Morgunblaðið - 31.08.2003, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 31.08.2003, Qupperneq 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 2003 39 Föðuramma mín, Margrét Lilja Egg- ertsdóttir, lést eftir stutta sjúkdómslegu hinn 14. ágúst. Hún hafði árum saman átt við margvísleg og oft erfið veikindi að stríða, en samt kom andlát hennar mér á óvart. Hún hafði verið hressari en oft áður í vor og fyrr í sumar þeg- ar við Ragnhildur heimsóttum hana til þess að sýna henni nýja lang- ömmubarnið, Ernu. Amma var hrifin af börnum og var afar stolt af afkom- endum sínum. Faðir minn var elsta barn ömmu og var það henni að sjálfsögðu mikið áfall þegar hann lést aðeins 22 ára gamall. Sjálfur var ég aðeins fimm mánaða þegar það gerðist og í upp- vextinum skipti það mig miklu máli að halda góðum tengslum við föður- fólk mitt. Er ég afar þakklátur bæði ömmu og móður minni, sem mótuðu þau traustu tengsl í upphafi og gættu þess vel að viðhalda þeim. Flestar minningarnar um ömmu tengjast heimsóknum til hennar og afa í Drápuhlíð 13, þar sem þau bjuggu öll sín búskaparár. Ár eftir ár voru þessar heimsóknir í afar föstum skorðum. Ég kom á staðinn fljótlega eftir skóla, drakk síðdegiskaffi með ömmu, beið eftir að afi kæmi úr vinnunni og borðaði svo með þeim kvöldmat. Veitingarnar voru aldrei af verri endanum enda vissi amma upp á hár hvað féll í kramið hjá son- arsyninum. MARGRÉT LILJA EGGERTSDÓTTIR ✝ Margrét LiljaEggertsdóttir fæddist í Reykjavík 12. ágúst 1920. Hún lést á vistheimilinu Seljahlíð 14. ágúst síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Fossvogskirkju 26. ágúst. Í þessum heimsókn- um kynntist ég ömmu og afa afskaplega vel, ekki síst eftir að ég komst á unglingsárin og kaffispjallið tók al- farið við af leikjum og lestri dönsku Andrés- blaðanna. Ég er ekki í vafa um að það hefur verið mjög þroskandi fyrir mig á þessum ár- um að spjalla við þau um alla heima og geima og vera tekinn alvar- lega í samræðunum. Amma var ekki í hópi þeirra sem allt þykjast vita eða gera sér upp skoðanir á öllum málum og eftir á að hyggja lét hún mig oftast hafa orðið þegar ég heimsótti hana. Hún var hins vegar náttúrugreind og skaut oft inn skarplegum spurn- ingum og athugasemdum. Amma mín var fædd og uppalin í Reykjavík og bjó þar til dauðadags. Foreldrar hennar voru Sigurlaug Sigvaldadóttir og Eggert Theodórs- son kaupmaður og var hún eina barn þeirra. Fyrir giftingu vann hún með- al annars við verslunarstörf en eftir að hún giftist afa, Sveini Sveinssyni múrarameistara, einbeitti hún sér að heimilishaldi og barnauppeldi, eins og algengt var um konur af hennar kynslóð. Heimili hennar og afa var afar myndarlegt, enda var amma mjög nákvæm og vildi hafa allt í röð og reglu. Hún hafði unun af fallegum hlutum, skrautmunum, skartgripum og þess háttar og má jafnvel segja að hún hafi verið glysgjörn þegar þann- ig lá á henni. Amma var glæsileg kona á velli og hafði óvenju þykkt og fallegt dökkt hár. Augnaráðið var líka áberandi sterkt og ákveðið. Það er með miklu þakklæti sem ég minnist ömmu Margrétar. Við Ragn- hildur sendum öðrum aðstandendum kærar kveðjur nú þegar hún hefur verið til grafar borin en við gátum ekki verið við útförina vegna dvalar erlendis. Birgir Ármannsson. Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, FANNEY ÁRMANNSDÓTTIR, sem lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja miðviku- daginn 27. ágúst, verður jarðsungin frá Landa- kirkju laugardaginn 6. september kl 14.00. Jóel E. Gunnarsson, Inga Steinunn Ágústsdóttir, Sigurður Jóelsson, Telma Róbertsdóttir, Fanney og Júlía Jóelsdætur, Sara Sól og Arna Sigurðardætur. AFMÆLIS- og minningar- greinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disk- lingi þarf útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heima- síma). Ekki er tekið við hand- skrifuðum greinum. Um hvern látinn einstakling birtist ein aðalgrein af hæfi- legri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar séu um 300 orð eða 1.500 slög (með bilum) en það eru um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitn- anir í sálma eða ljóð takmark- ast við eitt til þrjú erindi. Einn- ig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5– 15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir grein- unum. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsing- um um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Frágangur afmælis- og minning- argreina Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför elskulegs föður míns, tengdaföður og afa, GUTTORMS SIGURBJÖRNSSONAR fyrrverandi forstjóra. Ingvi Kristján Guttormsson, Herdís Þórisdóttir, Guttormur Arnar Ingvason, Eva Írena Ingvadóttir, Áki Elí Ingvason, Hilmir Már Ingvason. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður míns, tengdaföður, afa og langafa, GUNNLAUGS HANNESSONAR, Krummahólum 10, Reykjavík. Séstakar þakkir færum við starfsfólkinu á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki fyrir alúð og góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. Þrúður Ólöf Gunnlaugsdóttir, Óskar Smith Grímsson, Hanna Þrúður Þórðardóttir, Guðmundur Guðmundsson, Gunnþór Tandri Guðmundsson. Alúðarþakkir þeim er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, MARGRÉTAR INGVARSDÓTTUR, Hrafnistu, Hafnarfirði. Kristján Kristjánsson, Vilborg Inga Kristjánsdóttir, Ingvar Kristjánsson, Erla Nielsen, Gíslína S. Kristjánsdóttir, Guðjón Oddsson, Unnur Þ. Kristjánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát móður okkar, SÓLVEIGAR B. GUÐMUNDSDÓTTUR VIKAR, Bugðulæk 10. Sérstakar þakkir til alls hjúkrunarfólks og lækna sem önnuðust hana í veikindunum. Þórhildur Lilja Þorkelsdóttir, Jón Gunnar Þorkelsson, Sigrún Haraldsdóttir, Herdís Þorkelsdóttir, Einar Einarsson, Ágústa Þorkelsdóttir, Ólafur H. Óskarsson, Páll Þorkelsson, Lilja Þorkelsdóttir, Garpur Dagsson og fjölskyldur. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMUNDAR ÓLAFS BÆRINGSSONAR, Höfðagötu 17, Stykkishólmi. Kristbjörg Hermannsdóttir, Hermann Guðmundsson, Sigurlína Sigurbjörnsdóttir, Bæring Jón Guðmundsson, Jóna Gréta Magnúsdóttir, Sigurþór Guðmundsson, Sigrún Hrönn Þorvarðardóttir, Kristinn Breiðfjörð, Elísabet Kristjánsdóttir, Ólöf Guðrún Guðmundsdóttir, Jón H. Gunnarsson, Ágústína I. Guðmundsdóttir, Gunnar Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð, hlýhug, vináttu og stuðning við fráfall og útför ástkærs eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, GRÉTARS NÖKKVA EIRÍKSSONAR kaupmanns, Miðleiti 2, Reykjavík. Þorgerður Arnórsdóttir, Jón Páll Grétarsson, Margrét Jónsdóttir, Eiríkur Grétarsson, Anna Lilja Flosadóttir, Dagur Ingi, Nína og Alda Karen. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra bróður, ÁGÚSTS GUÐLAUGSSONAR, Hafnarstræti 33, Akureyri. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar C á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, fyrir frá- bæra umönnun og góðvild. Guð blessi ykkur öll. Jóhann Guðlaugsson, Lilja Guðrún Guðlaugsdóttir, Jón Guðmundur Guðlaugsson. Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur stuðning og veittu okkur styrk vegna fráfalls okkar ástkæra ÓLAFS KRISTINS SVEINSSONAR, Sellátranesi. Sérstakar þakkir fá Þyrlusveit Landhelgis- gæslunnar og þeir sem aðstoðuðu við leitina. Guð blessi ykkur öll. Guðni Ólafsson, Inga Jóhannesdóttir, Kristín Ólafsdóttir, María Ólafsdóttir, Guðjón Bjarnason, Sveinn Ólafsson, Steinunn Rán Helgadóttir og aðrir aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.