Morgunblaðið - 31.08.2003, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 31.08.2003, Qupperneq 14
14 SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ É G er lagahöfundur og vil vinna samkvæmt því. Markaðssetn- ingin á mér var röng, ímyndin var farin að skyggja á innihald- ið. Ég vildi vera sjálfri mér trú, en allt í einu var ég farin að sjá myndir af mér í flegnum bolum framan á blöðum. Þá sá ég að ég var á rangri braut. Ég sé reyndar ekki eftir neinu, enda tók ég auðvitað fullan þátt í þessu, en mér fannst þessi ímyndarsmíð vera farin að ráða of miklu,“ segir Védís Hervör Árnadóttir, lagahöfundur og söngkona. Védís Hervör gaf út hljómplötu með eigin lögum og texta árið 2001. Hún hafði þá tekið þátt í uppfærslum í Verzlunarskóla Íslands, meðal annars í sýningunni Wake me up before you go go og sungið lag í kvikmyndinni Íslenski draumurinn. Hún var aðeins 19 ára þegar hljómplatan, In The Caste, kom út og segir sjálf að hlutirnir hafi gerst of hratt og tekið ranga stefnu að hennar mati. „Ég ákvað að taka allsherjar frí frá íslenska tónlistarmark- aðnum þegar ég útskrifaðist frá Verzlunar- skólanum vorið 2002. Ég vildi gefa mér nægan tíma til að átta mig á hvernig ég vildi haga framhaldinu,“ segir hún. Hún var samningsbundin Skífunni. „Þar starfar margt gott fólk, en ég fann að ég varð að taka ákvarðanir um framhaldið sjálf til að tryggja að það yrði eins og ég vildi. Samning- urinn kvað á um að ef Steinar Berg léti þar af störfum væri ég laus allra mála. Þegar hann hætti ákvað ég því að virkja þetta ákvæði. Skíf- an var á þessum tíma að vinna að útrás, ætlaði til dæmis að koma mér, Svölu Björgvins og Landi og sonum á framfæri erlendis. Mér fannst ég ekki eiga heima þarna og vildi ein- beita mér að eigin þroska.“ Frjáls og líður vel Eftir stúdentsprófið fór Védís Hervör í út- skriftarferð til Spánar með skólafélögunum. Hún sneri ekki heim aftur, heldur fór til systur sinnar í London og hefur verið þar meira eða minna síðan. Í London fór Védís að „taka til í sjálfri sér“ eins og hún orðar það. „Ég hef alltaf viljað starfa við tónlist, en það er hægt að gera á svo margan hátt. Í London leitaði ég til nokkurra útgefenda og kom mér sjálf á framfæri. Ég leyfði þeim að heyra plötuna mína, en núna er ég reyndar að vinna allt öðruvísi tónlist. Reyndar rak ég mig strax á það í London að þar vilja menn líka horfa dálítið á ímyndina. Þar voru menn ánægðir að sjá að ég væri ljós- hærð, bláeyg og hávaxin og vildu gera sem mest úr því. Mér gekk erfiðlega að fá þá til að horfa framhjá því. Ég kæri mig ekkert um að gera út á útlitið, vil heldur að karakterinn skíni í gegn.“ Védís er samningslaus í London, „frjáls og líður vel“ að eigin sögn. „Ég fékk hins vegar er- lenda fjárfesta á bak við mig, sem eru tilbúnir til að leggja fé í upptökur. Ég hef aðallega starfað með tveimur Bretum, upptökustjórum sem kalla sig Rainmaker. Þeir halda utan um vinnslu laganna með mér og við köllum til hljóðfæraleikara ef þarf.“ Sjálf spilar Védís á píanó og gítar, auk þess að syngja. „In The Caste var eins konar popp- plata, en ég veit ekki hvernig ég á að lýsa tón- listinni minni núna. Hún er alla vega ekki eins poppuð. Ég reyni að hafa hana einfalda og heiðarlega og rembist ekkert við að elta ein- hverja stefnu. Þetta eru lögin mín, einhvers konar Védísarblús. Ég sem lögin sjálf, ýmist á píanó eða gítar, og bæti litlu við þau í hljóðveri, selló hér og bassi þar, en með einfaldleikann í fyrirrúmi.