Morgunblaðið - 31.08.2003, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.08.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ SAMIÐ UM LYF Náðst hefur samkomulag á vett- vangi heimsviðskiptastofnunar- innar, WTO, um heimild til handa fá- tækum ríkjum til að flytja inn ódýr samheitalyf gegn skæðum sjúkdóm- um á borð við alnæmi. Útflutningur á heyi Hafin er athugun á útflutningi á heyi til sunnanverðrar Evrópu, en eftirspurn eftir heyi hefur aukist í kjölfar þurrka. Íslenskir bændur sjá fram á að sitja uppi með umfram- birgðir af heyi í haust. Aukin umsvif í fraktflugi Alls verður 21 þota í fraktverk- efnum í næsta mánuði fyrir íslensku flugfélögin en fyrir fimm árum voru örfáar íslenskar þotur í slíkum verk- efnum. Fjórir hafa játað Að sögn lögreglu í Najaf í Írak hafa fjórir menn játað aðild að sprengjutilræðinu er varð 107 manns að bana í borginni í fyrradag, þ.á m. einum helsta trúar- og stjórn- málaleiðtoga sjíamúslíma í landinu. Varp nýrra fugla Fjórar nýjar fuglategundir verptu hér á landi í sumar í fyrsta sinn svo vitað sé. Tegundirnar eru eyrugla, skógarsnípa, dvergmáfur og fjallkjói. Ráðgjafi lífeyrismála Í starfi ráðgjafa lífeyrismála felst m.a: • Sala á lífeyrissparnaði Landsbankans • Sérfræðiráðgjöf til viðskiptavina Landsbankans • Þátttaka í vöruþróun, söluaðgerðum, fræðslu, þjálfun og kynningarmálum Ráðgjafi lífeyrismála verður í hópi starfsmanna sem annast sölu lífeyrissparnaðar Landsbankans. Um er að ræða kraftmikinn og árangursmiðaðan hóp sem hefur gæði þjónustunnar að leiðarljósi. Sérstök áhersla er lögð á eftirfylgni söluáætlana og samstarf við söluaðila. Leitað er að öflugum einstaklingi með háskólamenntun. Starfsreynsla er skilyrði en reynsla af sambærilegum störfum er æskileg. Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og góð samskiptahæfni eru skilyrði. Í starfi fjármálaráðgjafa felst m.a: • Öflun nýrra viðskiptavina í fjárvörslu fyrir Landsbankann og Landsbankann í Luxemburg • Þjónusta og samskipti við núverandi viðskiptavini Fjármálaráðgjafi þróar þjónustu Landsbankans við efnameiri einstaklinga. Um er að ræða krefjandi starf þar sem mikilvægt er að fari saman hæfni í mannlegum samskiptum og sérþekking á fjármálamörkuðum, jafnt innlendum sem erlendum. Sérstök áhersla er lögð á að fjármálaráðgjafi sé ávallt vakandi fyrir nýjum viðskiptatækifærum. Leitað er að öflugum einstaklingi með háskólamenntun á sviði viðskipta. Starfsreynsla í fjármálafyrirtæki er skilyrði eða reynsla af sambærilegum störfum. Krafist er agaðra og faglegra vinnubragða auk þess sem áræðni, sjálfstæði og frumkvæði eru nauðsynlegir eiginleikar. andsbanki Íslands hf. er eitt tærsta fjármálafyrirtæki landsins g veitir alhliða almenna og sértæka ármálaþjónustu til einstaklinga, yrirtækja og stofnana. ögð er megináhersla á að bankinn hafi ævinlega á að skipa ábyrgum, hæfum, flugum, áhugasömum og ánægðum tarfsmönnum. afnframt er það stefna Landsbankans á verjum tíma að gefa starfsmönnum kost því að eflast og þróast í starfi samræmi við eigin þarfir og þarfir ankans. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S LB I 22 09 6 08 /2 00 3 Laus störf á eignastýringarsviði Landsbankans Fjármálaráðgjafi Nánari upplýsingar veita: Hermann Jónasson, forstöðumaður erðbréfa- og lífeyrisþjónustu síma 535 2072 og Atli Atlason, framkvæmdastjóri tarfsmannasviðs, í síma 560 6304. arið verður með allar umsóknir em trúnaðarmál. Umsóknir sendist til starfsmannasviðs andsbankans, Austurstræti 11, 101 Reykjavík ða á póstfang atlia@landsbanki.is yrir 10. september n.k. Fasteignasala — Sölustjóri gróin og öflug fasteignasala þarf á sölu- ra að halda. Einungis koma til greina æðnir og dugmiklir sölumenn með reynslu asteignasölu. Kjörið tækifæri fyrir góðan umann sem vill auka við ábyrgð sína og kka launin. Þarf ekki að hefja störf strax. ð allar umsóknir verður farið sem trúnaðar- . sóknir óskast sendar til auglýsingadeildar l. og í box@mbl.is merktar: „Sölustjóri — 14“. unnudagur 1. ágúst 2003 tvinnatilboðútboðfundirtilsölutilleigutilkynningarkennslahúsnæðiþjónustauppboð mbl.is/atvinna Gestir í vikunni 8.360  Innlit 16.186  Flettingar 76.768  Heimild: Samræmd vefmæl Ný Lína á fjalirnar NÝ kynslóð Línu- aðdáenda getur byrjað að telja niður dagana. Sterkasta stelpa í heimi birtist á fjölum Borgar- leikhússins 14. sept- ember nk. Anna G. Ólafsdóttir spjallaði við Ilmi Kristjáns- dóttur, hægri hönd Línu í sýningunni, Maríu Reyndal leik- stjóra og þýðandann Þórarinn Eldjárn. erðalögHrekkjavakasælkerarSuðræn áhrif frá ChilebörnEineltibíóFreddy vs. Jason Flækingasumarið mikla Landnám framandi farfugla Tíminn mun leiða í ljós hvernig þessu tegundum reiðir af. Prentsmiðja Morgunblaðsins Sunnudagur 31. ágúst 2003 Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Hugvekja 43 Viðtal 8 Myndasögur 44 Listir 23/29 Bréf 44/45 Af listum 24 Dagbók 46/47 Birna Anna 24 Krossgáta 48 Forystugrein 30 Leikhús 50 Reykjavíkurbréf 32 Fólk 49/57 Skoðun 32/33 Bíó 54/57 Minningar 36/39 Sjónvarp 58 Þjónusta 41 Veður 59 * * * Kynningar – Blaðinu í dag fylgir aug- lýsingablaðið FAGRA VERÖLD 2003- 2004 frá Heimsklúbbi Ingólfs. Tíma- ritinu er dreift á höfuðborgarsvæð- inu. Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN Dömur mæti með blævæng, herrar með stuttan kveikiþráð. SJÁ BLS. 9 Í ÁRSBÆKLINGI SINFÓNÍUNNAR SEM FYLGIR MORGUNBLAÐINU Í DAG Kynningar – Blaðinu í dag fylgir blað Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Tíma- ritinu er dreift um allt land. TÆPLEGA þrjú þúsund Íslendingar buðu fram aðstoð við hljóðsöfnun vegna gerðar íslensks talgreinis. Það er um eitt prósent þjóðarinnar. Safn- að var hljóðdæmum frá rúmlega tvö þúsund manns sem er sá fjöldi sem þurfti til verksins. Hjalverkefnið stóð að baki söfnun hljóðdæmanna, en verkefnið er samstarfsverkefni Sím- ans, Nýherja, Háskóla Íslands, Grunns gagnalausna og Hex hugbún- aðar. Í fréttatilkynningu frá Símanum segir að hljóðdæmin verði notuð við þjálfun talgreinis sem gerir það kleift að veita margs konar sjálfvirka þjón- ustu í gegnum síma. Elsti þátttakand- inn í verkefninu var 83 ára karlmaður. „Þess var gætt að þátttakendur end- urspegluðu aldur, kyn og búsetu landsmanna, enda þarf talgreinirinn að geta skilið okkur öll,“ segir enn- fremur í