Morgunblaðið - 31.08.2003, Page 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 2003 25
SÖGULEG
skáldsaga, Öxin
og jörðin, eftir
Ólaf Gunnarsson
er væntanleg hjá
JPV forlaginu í
haust og fjallar
um píslarvættis-
dauða Jóns bisk-
ups Arasonar.
Í frétt frá for-
laginu segir m.a.:
„Öxin og jörðin geyma þá best.“
Þessi fleygu orð réðu í senn örlög-
um Hólafeðga og íslensku þjóðar-
innar á sextándu öld. Einn kaldan
nóvembermorgun var Jón Arason
biskup hálshöggvinn ásamt sonum
sínum tveimur, Birni og Ara. Með
þessu grimmdarlega ofbeldisverki
hvarf öll mótspyrna gegn hinum
nýja lúterska sið og danska kon-
ungsvaldinu á Íslandi. Í þessari
viðburðaríku sögu er brugðið er
birtu á veraldlega höfðingja eins og
Erlend Þorvarðarson, lögmann,
hinn kvensama Daða í Snóksdal og
skörunginn Þórunni biskupsdóttur.
Synir biskups þurfa að velja hvort
þeir fylgi föður sínum, eigin sann-
færingu eða leysi höfuð sitt.“
Ólafur Gunnarsson hefur sent
frá sér fjölda bóka, m.a. Trölla-
kirkjuna, Blóðakur og Vetrarferð-
ina.
Ný skáld-
saga eftir
Ólaf Gunn-
arsson
Ólafur
Gunnarsson
Á HEIMASÍÐU Bókmenntahátíð-
arinnar www.bokmenntahatid.is er
nú að finna upplýsingar um erlenda
og innlenda höfunda gesti hátíð-
arinnar, dagskrána 7. - 13. sept-
ember auk almennra upplýsinga
um aðra þátttakendur, sögu hátíð-
arinnar og aðstandendur hennar.
Nú hefur verið birt þar ítarlegt
viðtal við Saramago. Viðtalið tók
ítalski bókmenntafræðingurinn
Massimo Rizzante, sem kennir
bókmenntir við háskólann í Fen-
eyjum.
Næstu daga og vikur verður
nýju efni bætt inn á síðuna eftir því
sem tilefni gefst til.
Heimasíða
Bómennta-
hátíðar
HELGA Kristmundsdóttir hefur
opnað sýningu á olíumálverkum í
Baksalnum í Galleríi Fold, Rauðar-
árstíg 14-16. Einnig hefur verið opn-
uð sýning á ljósmyndum Sigríðar
Bachmann í Ljósfold.
Helga stundaði nám við keramik-
deild Myndlista- og handíðaskóla Ís-
lands 1972-76, vefnaðardeild sama
skóla 1982-86 og málaradeild Århus
kunstakademi í Danmörku 1991-95.
Helga hefur haldið fjölda einkasýn-
inga víðsvegar um Danmörku, svo og
í Þýskalandi, Austurríki, Færeyjum,
Noregi, Belgíu og Svíþjóð. Hún hef-
ur fengið viðurkenningar fyrir list
sína í Danmörku, en þar er hún bú-
sett. Þetta er önnur einkasýning
Helgu Kristmundsdóttur á Íslandi.
Sigríður Bachmann hefur rekið
eigin ljósmyndastofu um árabil. Hún
hefur tekið þátt í nokkrum samsýn-
ingum. Sýningarnar standa til 14.
september.
Í Rauðu stofunni er glerlistasýn-
inga Jónasar Braga Jónassonar og
lýkur henni 31. ágúst.
Fold er opin daglega frá kl. 10-18,
laugardaga til kl. 17 og sunnudaga
frá kl. 14-17.
Olíumálverk og
ljósmyndir í Fold
Helga Kristmundsdóttir með eitt verka sinna.
JPV ÚTGÁFA hefur
sent frá sér tvær
nýjar bækur um
Skúla skelfi í þýð-
ingu Guðna Kol-
beinssonar. Þær
heita: Skúli skelf-
ir gabbar tannálf-
inn og Skúli skelf-
ir fær lús.
Skúli er grallari
af guðs náð og
svo mikill óþekkt-
arangi að hann er
eiginlega hálfgerð
plága. Foreldrar
hans reyna vissu-
lega að siða hann
til en án nokkurs
árangurs. Skúla
hefur þó hvar-
vetna tekist að sigra hug og hjörtu
lesenda jafnt sem gagnrýnenda með
stríðni sinni og strákapörum.
Fyrstu tvær bækurnar um Skúla
skelfi komu út á síðasta ári og hlutu
góðar viðtökur. Skemmtun fyrir
krakka á aldrinum 5-9 ára.
Höfundur bókanna um Skúla skelfi
er breski höfundurinn Francesca Sim-
on en bækur hennar um þennan grall-
ara hafa notið gríðarlegra vinsælda
víða um heim.
Bækurnar eru gefnar út í kiljuformi
og leiðbeinandi útsöluverð hvorrar
bókar er einungis 980 kr.
Krakkagrín
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