Morgunblaðið - 31.08.2003, Blaðsíða 26
LISTIR
26 SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Auglýsendur!
Sérstakt blað um miðborgina fylgir Morgunblaðinu
laugardaginn 6. september.
Pöntunarfrestur auglýsinga er til kl. 12 þriðjudaginn
2. sept. Skilafrestur er til kl. 16 þriðjudaginn 2. sept.
Umfjöllunarefni er miðborg Reykjavíkur og hið
fjölskrúðuga mannlíf sem þar er að finna.
Verslun • kaffihús • heilsurækt
veitingar • listmunir • þjónusta
Hafið samband við auglýsingadeild Morgunblaðsins
í síma 569 1111 eða á augl@mbl.is
DRENGJAKÓR Neskirkju er nú að
hefja sitt fjórtánda starfsár og verða
umtalsverðar breytingar gerðar á
starfsemi kórsins. Stofnuð verður
„eldri deild“ við kórinn, þannig að
hann breytist í blandaðan drengja-
kór (svokallaðan enskan drengja-
kór). Jafnframt verður hleypt af
stokkunum undirbúningsdeild á veg-
um kórsins, en hún er ætluð ungum
drengjum, 6–8 ára, sem ekki hafa
áður komið nálægt kórsöng.
„Við ætlum að stækka kórinn og
fá inn aftur eldri kórfélaga sem hafa
hætt og eru nú komnir í mennta-
skóla og alveg upp í tvítugt. Þá
breytist kórinn og verður blandaður
kór, sópran, alt, tenór og bassi,“ seg-
ir stjórnandi kórsins Friðrik S.
Kristinsson, sem nú er að hefja sitt
tíunda starfsár með kórnum.
„Drengirnir, sem áður voru í kórn-
um, hafa sýnt því mikinn áhuga að
koma aftur. Með því að breyta kórn-
um fá þeir tækifæri til þess að halda
áfram en ekki hætta eftir fermingu
eins og tíðkast hefur. Ég ætla að
verða við þessari beiðni og leyfa
þeim að syngja með og nota kunn-
áttuna sem þeir hafa öðlast. En það
er allt annað að stjórna blönduðum
kór, en þetta eru sömu strákarnir.
Ég hlakka mikið til að takast á við
þessar breytingar.“
Hefð er fyrir SATB-drengjakór-
um (sópran, alt, tenór, bassi) í lönd-
unum í kringum okkur, t.d. í Eng-
landi, en þar er hefðin hvað ríkust.
Einnig hefur svona form gefist mjög
vel í Danmörku. Eldri deild var
reyndar stofnuð 1998 á meðan kór-
inn var enn í Laugarneskirkju. Sú
deild starfaði í tvö ár og voru fimm
tenórar og sex bassar í henni. Þann-
ig skipaður fór kórinn í söngferð til
Englands og Austurríkis. Eldri
deildin mun æfa með yngri drengj-
unum á annarri hverri æfingu í vet-
ur, þ.e. á miðvikudögum.
„Drengjakórinn hefur alla tíð
fundið til þess hve lítið hefur í raun-
inni verið skrifað af tónlist fyrir slík-
an kór sem DKN hefur lengst af ver-
ið, þ.e. tvær sópranraddir og
altrödd. Þetta hefur sett verkefna-
vali nokkrar skorður,“ segir Friðrik.
Allt öðru máli gegnir um SATB-kór.
Þar er af nógu að taka hvað verkefni
varðar.
„Kórinn mun ávallt koma fram í
fullri stærð, þ.e. SATB, og mun sem
fyrr annast messusönginn í Nes-
kirkju einu sinni í mánuði. Um starf-
ið í vetur má að öðru leyti segja að
ráðgert er að DKN verði gestur á
jólatónleikum Karlakórs Reykjavík-
ur í Hallgrímskirkju í desember nk.
Farið verður í æfingabúðir eina
helgi í febrúar, eitthvað út fyrir
borgina að venju. Áætlaðir eru stór-
ir vortónleikar í Neskirkju. Flutt
verður þá m.a. eitthvert stórvirki
kórtónbókmenntanna, að líkindum
við undirleik hljómsveitar.
Stefnt er að utanlandsferð í sum-
ar, en DKN hefur haldið þeirri hefð
að ferðast út fyrir landsteinana ann-
að hvert ár. Síðast fór hann til Dan-
merkur vorið 2002. Þess á milli hefur
hann farið í söngferðalag innan-
lands. Síðastliðið vor fór kórinn til
Akureyrar og flutti þar í Akureyr-
arkirkju dagskrána frá vortónleik-
unum. Ekki hefur á þessari stundu
verið ákveðið hvert haldið skal á vori
komanda, en það verður örugglega
til einhvers Evrópulands.“
Undirbúningsdeild snáða
Önnur breyting er líka á döfinni
hjá DKN. Nú verður stofnuð und-
irbúningsdeild fyrir væntanlega kór-
félaga. Hún er ætluð byrjendum í
kórsöng, einkum 6–8 ára. Æfð verða
létt lög (einrödduð) og kennd und-
irstaða í tónfræði og nótnalestri,
hrynæfingar o.fl. Félagar í undir-
búningsdeildinni munu koma fram í
messu einu sinni fyrir jól og einu
sinni eftir jól.
Undirleikari kórsins er Lenka
Mátéova.
Prufusöngur og innritun í deildir
verður í Neskirkju á mánudag kl.
17–19. Kórinn er ekki bundinn sókn-
armörkum Neskirkju heldur opinn
öllum drengjum sem hafa yndi af
söng og tónlist.
Breytingar á starfsemi Drengjakórs Neskirkju við upphaf fjórtánda starfsársins
Sömu strákarnir
koma aftur
Morgunblaðið/Sverrir
Drengjakórinn á æfingu með stjórnanda sínum, Friðriki S. Kristinssyni.
SÝNINGIN Landnám og Vínlands-
ferðir var opnuð í Þjóðmenning-
arhúsinu vorið 2000 þegar húsið
var opnað eftir gagngerar breyt-
ingar. Sýningunni lýkur í lok sept-
embermánaðar. Sýningin var hluti
af dagskrá Reykjavíkur menning-
arborgar Evrópu árið 2000 og
styrkt af Landafundanefnd.
Þar er fjallað um siglingar og
landafundi víkinga. Sérstök áhersla
er lögð á landnám Íslands og Græn-
lands og Vínlandsferðir. Rakið er
hvernig heimsmynd víkinga ger-
breyttist við landafundi í Norður-
Atlantshafi og kristnitöku svo líkja
má við ragnarök. Leiðarljós sýning-
arinnar er daglegt líf og aðstæður
fólks, tæknikunnátta, verklag og
andlegur menningararfur.
Sýningar í Þjóðmenningarhúsinu
eru opnar alla daga frá kl. 11 – 17.
Sérstök áhersla er lögð á leiðsögn
nemendahópa um sýningar. Frek-
ari upplýsingar má nálgast á vef-
slóðinni www.thjodmenning.is.
Landnámssýningu að ljúka
Morgunblaðið/Brynjar Gauti