tilkynningunni. Þrír meistaranemar í tungutækni við Háskóla Íslands unnu að því í sumar að yfirfara upptökurnar, skrá niður það sem sagt var og hljóðrita 30 þúsund orða safn algengra íslenskra orða. Eru þeir að leggja lokahönd á verkið um þessar mundir. Í tilkynn- ingunni segir að við vinnu sína hafi nemendurnir haft sérstaka gát á mis- munandi framburði einstaklinga og hópa á algengum hljóðmyndum ís- lensku. Komið hefur í ljós að fram- burður er einsleitari en áður var, með nokkrum undantekningum. Þannig virðast norðlenska og sunnlenska hafa haldið stöðu sinni, en síður er hægt að greina mismunandi áherslur í framburði í hinum landshlutunum. Mismunandi framburður virðist fremur fylgja aldri en búsetu. Þá er á það bent að þetta sé umfangsmesta söfnun á talmáli Íslendinga síðan 1947 og niðurstöðurnar verði nýtanlegar í fjölda rannsóknarverkefna, í orða- bókum og framburðargreiningu. Gögnin eru nú komin í hendur er- lends samstarfsaðila, þar sem þau verða notuð til þjálfunar talgreinisins. Því verki lýkur í október og áætlað er að fyrstu talþjónusturnar, sem skilja íslensku, taki til starfa í nóvember. Eitt prósent þjóðarinnar bauð fram aðstoð við gerð íslensks talgreinis Framburður eins- leitari en áður var LANDMANNALAUGAR eru einn fjölsóttasti ferðamannastaðurinn á há- lendi Íslands. Því getur verið fjölmennt í heitu lauginni þar sem ferðamenn slaka á eftir langar göngu- eða ökuferðir. Fletta þeir sig þá klæðum á palli undir berum himni áður en stigið er í heitan lækinn. Á meðan sumir skrafa um málefni líðandi stundar fara aðrir aðeins afsíðis og rifja upp sundtökin. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Sundtök í Landmannalaugum EINN helsti yfir- maður orkumála í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum, David Freeman, er staddur hér á landi að kynna sér jarð- hitaframleiðslu og vetnisrannsóknir á vegum Orkuveitu Reykjavíkur, Enex, Íslenskrar nýorku og fleiri að- ila. Í samtali við Morgunblaðið seg- ir hann mikinn vilja vera fyrir því að koma á samstarfi milli Kaliforn- íuríkis og íslenskra orkufyrirtækja. Auk þess að hitta fulltrúa orkufyrir- tækja hefur Freeman átt fund með Geir H. Haarde fjármálaráðherra og í gær hitti hann Ólaf Ragnar Grímsson forseta. David Freeman hefur áratuga- reynslu af störfum í orkumálum í Bandaríkjunum og var á sínum tíma ráðgjafi á því sviði hjá tveimur for- setum, þem Lyndon B. Johnson og Jimmy Carter. Hann er í dag forstjóri og stjórnarformaður California Power Authority, fyrirtækis sem sér um að nægt rafmagn sé fyrir hendi í ríkinu. „Tilgangur heimsóknar minnar til Íslands er að kynnast því hvað fer hér fram í vetnis- og jarðhitamálum. Segja má að Ísland sé Mekka vetn- isins þannig að ég er kominn til Mekka til þess að læra og koma á samstarfi við ykkur. Þið hafið tekið forystu í þessum málum og við viljum reyna að halda í við ykkur,“ segir Freeman og kveðst mjög hrifinn af því sem hann hefur séð í heimsókn- inni síðustu daga. Hann segir að þrátt fyrir að Kalif- orníuríki búi yfir margfalt stærri jarðhitaauðlindum og hafi meiri þörf fyrir slíka orku sök- um íbúafjöldans, þá búi Íslendingar