Morgunblaðið - 31.08.2003, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 31.08.2003, Blaðsíða 28
LISTIR 28 SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ K A R L A R KARLAKÓRINN FLATAHRAUNI 21, HAFNARFIRÐI ÞRESTIR KARLAKÓRINN ÞRESTIR Viltu gera eitthvað skemmtilegra en horfa á sjónvarp? Hefur þú gaman af tónlist? Hefur þú gaman af söng? Hafðu samband við Pál (898 5725) eða Sigurð Pétur (861 1132) Viltu vinna með góðum hópi? Komdu þá í Þresti! ERTU KARLMAÐUR? TÓNLEIKAR bassasöngvarans Kristins Sigmundssonar og Jónasar Ingimundarsonar píanóleikara í Salnum, 7. september, marka upphaf Tíbrár-tónleikaraðarinnar að þessu sinni. Tónleikarnir eru helgaðir minningu Halldórs Hansen barnalæknis og tónlistarfrömuðar. Þeir flytja tvo stóra lagaflokka eftir Schu- mann, Liederkreis op. 39 og Kernerljóð- in op. 35. Í Söngva- sveig op. 39 er að finna nokkra af hans þekktustu söngvum. Lögin eru tólf að tölu, öll við ljóð Josephs von Eichendorf. Í kjölfarið, eða hinn 10. sept- ember, þreyir Ástríður Alda Sigurðardóttir frumraun sína á píanó. Hún flytur verk eftir Beethoven, Bartók og Chopin. Franz Schubert verður í aðal- hlutverki söngtónleika 14. september. Þeir hafa yfir- skriftina Fagra veröld, hvar ert þú? Þar koma fram Renate Burtscher, sópran, Maria Ba- yer, alt, Bernd Oliver Fröhlich, tenór, Kurt Widmer, baríton, og Jónas Ingimundarson, píanó. Flutt verða sönglög, dú- ettar, tríó og kvartettar. Tríó Nordica fagnar 10 ára afmæli sínu með tónleikum 23. september. Tríóið skipa Auður Hafsteinsdóttir, fiðla, Bryndís Halla Gylfadóttir, selló, og Mona Sandström, píanó. Þar verður Brahms-veisla; Píanótríó í c- moll op. 101 og tríó í H-dúr op. 8, Pí- anótríó eftir Þórð Magnússon (frum- flutningur á Íslandi) og verk eftir Pi- azzolla. Á tónleikum 28. september verða þrjú tónskáld í aðalhlutverkum. Sig- urður Ingvi Snorrason, klarinett, Pavel Panasiuk, selló, og Helga Bryndís Magnúsdóttir, píanó, flytja Tríó í B-dúr op. 11 eftir Beethoven, Tema senza variazioni eftir Þorkel Sigurbjörnsson og Tríó op. 114 eftir Brahms. Erling Blöndal, Rúdolf og Jorma Hynninen Átta tónleikar verða í október. Hinn 5. október kl. 20 koma fram Er- ling Blöndal Bengtsson sellóleikari og Nina Kavtaradze píanóleikari og flytja Sónötu í A-dúr op. 69 eftir Beethoven, Sónötu í g-moll op. 65 eft- ir Chopin, Elegíu op. 24 eftir Fauré og Sónötu í d-moll op. 40 eftir Schos- takovich. Þriðjudaginn 7. október syngur Söngkvartettinn Rúdolf með þau Sigrúnu Þorgeirsdóttur, sópran, Soffíu Stefánsdóttur, alt, Skarphéðin Þór Hjartarson, tenór, og Þór Ás- geirsson, bassa, innanborðs. Fluttar verða dægurperlur frá 20. öld eftir Bítlana, Ólaf Gauk, Sigfús Halldórs- son, Magnús Eiríksson og Spilverk þjóðanna. Laugardagur 11. október verða söngtónleikar mezzósópran- söngkonunnar Nönnu Hovmand. Undirleikari er Jónas Ingimundar- son píanóleikari. Þau flytja íslensk sönglög og söngva eftir Heise, Niel- sen, Grieg, Rangström, o.fl. Sunnudaginn 12. október verður Sigrún Hjálmtýsdóttir gestur KaSa- hópsins og flytja þau kammertónlist og sönglög eftir Richard Strauss. Á tónleikum 15. október verða flutt stórvirki 20. aldar. Helene Gjerris, mezzósópran, og Caput-hópurinn undir stjórn Guðmundar Óla Gunn- arssonar. Efnisskrá: Pierrot Lunaire eftir Arnold Schönberg og Le Mar- teau sans Maître eftir Pierre Boulez. 