Morgunblaðið - 31.08.2003, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 31.08.2003, Blaðsíða 37
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 2003 37 Faðir okkar, LÁRUS G. LÚÐVÍGSSON, Skólavörðustíg 16a, Reykjavík, sem lést föstudaginn 22. ágúst, verður jarð- sunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánu- daginn 1. september kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Hildur Lárusdóttir von Schilling, Karólína Lárusdóttir Roberts, Lúðvíg Lárusson. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinar- hug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, VIGDÍSAR GÍSLADÓTTUR, áður til heimilis á Hlíðargötu 26, Sandgerði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Garðvangi, Garði, fyrir góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. Guðríður Elíasdóttir, Sigvarður Halldórsson, Steinunn Elíasdóttir, Níels Unnar Hauksson, Sigríður Elíasdóttir, Signý Elíasdóttir, Jón Rúnar Halldórsson og ömmubörnin. Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA INGIBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR frá Ísafirði, Digranesheiði 21, Kópavogi, sem andaðist miðvikudaginn 27. ágúst, verður jarðsungin frá Digraneskirkju þriðjudaginn 2. september kl. 13.30. Þráinn Árnason, Rebekka Þráinsdóttir, Gunnar Kristinsson, Sigurður Á. Þráinsson, Solveig K. Jónsdóttir, Þór Þráinsson, Valborg Guðmundsdóttir, Þráinn Vikar Þráinsson, Hulda M. Schröder, barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, FLÓRA BALDVINSDÓTTIR, Ási í Hveragerði, áður til heimilis á Siglufirði, lést á heimili sínu mánudaginn 25. ágúst. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðviku- daginn 3. september kl. 15.00. Einnig er fyrirhuguð kveðjuathöfn frá Siglu- fjarðarkirkju og verður hún auglýst síðar. Valtýr Jónasson, Jónas Valtýsson, Vigdís S. Sverrisdóttir, Guðrún Valtýsdóttir, Baldvin Valtýsson, Laufey Ása Njálsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar, FREYJA JÓNSDÓTTIR, Hverfisgötu 50, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 3. september kl. 15.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á kvenlækninga- deild 21A, Landspítala. Ármann Örn Ármannsson, Dögg Ármannsdóttir, Drífa Ármannsdóttir. Við leituðum að ljóðum sem gætu átt við en fundum engin því ekki voru þau rituð um þig og lítið er víst um málshætti um afa, en við höldum að ástæðan sé sú að það eru afarnir sem semja þá. Það eitt að þú skulir hafa verið afi okkar gerði þig að einni af mik- ilvægustu manneskju í okkar lífi en það var líka það eina sem við þurftum að þú værir. Við kveðjum þig nú, elsku afi. Þórey Björk Sigurðardóttir og Sævar Pálmi Sigurðsson. HINSTA KVEÐJA ✝ Pálmi Kárasonfæddist í Ár- bakka í Hrafnagils- hreppi í Eyjafirði 2. september 1929. Hann lést á Landspít- ala – háskólasjúkra- húsi við Hringbraut 19. júlí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Kári Sigurbjörnsson, f. 20. júní 1908, d. 15. nóvember 1991, og Jónína Sigrún Pálmadóttir, f. 20. júlí 1911, d. 10. ágúst 1993. Pálmi á einn al- bróður, Lúkas, f. 29. ágúst 1931, en samfeðra systkini hans eru Huldrún, f. 15. júní 1934, d. 11. apríl 1935; Þorsteinn, f. 26. maí 1944; Margrét, f. 7. desember 1947; og Sigurbjörn, f. 10. júní 1952, og sammæðra systkini eru Alda Jensdóttir, f. 29. ágúst 1933; d. 18. febrúar 2002; Ragnar Jens- son, f. 26. desember 1934, en hann lést ungur að aldri; Guðrún Jens- dóttir, f. 5. september 1936; Jó- hanna Jensdóttir, f. 8. október 