Morgunblaðið - 31.08.2003, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 31.08.2003, Blaðsíða 33
SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 2003 33 Jón Hólm Stefánsson, sími 896 4761. Ef þú þarft að selja eða kaupa bújörð hvar á landi sem er hafðu þá endilega samband við okkar mann, Jón Hólm bónda, sem aðstoðar þig með bros á vör. Bújarðir Laufás, Sóltúni 26, 105 Reykjavík – Þjónusta og öryggi í 30 ár laufas@laufas.is – www.laufas.is – sími 533 1111 – fax 533 1115. Íris Hall löggiltur fasteignsali. Opið hús Reykás 29 3. hæð 110 Reykjavík Falleg 140,5 fm rúmgóð íbúð á 3. hæð á þessum vinsæla stað. Á neðri hæð er stórt hol, stofa, borðstofa, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og þvottahús. Á efri hæð er stórt sjónvarpshol og tvö herbergi. Parkett og flísar á gólfum. Þakgluggar sem gefa góða birtu.Sameiginleg hjóla- geymsla. Geymsla í kjallara. 23,6 fm bílskúr fylgir með. Topp eign á góðum stað með miklu útsýni. Opið hús í dag frá kl. 14 til 16. Sigríður og Viðar sýna eignina, Jón Pétursson, fasteignaráðgjafi verður á staðnum. Áhvíl. 8,5 m. Verð 19,6 m. www.hofdi.is Runólfur Gunnlaugsson, viðskiptafræðingur, löggiltur fasteigna- og skipasali. Suðurlandsbraut 20 Sími 533 6050 Bæjarhrauni 22 Sími 565 8000 Smáralind - 1. hæð Sími 565 8000 Opið hús í dag á milli kl. 14 og 16 Ásholt 2, íbúð 205 Í dag býðst þér og þínum að skoða þessa fallegu 50 fm 2ja herbergja íbúð sem er á 5. hæð í vönduðu lyftuhúsi í miðbænum. Frábært útsýni. Húsvörður er í húsinu. Rúmgóðar svalir með miklu útsýni. Laus fljótlega. Stæði í bílageymslu fylgir að auki. Verð 10,5 millj. (3160) Hef verið beðinn um að finna raðhús, parhús eða einbýli í Grafarvogi fyrir ákveðinn kaupanda. Góðar greiðslur eru í boði fyrir rétta eign. Áhugasamir hafi samband við Ásmund Skeggjason á Höfða s: 565 8000. Ása tekur vel á móti ykkur. Grafarvogur Suðurlandsbraut 54 við Faxafen, 108 Reykjavík. Sími 568 2444, fax 568 2446. Ingileifur Einarsson lögg. fasteignasali. Til leigu mjög gott 200 fm iðnaðar- húsnæði með mikilli lofthæð og stór- um innkeyrsludyrum og 81 fm skrif- stofuhúsnæði í útbyggingu. Mjög góð malbikuð lóð. LAUS STRAX. Hamarshöfði Til leigu 300 til 600 fm gott skrif- stofuhúsnæði á 2. hæð og 130 fm lagerhúsnæði með innkeyrsludyrum í kjallara. Skrifstofuhúsnæðið leigist í einu eða tvennu lagi. Mjög góð sam- eign, tvær lyftur, innangengt er í kjall- ara. Næg bílastæði, frábær staðsetn- ing í hinu nýja stofnanahverfi Reykja- víkur. Til afhendingar strax. Tilv. 15114 Borgartún 33 Til sölu eða leigu mjög vel staðsett lager- og verslunarhúsnæði í endabili á besta stað í Skeifunni. Laust strax. Góð bílastæði. Um er að ræða jarð- hæð 253,6 fm með stórum inn- keyrsludyrum og 2. hæð að stærð 124 fm með sérinngangi. Einnig til leigu jafn stór eining við hliðina á þessari. Skeifan 3 Til leigu 130 fm mjög gott endurnýj- að skrifstofuhúsnæð leigist í einu til þrennu lagi. Laust strax.Frábær staðsettning í hjarta Kópavogs Tilv. 15112 Hamraborg 5 FRÁ því kommúnisminn hrundi í Sovétríkjunum og A-Evrópu hafa hægrimenn á Íslandi verið óþreyt- andi við að rakka þá niður sem trúðu á þessa hug- myndafræði. Þeir segja m.a. að þetta fólk hafi látið blekkjast af barna- legri draumsýn um fyrirmyndarríki sem aldrei hafi verið framkvæmanleg í raunveruleik- anum. Gott og vel, en hvers konar hugmyndir hafa þeir sjálfir að bjóða okkur í dag? Þeir segja að frjálst markaðshagkerfi sé það eina sem virkar og annars konar skipulag en það geti í besta falli verið heimsku- legt og í versta falli stórhættulegt. Þessi sýn hefur nánast einokað pólitíska umræðu síðustu árin og átt þátt í því að fjölmargt ungt fólk vill að ríkið dragi sig út úr sem flestum sviðum mannlífsins og sumir ganga svo langt að óska þess að ríkið hverfi með öllu. Gerir þetta fólk sér grein