verið tekju- hæsta konan í Hollywood. Diaz og Roberts eru einu konurnar sem hafa fengið meira en tvo milljarða fyrir að leika í kvikmynd. Diaz, sem varð 31 árs í gær, vakti fyrst heimsathygli í myndinni Það er eitthvað við Mary frá árinu 1998 en að undanförnu hefur hún m.a. sést í Englum Kalla og Gengjunum í New York þar sem hún lék á móti Leonardo Di- Caprio. FÓLK Ífréttum Miðaverð 500 kr. Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal. Ofurskutlan Angelina Jolie er mætt aftur öflugri en nokkru sinni fyrr í svakalegustu hasarmynd sumarsins! Sýnd kl. 3.50 og 8. Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.20. B.i.12. Sýnd kl. 10.10. FRUMSÝNING Ef þú gætir verið Guð í eina viku, hvað myndir þú gera? HUGSAÐU STÓRT Sýnd kl. 4. EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14. Miðasala opnar kl. 13.30 Kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12. Kl. 3, 5.30, 8 og Powersýning 10.30. B.i. 16. Forsýning kl. 2. Með íslensku tali. Sýnd kl. 2, 4 og 6. Ísl. tal. Miðaverð 500 kr. Frá leikstjóra Trainspotting kemur hið magnaða meistaraverk 28 Days Later. Missið ekki af þessum frábæra framtíðartrylli.  HK DV  Kvikmyndir.com Einn sá allra besti hryllingur sem sést hefur í bíó síðustu misserin." Þ.Þ. FBL. POWE R SÝNIN G KL. 10 .30. I . . . POWE R SÝNIN G KL. 10 .15. I . . . Ef þú gætir verið Guð í eina viku, hvað myndir þú gera? kl. 3, 5.30, 8 og 10.20. J I M C A R R E Y Mestu illmenni kvikmynda- sögunnar mætast í bardaga upp á líf og dauða. VINSÆLASTA MYNDIN Í USA TVÆR VIKUR Á TOPPNUM Kl. 5.45, 8 og Powersýning kl. 10.15. B.i. 16. Barnapössun hefur aldrei verið svona fyndin! Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Fjölskyldumynd ársins! ATH. Eingöngu í Lúxus SV MBL Ein besta mynd ársins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.