1937; Ragnar V. Ingibergsson, f. 5. apríl 1945; og Sigrún Anna Ingibergsdóttir, f. 27. febrúar 1947. Hinn 7. október 1956 kvæntist Pálmi Þóreyju Haralds- dóttur, f. 7. ágúst 1930. Foreldrar hennar voru Harald- ur Jónsson, f. 6. ágúst 1885, d. 22. desember 1954, og Guðrún Valborg Haraldsdóttir, f. 5. desember 1901, d. 20. september 1990. Pálmi og Þórey eiga fjögur börn. Þau eru: 1) Sigurður, f. 25. júlí 1956, sam- býliskona Inga Árnadóttir, börn Þórey Björk og Sævar Pálmi, barnabarn Danía Margrét Helga- dóttir; 2) Sævar, f. 17. febrúar 1958, d. 30. september 1977; 3) Jónína Sigrún, f. 31. júlí 1961, börn Theódór Óskarsson, Arn- heiður Rós Óskarsdóttir, Pétur Óskarsson og Pálmi Óskarsson; 4) Valdís, f. 10. desember 1965, sam- býlismaður Ingólfur Björnsson, börn Daníel Páll Kjartansson, Þórunn Ingólfsdóttir og Ásgeir Ingólfsson. Útför Pálma var gerð frá Bústaðakirkju 24. júlí og fór fram í kyrrþey. Pálmi bróðir. Við sem þekktum þig í lifanda lífi vitum öll að það sem þú síst óskaðir að þér látnum væru minningargreinar sem dásömuðu þig í bak og fyrir. En ég ætla nú samt að leyfa mér að minnast þín með nokkrum fátæk- legum orðum. Ég tel mig vera einn þeirra sem þekktu þig hvað best. Við vorum alla tíð nánir bræður og góðir vinir. Á okkar yngri árum mátti ganga að því sem vísu að þar sem þú varst í vinnu, hvort heldur til lands eða sjós, þá var mig þar einnig að finna. Ungir lögðum við land undir fót og héldum í víking erlendis þar sem við flæktumst um og unnum saman um tíma. Það mætti fylla nokkrar síður í Morgunblaðinu með sögum og ævintýrum frá þeim árum. Af mörgu er að taka, eins og t.d. þeg- ar við héngum utan á járnbrautar- lest til Óslóar á 100 km hraða af því ekki voru til fjármunir fyrir fari beggja og ekki kom til greina að skilja annan eftir eða kaupa farmiða hálfa leiðina til Óslóar. Eða hvað þú hafðir gaman af að segja mér og öðr- um frá því þegar þú sparkaðir í kú sem lá á miðri akbraut í hafnarborg á Indlandi. Eins og þín var von og vísa vildir þú bara hjálpa lögreglunni í því umferðaröngþveiti sem blessuð beljan skapaði. Hvernig gast þú vit- að að það mætti ekki sparka í þessar heilögu skepnur á Indlandi? Og þú þakkaðir þínum sæla fyrir að vera frár á fæti þegar æstur múgurinn vildi ná til þín. En svona sögur segir maður ekki í minningargreinum svo ég læt hér staðar numið. Ég sakna þín, bróðir. Það tók mig sárt að horfa á þig síðustu misserin berjast vonlausri baráttu við erfiðan sjúkdóm. Þrátt fyrir að við öll vissum að hverju stefndi var fráfall þitt áfall fyrir okkur sem stóðum þér næst. Eins og ég sagði í upphafi varstu lítið fyrir hrós í eigin garð svo ég læt mér nægja að endurtaka það sem séra Pálmi Matthíasson hafði eftir göml- um skipsfélaga við útför þína um daginn. „Hann Pálmi, hann var góð- ur kall.“ Og það er einmitt það sem þú varst alla tíð, góður kall. Ég sendi mínar innilegustu sam- úðarkveðjur til eftirlifandi konu Pálma, Þóreyjar Haraldsdóttur, barna þeirra og annarra afkomenda. Lúkas bróðir. Mig langar til að minnast föður- bróður míns, Pálma Kárasonar, sem lést nýlega eftir erfið veikindi. Pálmi gekk mér nánast í föðurstað um margra ára skeið, þegar ég bjó hér á landi en foreldrar mínir erlendis. Var mér mjög hlýtt til Pálma og eig- inkonu hans, Þóreyjar Haraldsdótt- ur, enda reyndust þau mér afar vel. Börn þeirra voru mér sem systkini og hafa verið meðal minna bestu vina frá barnsaldri. Heimili Pálma og Þóreyjar sem lengst af var í Langagerði 22 var fastur