19. október verða píanótónleikar með ungum píanista frá Lettlandi, Liene Circene. Flutt verður Sónata í G-dúr eftir Schubert, Rondo a capr- iccio eftir Beethoven, Tónar í nóttinni eftir Vasks, Ballatan í h-moll og Fen- eyjar og Napólí eftir Liszt. Sunnudaginn 26. október verða ljóðatónleikar með finnska baríton- söngvaranum Jorma Hynninen. Undirleikari á píanó er Gustav Djupsjöbacka. Efnisskrá: Sönglög eftir Vaughan-Williams, Hugo Wolf, Gothoni, Rautavaara og Sibelius. Hynninen er í hópi eftirsóttustu baritonsöngvara heims og á að baki glæsilegan söngfer- il. Gustav Djupsjö- backa er einnig mjög vel þekktur á sínu sviði. Síðustu tónleik- arnir í október verða föstudaginn 31. október. Þá koma fram Rússí- banarnir: Guðni Franzson, klarin- ett, Jón Skuggi, bassi, Kristinn H. Árnason, gít- ar, Matthías Hemstock, slag- verk, og Tatu Kantomaa, harm- onika. Rússíbanar leika bræðing af heimstónlist og nýju efni. Fyrstu tónleikarnir í nóvem- ber verða sunnudaginn 2. en þá verður Sónötukvöld. Greta Guðnadóttir, fiðla, og Helga Bryndís Magnúsdóttir, píanó, flytja Sónötu í C-dúr KV 46d og Sönötu í A-dúr KV 526 eftir Moz- art og Sónötu í A-dúr op. 100 eft- ir Brahms. Sunnudaginn 9. nóvember verða kvikmyndir og leikhús í sviðsljósinu. KaSa-hópurinn flytur tónlist úr íslenskum kvikmyndum og sviðsverkum eftir Jón Ásgeirsson. Tónskáldið spjallar um verkin og til- urð þeirra. Að tónleikunum loknum mun Jón svara fyrirspurnum frá áheyrendum. Laugardaginn 15. nóvember verð- ur franskt-kanadískt tvíeyki við flyglana tvo í Salnum: Mélisande Chauveau og Suzanne Fournier. Efnisskrá: Dúó nr. 1 eftir César Franck, Valsar op. 39 eftir Brahms, Sónata eftir Poulenc, Dolly Suite op. 56 eftir Fauré og Trois morceaux en forme de poire eftir Satie, Valse de la Suite eftir Tchaikovsky og Rhapsody in blue eftir Gershwin. Signý og Garðar Thór 19. nóvember verða ljóðatónleikar systranna Signýjar Sæmundsdóttur sópransöngkonu og Þóru Fríðu Sæ- mundsdóttur píanóleikara. Þær flytja Söngva eftir Franz Liszt og Hugo Wolf, og söngperlur eftir Rav- el, Viardot, Kilpinen og Merikanto. Yfirskrift tónleikanna 25. nóvem- ber er Britten fyrir tenór og hörpu. Garðar Thór Cortes tenór syngur við undirleik Elísabetar Waage hörpu- leikara. Þau flytja Svítu fyrir hörpu op. 83, A Birthday Hansel op. 92, sem samið var að beiðni Elísabetar Breta- drottningar, og flokk þjóðlaga fyrir háa rödd og hörpu eftir Benjamin Britten. Jólabarokk verður 29. nóvember. Barokkhópurinn flytur létta hátíðar- tónlist, svítur og sónötur. Gestur hópsins er Arngeir Heiðar Hauks- son, barokkgítar, lúta, teorba. Bar- okkhópinn skipa Martial Nardeau, barrokkflautur, Guðrún Birgisdóttir, barrokkflauta, og Ólöf Sesselja Ósk- arsdóttir, viola da gamba. Öll sönglög Jóns Þórarinssonar verða flutt fyrsta dag desembermán- aðar. Flytjendur eru Auður Gunn- arsdóttir, sópran, Gunnar Guð- björnsson, tenór, Ólafur Kjartan Sigurðarson, baríton, og Jónas Ingi- mundarson, píanó. KaSa-hópurinn býður til jólaveislu 14. desember, þar sem leiknar verða sígildar perlur og jólalög. Gestur hópsins er Skólakór Kárs- ness undir stjórn Þórunnar Björns- dóttur. Sigurbjörn Bernharðsson fiðlu- leikari og Anna Guðný Guðmunds- dóttir píanóleikari flytja fiðlusónötur Brahms á síðustu tónleikum ársins 18. desember: Sónötu nr. 1 í G-dúr op. 78, Sónötu nr. 2 í A-dúr op. 100 og Sónötu nr. 3 í d-moll op. 108. Fjallað verður um vordagskrá Sal- arins síðar. Kristinn og Jónas opna Tíbrárröð Salarins Tríó Nordica heldur upp á tíu ára afmæli sitt. Jón Ásgeirsson Jón Þórarinsson Signý Sæmundsdóttir Kristinn Sigmundsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.