Morgunblaðið - 31.08.2003, Síða 21
Í ljósi þessa rifjaðist upp frá því í
umræðunni í vetur hversu margir
óvissuþættir þjaka þessa stærstu og
dýrustu framkvæmd Íslandssögunn-
ar eins og t.d. hversu traust er Impr-
egilo? Hversu traust er bergið undir
stíflustæðinu? Hversu traustar eru
spár um álverð, sem Landsvirkjun
byggir arðsemismat sitt á? Mun ál-
verð örugglega snarhækka árið
2007? Vonandi, því verðið á rafork-
unni okkar er beintengt því. Hversu
traustar eru mótvægisaðgerðirnar
gegn uppblæstri og jarðvegseyðingu
af völdum Hálslóns, sem ógnar öllu
gróðurlendi á stórum hluta Norð-
austurlands? Hversu sterk er fé-
lagsgerðin og aðrar atvinnugreinar á
Austurlandi að taka á móti stóriðju
og öllu þessu erlenda vinnuafli? Einn
nefndi Rammaáætlun um nýtingu
vatnsafls og jarðvarma, þar sem
Kárahnjúkavirkjun kom út sem einn
alversti virkjunarkosturinn á land-
inu vegna umhverfisskemmda. Ekki
furða að Skipulagsstofnun hafi ein-
dregið lagst gegn virkjuninni.
Hvað um ímynd Íslands? spurði
einn í hópnum, og hvað um sjálfs-
mynd okkar? Hefðum við eignast
Halldór Laxness, Kjarval, Björk án
ósnortins hálendisins? Ein úr hópn-
um skrifaði nú eftir að við komum
heim: ,,Hingað til höfum við, kynslóð
eftir kynslóð greipt óbyggðirnar í
undirmeðvitundina. Það að eiga
ósnerta óræða stærð af víðáttu,
óbyggðum, hefur verið ákveðinn
hornsteinn að íslenskum þjóðar-
karakter sem hefur mótast af þess-
ari vitund um óbyggðir, þetta stóra
yfirnáttúrulega svæði sem getur
verið hvort heldur sem er himnaríki
eða hvelvíti. Eftir því sem við dvöld-
um lengur á þessum yndislega stað
varð tilhugsunin um að hann myndi
brátt hverfa nánast óbærileg.“
Beðið fyrir hálendinu
Við tókum fimmta daginn
snemma. Það hafði rignt um nóttina
og enn rigndi. Nú var að hafa hrað-
ann á, vera rösk því framundan var
að ganga aftur yfir jökul og var leiðin
lengri en síðast. Tíu klukkustunda
dagleið fram undan þar af 9 km á
jökli. Við náðum fljótt að jökulbrún.
Nú var að nesta sig og broddbúa.Viti
menn, sólin braust fram úr skýjun-
um. Hún ætlaði sér greinilega að
fylgja okkur yfir jökulinn. Geislar
hennar yljuðu kinn og léttu lund.
Gengið var í vesturátt og stefnan
tekin á Grágæsadal. Upp með sól-
gleraugu, derhúfur og sólvörn mak-
að á nefbrodda, kinnar og varir.
Á móti okkur streymdi ferskur
svali jökulsins og óvænt gleði yfir
þeim litum og formum sem ásjóna
hans býður upp á. Oft var staðnæmst
til að njóta og varð maður hljóður yf-
ir rausn útsýnisins – við blöstu
Kverkfjöllin, Fagradalsfjall, Herðu-
breið, Snæfell og öll Brúaröræfin.
Við jökulrótina komum við að jökulá
sem við óðum undir styrkri stjórn
leiðsögumannanna og þaðan gengum
við síðasta spölinn að rútunni. Ekið
var inn í Grágæsadal, sem reyndist
vera unaðsfagur reitur mitt í upp-
blásnu hálendinu, sem er svo ein-
kennandi fyrir hálendið vestan Jök-
ulsár á Brú. Þar hittum við fyrir
Völund Jóhannesson, sem hafði
dregið íslenska fánann að húni og
tók okkur fagnandi með heitt á könn-
unni. Hann bauð hópnum að dvelja
eina nótt á þessum griðastað þar
sem hann hefur ræktað garð með
jurtum og blómum í um 640 metra
hæð yfir sjávarmáli. Þar mátti m.a.
finna rabarbara, stjúpur og fjólur,
skessujurt og risavalmúa. Í garði
sínum hefur Völundur reist um 6 fer-
metra bænahús í torfbæjarstíl og
þangað fór allur hópurinn, sjö og sjö
í einu, og bað fyrir hálendinu. Hver
veit nema við verðum bænheyrð? Að
góðum sið var slegið upp grillveislu
um kvöldið, skrafað, rætt og sungið
fram á rauðan morguninn.
Það tapa allir á virkjun
Hálendið norðan Vatnajökuls –
stærstu ósnortnu víðerni Evrópu –
býr yfir töfrum, líkt og Þingvellir
búa yfir helgi. Þarna uppi á hálend-
inu er eins og náttúran ein ríki, við
erum hennar börn og tilfinningin er
hamingja. Þetta er hamingju-auð-
lind, endurnýjanleg auðlind sem er
stöðugt að verða fágætari, eftirsókn-
arverðari og dýrmætari.