“ Kvöldsvæf söngkona Hérna heima er Védís líka að vinna að tón- listinni, samhliða starfi á elliheimilinu Grund. „Ég hef verið heima síðan í maí og er að gæla við að vera hérna á næstunni, að minnsta kosti með annan fótinn. Ég finn að ég verð sífellt meiri Íslendingur, eftir því sem ég er lengur úti. Hérna er lífið miklu eðlilegra. Tónlistar- heimurinn úti er ekki hreinn og beinn og ég er mjög ósátt við ýmislegt og vil ekki taka þátt í því. Ég kæri mig ekki um eiturlyf eða það óhóf sem fylgir tónlistarheiminum úti. Í London þarf að mæta í partý til að hitta menn sem þekkja menn. Ég uppgötvaði úti að þessi vegur er vandrataður, en hef fulla trú á því að hægt sé að finna réttu leiðina, það er sneiða fram hjá því, sem manni líkar ekki, en samt ná árangri. Ég vil láta tónlistina tala, en ekki eyða öllum þessum tíma í að láta sjá mig hér eða þar. Það á ekki við mitt lundarfar, fyrir nú utan að ég er algjör kúrikerling og tek auðveldlega róleg- heitin fram yfir djammið á góðu kvöldi!“ Védís segir að þótt hún syngi núna lögin sín sjálf gæti allt eins komið til greina að hún ynni sem lagahöfundur fyrir aðra flytjendur. Og þó. „Ég á óskaplega erfitt með að sleppa hendinni af lögunum mínum. Þau eru svo persónuleg og mér finnst auðvitað að ég ein geti komið þeim til skila. En þetta gæti kannski breyst.“ Hún hefur aldrei starfað í hljómsveit, þótt hún reikni með að setja saman sveit til að kynna næstu plötu þegar þar að kemur. En hún er ekki sniðin að sveitaböllunum. „Ekki það að ég hafi neitt á móti ballhljómsveitum, enda ófá skiptin sem ég hef skemmt mér á slík- um böllum. Birgitta Haukdal og Írafár hafa til dæmis unnið gríðarlega mikið og eiga alla sína velgengni skilið. Hið sama hentar hins vegar ekki öllum, sem betur fer. Svo er ég svo kvöld- svæf að ég gæti aldrei spilað á balli fram á rauðanótt. Það er hætt við að það yrði heldur lítið stuð. Og það er heldur ekkert spaug að þurfa að syngja í reykjarkófi langt fram eftir nóttu. Ég hef bæði kynnst því sjálf og mamma, sem er talmeinafræðingur, hefur nú heldur betur leitt mig í allan sannleika um það. Þar fyrir utan er þetta ekki sú tónlistarstefna sem ég fylgi.“ Enginn heilaþvottur Þrátt fyrir að hafa ætlað að taka allsherjar frí frá íslenskum tónlistarheimi hefur Védís stigið á svið hér af og til, auk þess að syngja með nokkrum öðrum söngkonum á jólaplötu fyrir síðustu jól. Hún söng líka á VivaVerzló, tónlistarhátíð þar sem fyrrverandi nemendur Verzlunarskólans létu ljós sitt skína. „Ég reyni að velja þessi verkefni vandlega, því ég vil ekki vera alltaf alls staðar. Á tímabili voru myndir af mér á strætóskýlum og lá við að plötunni minni væri dreift með pylsupökkum. Þá sá ég að nóg var komið, ég vil ekki að fólk hlusti á tónlistina mína af því að henni er troðið upp á það. Það hefur aldrei verið markmið mitt að heilaþvo fólk!“ Hún ætlar ekki að gefa plötuna sína út á næstunni. „Ég veit ekkert hvenær hún kemur út. Ég er í miðjum samningaviðræðum og er ekkert að flýta mér. Ég nenni alla vega ekki að fara í einhverja blautbolakeppni í þágu mark- aðssetningar. Ég er orðin ótrúlega þreytt á því hvað rassa- og brjóstasýningar eru farnar að skyggja á tónlistina. Að hluta tók ég þátt í þessu sjálf, enda fannst mér ekkert að því að vilja vera hugguleg þegar ég auglýsti plötuna mína, en það skiptir bara svo miklu máli að halda í taumana sjálfur og láta ekki stjórnast af umhverfinu í svona efnum.“ Þótt Védís hafi aldrei starfað í hljómsveit er hún á leið í tónleikaferð með Barða Jóhanns- syni og hljómsveit hans, Bang Gang. „Barði er að fara um Evrópu í nóvember og febrúar og það verður gaman að breyta til og ferðast með honum. Hann verður með fullskipaða hljóm- sveit og núna er hann farinn að syngja mikið sjálfur. Mér hefur alltaf gengið vel að vinna með Barða og ég kann sérstaklega vel að meta hvað hann hefur ópoppstjörnuleg viðhorf. Ég er alveg á því að það sé best að segja sem minnst og láta verkin tala.