Morgunblaðið - 31.08.2003, Síða 28
LISTIR
28 SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
K A R L A R
KARLAKÓRINN
FLATAHRAUNI 21, HAFNARFIRÐI
ÞRESTIR
KARLAKÓRINN
ÞRESTIR
Viltu gera eitthvað skemmtilegra en horfa á
sjónvarp?
Hefur þú gaman af tónlist?
Hefur þú gaman af söng?
Hafðu samband við Pál (898 5725)
eða Sigurð Pétur (861 1132)
Viltu vinna með góðum hópi?
Komdu þá í Þresti!
ERTU
KARLMAÐUR?
TÓNLEIKAR bassasöngvarans
Kristins Sigmundssonar og Jónasar
Ingimundarsonar píanóleikara í
Salnum, 7. september, marka upphaf
Tíbrár-tónleikaraðarinnar að þessu
sinni. Tónleikarnir eru helgaðir
minningu Halldórs
Hansen barnalæknis
og tónlistarfrömuðar.
Þeir flytja tvo stóra
lagaflokka eftir Schu-
mann, Liederkreis
op. 39 og Kernerljóð-
in op. 35. Í Söngva-
sveig op. 39 er að
finna nokkra af hans
þekktustu söngvum.
Lögin eru tólf að tölu,
öll við ljóð Josephs
von Eichendorf.
Í kjölfarið, eða hinn 10. sept-
ember, þreyir Ástríður Alda
Sigurðardóttir frumraun sína á
píanó. Hún flytur verk eftir
Beethoven, Bartók og Chopin.
Franz Schubert verður í aðal-
hlutverki söngtónleika 14.
september. Þeir hafa yfir-
skriftina Fagra veröld, hvar ert
þú? Þar koma fram Renate
Burtscher, sópran, Maria Ba-
yer, alt, Bernd Oliver Fröhlich,
tenór, Kurt Widmer, baríton,
og Jónas Ingimundarson,
píanó. Flutt verða sönglög, dú-
ettar, tríó og kvartettar.
Tríó Nordica fagnar 10 ára afmæli
sínu með tónleikum 23. september.
Tríóið skipa Auður Hafsteinsdóttir,
fiðla, Bryndís Halla Gylfadóttir,
selló, og Mona Sandström, píanó. Þar
verður Brahms-veisla; Píanótríó í c-
moll op. 101 og tríó í H-dúr op. 8, Pí-
anótríó eftir Þórð Magnússon (frum-
flutningur á Íslandi) og verk eftir Pi-
azzolla.
Á tónleikum 28. september verða
þrjú tónskáld í aðalhlutverkum. Sig-
urður Ingvi Snorrason, klarinett,
Pavel Panasiuk, selló, og Helga
Bryndís Magnúsdóttir, píanó, flytja
Tríó í B-dúr op. 11 eftir Beethoven,
Tema senza variazioni eftir Þorkel
Sigurbjörnsson og Tríó op. 114 eftir
Brahms.
Erling Blöndal, Rúdolf
og Jorma Hynninen
Átta tónleikar verða í október.
Hinn 5. október kl. 20 koma fram Er-
ling Blöndal Bengtsson sellóleikari
og Nina Kavtaradze píanóleikari og
flytja Sónötu í A-dúr op. 69 eftir
Beethoven, Sónötu í g-moll op. 65 eft-
ir Chopin, Elegíu op. 24 eftir Fauré
og Sónötu í d-moll op. 40 eftir Schos-
takovich. Þriðjudaginn 7. október
syngur Söngkvartettinn Rúdolf með
þau Sigrúnu Þorgeirsdóttur, sópran,
Soffíu Stefánsdóttur, alt, Skarphéðin
Þór Hjartarson, tenór, og Þór Ás-
geirsson, bassa, innanborðs. Fluttar
verða dægurperlur frá 20. öld eftir
Bítlana, Ólaf Gauk, Sigfús Halldórs-
son, Magnús Eiríksson og Spilverk
þjóðanna. Laugardagur 11. október
verða söngtónleikar mezzósópran-
söngkonunnar Nönnu Hovmand.
Undirleikari er Jónas Ingimundar-
son píanóleikari. Þau flytja íslensk
sönglög og söngva eftir Heise, Niel-
sen, Grieg, Rangström, o.fl.
Sunnudaginn 12. október verður
Sigrún Hjálmtýsdóttir gestur KaSa-
hópsins og flytja þau kammertónlist
og sönglög eftir Richard Strauss.
Á tónleikum 15. október verða flutt
stórvirki 20. aldar. Helene Gjerris,
mezzósópran, og Caput-hópurinn
undir stjórn Guðmundar Óla Gunn-
arssonar. Efnisskrá: Pierrot Lunaire
eftir Arnold Schönberg og Le Mar-
teau sans Maître eftir Pierre Boulez.
19. október verða píanótónleikar
með ungum píanista frá Lettlandi,
Liene Circene. Flutt verður Sónata í
G-dúr eftir Schubert, Rondo a capr-
iccio eftir Beethoven, Tónar í nóttinni
eftir Vasks, Ballatan í h-moll og Fen-
eyjar og Napólí eftir Liszt.