punktur í tilveru minni og systkina minna, Péturs og Karenar, á meðan talsvert var um flutninga á fjölskyldu okkar, bæði innan lands og milli landa. Það var gott fyrir mig sem unga stúlku að eiga Pálma að og þótt við værum ekki alltaf sammála um lífið og tilveruna, þá var gaman að spjalla við Pálma um pólitík og mannlífið almennt. Samræðurnar gátu verið heitar og snarpar en oftar en ekki enduðu þær með hlátri og gleði því Pálmi var húmoristi og gat gert grín bæði að sjálfum sér og öðr- um. Aldursmunurinn sem á milli okkar var hvarf þegar tónlist bar á góma og mér tókst að fá hann til að meta hljómsveitina Queen og hennar lög á meðan sveitin var upp á sitt besta. Eitt af helstu einkennum Pálma frænda var að hann vildi láta lítið á sér bera og lítið fyrir sér hafa, en hugsaði vel um sína nánustu. Hann var ekki mikið fyrir að láta hampa sér eða hrósa en skilaði sínu til sam- félagsins og vel það. Það er með miklu þakklæti en um leið söknuði sem ég kveð ástkæran föðurbróður. Hann er sjálfsagt hvíldinni feginn því síðustu þrjú árin voru honum erfið vegna veikinda, þótt aldrei hafi ég heyrt hann kvarta eða harma hlutskipti sitt. Húmorinn og hressleikinn fylgdi honum fram undir það síðasta. Ég sendi mínar innilegustu samúðarkveðjur til Þóreyjar, Sigga, Ninnu, Valdísar og fjölskyldna þeirra. Guð blessi minningu Pálma Kára- sonar. Rita Kárason og fjölskylda. PÁLMI KÁRASON Elsku Lauga mín. Með eftirfarandi sálmi, sem er mér mjög kær, vil ég kveðja þig og þakka þér fyrir samfylgdina í rúm þrjátíu ár. Ég horfi yfir hafið um haust af auðri strönd, í skuggaskýjum grafið það skilur mikil lönd. Sú ströndin strjála og auða, er stari eg héðan af, er ströndin stríðs og nauða, er ströndin hafsins dauða, og hafið dauðans haf. GUÐLAUG SVEINSDÓTTIR ✝ Guðlaug Sveins-dóttir fæddist á Skaftárdal á Síðu 12. febrúar 1916. Hún lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Klausturhólum á Kirkjubæjarklaustri 14. júní síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Prests- bakkakirkju á Síðu 21. júní. En fyrir handan hafið þar hillir undir land, í gullnum geislum vafið það girðir skýjaband. Þar gróa í grænum hlíðum með gullslit blómin smá, í skógarbeltum blíðum í blómsturlundum fríðum má alls kyns aldin sjá. Er þetta hverful hilling og hugarburður manns? Nei, það er fögur fylling á fyrirheitum hans, er sýnir oss í anda Guðs eilíft hjálparráð, og stríðsmenn Guðs þar standa við stól hins allvaldanda. Þar allt er eilíf náð. (Valdimar Briem.) Ég bið góðan guð að geyma þig í sínum náðarfaðmi og vera með okk- ur öllum sem syrgjum þig. Ég sakna þín af öllu mínu hjarta. Þín Ester Guðlaug. AFMÆLIS- og minningar- greinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning- @mbl.is, svar er sent sjálf- virkt um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út- prentun að fylgja. Nauðsyn- legt er að tilgreina símanúm- er höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heimasíma). Ekki er tekið við handskrif- uðum greinum. Um hvern látinn einstakling birtist ein aðalgrein af hæfi- legri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar séu um 300 orð eða 1.500 slög (með bilum) en það eru um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitn- anir í sálma eða ljóð takmark- ast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Grein- arhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum. Frágangur afmælis- og minning- argreina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.