Tilgangurinn með Kárahnjúka-
virkjun er að hún beri arð, en miklar
efasemdir hafa komið fram um arð-
semismat Landsvirkjunar. Raun-
sætt mat hagfræðinga, sem þó miða
við forsendur Landsvirkjunar, sýnir
tap upp á 40–50 milljarða. Því viljum
við, sem eigendur/hluthafar í Lands-
virkjun, að birt verði reglulega 6
mánaða uppgjör, líkt og gert er hjá
öðrum fyrirtækjum. Ef í ljós kemur
að verkefnið verður ekki arðbært og
að við töpum að lágmarki 40–50
milljörðum króna skorum við á til-
heyrandi yfirvöld að gefa okkur
landsmönnum, eigendum hálendis-
ins, tækifæri á að velja milli eftirfar-
andi kosta í þjóðaratkvæðagreiðslu:
Kostur A) Borga a.m.k. 40–50
miljarða með rafmagninu til Alcoa
eða
Kostur B) Nota hluta af þessari
sömu upphæð til að rifta samningn-
um við Alcoa og kaupa þar með til
baka það landsvæði sem selt hefur
verið undir Hálslón.
Í kaupbæti munum við hlífa Norð-
austurlandi við náttúruhamförum og
landauðn vegna uppblásturs af völd-
um hins 57 ferkm. lóns. Afganginn af
40–50 miljörðunum getum notað til
að styðja við atvinnulífið á Austfjörð-
um. Til eru hugmyndir um að reisa
þar háskóla, efla má ferðamennsku
auk alls þess frumkvæðis sem Aust-
firðingar búa sjálfir yfir.
Gönguferð okkar í hjarta þessa
stærsta ósnortna víðernis Evrópu
hafði djúpstæð áhrif á okkur, meiri
en við gátum átt von á. Hverfi þetta
land, getum við vitnað um að Ísland,
og þeir sem það munu byggja, mun
missa mikið með ófyrirsjáanlegum
afleiðingum. Enginn veit hvað átt
hefur fyrr en misst hefur.
Að lokum viljum við þakka Ástu
og Ósk fyrir næma og skemmtilega
leiðsögn.
Þessi grein er sett saman úr mörgum
mismunandi greinum. Í ritstjórn voru:
Þóra Leósdóttir iðjuþjálfi, Þuríður Ein-
arsdóttir kvikmyndagerðarmaður og
Anna Líndal myndlistarmaður og pró-
fessor við Listaháskóla Íslands.
! !
"
#
$
#
&
'(
*
+
)
&
&
&*
#
"
#
$
- .-/
Dagleiðir gönguhópsins.
Ferðafélagar Augnabliks á Kringilsárrana.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 2003 21
Heimsferðir kynna nú sína glæsilegustu vetraráætlun frá upphafi
og nýir spennandi ferðamöguleikar á hagstæðari kjörum en áður
hafa sést á íslenskum ferðamarkaði. Nú getur þú valið um beint
flug til Kanaríeyja í allan vetur á stórlækkuðu verði, en Heims-
ferðir lækka verðið frá því í fyrra um allt að 30% milli ára, eða
einstök tilboð í sérflug okkar til Kúbu og Jamaica í Karíbahafinu.
Nú bjóðum við annað árið í röð bein flug til Salzburg í Austur-
ríki, sem er örstutt frá bestu skíðasvæðum Austurríkis, Zell am
See, St. Anton og Lech á betra verði en nokkru sinni fyrr og úr-
val frábærra hótela. Njóttu heimsins í vetur og tryggðu þér gott
frí á frábærum kjörum.
Vetrar-
ævintýri
Heimsferða
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Kanarí
Vikulegar ferðir
í vetur
Verð kr. 27.762
Beint flug til Jamaica
Nú í fyrsta sinn frá Íslandi er í
boði beint leiguflug til paradísar-
eyjunnar Jamaica í Karíbahafinu.
Hér upplifir þú einstakt andrúms-
loft og ótrúlega stemmningu sem
á engan sinn líka. Glæsilegur að-
búnaður í boði fyrir Heimsferða-
farþega. Sjá bækling Heimsferða
með Morgunblaðinu í dag.
Beint flug til Salzburg
Nú bjóða Heimsferðir beint flug
til Salzburg, en borgin liggur rétt
við bestu skíðalönd Austurríkis
og örstutt að fara til Zell am See,
St. Anton eða Lech, sem eru með
bestu skíðasvæðum heimsins.
Kúba
Frá kr. 98.150
Beint leiguflug til
þessarar heillandi eyju.
Jamaica
Frá kr. 89.950
Beint leiguflug í fyrsta
sinn á Íslandi til einnar
fegurstu eyju í
Karíbahafinu.
Siglingar
Frá kr. 145.750
Glæsisiglingar með Costa Cruises í
Karíbahafinu.
í Karíbahafinu
Skíði
Frá kr. 39.950
í Austurríki
Beint flug til
Salzburg
Beint flug til Salzburg þar sem þú
finnur vinsælustu áfangastaðina í
Austurrísku ölpunum, Zell am See,
St. Anton eða Lech.
M.v. hjón með 2 börn, Agaeta Park,
vikuferð, 6.janúar.
Símabókunargjald, kr. 2.000.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800.
Metbókanir til Kanarí
Heimsferðir hafa nú stórlækkað
verðið til Kanarí í vetur og nú
þegar hafa á þriðja þúsund manns
tryggt sér ferðina þangað á ótrú-
legum kjörum. Kynntu þér bestu
verðin og bestu hótelin.
Lægra verð á netinu
Nú getur þú tryggt þé lægsta
verðið til Kanaríeyja með því að
bóka á netinu, en þú sparar
2.000.- kr. á mann, ef þú bókar
og greiðir á www.heimsferdir.is.
Einfalt og öruggt.