fyrir því hvað það er að segja? Sér það fyrir hvernig samfélagið gæti orðið ef ríkisvaldinu yrði bara kúpl- að út. Getur kannski verið að þetta fólk láti stjórnast af svipuðum hug- sýnum og þrám og kommúnistarnir gerðu forðum um fyrirmyndarríki þar sem allir væru sáttir – af barna- legri draumsýn um ríki án ríkisvalds þar sem allir væru hamingjusamir. Þetta datt mér í hug eftir að hafa lesið Viðhorfsgrein eftir Björgvin Guðmundsson sem birtist í Morg- unblaðinu hinn 20. ágúst en þar seg- ir hann orðrétt: „Væri lífið ekki skemmtilegra ef það væri ekkert ríkisvald? Engin valdbeiting. Engir ráðherrar, stjórnmálamenn eða op- inberir starfsmenn. Engin sóun. Engar stofnanir, stjórnsýsla eða skrifræði. Ekkert bákn. Bara frjáls- ir einstaklingar sem eiga vinsamleg samskipti á frjálsum markaði.“ Þessi daumsýn Björgvins kemur mér fyrir sjónir sem martröð, lík þeim martröðum sem fylgdu komm- únismanum í hans verstu myndum. Hver á að setja lög ef ekkert er lög- gjafarvaldið (kannski „Lagasetning hf.“)? Hver á að dæma ef ekkert er dómsvaldið (kannski „Dómur hf.“)? Hvernig er hægt að tryggja að rétt- lát lög séu sett og þeim framfylgt ef við höfum ekkert ríkisvald? Vissu- lega er ekki hægt að tryggja að þetta sé í lagi þótt við höfum ríkis- vald en við höfum þó kosningar þar sem við getum skipt út því fólki sem stendur sig ekki og fengið hæfara fólk í staðinn. En draumsýn Björg- vins gengur líklega út á það að lög séu óþörf í ríkisvaldslausu ríki. „Frjálsir“ einstaklingar og fyrirtæki brjóta ekki hver á öðrum og hafa vit til að gera viðeigandi ráðstafanir þegar breytinga er þörf eða hætta steðjar að. Þetta viðhorf kemur fram hjá Björgvini þegar hann talar um kvótakerfið. Hann bendir réttilega á að upptaka kvótakerfisins hafi verið „… mikilvæg kerfisbreyting sem kom í veg fyrir sóun og jók um leið verðmæti auðlindarinnar“. En var það ekki ríkið sem sá um að setja kvótann á? Jú, en ef ríkið hefði ekki verið til staðar þá hefðu útgerð- armenn í mestu vinsemd tekið sig saman og stofnað hlutafélagið „Kvóti hf.“ Inn í þetta félag hefðu allir útgerðarmenn landsins, af fús- um og frjálsum vilja, sett fjármagn til að standa straum af kostnaði við rannsóknir á veiðiþoli fiskistofnanna o.fl. og síðan hefði réttlát og óbrigð- ul stjórn félagsins séð um að kvót- anum yrði skipt á sanngjarnan hátt og allir hefðu verið glaðir og sáttir við sitt. Björgvin talar um að fullur eign- arréttur á kvóta verði að myndast og að hagkvæmast yrði að veiðirétt- indi yrðu gerð varanleg ásamt því að heimila fullt og frjálst framsal. Síðan heldur hann áfram: „Samhliða þessu verða eigendur auðlindarinnar auð- vitað að bera fulla ábyrgð á eign sinni. Þeir verða að standa undir kostnaði við verndun, eftirlit og rannsóknir á því hvernig auka megi verðmætasköpun enn meira án þess að ganga á eignina.“ Þessi orð Björgvins lýsa ofurtrú á hið góða í mannfólkinu – eða kannski bara kvótaeigendum. Hann virðist ekki átta sig á því að ef valdið til að setja lög og reglur og framfylgja þeim er tekið frá ríkinu taka frumskógarlög- málin völdin. Blessaðir kvótaeigend- urnir og útgerðarmennirnir gætu með engu móti höndlað að sjá alfarið um sjávarútveginn. Þeir myndu fyrr eða síðar fara í hár saman og öll fisk- veiðistjórnun færi í vaskinn með hörmulegum afleiðingum. Björgvin virðist heldur ekki átta sig á því að auður og völd eru ná- tengd og völdum fylgir oftast ein- hvers konar valdbeiting en það er eitt af því sem hann sér fyrir sér að losna við með því að leggja niður við ríkisvaldið. Eigi sumir miklu meiri auð en aðrir geta þeir notað valdið sem honum fylgir til að komast yfir ennþá meiri auð og svo koll af kolli. Þetta er raunar hinn frjálsi kapítal- ismi í hnotskurn og skýrir að stórum hluta hvers vegna meirihluti mann- kyns býr við sult og seyru meðan ör- lítill hluti þess