“ Gefandi starf á Grund Í ágúst hóf Védís störf á elliheimilinu Grund, en þar starfaði hún líka síðasta sumar. „Ég hef oftast þurft að vinna eitthvað með tónlistinni. Þótt hún gefi mér mikið þá styður Lánasjóður íslenskra námsmanna ekki svona sjálfsnám! Mér finnst mjög gott að starfa á Grund. Það á alla vega miklu betur við mig en að vinna í verslun. Það hentar auðvitað sumum en fyrir mig sem tónlistarmann er erfitt að finna inn- blástur í þannig vinnu. Það eru forréttindi að vinna störf þar sem hægt er að leggja eitthvað af mörkum til að hjálpa öðrum. Ég verð að gera eitthvað gefandi, annars get ég alveg eins sleppt því. Eftir að ég vann á Grund síðasta sumar vissi ég að þar vildi ég vinna aftur. Mér finnst gott að koma heim eftir erfiðan vinnudag og vita að svitinn og tárin voru þess virði og að ég hef lagt eitthvað af mörkum sem skiptir máli. Svo er starfsfólkið þarna líka alveg frá- bært og við hlæjum mikið saman.“ Védís tekur stundum lagið fyrir heimilisfólk- ið á Grund. „Ég á líklega eftir að stíga á svið einhverja morgunstundina, þegar fólkið syng- ur saman. Tónlistin hefur svo góð áhrif á fólk. Margir heimilismenn á Grund, sem þjást af elliglöpum, hlusta á tónlist allan daginn og syngja með. Þá er greinilegt að þeir eru með á nótunum.“ Gamalt og gott Uppáhaldstónlist Védísar er gamall djass og blús. „Það gefur mér mikla orku og gleði að hlusta á fólk eins og Louis Armstrong, Billie Holiday og Ellu Fitzgerald, svo dæmi séu tek- in. Ég hlusta líka á klassíska tónlist, gamalt hip hop og eitthvað af því sem er að gerast í dag og er til dæmis mjög ánægð með sum íslensk bönd, eins og Bang Gang, Sigur Rós, Maus, Trabant og Leaves. Og áfram get ég talið. Ég vil ekki vera með neitt yfirlæti en mér finnst lítið varið í megnið af þeirri tónlist sem boðið er upp á í dag. Það fer sérstaklega í taugarnar á mér að geta ekki notið lags vegna myndbands sem höfðar eingöngu til kynlífs. Það pirrar mig ótrúlega og mér líður betur að halla mér að eldri tónlist.“ Í sumar fór Védís á tónlistarhátíðina í Hró- arskeldu. „Þar sá ég meðal annars Dave Gah- an, forsprakka Depeche Mode. Svo var Sigur Rós alveg brilljant. Reyndar eru margar ís- lenskar hljómsveitir að gera það gott, þótt þær fái ekki neina spilun í útvarpsstöðvunum hér heima nema þá helst á Rás 2.“ Hún segist ekki hafa skilgreint hvaða tónlist henti henni best í söng. „Mér finnst ég geta sungið flest, en það þurfa ekkert allir að vera sammála því. Ég hef sungið mjög fjölbreytt lög í gegnum tíðina og haft gaman af því. Ég kom fyrst fram á sjónarsviðið þegar ég söng lög eft- ir Wham!, Michael Jackson og fleiri poppara í Verzlunarskólanum. En áður söng ég alltaf í kór.“ Kórinn var Grensáskirkjukór, undir stjórn Margrétar Pálmadóttur. „Það má eiginlega segja að Margrét hafi alið mig upp sem söng- konu. Hún er frábær stjórnandi, lifir sig inn í tónlistina af ákafa, alltaf brosandi og hrífur fólk með sér. Allt það góða sem ég geri sem söngkona kemur óbeint frá henni. Hún er al- veg frábær og ég get ekki þakkað henni nóg.“ Raunhæfari draumar Védís er nokkuð sátt við sjálfa sig þessa dag- ana. „Mér finnst ég hafa þroskast verulega frá því að ég gaf út plötuna mína og útskrifaðist frá Verzló. Draumarnir um þennan bransa og að slá í gegn eru miklu raunhæfari. Núna vinn ég að tónlistinni tónlistarinnar vegna.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Ég vil láta tónlistina tala Védís Hervör Árnadóttir tók sér frí frá íslenskum tónlist- arheimi þegar henni fannst sem ímyndin væri farin að skyggja á tónlistina. Hún sagði Ragnhildi Sverrisdóttur frá Védísarblús, starfinu á elli- heimilinu Grund og raunhæf- um framtíðardraumum um tónlistina. rsv@mbl.is „Ég er orðin ótrúlega þreytt á því hvað rassa- og brjóstasýningar eru farnar að skyggja á tónlistina,“ segir Védís Hervör Árnadóttir og telur mikilvægt fyrir tónlistarfólk að halda í taumana sjálft og láta ekki stjórnast af umhverfinu í svona efnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.