yfir lengri og betri reynslu í að nýta þennan orkugjafa og þá reynslu vilji fyr- irtæki hans kynna sér og hagnýta heima fyrir. Bendir hann á að í Kaliforn- íu sé hlutur endurnýjanlegrar orku um 12% og áætlanir séu uppi um að auka hann í 20%. Hér á landi sé hlut- fallið hins vegar 100%. Vetni getur bjargað heiminum Freeman segist vilja flýta fyrir þeirri þróun að bílar, strætisvagnar og flugvélar verði sem flest knúin hreinni og endurnýjanlegri orku á borð við vetni. Hann bendir á að þró- un rafmagnsbíla hafi ekki gefið svo góða raun. Telur hann mun meiri möguleika felast í nýtingu vetnis fyrir einkabíla og að rafmagnsknúnir strætisvagnar geti frekar átt sér ein- hverja framtíð. „Vetnið getur bjargað heiminum. Af hverju hafa Bandaríkin háð stríð í Mið-Austurlöndum? Það er eingöngu út af olíunni. Við erum ekki eins og Rómverjar á sínum tíma og ráðumst inn í hvaða ríki sem er. Við erum háðir olíunni og þegar þeirri auðlind er ógn- að er farið í stríð. Þetta er ömurleg staðreynd en sönn engu að síður. Við viljum ekki vera í þessari stöðu. Við þurfum á hreinni og endurnýjanlegri orku að halda,“ segir Freeman. Samstarfi komið á við Kaliforníu- ríki í orkumálum Morgunblaðið/Kristinn David Freemann er hrifinn af því sem íslensk orkufyrirtæki eru að gera á sviði jarðhita- og vetnisframleiðslu. TÖKUR á kvikmynd í fullri lengd um Reykjavíkurmærina Dís hefjast í lok september. Myndin byggist á samnefndri skáldsögu eftir þær Birnu Önnu Björnsdóttur, Oddnýju Sturludóttur og Silju Hauksdóttur. Dís kom út árið 2000 og hlaut mjög góðar viðtökur. Höfundarnir skrif- uðu kvikmyndahandritið einnig í sameiningu auk þess sem Silja mun leikstýra myndinni. Framleiðandi er Sögn ehf., fyrirtæki Baltasars Kor- máks og Lilju Pálmadóttur. Baltasar sagði í samtali við Morg- unblaðið að undirbúningur fyrir tök- ur á myndinni gengju vel og verið væri að ráða leikara í helstu hlutverk ásamt öðru starfsfólki. Hann sagði að tökur myndu hefjast í Reykjavík og standa yfir í sex vikur. Sagðist Baltasar vonast til að myndin yrði tilbúin snemma á næsta ári. „Ég las handritið og fannst það mjög skemmtilegt. Þetta er létt og skemmtileg saga, verður nokkurs konar stelpumynd sem að mestum hluta verður gerð af kvenfólki. Það hefur vantað í íslenska kvikmynda- gerð að stelpur ryðji sér til rúms líkt og strákar,“ sagði Baltasar. Kvikmyndun á Dís hefst í lok næsta mánaðar BANDALAG háskólamanna, BHM, hefur sent tvær fyrirspurnir til jafnmargra ráðuneyta varðandi setningu til starfa. Annars vegar er um að ræða setningu ráðuneytis- stjóra hjá félagsmálaráðuneytinu og hins vegar ráðningu fv. aðstoð- armanns samgönguráðherra til starfa í Brussel. Að mati BHM virðist ekki hafa verið farið að lögum í þessum til- vikum. Í vefriti BHM kemur fram að bandalagið fær ábendingar og fylgist með hvort yfirvöld virði þá skyldu að auglýsa laus störf og þegar setja þarf mann í starf til lengri tíma en eins árs. Þar segir að þegar einstaklingar séu settir til starfa sem staðgenglar megi að- eins setja mann að hámarki til árs. BHM spyrst fyrir um setningu í störf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.