á margfalt meiri auð og eignir en hann hefur þörf fyrir. Réttinda- og kjarabarátta opin- bers starfsfólks og fleiri hópa fer greinilega mikið í taugarnar á Björgvini. En sem betur fer hefur hann töfralausn – einkavæðing! Að sjálfsögðu! Það segir sig sjálft að þetta fólk mun loksins verða sátt við kjör sín og öll vandamál munu gufa upp af sjálfu sér við það að vera færð frá ríkinu til einkaaðila. Að eiga sér fagrar draumsýnir er gott og hollt fyrir alla ef menn gæta sín að þær snúist ekki upp í and- hverfu sína. Skyldi Björgvin t.d. hafa áttað sig á því að í draumsýn hans er ekkert rúm fyrir lýðræði, eða á almenningur kannski að fara að kjósa stjórnir fyrirtækjanna? Einhver sagði að vegurinn til vítis væri varðaður fögrum fyrirheitum. Í þessum orðum er sannleikur sem kommúnistar fengu að kenna á og kapítalistar munu svo sannarlega fá að kenna á ef þeir, í blindri trú á að markaðshagkerfið og frelsi á öllum sviðum geti leyst öll vandamál, brjóta niður þær stoðir samfélagsins sem felast í ríkisvaldinu. Á Íslandi hefur nú þegar hefur verið gengið of langt í að færa eignir og völd frá rík- isvaldinu (frá því fólki sem við höf- um kosið til að fara með völdin) til einkaaðila sem þurfa ekki að óttast að tapa völdum sínum í næstu kosn- ingum og geta jafnvel komist upp með að sýna algert ábyrðarleysi gagnvart hagsmunum almennings. Því miður eru ekki allir frum- kvöðlar og framtaksmenn heið- arlegir og skynsamir eins og sumir virðast halda. Þvert á móti, kapítal- isminn er þeim ókosti búinn að hann kyndir undir græðgi og oft eru það hinir ósvífnustu sem ná lengst, þeir sem skeyta minnst um almannahag. Þessi sannindi orðaði einn allra virt- asti hagfræðingur 20. aldar, John M. Keynes, á þennan hátt: „Kapítalismi er sú furðulega trú að hinir ógeð- felldustu menn muni, fyrir hinar ógeðfelldustu ástæður, einhvern veginn vinna að bættum hag okkar allra.“ Mér finnst í sjálfu sér ekkert at- hugavert við það að eiga sér draum- sýn um ríki án ríkisvalds. Ég tel hins vegar að þetta sé óhugsandi í raun- veruleikanum nema allir séu góðir (þ.e. heiðarlegir, réttlátir, sann- gjarnir o.s.frv.) en er það ekki líka einmitt forsendan fyrir því að sann- ur kommúnismi gæti orðið að veru- leika. Það er hins vegar alveg fárán- legt að einblína á galla ríkisvaldsins eins og sumir gera og halda að nið- urbrot þess muni gera alla frjálsa og hamingjusama. Lengi hafa menn reynt að finna upp fullkomið kerfi, skipulag eða hugmyndafræði í þeim tilgangi að reisa fyrirmyndarríki. Síðan hafa til- raunir til að koma þessum hug- myndum í framkvæmd oftast leitt til mikilla hörmunga og kostað miklar mannfórnir. Ennþá virðast menn ekki hafa áttað sig á því að ef við viljum búa í fullkomnu samfélagi verðum við að vera fullkomin sem einstaklingar. Engin hugmynda- fræði getur bjargað okkur frá okkur sjálfum og samfélag okkar getur ekki verið gott nema við sem ein- staklingar séum góð við okkur sjálf og náungann. Í lýðræðisríki eins og okkar er oftast til lítils að vera að ergja sig yfir ríkisvaldinu því kostir þess og gallar eru einungis speg- ilmynd okkar eigin kosta og galla. Spillingin og sóunin sem þrífst innan ríkisvaldsins er aðeins endur- speglun þeirrar spillingar og sóunar sem líf hins almenna borgara er mengað af. Að lokum langar mig að spyrja Björgvin hvers konar starf hann gæti hugsað sér ef hann væri ekki blaðamaður því ef draumsýn hans yrði eftir allt saman að veruleika myndi væntanlega mikil og samfelld gúrkutíð ríkja hjá dagblöðunum og það myndi örugglega fækka veru- lega í stétt blaðamanna. Um drauma og martraðir Eftir Vilhjálm Hjaltalín Jónsson Höfundur starfar á Landspítala - háskólasjúkrahúsi. Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21  sími 551 4050  Reykjavík alltaf á föstudögum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.