Sunnudaginn 26. október verða
ljóðatónleikar með finnska baríton-
söngvaranum Jorma Hynninen.
Undirleikari á píanó er Gustav
Djupsjöbacka. Efnisskrá: Sönglög
eftir Vaughan-Williams, Hugo Wolf,
Gothoni, Rautavaara og Sibelius.
Hynninen er í hópi eftirsóttustu
baritonsöngvara heims og á að baki
glæsilegan söngfer-
il. Gustav Djupsjö-
backa er einnig
mjög vel þekktur á
sínu sviði.
Síðustu tónleik-
arnir í október
verða föstudaginn
31. október. Þá
koma fram Rússí-
banarnir: Guðni
Franzson, klarin-
ett, Jón Skuggi,
bassi, Kristinn H. Árnason, gít-
ar, Matthías Hemstock, slag-
verk, og Tatu Kantomaa, harm-
onika. Rússíbanar leika bræðing
af heimstónlist og nýju efni.
Fyrstu tónleikarnir í nóvem-
ber verða sunnudaginn 2. en þá
verður Sónötukvöld. Greta
Guðnadóttir, fiðla, og Helga
Bryndís Magnúsdóttir, píanó,
flytja Sónötu í C-dúr KV 46d og
Sönötu í A-dúr KV 526 eftir Moz-
art og Sónötu í A-dúr op. 100 eft-
ir Brahms.
Sunnudaginn 9. nóvember
verða kvikmyndir og leikhús í
sviðsljósinu. KaSa-hópurinn flytur
tónlist úr íslenskum kvikmyndum og
sviðsverkum eftir Jón Ásgeirsson.
Tónskáldið spjallar um verkin og til-
urð þeirra. Að tónleikunum loknum
mun Jón svara fyrirspurnum frá
áheyrendum.
Laugardaginn 15. nóvember verð-
ur franskt-kanadískt tvíeyki við
flyglana tvo í Salnum: Mélisande
Chauveau og Suzanne Fournier.
Efnisskrá: Dúó nr. 1 eftir César
Franck, Valsar op. 39 eftir Brahms,
Sónata eftir Poulenc, Dolly Suite op.
56 eftir Fauré og Trois morceaux en
forme de poire eftir Satie, Valse de la
Suite eftir Tchaikovsky og Rhapsody
in blue eftir Gershwin.
Signý og Garðar Thór
19. nóvember verða ljóðatónleikar
systranna Signýjar Sæmundsdóttur
sópransöngkonu og Þóru Fríðu Sæ-
mundsdóttur píanóleikara. Þær
flytja Söngva eftir Franz Liszt og
Hugo Wolf, og söngperlur eftir Rav-
el, Viardot, Kilpinen og Merikanto.
Yfirskrift tónleikanna 25. nóvem-
ber er Britten fyrir tenór og hörpu.
Garðar Thór Cortes tenór syngur við
undirleik Elísabetar Waage hörpu-
leikara. Þau flytja Svítu fyrir hörpu
op. 83, A Birthday Hansel op. 92, sem
samið var að beiðni Elísabetar Breta-
drottningar, og flokk þjóðlaga fyrir
háa rödd og hörpu eftir Benjamin
Britten.
Jólabarokk verður 29. nóvember.
Barokkhópurinn flytur létta hátíðar-
tónlist, svítur og sónötur. Gestur
hópsins er Arngeir Heiðar Hauks-
son, barokkgítar, lúta, teorba. Bar-
okkhópinn skipa Martial Nardeau,
barrokkflautur, Guðrún Birgisdóttir,
barrokkflauta, og Ólöf Sesselja Ósk-
arsdóttir, viola da gamba.
Öll sönglög Jóns Þórarinssonar
verða flutt fyrsta dag desembermán-
aðar. Flytjendur eru Auður Gunn-
arsdóttir, sópran, Gunnar Guð-
björnsson, tenór, Ólafur Kjartan
Sigurðarson, baríton, og Jónas Ingi-
mundarson, píanó.
KaSa-hópurinn býður til jólaveislu
14. desember, þar sem leiknar verða
sígildar perlur og jólalög.
Gestur hópsins er Skólakór Kárs-
ness undir stjórn Þórunnar Björns-
dóttur.
Sigurbjörn Bernharðsson fiðlu-
leikari og Anna Guðný Guðmunds-
dóttir píanóleikari flytja fiðlusónötur
Brahms á síðustu tónleikum ársins
18. desember: Sónötu nr. 1 í G-dúr
op. 78, Sónötu nr. 2 í A-dúr op. 100 og
Sónötu nr. 3 í d-moll op. 108.
Fjallað verður um vordagskrá Sal-
arins síðar.
Kristinn og Jónas opna
Tíbrárröð Salarins
Tríó Nordica heldur upp á tíu ára afmæli sitt.
Jón
Ásgeirsson
Jón
Þórarinsson
Signý
Sæmundsdóttir
Kristinn
Sigmundsson